Morgunblaðið - 15.12.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982
3
Ragnar
í Smára
Bókin um Ragnar í Smára segir einstæða ævi-
sögu einhvers sérstæðasta framkvæmdamanns
á íslandi á þessari öld. Ingólfur Margeirsson
á viðtöl við 14 þjóðkunna menn um kynni þeirra
og samstarf við Ragnar.
Bókin geymir 48 litprentaðar heilsíðumyndir
af fjölmörgum dýrmætustu perlum íslenskrar
myndlistar, allar úr höfðingsgjöf Ragnars til
ASÍ.
Viðmælendur Ingólfs eru:
Tvær fyrstu bækurnar í nýjum
bókaflokki um íslenska myndlist
og myndlistarmenn eru komnar
út.
ÍJr ritdómum
„Jú bókin um Ragnar er vissulega skemmtileg
aflestrar og jafnvel bráðfyndin á köflum. “
Glæsilegt upphaf
„Bókin um Ragnar er að vissu leyti „endurreisn“
listaverkabókaútgáfu á íslandi. Hún erglœsilegt
upphaf af spennandi listœvintýri þar sem allt
virðist gert til að skapa listaverkabækur í sem
hæstum gœðaflokki. Óvenju vönduð fagvinna
uppsetning, litgreining og prentun kemur vel til
skila þeirri stórbrotnu mynd sem hér hefur verið
dregin upp af Ragnari Jónssyni í Smára.“
Gunnar B. Kvaran DV
Árni Kristjánsson Björn Th. Guðmundur Gylfi Þ. Gíslason Halldór Laxness Hannibal Jóhann Pétursson
Björnsson Daníelsson Valdimarsson
Jón Þórarinsson Kristján Davíðsson Kristján Karlsson Matthías Sigrún Eiríksdóttir Sigurjón Ólafsson Thor Vilhjálmsson
Johannessen
í bókinni um Eirík Smith ræðir Eiríkur opinskátt
um æviferil sinn. Hann veitir okkur innsýn inn í
alla helstu strauma nútímalistar þar sem hann
ræðir um listsköpun sína og bræður í listinni.
Bókin er einstök mótunarsaga listamanns sem
um árabil hefur notið vaxandi vinsælda meðal
þjóðarinnar. Aðalsteinn Ingólfsson listfræð-
ingur skráði. Fjöldi litmynda prýða bókina sem
sýna verk hans og feril.
Eiríkur
Smith
JZL
i Smara
ISLENSK
„Dregið saman í hnotskurn þá er Eiríkur Smith
vel að þessari bók kominn, hún er útgefendum til
sóma og ómissandi öllum þeim, er fylgjast vilja
með íslenzkri myndlist.“
Bragi Ásgeirsson, Mbl.
Eiríkur
Smith
Báöar þessar bækur munu
vafalaust verða listunnendum og
öllum almenningi hiartfólgnar
um ókomin ár
LISTASAFN ASÍ
Lögberg Bókaforlag
Þingholtsstræti 3, simi: 21960