Morgunblaðið - 24.10.1982, Side 45
I
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1982
45
Þannig verður til dæmis í vetur
settur ljós strigi á salarveggina og
ráðinn hefur verið maður til að
koma með tillögur um varanlegt
útileiksvið í tengslum við húsið,
þar sem hægt væri að hafa leik-
sýningar, tónleika og fundi. Við
höfum helst verið að hugsa okkur
að það yrði staðsett hér við end-
ann á garðinum, eða stéttinni
framundan kaffisölunni og væri
þannig úr garði gert að hægt væri
að leika á því í báðar áttir, inn að
húsinu og út í Miklatúnið."
— Nú er mikið pláss hér í kring,
hefur verið gert ráð fyrir að byggt
yrði við þetta hús, eða hugsanlega
sett þak yfir garðinn?
„Nei, það er nú ekki gert ráð
fyrir viðbyggingu, en ýmsir hafa
þó viðrað þá hugmynd að hér væri
æskilegt að byggja tónleikasal, svo
ekki þurfi stöðugt að tjalda hér til
einnar nætur þegar hljómleikar
eru haldnir og víst er æskilegt að
hafa sem mesta breidd í starfsemi
Kjarvalsstaða. Það verður um-
fram allt að nota svona hús.“
— Hvernig gengur samstarfið við
listamenn?
„Það gengur mjög vel, finnst
mér. Nú er tekin við ný stjórn hér
og þar eru myndlistarmenn í
meirihluta, en það er Einar Há-
konarson myndlistarmaður sem er
formaður og auk hans eru í stjórn-
inni þau Hulda Valtýsdóttir, Guð-
rún Erla Geirsdóttir, Jón Reykdal
og Þorgerður Ingólfsdóttir. Þetta
er í fyrsta sinn sem myndlistar-
menn eru hér í meirihluta í stjórn
og verður fróðlegt að fylgjast með
því hvernig til tekst."
— Er einhver sérstök sýning frá
síðustu árum sem þér þykir sérlega
merkileg?
„Mér þykir yfirleitt alltaf merk-
ust sú sýning sem er í húsinu í
hvert skipti. Núna er til dæmis
sýningin á verkum Thorvaldsen.
Hún er auðvitað stórmerk. Það tók
líka hvorki meira né minna en tvö
og hálft ár að undirbúa hana. í
undirbúningi er sýning á kirkju-
list á vegum kirkjunnar og mynd-
listarmanna, sem gæti orðið mjög
áhugaverð, en þegar er búið að
senda út boð um þátttöku til hátt
á þriðja hundrað listamanna á
landinu, en auk þess verða sýnd
eldri kirkjuleg listaverk. Þetta
verður væntanlega stór sýning í
öllu húsinu.“
— Hvað gerir Þóra Kristjánsdótt-
ir listfræðingur þegar hún er ekki í
vinnunni?
„Ég verð víst að segja að ég er
listfræðingur öllum stundum.
Þetta er tvímælalaust vinna sem
maður tekur með sér heim, en mér
finnst þetta mjög gaman. Um leið
og ég fer að kvarta undan þessu,
þá hætti ég. Reyndar er ég núna
með skíðadellu og fjölskyldan
sameinast í því að renna sér á
skíðum og keypti sér meira að
segja jeppa í fyrravetur til að eiga
hægara um vik. Nú kveður orðið
svo rammt að þessum skiðaáhuga
mínum, að það er ekki fyrr liðið
svolítið fram á sumar, en ég er
byrjuð að líta til fjalla í von um að
sjá skafl, eða þó ekki væri nema
dálítið föl.“
Texti: Sveinbjörn I. Baldvinsson
Megrunarnámskeið
Ný námskeið hefjast 8. nóvember. (Bandarískt megrun-
arnámskeið sem hefur notið mikilla vinsælda og gefið
mjög góðan árangur.) Námskeiðið veitir alhliða fræðslu
um hollar lífsvenjur og vel samsett mataræði, sem getur
samrýmst vel skipulögðu, venjulegu heimilismataræöi.
Námskeiöiö er fyrir þá:
• sem vilja grennast
• sem vilja koma í veg fyrir að vandamálið endurtaki
sig.
• sem vilja foröast offitu og þaö sem henni fylgir.
Upplýsingar og innritun í síma 74204
Kristrún Jóhannesdóttir,
manneldisfræðingur.
VINSÆLU JÓLA-
DÚKARNIR KOMNIR
Póstsendum
Umbúða- og
kraftpappír
nýkominn.
H. Benediktsson hf.,
Sudurlandsbraut 4.
Sími 38300.
CONSUL SÓLARBEKKURINN
Viö óskum eftir innflytjenda á byltingarkenndri nýjung CONSUL
SHIATSU nuddbekknum. Hann vínnur gegn bakveiki, svefnleysi og
CONSUL fabrik Ringvejen 59,
DK-7900 Nyköbing M. Sími 07-72 40 11.
Hann er rétta háfjallasólin.
Þiö veröiö brún á 8 dögum.
Viö bæöi seljum og leigjum.
Eigum einnig nokkra ódýra
notaöa sólarbekki fyrir
sólbaósstofur eöa helmlli.
Nyir sólbekkir kosta frá
5995 dkr.
Takiö eftir. Setjiö á stofn
sólbaösstofu. Þaó er arö-
vænlegt fyrirtæki.
Einungis þarf 5m' pláss
svo hægt er aö hafa bekk-
inn hvar sem er. Bæjarfélög
meö 500—1000 ibúa vantar sólbaösstofur.
— BLUSSUR
— FRAKKAR
— PEYSUR
— BUXUR
— SKYRTUR
I
Vetrarlínan frá Italíu komin.
Toppvörur á viðráðanlegu
verði.
SNORRABRAUT — 13505
GLÆSIBÆ — 34350
MIÐVANGI — 53300
HAMRABORG — 46200