Morgunblaðið - 15.12.1982, Page 28

Morgunblaðið - 15.12.1982, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1982 + Eiginmaöur minn, ÁRNI SIGUROSSON útvarpsvirkjameistari, Huldulandi 5, andaöist 11. þessa mánaöar. Utförin fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 16. desember kl. 15.00. Sigríöur Svava Guðmundsdóttir. t Otför móöur minnar, JENSÍNU BJÖRNSDÓTTUR, fer fram frá Hallgrímskirkju, föstudaginn 17. desember og hefst athöfnin kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hennar láti Hallgrímskirkju njóta þess. Fyrir hönd vandamanna, Ragnar Fjalar Lárusson. + Útför fööur míns, tengdafööur og afa, ÁSMUNDAR SVEINSSONAR myndhöggvara, verður gerö frá Dómkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 16. des- ember kl. 13.30. Ásdís Ásmundsdóttir, Helgi E. Helgason og synir. + Minningarathöfn um son og bróöur okkar, ÖLVER THORARENSEN, Gjögri, veröur i Fossvogskirkju, fimmtudaginn 16. desember kl. 16.15. Jaröaö veröur aö Árnesi laugardaginn 18. desember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélag fslands. Foreldrar og systkini. + Eiginmaöur minn, faðir, afi og sonur, JÓN G. AXELSSON fyrrv. skipstjóri, Kjalarlandi 18, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag, miövikudaginn 15. desember kl. 10.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12 og endurhæfingarstöö Lamaöra og fatl- aöra Háaleitisbraut 11 —13. Guöný Hannesdóttir, Rósa Steinunn Jónsdóttir, Guöný Arna Eggertsdóttir, Oddfríður Ragnheiöur Jónsdóttir, Tryggvi Haröarson, Hannes Axel Jónsson, Oddfríöur Ragnheiöur Jónsdóttir. + Þakka innilega samúð og vinarhug viö andlát STEINUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Núpi í Fljótshlíó, Álfheimum 13, Reykjavík. Jónheiöur Guöjónsdóttir. + Þökkum auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og úlför MAGNÚSAR GUDMUNDSSONAR, Hofsvallagötu 60. Hallgrímur og María Dalberg, Stefán Dalberg, Magnús R. Dalberg, Ingibjörg Dalberg, Gudrun Dalberg, Marinó E. Dalberg. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jarö- arför dóttur minnar, eiginkonu, móöur, tengdamóður og ömmu, VALDÍSAR SIGUROARDÓTTUR, Óai. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahúss Akraness. Minning: Jón G. Axelsson fv. skipstjóri 8. þ.m. lést á Borgarspítalanum, Jón Guðmundur Axelsson. Sú fregn hefur víst komið fáum á óvart sem til þekktu. Jón var fæddur 13. nóvember 1932 og því rétt liðlega fimmtugur þegar hann lést, ekki hár aldur að vísu, en engu að síður löng ævi manns sem orðið hefur að ganga í gegnum slíkt sem hann gerði. Jón var fæddur Reykvíkingur, sonur hjón- anna Axels Guðmundssonar, fyrr- um fulltrúa hjá Ráðningarskrif- stofu Reykjavíkurborgar, og konu hans, Oddfríðar Jónsdóttur. Jón byrjaði snemma að búa sig undir það ævistarf sem hann ætlaði sér, sjómennskuna. Annað kom ekki til greina fyrir strák uppalinn i Vesturbænum innan um grá- sleppukarla, sjófugla og seltu, að ógleymdum ysi og þysi hafnarinn- ar. Árið 1948 var hann í fyrsta skipti skráður háseti á bát og upp- frá því var sjómannsferill hans óslitinn á bátum, togurum og kaupskipum með óhjákvæmi- legum hléum vegna skólagöngu. Þann 19. ágúst 1957 gekk hann að eiga Guðnýju Hannesdóttur. Þau eignuðust þrjú börn, dæturn- ar Rósu Steinunni, fædd 28. janú- ar ’58, Oddfríði Ragnheiði, fædd 14. nóvember ’61, og soninn Hann- es Axel, fæddur 19. september ’64. Ég, sem þessar línur rita, bjó undir sama þaki og Jón Axelsson og fjölskylda