Morgunblaðið - 24.10.1982, Page 40

Morgunblaðið - 24.10.1982, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1982 Hrefna Eggerts- dóttir - Minning Bjarney Jörgen- sen — Minningarorð Fædd 14. júní 1897 Diin 17. október 1982 Síminn hringdi á sunnudags- morgni 17. október, Friðrika Egg- ertsdóttir, móðursystir konu minnar, tilkynnti konu minni að Hrefna, systir mín og móðursystir konu minnar, væri látin. Hún hafði andast þá um nóttina. Hún hefði verið búin að þjást mikið og lengi og því hefði hvíldin verið henni kærkomin. Þó virðist það oft svo að menn eigi erfitt með að sætta sig við það þegar ættingjar og vinir kveðja og raddir þeirra hljóðna, en guð kallar vini sína til sín þegar þeirra tími er kominn. Þau örlög fær enginn umflúið. Hrefna heitin fæddist í Fremri-Langey á Breiðafirði. For- eldrar hennar voru Eggert Gísla- son, bóndi þar, og kona hans Þu- ríður Jónsdóttir. Hrefna heitin ólst upp hjá foreldrum sínum, sem bjuggu myndarbúi í Fremri- Langey í fjölmennum systkina- hópi, sem öll voru og eru mikið dugnaðar- og sómafólk. Sum systkina hennar eru dáin en önnur á lífi háöldruð, það elsta nú 101 árs. Um tvítugt flutti hún til Reykjavíkur og vann þar við ýmiss störf. Er faðir hennar lést fluttist móðir hennar til Reykjavíkur og bjuggu þær mæðgur saman í Reykjavík þar til móðir hennar dó árið 1939. Fluttist þá Hrefna heit- in til systur sinnar og mágs, Frið- riku Eggertsdóttur og Jóhanns G. Jóhannssonar, en Jóhann Garðar lést fyrir nokkrum árum á heimili þeirra að Ásvallagötu 59, Reykja- vík. Bjó hún síðan alla tíð á heim- ili þeirra upp frá því þar til fyrir rúmu ári að hún fluttist á elli- heimilið Grund þar sem hún lést. Hrefna heitin átti vikið heilsu- leysi að stríða mikinn hluta ævi sinnar og er það næstum ofar og jafnvel ofar mannlegum skilningi hversu hún bar veikindi sín með mikilli hugarró og æðruleysi. Hrefna heitin giftist aldrei né átti neina afkomendur, en þeim mun sterkari urðu tengsl hennar við fjölskylduna að Ásvallagötu 59, Reykjavík, sem hún helgaði alla krafta sína og unni heitast. Hrefna heitin gekk hægt um gleðinnar dyr, ætíð hæglát og hógvær í fasi, örðvör en tók ætíð málstað þeirra er á var hallað. Hreinskilin var hún og hreinskipt- in og lét skoðun sína í ljós hisp- urslaust, ef henni þótti ástæða til, trygg vinum sínum og sáttfús. Að kynnast slíkri konu er lífsfylling og lærdómur sem aldrei verður metinn sem skyldi. Við hjónin, börn okkar, ættingj- ar hennar frá Ásvallagötu 59, systkini hennar og vinir þökkum henni allt gott, blessum minningu hennar og óskum henni velfarnað- ar á þeirri leið sem hún nú hefur iagt út á. Samúðarkveðjur sendum við hjónin systkinum hennar og öðr- um ættingjum. Guðsblessun fylgi þeim. B.F.H. Þann 18. þ.m. andaðist á Víf- ilsstaðaspítala frú Bjarney Jörg- ensen á áttugasta og öðru aldurs- ári. Hún fæddist á Patreksfirði 21. janúar 1901. Foreldrar hennar voru hjónin Valgerður Bjarna- dóttir Þóroddssonar frá Helga- stöðum í Biskupstungum, komin af Árnesingaættum og Ingimund- ur Bjarnason sjómaður kominn af Vestfjarðaættum. Bjarney var barn að aldri er hún missti föður sinn. Hún ólst upp með móður sinni á Patreks- firði og í Reykjavík eftir að móðir hennar giftist seinni manni sínum Helga Vigfússyni, blikksmið. Af systkinum hennar eru á lífi ein alsystir, kona þess er þessi minn- ingarorð ritar og fjögur hálfsyst- kini. Árið 1920 fór Bjarney til Kaup- mannahafnar og lærði fatasaum. Vann hún hjá sama fyrirtæki í nokkur ár. Árið 1927 giftist hún dönskum manni Alfred Jörgensen hús- gagnasmíðameistara og bjuggu þau í Kaupmannahöfn í fyrstu og síðar um tíma í Ry í Jótlandi. Heim til íslands fluttu þau árið 1928 og settust að í Reykjavík og áttu þar síðan ætíð heima. Alfred Jörgensen stundaði iðn sína, húsgagnasmíði, óslitið með- an heilsa og líf entist. Hann hafði ýmist verkstæði með öðrum eða einn sér. Hann var vandvirkur og smekkvís fagmaður, góður og heill íslenskur þegn. Hann lést árið 1960. Bjarney var mikil og myndarleg húsmóðir og bjó fjölskyldu sinni fagurt og hlýtt heimili. Þar var tekið á móti vandamönnum og vinum af einlægri gestrisni og vin- arhlýju. Þau hjónin eignuðust þrjú börn. Þau eru: Bent Jörgensen, rekstrar- stjóri hjá firmanu Sveinn Egils- son hf., kvæntur er hann Guðrúnu Kristjánsdóttur Þorsteinssonar frá Löndum í Stöðvarfirði, Per Jörgensen, smiður, starfsmaður Hraðfrystihúss Ólafsvíkur hf., fyrri kona hans var Sigrún Ólafs- dóttir frá Reykjavík. Seinni