Morgunblaðið - 15.12.1982, Síða 22

Morgunblaðið - 15.12.1982, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982 Opið bréf til Guðmundar G. Þórarins- sonar frá Inga R. Helgasyni I. Trúnaður brotinn Nú get ég ekki orða bundist lengur yfir framferði þínu, Guð- mundur. Eg hef setið í viðræðu- nefndum íslenskra ríkisstjórna við erlenda aðila um orkufrekan iðnað allar götur frá 1971 og unnið þar með mönnum úr öllum stjórn- málaflokkum og átt trúnað þeirra allra gagnvart viðfangsefnunum, viðkvæmum og vandasömum. Þar hefur að sjálfsögðu verið um gagn- kvæman trúnað að ræða, sem í raun er alger forsenda fyrir heil- brigðum vinnubrögðum í þágu þeirra hagsmuna íslensku þjóðar- innar, sem okkur hefur verið falið að fjalla um. Nú hefur það gerst, að þú, einn allra, hefur risið upp, höggvið i sundur trúnaðarböndin, rofið heitin. I upphafi þessarar álviðræðu- nefndar urðu menn sammála um þau vinnubrögð, að þagmælska og trúnaður ríkti milli okkar. Ef eitthvað þyrfti að segja við fjöl- niiðla, þá skyldi formaðurinn einn gera það. Þeir, sem voru fulltrúar stjórnmálaflokka, máttu að sjálf- sögðu ræða um málin í trúnaði við umbjóðendur sína. Þessi upphafs- samþykkt um starfshætti átti sér þrjár stoðir. I fyrsta lagi ætluðum við að reyna að ná saman og halda saman utan um einn sameiginleg- an og sanngjarnan málstað ís- lenska ríkisins. I öðru lagi vildum við, að nefndarmenn gætu talað opið um alla möguleika, sem Is- land hefði í stöðunni, án þess að eiga von á að sjá það í dagblöðun- um daginn eftir. Við vildum geta „hugsað upphátt" eins og kallað var, verið með áþreifingar og hugmyndir án þess að um tillögur væri að ræða, sem menn væru bundnir við meðan heildarmyndin væri óljós. I þriðja lagi til þess að hugmyndir okkar og rök fyrir málatilbúnaði Islands væru ekki á vitorði Alusuisse fá degi til dags. Þú samþykktir þessa vinnutilhög- un með okkur og við ræddum við þig í góðri trú, bæði um efnisatriði og formsatriði. Auðvitað var hinn nauðsynlegi trúnaður milli nefndarmanna að- eins tæki til samráðs, farvegur til samstöðu. Endanlegar pólitískar ákvarðanir og afstaða vegna ágreinings voru teknar í hinu póli- tíska baklandi samkvæmt leikregl- um hvers flokks fyrir sig. Þú talað- ir við þína menn og ég talaði við mína, og svo var um okkur alla, sem vorum í nefndinni frá stjórn- málaflokkunum. Allir vissum við að nefndin var starfsnefnd en for- ræði málsins og ábyrgðin var hjá stjórnvaldinu, sem skipaði okkur. í upphlaupi þínu á dögunum komst þú ekki einasta aftan að okkur, meðnefndarmönnum þín- um, heldur einnig ríkisstjórninni. Auðvitað áttir þú að láta forsæt- isráðherra vita, að þú ætlaðir að lýsa vantrausti á iðnaðarráðherra í sjónvarpi síðastliðið miðviku- dagskvöld. I upphlaupi þínu greinir þú frá tillögum og afstöðu einstakra með- nefndarmanna þinna og er það trúnaðarbrot eins og ég hef rakið hér að framan, en hitt er öllu lak- ara, að þú skulir ekki geta sagt satt. Það kemur okkur hinum að vísu við, en þar ertu mest að svíkja sjálfan þig. Þar sem þú hefur á hinu háa Alþingi, í sjónvarpi o& í Tímanum gert afstöðu mína að umtalsefni á þann hátt að beita ósannindum og blekkingum, þá er ég knúinn til að leiðrétta þig á opinberum vett- vangi. Ég neyðist því til að skýra nákvæmlega frá gangi mála, svo öllum megi vera ljós afstaða mín í málinu. Mig langar ekki til að munnhöggvast við þig á opinber- um vettvangi um þetta mál og bréf þetta er ekki skrifað í þeim til- gangi, heldur aðeins til að leiðrétta þig- II. Ósannindin Samkomulag hafði orðið um það á viðræðufundi aðila 22. nóv. 1982 að þeir hittust aftur dagana 6.