hans vestur á Kapla- skjólsvegi um alllangt skeið. Dæmigert fyrir sjómenn sem sigla í hvor í sína áttina hittumst við sjaldan þar. Ef til viil lágu leiðir okkar oftar saman í höfnum er- lendis. En eiginkonur okkar þekktust þeim mun betur og börn okkar urðu leikfélagar. Árið 1959 réðst Jón til Hafskipa og var á skipum félagsins til árs- ins 1976, fyrst sem stýrimaður og síðar skipstjóri, þar til hann varð endanlega að láta undan í barátt- unni við sjúkdóm sinn. Það var árið 1960 að hann var á leið frá Evrópu með skipi sínu, Laxá, að hann veiktist skyndilega og varð að leggja hann á sjúkrahús í Fær- eyjum. Upp frá því gekk hann ekki heill til skógar. Með þrautseigju og dugnaði barðist hann með sjúkdóm sinn. Hann gekkst undir margar aðgerðir á sjúkrahúsum og gat haldið áfram því lífsstarfi sem hann hafði búið sig svo vel undir, allt til ársins 1976, lengst- um sem skipstjóri á Rangá. Mikil uppörvun var það honum eftir að hann var endanlega kominn í land, þegar skipsfélagar hans hjá Hafskipum buðu honum með sér í siglingar. Það var drengskapar- vottur sem seint verður metinn. Jón tók veikindum sínum með stakri hugprýði og æðruleysi. Ég sendi samúðarkveðju mína og fjöl- skyldu minnar til Guðnýjar, dætra, sonar og annarra vanda- manna. Við dáum þrautseigju þeirra og þolinmæði þetta erfiða tímabil, sem þau hafa gengið í gegnum. Aðalsteinn Gíslason í dag fer fram útför Jóns G. Ax- elssonar, fyrrv. skipstjóra, er lést á endurhæfingardeild Landspítal- ans 8. desember sl. eftir langvar- andi veikindi. Jón var á 51. ald- ursári. Jón Guðmundur var fæddur í Reykjavík 13. nóvember 1932, en foreldrar hans voru hjónin Axel Guðmundsson, sem lengi starfaði hjá Ráðningarstofu Reykjavíkur- borgar, en hann er látinn fyrir nokkrum árum, og Oddfríður R. Jónsdóttir, er lifir son sinn. Eftir hefðbundna skólagöngu beindist hugur Jóns, eins og svo margra annarra reykvískra ung- menna að sjómennsku. Hann fór til sjós árið 1948 og var fyrst á minni fiskibátum, en síðar á tog- urum. Árið 1953 flutti hann sig um set og gerðist farmaður. Hann var á Fossunum og hjá Ríkisskip, fyrst sem háseti og síðar stýri- maður, því að hann hafði lokið farmannaprófi frá Sjómannaskól- anum í Reykjavík árið 1957. Árið 1959 hóf Jón störf hjá Hafskip hf., er hann gerðist stýrimaður á m.s. Laxá og síðar á öðrum skipum fé- lagsins. Lengst var hann skip- stjóri á m.s. Rangá. Jón var í hópi fyrstu starfsmanna Hafskipa hf. og skipstjóri á skipum félagsins í 14 ár, eða allt til þess er hann þurfti að hætta sökum veikinda vorið 1976. Jón var einkar farsæll skipstjóri og vel látinn og naut trausts. Árið 1957 giftist Jón systur minni, Guðnýju Hannesdóttur, og eignuðust þau þrjú börn og eitt barnabarn. Börn þeirra eru á aldr- inum 18—24 ára, en þau eru: Rósa Steinunn, Oddfríður Ragnheiður og Hannes Axel. Af eðlilegum ástæðum var Jón mjög mikið fjarvistum frá fjöl- skyldu sinni vegna starfs síns. En hugur hans og gjörðir um velferð hennar og heill var augljós þeim, er til þekktu. Þau Guðný áttu því ánægjulegar samverustundir í blíðu og stríðu, eins og gengur. Árið 1976 varð Jón fyrir alvar- legu sjúkdómsáfalli, er síðar varð honum að aldurtila. Það liggur í hlutarins eðli, að það hefur verið mikil raun fyrir jafn áhugasaman og starfhæfan mann á besta aldri að vera kippt frá daglegu lífi og starfi mitt í önn dagsins. Þessi ár voru honum því erfið, en hann + Þökkum auösýnda samúö við andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR