Morgunblaðið - 15.12.1982, Side 2

Morgunblaðið - 15.12.1982, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982 Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Kangárvallasýslu: Formaðurinn sagði af sér vegna ágreinings um fyrirkomulag prófkjörs FORMAÐUR fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Rangárvallasýslu, Hilmar Jónasson, sagði af sér á fundi þess síðastliðinn laugardag, vegna ágreinings um fyrirkomulag prófkjörs. Á fundinum kom fram tillaga um að aðeins skyldu þrír Rangæingar taka þátt í prófkjöri flokksins á Suðurlandi, þrátt fyrir að auglýst hefði verið, að þeir mættu vera þrír til fimm. Óskuðu fleiri en þrír þess að taka þátt í prófkjörinu, yrði forval innan sýslunnar til að skera úr um það hverjir yrðu þátttakendur sýslunnar. Var tillagan samþykkt með 27 atkvæðum gegn 7. Alls hafa fimm manns óskað þess að taka þátt í prófkjörinu. Sagði Hilmar, að hann hefði boðað til þessa fundar til að ræða prófkjörsmálin, en framboðsfrest- ur til prófkjörs hefði runnið út þá um kvöldið. Þá hefði komið fram á fundinum áðurnefnd tillaga, þó hún hefði ekki verið á dagskrá fundarboðsins og sér hefði fundizt að hún hefði ekki átt erindi inn á fundinn, vegna þess að framboðs- frestur var að renna út og vegna þess að mönnum hafði ekki verið gert viðvart um að hún væri vænt- anleg. Samkvæmt henni mætti segja að menn hefðu verið beðnir að gefa kost á sér til prófkjörs á röngum forsendum. Þá hefði kom- ið fram tillaga um að fresta ákvörðun um þetta mál fram yfir helgi eða þar til framboðsfrestur Reykjanes: Ákvörðun tekin um prófkjör í kvöld KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðisnokks- ins í Reykjaneskjördæmi kemur sam- an til fundar í kvöld, miðvikudags- kvöld, í Sjálfstæðishúsinu við Hafnar- götu í Kellavík. Fundarefni er undirbúningur Al- þingiskosninga, en einnig verður tekin ákvörðun um hvort og hvenær efna skuli til prófkjörs. Þá verða prófkjörsreglur ræddar, ef ákvörðun verður tekin um prófkjör. rynni út, en hún hefði verið felld. Síðan hefði komið fram önnur til- laga þess efnis að hámarksfjöldi yrði fimm, eins og reglugerðin hefði borið með sér, en hún hefði einnig verið felld. Þessa málsmeð- ferð hefði hann ekki getað sætt sig við og meðal annars þess vegna sagt af sér. Björn Dagbjarts- son í prófkjör BJÖRN Dagbjartsson, fram- kvæmdastjóri í Reykjavík, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins i Norðurlandskjördæmi eystra vegna næstu alþingiskosninga. „Það hlýtur að vera Ijóst, að ég tel mig hafa eitthvað fram að færa fyrst ég hef ákveðið að taka þátt í þessu prófkjöri. Ég býð mig fram til þjónustu, en þetta er ekki neinn gamall lífs- draumur. Ég er Mývetningur, átti þar heima í 27 ár og þar liggja mínar rætur. Ég hef alla starfsævi mína unnið að því að reyna að breikka íslenzkt at- vinnulíf og oft var þörf, en nú er nauðsyn á slíku. Ég tel þetta svæði sérstaklega viðkvæmt í atvinnulegu tilliti og vona að ég geti veitt þar aðstoð," sagði Björn í samtali við Morgun- blaðið. Svavar Gestsson vegna ummæla Qlafs: Ókyrrð vegna próf- kjörs í Reykjavík „ÞF7ITA er