-7. des. 1982 í Reykjavík og lofuðu Alusuisse-menn að leggja þá fram gögn og hugmyndir sínar um raf- orkuverð til ÍSAL og töluðu jafn- framt um, að með þeim kæmi sér- fræðingur í þeim efnum. Til að undirbúa þessar viðræður lét ráðu- neytið þýða á ensku meginatriðin úr skýrslu íslenska raforkuhópsins og simsenda til Zúrich þar sem upplýst var 22. nóvember sl. að dr. Paul Múller hafði ekki séð þá skýrslu, þótt iðnaðarráðuneytið hafi sent hana til ÍSAL fyrir löngu. Jafnframt hafði ráðuneytið í viðbragðsstöðu raforkuhópinn: þ.e. sérfræðinga frá ráðuneyti, Landsvirkjun, Orkustofnun og Rafmagnsveitum ríkisins, ef ræða þyrfti einhver efnisatriði við sér- fræðing Alusuisse. Við í álviðræðunefnd ræddum undirbúninginn og samningsstöð- una í ljósi þessa og urðum allir sammála um tvennt: I fyrsta lagi að dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður nefndarinnar (sem hefur á hlutlægan hátt leitt nefndina gegnum pólitíska brotsjói), yrði með ráðherra í viðræðunum 6. og 7. des., sem fulltrúi nefndarinnar. I öðru lagi, að þannig yrði á málinu haldið af ráðherra, að láta ekki slitna þráðinn á þessum fundium þótt lítið þokaðist í raforkuverðs- málunum, heldur halda öllu opnu og ræða samningsstöðuna með ál- viðræðunefnd að fundum loknum. Þar sem þetta var í takt við fyrir- ætlanir ráðherra, ákvað dr. Vil- hjálmur að halda fund í nefndinni á mánudagskvöldið eftir viðræð- urnar fyrri daginn, svo allir gætu metið samningsstöðuna milli funda. Þessu verð ég að skýra frá hér, því að í upphlaupi þínu þagðir þú vandlega um aðdragandann. Síðan hefst kvöldfundur nefnd- arinnar kl. 20.30 og dr. Vilhjálmur skýrði þar frá gangi viðræðnanna um daginn. Alusuisse-menn höfðu engin gögn um raforkuverð með- ferðis og enginn var sérfræðingur- inn með í förinni, svo að ekkert var fyrir sérfræðinga okkar að leggja. Þetta þurfa menn að vita, sem hlusta á ásakanir þínar um að all- ur dráttur í þessum viðræðum sé Islandi að kenna, og þá' fyrst og fremst iðnaðarráðherra. Dr. Vil- hjálmur skýrði frá staðfastlega neitun Alusuisse-manna að sam- þykkja nokkra hækkun raforku- verðsins á þessum fundi. Hann greindi frá og lagði fram bréf Alu- suisse (dag. 3. des. 1982), en megin- efni þess var tilkynning um að Alu- suis.se telji það óraunhæft af íslands hálfu að óska raforkuverðshækkun- ar. Jafnframt segir í bréfinu, að vegna slæmrar fjárhagsstöðu ÍSAL, þurfi í reynd að leysa málin með því að rétta þá stöðu við, en til þess sé frumnauðsyn að Alusuisse fái að taka inn nýjan hluthafa og stækka með honum álverið um einn kerskála (50%). Þetta liggur fyrir með skriflegum hætti. Þú lést okkur bíða eftir þér í hálfa aðra klukkustund á þessum kvöldfundi. Og þegar þú komst var þér mikið niðri fyrir og varst þú með vélritaða tillögu, sem þú lagð- ir fram. Hún var rædd, enda viidu menn eins og endranær í alvöru og Ingi R. Helgason „Upphlaup þitt skapar mikil vandamál íslands megin í þessum sam- ningum. Deildu og drottnaöu, sögöu þeir í Róm á sínum tíma og enn á sú hernaöarlist við. Þú veist, að Alu- suisse vill helst ráða því, hverjir ræða við fyrirtækið af íslands hálfu.