Morgunblaðið - 18.12.1982, Page 4

Morgunblaðið - 18.12.1982, Page 4
formhonnun sf. 52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982 HHIIHH Skáldsugn cftir Jóii Ón.ir Ríignurssoh. (jclgafcll Wghúsasfij; 5. Rcykjavík. Sími. I6H37. lýtc n Sanitas m AppeL- sin Viðburðaríkur stjórnmálaferill Bókmenntir Erlendur Jónsson Páll Lindal: INGÓLFUR Á HELLU. Umhverfi og ævistarf. I. 288 bls. Fjölnir. Reykjavík, 1982. Margir söknuðu þess er Ingólfur á Hellu bauð sig ekki lengur fram og hætti þar með að taka virkan þátt í stjórnmálunum. Maður, sem búinn er að standa svo lengi í sviðsljósinu, er orðinn svo sterkur þáttur í þjóðlífinu að maður getur naumast ímyndað sér stjórnmálin, þingfréttirnar, fjölmiðlana og daglegu umræðuefnin án hans. En Ingólfur er sem betur fer ekki horfinn af sjónarsviðinu. Nú lítur hann yfir farinn veg og rifjar upp það sem á daga hans hefur drifið á viðburðaríkri ævi. Fyrra (eða fyrsta) bindi endurminninga hans er komið út »sem Páll Líndal hef- ur skráð og búið í bókarform«, eins og stendur á titilsíðu. Fram kemur í formála Páls að útgefandi bauð Ingólfi að velja sér höfund til að skrá þessar endurminningar. Og Ingólfur kaus Pál. Það val hef- ur nú skilað góðum árangri. Algengt er að ævisögur segi mest frá bernsku og æsku, nokkuð frá árunum milli tvítugs og þrí- tugs, en síðan sé hlaupið hratt yfir það sem eftir er. Því er ekki svo varið um þessa bók. Ingólfur greinir frá ætt sinni og uppruna, sömuleiðis frá bernsku- og æsku- árum, námi o.s.frv., en fjölyrðir ekki mjög um það skeið ævi sinn- ar. Sýnu fleira segir hann um stjórnmálin allt frá því er hann tók að fylgjast með þeim, ungling- ur austur í Rangárvallasýslu. Saga þessi er því í fyllsta skilningi málefnaleg. Að lesnum þriðjungi bókarinnar er komið að kafla sem ber yfirskriftina: Stjórnmálasvipt- ingar á fjórða áratugnum og upphaf þeirra. Og þriðjungur er eftir þeg- ar Ingólfur tekur að segja frá sinni fyrstu ráðherratíð. Ingólfur var aðeins tuttugu og fjögra ára er honum var falið það ábyrgðarstarf »sem margir töldu nánast óvinnandi. Það var að taka að mér stjórn á nýstofnuðu kaup- félagi á Hellu.* Menn veltu þessu vitanlega fyrir sér. Og eitt sinn kom Ingólfur inn á fund, þeim að óvörum er fundinn sátu, þar sem menn voru einmitt að ræða um ráðningu hans. Og um leið og hann gengur inn segir maður: »Ég held nú það. Hann er sonur Jóns og Önnu.« Var það hvorki í fyrsta né síðasta skipti sem Ingólfur naut foreldra sinna. Árið 1940 var fyrst tekið að orða það að Ingólfur byði sig fram til Alþingis. Kosningar skyldu fara fram árið eftir, 1941. En þeim kosningum var nú raunar frestað um ár vegna styrjaldarinnar og þá Ingólfur Jónsson einnig umræðum um framboð. En þegar að því kom að taka varð ákvörðun voru þeir valdir til framboðs, Ingólfur og Sigurjón í Raftholti. í vorkosningunum 1942 hlaut Framsóknarflokkurinn nauman meirihluta í Rangárvalla- sýslu, Sjálfstæðisflokkurinn ör- litlu færri atkvæði. En hlutfalls- kosningar voru þá ekki enn komn- ar til sögunnar, þvert á móti var nú verið að kjósa um þær, þannig að báðir framsóknarmennirnir hlutu kosningu. Ingólfur tók eigi að síður sæti á Alþingi sem fimmti landskjörinn. Þar með var hafin þátttaka hans í stjórnmál- um. Og með breyttum kosninga- lögum varð hann svo þingmaður Rangæinga. Röskum áratug eftir að Ingólfur var fyrst kosinn á þing, það er 1953, tók hann sæti í nýmyndaðri ríkisstjórn og þá sem viðskipta- og iðnaðarráðherra. Iðnaðarmál voru þá lítt í sviðsljósinu. öðru máli gegndi með viðskiptamálin, þau voru bæði umdeild og vandasöm. Haftaskeiðið var ekki fullkomlega á enda runnið þó mjög hefði greiðst úr þeim málum frá því sem var fáum árum áður og varð það meðal annarra verkefna við- skiptaráðherra að leysa þá hnúta. Ingólfur segir frá því að er fyrsta ríkisráðsfundi hinnar nýju stjórn- p~ var lokið hafi Ólafur Thors boð- ið sér heim í Garðastræti 41. Þar var sest að borðum »og þar skál- uðum við ásamt heimilisfólki hans. Aðrir gestir en ég voru ekki.