einhver ókyrrð vegna væntanlegs prófkjörs í Reykjavík," sagði Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins, er Mbl. spurði hann álits á ummælum Ólafs Jó- hannessonar, utanríkisráðherra, þess efnis að meðferð Alþýðubanda- lagsins á kjördæmamálinu væri ein sér næg ástæða til stjórnarslita. Svavar sagði einnig: „Annar þingmaður Framsóknar í Reykja- vík sagði sig úr álviðræðunefnd- inni, Ólafur hótar stjórnarslitum. Þetta er ókyrrð vegna prófkjörs- ins.“ Jólasnjórinn var snemma á ferðinni í gær er hann tiatði breitt sig yfir borgina, væntanlega með misjöfnura undirtektum borgarbúa. En það þýðir ekki að láta snjófölið hefta ferðir sínar þegar jólagjafakaupin standa sem hæst. Ljósmynd Mbl. ÓI.K.M. Islenzka járnblendifélagið: Rekstrartapið á þessu ári yfir 100 milljónir Rætt um leiðir til að treysta markaðs- og fjárhagsstöðuna FYRIRTÆKIÐ Elkem A/S í Osló, sem er sameignaraðili islenzka ríkis- ins að íslenzka járnblendifélaginu hf. hefur óskað eftir því við iðnaðar- ráðuncytið, að teknar verði upp við- ræður milli eignaraðila um leiðir til að treysta markaðs- og fjárhagsað- stöðu íslenzka járnblendifélagsins. Samkvæmt upplýsingum Jóns Sig- urðssonar, forstjóra Járnblendifé- lagsins, verður rekstrartap verk- smiðjunnar á þessu ári á annað hundruð milljónir króna, en staðan er þó enn óljós vegna tíðra gengis- breytinga ýmissa gjaldmiðla. Viðræður eigenda Járnblendifé- lagsins munu meðal annars snúast um möguleika á því, að þriðji aðili muni gerast eigandi að félaginu, enda fylgi því aukinn aðgangur þess að mörkuðum fyrir kísiljárn. Skilyrði er þó að íslenzka ríkið eigi áfram meirihluta í félaginu. Þá er gert ráð fyrir því, að þessar við- ræður leiði til endurskoðunar á samningum milli aðila, þar á með- al um markaðsmál, raforkusamn- ing og tækniþjónustu. Fulltrúar iðnaðarráðuneytisins munu ræða þessi mál við fulltrúa Elkem næstu daga. í samtali við Morgunblaðið sagði Jón Sigurðsson, forstjóri Járnblendifélagins, að hann gæti ekki tjáð sig um viðræður milli eigenda þess. Aðspurður um af- komu fyrirtækisins sagði hann, að markaðs- og fjárhagsstaðan væru hvorutveggja mjög slæm, þó hefði verið selt á þessu ári, það sem bú- izt hefði verið við að magni til en verð einkum á síðari hluta ársTns Fjármálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um láglaunabætur til lág- tekjufólks í samræmi við heimild í bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar frá því í ágúst sl., en samkvæmt henni fá um 50 þúsund einstaklingar bætur, sem koma til greiðslu í þrem- ur áföngum, fyrst nú i desember og síðan i tvennu lagi á næsta ári. hefði verið lakara en reiknað hefði verið með. Ekki sagðist hann geta sagt nákvæmlega til um rekstrar- tap verksmiðjunnar á árinu, en það yrði talsvert á annað hundrað milljónir króna að öllu meðtöldu. Ekki væri mikið um birgðir, enda hefði verið framleitt í samræmi við markaðshorfur, þannig að meira verðmæti væri í útistand- andi skuldum en birgðum. Samkvæmt reglugerðinni fá þeir einstaklingar bætur, sem höfðu laun á bilinu 25—95 þúsund krónur á árinu 1981 og eiga ekki fasteignir, sem