“ eindrægni skoða allar hugmyndir og aðferðir. Ég athugaði þessa til- lögu vandlega. Ég sá fljótlega eðli hennar og efni. Að mínu mati fólst í henni alger uppgjöf í málinu. Alusuisse-menn eru harðir samningamenn og það læddist að mér sá grunur, að hér væri ekki allt með felldu varðandi þessa til- lögu þína. Ég vildi með áþreifingum láta á það reyna, hversu fastur fyrir þú værir um helstu efnisatriði tillögu þinnar og án þess að gera um það beina tillögu þá hreyfði ég við þremur efnispunktum: (1) breyta upphafstíma nýs orkuverðs í 1. jan. 1983 úr 1. febrúar 1983; (2) Breyta raforkuverði í 25% úr 20% og (3) breyta orðalagi þínu um að bjóða Alusuisse að stækka og taka inn nýjan hluthafa í að segja, að íslendingar væru reiðubúnir að ræða öll samskiptamál íslands og Alusuisse í framtíðinni. Öllum þessum efnisatriðum harðneitaðir þú og af þeim viðbrögðum þínum varð mér fullkomlega ljóst, að þú varst ekki einn um þennan tillöguflutn- ing. Ég kvaðst ekki flytja neina breytingartillögu og ekki sam- þykkja þessa tillögu þína en beindi því til formanns, að tillagan yrði sérstaklega borin undir Hjört Torfason, sem þarna sat sem full- trúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn- arandstöðu. Hjörtur svaraði því hreinlega, að hann gæti ekki stutt tillögu Guð- mundar. Þegar hér var komið sögu lagði ég til við formann, að engin af- greiðsla færi fram á tillögu þinni en þess í stað myndi formaður greina ráðherra skilmerkilega frá öllum umræðum, sem fram höfðu farið í nefndinni í tilefni tillögu þinnar svo að ráðherra væri full- komlega ljóst hvað fram hefði komið á þeim vettvangi, er hann hæfi viðræður við Alusuisse dag- inn eftir. Þetta gerði formaður. Þetta varð niðurstaða kvöldfund- arins 6. desember 1982. Engin af- greiðsla hafði farið fram á tillögu þinni og fundinum lauk um kl. 01:30 um nóttina en næsti fundur boðaður kl. 14:00 daginn eftir. Snemma morguns 7. desember 1982 hittum við dr. Vilhjálmur ráðherra til undirbúnings viðræð- unum. Við urðum sammála um nýja sáttatillögu af íslands hálfu, sem byggði á því að láta það gerast samtímis að öll gömlu málin færu i úrskurð og raforkuverðið hækkaði til bráðabirgða og togstreitunni væri þar með hætt, en samningar yrðu strax teknir upp um öll sam- skiptamál aðilanna. A morgunfundinum með Alu- suisse byrjaði ráðherra á að leggja fram þessa sáttatillögu, en henni var umsvifalaust hafnað. En ekki nóg með það, því nú sóttu Alu- suisse-menn í sig veðrið. Þeir báru nú munnlega fram gagnkröfu í 3 liðum. Fyrsti liðurinn var, að þeir fengju heimild til stækkunar ISAL, enda semdist um raforku- verð. Annar liðurinn var, að þeir mættu taka inn hluthafa að 50% í stað 49% í aðalsamningi til þess að geta strikað út skuldir ISALs (ca. $ 160 milljónir) úr samstæðureikn- ingi Alusuisse, en hinn nýi hlut- hafi gengi inn í samningsstöðu