G. GUDMUNDSDÓTTUR, Sunnuflöt 20, Garöabn. Guðmundur Kristinsson, Inga Sigurjónsdóttír, Jörundur Kristinsson, Auöur Waagfjörö, barnabörn og barnabarnabörn. + Hugheilar þakkir öllum þeim, er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför, Helga Jónsdóttir, Þorsteinn Stefánsson, Stefán Jónas Þorsteinsson, Fanney Guðbjörnsdóttír, Siguröur Þorsteínsson, Ásgeröur Hjálmsdóttir, Engilbert Þorsteinsson, Anna Lóa Geirsdóttir, Helgi Ómar Þorsteinsson, Olga Magnúsdóttir, Ólafur Þorsteinsson, Sigríður Helgadóttir, Sigríður Þorsteinsdóttir, og barnabörn. EINARS GÍSLASONAR, Vorsabæ, Skeiðum. Sérstakar þakkir eru færöar læknum og hjúkrunarfólki á hand- lækningadeild Landspítalans fyrir góöa umönnun í veikindum hans. Systkinin frá Vorsabæ, fjölskyldur þeirra og systrabörn hins látna. sýndi hetjuskap í baráttunni við manninn með ljáinn, sem var svo að segja í nánd hans öll þessi ár. í veikindum sínum sýndi Jón óvenjulegan styrk og bjartsýni, sem þeim virðist oft gefið, sem mikið þurfa að líða. í hinni erfiðu baráttu reyndist Guðný Jóni ákaf- lega vel. I starfi sínu hafði Jón komið mjög víða erlendis og þar kynntist hann mörgum. Sumir urðu mjög góðir vinir hans og kunningjar. Það varð honum því ákaflega mik- ils virði að fá tækifæri til þess síðustu ár að hitta þessa gömlu vini og kunningja, er hann sem farþegi komst utan með m.s. Langá og Selá þrisvar sinnum. Voru þessar ferðir honum til ánægju sem stuðlaði að auknu lífsþreki. Var hann sérstaklega þakklátur vinum sínum, þeim Bjarna Ásgeirssyni, skipstjóra og Rögnvaldi Bergsveinssyni, skip- stjóra sem gerðu honum þetta kleift. Á kveðjustund koma margar minningar fram í hugann, er kalla fram þakklæti til góðs drengs sem Jón G. Axelsson var. Ég sendi ástvinum hans öllum Innilegar samúðarkveðj ur. Blessuð sé minning Jóns G. Axelssonar. Einar Hannesson Að Jóni Axelssyni látnum er mér efst í huga minningin um góð- an dreng og tryggan vin, sem um árabil háði ójafnan leik við erfið- an sjúkdóm við þær aðstæður, að úrslitin voru löngu ráðin. Við fyrstu kynni fyrir u.þ.b. 25 árum voru augljósir þeir eiginleik- ar hans, sem undanfarin ár komu æ betur í ljós, er tók að halla und- an fæti, — trúin, vonin og kær- leikurinn. Ég hygg, að hann hafi vitað fyrir löngu, að „ei verði feigum forðað" og frá því sett „kúrsinn" svo sem til stóð. Slíkt var og hans ævistarf, sem skipstjórnarmanns, að taka ákvarðanir, sem skiptu sköpum. Ekki er mér kunnugt um að þær hafi leitt til annars en far- sældar. I upphafi ferils var framtíðin björt og draumarnir margir, draumar sem rættust og aðrir sem brugðust, framtíð sem var og framtíð sem nú heyrir fortíð til. Hornsteinn þeirrar framtíðar var heimilið, sem var stofnað til í ág- úst fyrir 25 árum með Guðnýju, sem bjargföst stóð við hlið manns síns uns yfir lauk. Börn þeirra 3 eru Rósa, Oddfríður og Hannes. Jón Axelsson var bjartsýnn og þá mest er á móti blés, enda stóð aldrei til að láta undan fyrir því óþekkta, aðeins sætta sig við orð- inn hlut. Það mun fáum gefið að þola þá raun að verða ósjálfbjarga, en slík urðu hans örlög — örlög sjúkl- ingsins, sem ekki fær ráðið ferð- inni. Stefnan er ákveðin, skipið ferst. Sú er mín trú, að Jón lifi í minn- ingunni hjá öllum sem hann þekktu. Sú er mín von, að vonin sem hann bar í brjósti hafi nú rætst. Sú er mín vissa, að kærleik- urinn, sem hann bar í brjósti — lifi. Með dýpstu samúð. J.Þ.H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.