Morgunblaðið - 24.10.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1982
5
Nú er rétti tíminn að yfirfara
skíðaútbúnaðinn
Útílíf
býður ókeypis stillingu á skíðabindingum
í október
Við stillum eftir þyngd (og getu). Þiö komið með skíðin, báöa skóna og
upplýsingar um notanda og við stillum, ykkur aö kostnaðarlausu næsta hálfan
mánuð.
ÖRYGGI FYRIR ALLA
'-K r
utiuf
Glæsibæ, simi 82922.
Claudio Abbado
Á dagskrá sjónvarps kl. 22.30 er
bresk mynd með hljómsveitar-
stjóranum Claudio Abbado.
Abbado var áður stjórnandi
hinnar frægu hljómsveitar Scala-
óperunnar, en er nú aðalhljóm-
sveitarstjóri Lundúnasinfóníunn-
ar. Hann hefur náð óvenju skjót-
um frama sem hljómsveitarstjórn-
andi, því að hann er ekki enn orð-
inn flmmtugur. í myndinni er
fylgst með störfum Abbados, bæði
á æfingum og á hljómleikum og
þar kemur fram fjöldi frægra lista-
manna, einleikara og söngvara.
Abbado er ófeiminn við að fara
með tónlistarmenn sína út fyrir
veggi hinna hefðbundu hljóm-
leikahalla, og hefur t.d. haldið tón-
leika í verksmiðjum.
('laudio Abbado
Reykjavík 1944, en ólst upp í
Hafnarfirði. Hann tók stúdents-
próf 1964 og dvaldist síðan í Dan-
mörku og Svíþjóð um margra ára
skeið. Þar sótti hann háskólafyr-
irlestra og las bókmenntir, auk
þess sem hann vann að ritstörfum.
Vésteinn fluttist heim haustið
1972. Hánn hefur skrifað smásög-
ur, skáldsögur og leikrit. Þekktast
þeirra er „Stalín er ekki hér“ sem
Þjóðleikhúsið sýndi veturinn
1977—1978 og flutt var í útvarpi
1981. Annað leikrit Vésteins,
„Mannleg þrenning“, kom í út-
varpinu 1973.
LOOK
landbúnaðar-
sýningí
LOMQON
Hópferð á Smithfield sýninguna
4.-11. desember
Við bjóðum bændum og öðrum þeim sem
tengjast landbúnaði í hópferð á landbúnaðar-
sýningu í London, „The Royal Smithfield
Show“.
Allar nýjungar tengdar skepnuhaldi, ræktun,
vélum og tækjum. Hafsjór af fróðleik fyrir
alla þá sem fylgjast með því nýjasta og besta
í landbúnaðarmálum.
Boðið verður upp á dagsferð til Birmingham,
þar sem skoðuð er kynningarstöð breska
landbúnaðarráðuneytisins.
Og auðvitað skartar London sínu fegursta
fyrir jóiin, með aila sína skemmtistaði,
veitingahús, listasöfn, leikhús og verslanir.
Verð kr: 7.190.-
Innifalið: Flug, flutningur til og frá
flugvelli erlendis, gisting m/morgun-
verði á Hotel London Metropoi,
aðgangseyrir á Smithfield alla
sýnlngardagana og íslensk farar-
stjórn.
Samvinnuferðir - Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 A 28899
Leikrit vikunnar kl. 14.00:
„Fegurð ástarinnar og lífsins“
— eftir Véstein Lúðvíksson
Sjónvarp kl. 22.30:
Páll Hriiar Jóuau Aidróa Bjónm Miltá. A. Eiumon l-orbjörn Broddason
Tillögur að nýj-
um útvarpslögum
Á dagskrá hljóðvarps kl. 15.00
er umræðuþáttur: Tillögur að nýj-
um útvarpslögum. Stjórnandi
þáttarins er Páll Heiðar Jónsson.
— Það er fyrirhugað að þessi
þáttur verði í beinni útsendingu,
sagði Páll Heiðar. Þátttakendur í
umræðunum verða Andrés Björns-
son, útvarpsstjóri, Markús Á. Ein-
arsson, veðurfræðingur og for-
maður útvarpslaganefndar, og
Þorbjörn Broddason, lektor, sem
manna mest hefur fengist við fjöl-
miðlarannsóknir hér á landi. Þá
verður leitað til formanna þing-
flokkanna um afstöðu þeirra til
afnáms einkaréttar Ríkisútvarps-
ins; ennfremur rætt við Magnús
Axelsson, formann Félags áhuga-
manna um frjálsan útvarps-
rekstur, svo og menntamálaráð-
herra, og yfirleitt reynt að sjá svo
um að fram komi sem flest sjón-
armið i málinu.
Á dagskrá hljóðvarps kl. 14.00
er leikritið „Fegurð ástarinnar og
lífsins" eftir Véstein Lúðvíksson.
Leikstjóri er Sigmundur örn
Arngrímsson, en með aðalhlut-
verk fara Árni Biandon, Margrét
Guðmundsdóttir og Helgi Skúla-
son. Flutningur leiksins tekur um
klukkustund. Tæknimaður: Frið-
rik Stefánsson.
Ari, nítján ára piltur, hefur
fengist við að taka upp samtöl for-
eldra sinna á segulband og spilar
síðan af því með eigin skýringum
og hugsunum. Þá kemur í ljós að
margt sem virðist slétt og fellt á
yfirborðinu, er það ekki undir niðri
þegar betur er að gáð. En ieikritið
skrifar í rauninni lífið sjálft.
Vésteinn Lúðvíksson er fæddur í