Alusuisse varðandi raforkuverð. Þriðji liðurinn var, að kaupskylda ISALs á forgangsorku frá Lands- virkjun, sem nú er 85%, lækki niður í 50%, sem þýðir það raun- verulega að telji Alusuisse sér það hagkvæmt geta þeir rekið álverið á hálfum afköstum með ca. 3 millj- óna dollara tekjutapi fyrir Lands- virkjun á ári og sent helming starfsfólksins heim. Þessum gagn- kröfum Alusuisse fylgdi sú yfirlýs- ing dr. Paul Miiller, að Islendingar yrðu formlega að samþykkja þess- ar gagnkröfur til þess að hann hefði eitthvað á borð með sér að leggja á stjórnarfundi Alusuisse, og ef íslendingar samþykktu þetta, myndi hann geta mælt með því, að stjórn Alusuisse kæmi til móts við óskir iðnaðarráðherra um bráða- birgðahækkun raforkuverðs. Islandsmegin við borðið vorum við alveg gáttaðir. Með tillögu þína í huga spurði ég dr. Múller frekar út í kröfuna um heimildina til stækkunar. Ég lýsti því viðhorfi að eðlilegt væri að tala við Alusuisse eins og aðra, ef og þegar íslend- ingar tækju næstu skref í þróun áliðnaðar og innti eftir hvort það væri ekki nóg. Hann sagði nei, því heimildin yrði að vera siðferðilega skuldbindandi fyrir Island gagn- vart Alusuisse (moral binding). Iðnaðarráðherra lagði að lokum fram skriflega ósk um skýringu á þessari afstöðu og afráðið var að hittast aftur kl. 16:00 og lofuðu Svisslendingarnir þá að gefa skriflegt svar. Það var við þessar aðstæður í samningamálum Alusuisse og Is- lands að haldinn er hinn frægi fundur í álviðræðunefnd kl. 14:00 7. desember 1982. Hjörleifur og dr. Vilhjálmur lýstu því, sem gerðist um morguninn og lögðu fram sáttatillöguna, sem hafnað hafði verið, og skýrðu stöðu mála. Og þá snerist við í þér tungan. Þú sakaðir ráðherra um, að hann vildi ekki semja. Þessi sáttatillaga hans hefði verið vita vonlaus. Eina leiðin í stöðunni væri, að ráðherra flytti þína tillögu, þegar aðilar hittust aftur kl. 16:00 og ekkert annað. Og þú sagðir meira: Ef ráðherra geri það ekki, þá munir þú segja þig úr nefndinni og lýsa allri ábyrgð á hendur ráðherra. Ráðherra svar- aði og kvaðst ekki mundu við þess- ar aðstæður flytja Alusuisse slíkar yfirlýsingar í formi tillögu og benti þér góðlátlega á, að þetta væri tillaga eins nefndarmanns og nefndin hefði ekki afgreitt tillög- una til sín. Dr. Vilhjálmur reyndi að opna augu þín fyrir samnings- stöðunni eins og hún var, rakti fyrir þér þýðingar gagnkrafna Alusuisse, en allt kom fyrir ekki. Ég ætla ekki að festa á blað þær hvössu orðræður, sem á milli okkar fóru. Ráðherra lýsti því, að hann myndi leitast við að tryggja að ekki slitnaði upp úr viðræðun- um. Þannig lauk þessum fundi ál- viðræðunefndar. Þú settir á þess- um vettvangi samasem-merki á milli þín og ráðherrans. Aðrir nefndarmenn voru ekki í neinum vafa um hlutverk nefndarinnar. En þú varst að vísu eini þingmað- urinn í hópnum. Ekki einn einasti nefndarmaður tók undir þá úrslita kosti þína til ráðherra að hann ætti á fundinum kl. 16:00 að leggja þína tillögu fram eins og mál stóðu. Þá hef ég rakið þróun mála og skýrt mína afstöðu til tillögu þinn- ar. III. Eftirleikurinn Viðræðufundurinn við Alusuisse hófst kl. 16:00. Alusuisse-menn höfðu ekki haft tíma til að undir- búa og