kona Pers er Kristín Halldórsdóttir frá Ólafsvík, Inga Valgerður Jörgens- en, búsett í Danmörku. Hennar maður var Hans Jörgensen vél- stjóri. Barnabörnin eru 8 og barn- abarnabörnin 3. Eftir að Bjarney missti mann sinn hélt hún heimili fyrir sig og vann við saumaskap fram á átt- ræðisaldur. Nú síðustu árin hafði hún notalega íbúð í Furugerði 1. Hún var fíngerð kona og ekki sterkbyggð, en í reynd átti hún táp og dug í ríkum mæli. Hún átti ríka sjálfsvirðingu og vildi standa fyrir sínu og var fremur veitandi en þiggjandi til hinstu stundar. Hún var dagfarsprúð kona, gestrisin, vinföst og góðgjörn í besta máta. Hún var vel virt og metin af vinum sínum og hana lék hlýr vinarhugur þeirra. Hún var kærleiksrík móðir og amma enda elskuð og virt af börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum, og sýndu þau henni mikla um- hyggju og ástúð. Hún fylgdist vel með systkinum sínum og bar hag þeirra og heill fyrir brjósti og þess nutu börn þeirra og fjölskyldur. Hún var félagslynd og naut sín vel á góðri stund í góðra vina hópi. Síðustu árin hrakaði heilsu hennar og hún þurfti við og við að dvelja á sjúkrahúsi og hress- ingarhæli, en alltaf virtist hún komast til nokkurrar heilsu aftur, gat heimsótt börn sín í Ólafsvík og Danmörku, þar til nú í sumar og síðustu vikurnar var sýnt að hverju fór. Þegar heilsa og þrek er þrotið er hvíldin góð og kærkomin. Hún var þakklát læknum sínum og hjúkrunarfólki Vífilsstaðaspít- ala fyrir veitta líkn í þrautum. Að leiðarlokum er okkur, sem næst henni stóðum, efst í huga hjartans þökk fyrir það, sem hún var okkur. Við biðjum guð að blessa hana og vernda og umvefja hana kærleika sínum á vegferð í öðrum og göfugri heimi. Aðalsteinn Eiríksson Útför hennar fer fram kl. 15 á mánudag, 25. október, frá Foss- vogskirkju. + Móðir mín og tengdamóöir, MAGNEA ÓSK HALLDÓRSDÓTTIR, Kjartanagötu 7, veröur jarösungin trá Fossvogskirkju þriöjudaginn 26. Oh.^ber kl. 13.30. Pélína Hermannsdóttir, Sveinbjörn Dagfinnsson. + Fósturmóöir mín, tengdamóöir og amma, GYDA GUDMUNDSDÓTTIR, Hjaröarhaga 28, veröur jarösungin miövikudaginn 27. október kl. 15.00 frá Foss- vogskirkju. Arnór Valgeirsson, Valur Arnórsson. Elísabet Hauksdóttir, + Útför mannsins míns, VALDIMARS ELÍASSONAR, garðyrkjumanns, fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaglnn 26. október kl. 3. Edda S. Geirdal. + Útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu, SIGURBJARGAR SIGRÍÐAR ÞORBERGSDÓTTUR, fer fram frá Dómkirkjunni 26. október kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Hjartavernd. Sigfried B. Sigurösson, Siguröur Sigfriedsson, Sigríöur Jóhannsdóttir, Auöur Sigfriedsdóttir, Viöar Stefónsson, Ásta Sigfriedsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson og barnabörn. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. + Viö þökkum innilo ÞC ja samúö og vináttu viö andlát og útför IRDfSAR GUDMUNDSDÓTTUR fré Helgavatni. Rut Guömundsdóttir, Ásmundur Guömundsson, Anna Einarsdóttir. + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför móöur okkar og tengdamóöur, HAFLÍNU BJÖRNSDÓTTUR fré Siglufirði. Regína Ingólfsdóttir, Egill Jónsson, Níels Ingólfsson, Svanhvít Hafsteinsdóttir, Björn Ingólfsson, Rósa Jónasdóttir, Ásgrímur Ingólfsson, Unnur Sigtryggsdóttir. + Astkær eiginmaöur minn, faöir okkar, sonur og bróöir, MARTEINN MARTEINSSON, Hverfisgötu 29, Siglufiröi, veröur jarösunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfiröi, þriöjudaginn 26. október kl. 1.30 e.h. Blóm eru vinsamlega afþökkuö en þeir sem vilja minnast hins látna láti Klwanisfélagiö Skjöld á Siglufiröi njóta þess. Guöbjörg Sigþórsdóttir og börn, Katrin Gísladóttir, Kristfn Marteinsdóttir, Sigurgeir Marteinsson, Kristjana Gísladóttir, Stefén Jóneson, Gísli Guömundsson. + Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og vlnarhug viö andlát og útför KATRÍNAR SIGURLAUGAR PÁLSDÓTTUR fré Orustustööum. ‘Sórstakar þakkir til starfsfólks Hafnarbúöa og Heimillshjálparinnar í Kópavogi fyrir frábæra hjúkrun og umönnun. Guö blessi ykkur öll. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Alúöarþakkir til allra sem sýndu okkur samúö og hlýhug vlö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, JÚNÍÖNU STEFÁNSDÓTTUR, Hringbraut 45. Dagfinnur Stefénsson, Þóra Stefénsdóttir, Haraldur Björnsson, Sigrún S. Hafstein, Hannes Þ. Hafstein, Áslaug Stefénsdóttir, Bjarni Júlíusson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.