« — ólafur Thors erfði það ekki við hann að Ingólfur hafði á sínum tíma verið andvígur Ný- sköpunarstjórninni. Þessu bindi lýkur er Ingólfur stóð á fimmtugu, 1959, en þá gerð- ist það minnisstæðast í stjórnmál- unum að kjördæmaskipun og kosningalögum var breytt í það horf sem síðan hefur haldist og skömmu síðar var viðreisnar- stjórnin mynduð en hún sat að völdum allan næsta áratug og tókst, einni ríkisstjórna, að lægja að nokkru þær upplausnaröldur sem hér hafa annars gruggað þjóðlíf og stjórnmál um langan aldur. Ingólfur segir frá því að hann hafi í fyrstunni hallast »töluvert í áttina að Framsóknarflokknum*. En Framsókn brást í stjórnarsetu 1927—1932 og Ingólfur batt ekki framar vonir við þann flokk. Framkvæmdir voru þó talsverðar á því tímabili og mikið af þeim gumað. »Árið 1931 var meira að segja gefin út á kostnað ríkissjóðs furðu glæsileg myndabók, á þriðja hundrað síður, dreift út um allt land á opinberan kostnað.« En hvaðan kom fé til þessara fram- kvæmda? Það var fé sem Jón Þor- láksson hafði sparað saman á ár- um áður því »sá var munurinn, að Jón Þorláksson hélt utan um það fé, sem ríkissjóði aflaðist, en þeg- ar umskiptin urðu 1927 snerist allt á hinn veginn.« Snemma á fjórða tugnum klufu sig nokkrir menn frá Framsóknar- flokknum og stofnuðu Bænda- flokkinn. Ingólfur taldi strax að slíkur flokkur — sem berðist ein- ungis fyrir málefnum einnar stéttar — ætti enga framtíð fyrir sér enda lognaðist Bændaflokkur- inn brátt út af og skyldi eftir sig fá spor í íslenskri stjórnmálasögu, Meginkostur þessarar bókar er að mínum dómi sá hversu grannt er farið ofan í saumana á íslensk- um stjórnmálum allan þann tíma frá því er sögumaður tók að fylgj- ast með og þar til þessum hluta endurminninganna lýkur. Ingólfur á Hellu er, eins og Páll Líndal seg- ir í formála, »maður, sem hófst af sjálfum sér til æðstu metorða fyrir skarpa greind, óvéfengjan- legt raunsæi, ótvíræðan dugnað og mikla ósérplægni.« Og hvað sig snerti segist Ingólf- ur álíta »að mitt viðhorf stafi af því hversu hið fagra og stórbrotna umhverfi eystra hefur alltaf haft mikil áhrif á mig.« Rangárþing er sögufrægasta hérað landsins. Hvergi ber heldur fyrir augu stórbrotnara landslag. Og víðsýni getur hvergi meira. Sagt er að fólk taki á hverjum stað svip af sínu umhverfi, og þykir mér það sannast rækilega með þessari bók. Svartur skuggi í friðsælu umhverfi Iðunn Steinsdóttir: KNÁIR KRAKKAR. Myndir teikn- aði Auður Eysteinsdóttir. Káputeikn- ing: Ástmar Ólafsson. Bókhlaðan 1982. Nýr höfundur, Iðunn Steins- dóttir, kveður sér hljóðs. Á bókar- kápu stendur að sagan sé ætluð börnum á aldrinum 8—12 ára. Sagan gerist í sveit. „Sveitin er girt háum fjöllum. Þau heita ýms- um nöfnum, hvert eftir sínu lagi, svo sem „Hæll“, „Öxl“ og „Litl- atá“. En eitt er þó fjallið hæst og mest og gnæfir yfir öll hin. Það er „Stóratá". Af tindi hennar sést um víða vegu til allra átta.“ Aðalpersónur sögunnar eru tíu ára leiksystkin, Búi, Lóa og Hrói. Margar aðrar persónur koma vit- anlega einnig við sögu. Búi er alinn upp hjá ömmu sinni og frænda. Hin tvö í skjóli for- eldra með fleiri systkinum. Skólinn er búinn. Framundan er vorið með sínum ábyrgðarmiklu störfum — og frelsið í ríki stór- brotinnar náttúru landsins. Sauð- burður stendur yfir og barnshend- ur hjálpa ánni Surtlu í fæðingar- nauð hennar. Margir atburðir ger- ast í sögunni og reka þeir hver annan. Magnaður atburður úr raun- veruleika síðari ára er meginþráð- ur sögunnar. Persónur komnar úr hinum stóra heimi utan litlu eyjunnar valda ungum þegnum og litlu sveitarfélagi býsna miklum erfið- leikum til umfjöllunar og úrlausn- ar. Höfundi lætur vel að lýsa fögru umhverfi í friðsælli náttúru landsins. En jafnvel þangað nær skuggi umheimsins og veldur átökum. Sagan er rituð á léttu, lifandi máli sem hentar ágætlega börnum er ekki hafa náð fullkomnu valdi á lestri. Atburðir sögunnar eru ekki færðir í einfaldara form fyrir þaer sakir, þeir skila fyllilega sínum átökum. Saga Iðunnar er vel sögð og verðskuldar athygli. Myndir eru misjafnar, sumar ágætar og frágangur á bókinni er vandaður. Káputeikning er góð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.