metnar eru á 326.250 krónur eða meira, auk þess að fá ekki frádrátt vegna barna. Nema bæturnar allt að liðlega 6 þúsund krónum og greiðast í þrennu lagi. Reglugerð um lág- launabætur komin út Einstaklingar meö 25—95 þús. í tekjur 1981 fá bætur Skipstjórnarmenn á Vestfjörðum um Vestfjarða- og Norðurmið: Ekki fært að stunda þar þorsk- veiðar við núverandi aðstæður I 2. grein reglugerðarinnar seg- ir, að bæturnar skuli greiða til þeirra manna.sem höfðu náð 16 ára aldri fyrir árslok 1981 og áttu lögheimili hér á landi í lok þess árs. Gert er ráð fyrir, að skatt- stjórar muni annast útreikning bótanna, sem verða miðaðar við upplýsingar á skattframtölum ár- ið 1982. — engin útgerð á þessum tíma megi veiða millifisk SKIPSTJÓRNARMENN á Vestfjarðatogurunum telja sér ekki lengur fært að stunda veiðar á Vestfjarða- og Norðurmiðum við núverandi aðstæður. Ástæða þess er sú, að nú er veiðisvæðum lokað, komi í Ijós að meira en 30% þorskaflans séu undir 60 sentrimetrum að lengd. Nú er veiðisvæðið frá Halamiðum austur að Reykjafjarðarál, eða 2.500 fersjómílur, lokað. Vegna þessa hafa þeir óskað eftir fundi með útvegsmönnum og skipstjórnar- mönnum á Vestfjörðum næstkomandi föstudag, og er nú ákveðið að sá fundur verði og óskað hefur verið þátttöku fulltrúa frá Hafrannsóknarstofn- un og sjávarútvegsráðuneytinu. Vegna J>essa sendu skipstjórn- armenn Utvegsmannafélagi Vest- fjarða svohljóðandi skeyti: „Það er ósk vestfirzkra togaraskipstjóra að Útvegsmannafélag Vestfjarða boði til fundar með útvegs- mönnum á Vestfjörðum og skip- stjórnarmönnum næstkomandi föstudag, 17.12., um fiskveiðar á Vestfjarðamiðum við ríkjandi að- stæður. Tekin verði afstaða til eft- irfarandi atriða; Á að stunda veið- ar á millifiski við landið?; Ef veiða á millifisk, hvar eiga skipin að stunda veiðar?; Eiga viðmiðun- armörk fyrir skyndilokanir að vera 60 sentimetrar eða önnur tala?; Við teljum okkur ekki fært að stunda þorskveiðar á Vest- fjarða- eða Norðurmiðum við nú- verandi ástand; Við óskum eftir afstöðu fundarins, hvort halda eigi áfram veiðum eða stöðva þær og þá hvenær." Undir þetta rita skipstjórar tog- ara Vestfirðinga. Morgunblaðið ræddi vegna þessa við Guðjón Kristjánsson, skipstjóra á Páli Pálssyni, og sagði hann, að staðreyndin væri, að 60 sentimetrá fiskur væri alls enginn smáfiskur. Ekki væru nema 6 ár síðan 57 sentimetra fiskur hefði verið talinn stór fisk- ur á Islandi í verðlagningu. Hér væri um millifisk að ræða og skip- stjórnarmenn vildu fá það á hreint hvort veiða ætti millifisk eða ekki. Ákvæðu menn að veiða ekki millifisk yrði ekki gert út á þessum tíma árs. Menn yrðu þá bara að gera það upp við sig hvort þeir vildu hafa þann háttinn á. Borgin kostar útfór Ásmund- ar Sveinssonar ÚTFÖR Ásmundar Sveinsson- ar myndhöggvara verður gerð frá Dómkirkjunni á morgun, fimmtudaginn 16. desember, kl. 13.30. Reykjavíkurborg hef- ur farið þess á leit að fá að kosta útförina í virðingarskyni við hinn látna. Eins og kunn- ugt er, ánafnaði Ásmundur Reykvíkingum safn sitt og vinnustofur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.