ieggja fram skriflegar skýr- ingar á afstöðu sinni og var því ákveðið að þeir sendu þær til ís- lands næstu daga. Þegar ráðherra sleit fundinum lét hann í ljós vonbrigði sín yfir afstöðu Alu- suisse en taldi, að aðilar skyldu skoða málin frekar og hafa sam- band, ef eitthvað gerðist í stöð- unni. Var undir það tekið af Alu- suisse. Eftir viðræðufundinn var ljóst, að þú hafðir gengið frá bókun hjá ritara nefndarinnar og varst far- inn úr nefndinni. Hin ósmekklega aðför þín í kvöldfréttum sjónvarpsins 7. des- ember 1982 líður mér seint úr minni. (Sú háttsemi fréttamanns- ins, Ólafs Sigurðssonar, að svið- setja þessa árás þína án þess að gera ráðherra viðvart, er kapituli út af fyrir sig.) Þar sagðir þú svo stór áfellisorð í garð þess ráð- herra, sem hefur stjórnskipulega á hendi forræði og pólitíska ábyrgð í vandasömum samningum við er- lendan aðila, og það á úrslita- stundu, að seint gleymist. Þó ekki sé nema fyrir þessi ómaklegu um- mæli þín, kemst þú áreiðanlega á spjöld sögunnar. Hitt er annað mál, að þú þykist styðja núverandi rikisstjórn. Rökrétt framhald þessara stóru orða er auðvitað að þú sem alþingismaður standir við þau og flytjir á formlegan hátt vantraust á þennan iðnaðarráð- herra á Alþingi. Þá myndu kannski línur skýrast í íslenskri pólitík nú í svartasta skammdeg- inu. En nú er rúsínan eftir. í reyfur- um Agöthu Christie er það alltaf svo, að hún flækir málið blaðsíðu eftir blaðsíðu, þannig að lesandinn veit ekki sitt rjúkandi ráð. Þar til á síðustu siðunni, að allt verður morgunljóst. Þannig er það með upphlaup þitt. Öll þessi margslungna leik- flétta þín er nú gagnsæ og þú ert óvarinn á miðborðinu. Alusuisse svaraði beiðni iðnað- arráðherra eins og til stóð með símskeyti 10. desember sl. í þessu símskeyti fellur Alusuisse — í bili — frá kröfu sinni (lið þrjú hér að framan) um að draga úr kaup- skyldu raforku frá Landsvirkjun, en ítrekar hinar kröfurnar báðar um stækkun og nýjan hluthafa. í þessu símskeyti ítrekar dr. Paul Múller, að fallist íslendingar á þessar tvær kröfur hans, muni hann, eins og hann gaf til kynna á fundinum 7. desember sl., mæla með því við stjórn Alusuisse að hún komi til móts við óskir ráðherr- ans um bráðabirgðahækkun raforkuverðsins. Þarna er talað um óskir ráðherrans. Hverjar eru þær? Til þeirra var vísað á fundin- um 7. desember sl., þegar ráðherra minnti á sáttatillögu sína frá í maí í vor: 9,5 millj. strax, 12,8 millj. þeg- ar álmarkaðurinn hefði batnað að ákveðnu marki og síðan samið um 15—20 millj. til frambúðar með fullri verðtryggingu. I símskeytinu minnist dr. Muller ekkert á tillögu þína í álviðræðu- nefnd. En hvað skeður svo? Fyrri part dags 10. desember fékk Hjörleifur þetta símskeyti dr. Muller. Að kvöldi þess dags stóð til Kastljósumræða milli ykkar Hjör- leifs í sjónvarpinu, sem tekin var á band upp úr kl. 17:00. Nokkru fyrir þann tíma hringir Ólafur Sigurðs- son fréttamaður í Hjörleif og biður hann vegna kvöldfrétta að segja sér eitthvað nánar um tillögur hans um einhliða aðgerðir. Hjör- leifur rekur það fyrir hann í sím- anum og símtalinu er lokið. Ólafur minnist ekki einu orði á það við

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.