Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 18.12.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982 79 Tröll, tröll, tröll Fyrir eins og ári var Haukur Halldórsson á ferð í Gallerí Lækjartorgi með sýningu á teikningum og einnig risahönd, gerðri í steypu, ef ég man rétt. Nú er Haukur kominn aftur á sama stað með tröll sín og þjóð- sögumyndir. Ég fór heldur vin- samlegum orðum um fyrri sýn- ingu Hauks, og átti hann það fullkomlega skilið. Það hefur ekki ýkja mikið gerst á þessu ári hjá Hauki og vart sjáanlegur munur á þeim myndum, sem hann sýndi í fyrra og því, er hann nú tjaldar. Það eru 41 teikning á þessari sýningu, og svo koma þar nokkr- ir upphafsstafir úr tröllabók Hauks, en um hana hefur þegar verið fjallað á síðum Morgun- blaðsins. Einnig eru fáanlegar eftirprentanir af tröllum Hauks, og eru þær mjög nálægt frum- myndum, því að vel hefur tekizt að prenta eftir teikningum lista- mannsins, enda er sá stíll, er hann notar, vel til þess fallinn. Haukur notar einkum og sér í lagi eina stíltegund við mynd- gerð sína, og ef ég man rétt, lét ég álit mitt í ljós á sýningu hans í fyrra. Mér sýnist Haukur not- færa sér enn sama stíl og dettur Myndlíst Valtýr Pétursson í hug, að hann hefði gott af að bregða sér svolítið á leik og létta yfir hinum massívu fígúrum, eins og sagt er á afleitu máli, sem myndgerðarmenn munu þó skilja. Sem sagt, hann vinnur ör- ugglega, en of þröngt að mínum dómi, því að þjóðsögur og tröll bjóða heim fjölbreytni og taum- lausu hugmyndaflugi. Það er auðvitað gott og blessað að ná ágætum árangri innan viss ramma, en það er enn betra að geta brugðið fyrir sig fjölda stíltegunda, sem oft á tíðum gefa efni þjóðsagnanna enn betur en æsilegar ljósabreytingar og tungl vaðandi í skýjum. Satt að segja finnst mér þessi sýning Hauks ekki bæta neinu við hróð- ur hans sem teiknara, og ég er ekki frá því, að hann ætti að at- huga verulega sinn gang, áður en hann er orðinn fastur í þessum þó nokkuð þunga stíl. Hann get- ur vel teiknað, en það má ekki verða að nokkurs konar færi- bandavinnu. Frá myndrænu sjönarmiði er bók hans Tröll skemmtileg og vel gerð. Haukur sýnir þar afar vel sérstöðu sína sem teiknari í samfélagi okkar. Hann nær þar þeim árangri, að maður gerir ósjálfrátt kröfur um framhald, sem ekki væri endurtekning, heldur viðbót við leikni og getu þessa teiknara. „ 555 GÁTUR“ er eins konar framhald af bókinni „444 gátur“, sem sló svo rækilega i gegn fyrir síðustu jól. Nýjar og glettnar úrvalsgátur alls staðar að úr heiminum, þar á meðal íslenskar. Sigurveig Jónsdóttir stað- færði efnið og valdi gáturnar. „LEIKIR FYRIR ALLA“ er bók með fjölbreyttum leikjum fyrir unga sem aldna. Allir eru þeir þraut- reyndir og lifga alls staðar upp á andrúmsloftið. Sigurður Helgason tók saman. „ÞRAUTIR FYRIR BÖRN“ hefur að geyma hundrað skemmtileg, mynd- ræn viðfangsefni fyrir börn á aldrin- um 6-12 ára, sem þroska athyglisgáfu, einbeitingu og skipulagshæfileika þeirra. Guðni Kolbeinsson hefur þýtt efnið og staðfært það. VIÐ I VESTURBÆNUM Stjórnmálamenn, listamenn, at- hafnamenn — raunar hafa allir menn verið börn. En hvernig börn? Er hægt aö segja um þá: Snemma beygist krókurinn. Bók fyrir börn á öllum aldri. KRSUÁNi P MfiíM VIÐ í VESTURBÆNUM ALLIR MENN ERU DAUÐLEGIR eftir hina frægu frönsku skáld- konu Simone de Beauvoir. Skyldi mönnum ekki leiðast þegar þeir eru orðnir mörg hundruð ára gamlir? Bók sem hrífur háa og lága. ppni Kr. 444,60 MOMO eftir Micheal Ende. Litla stelpan Mómó sætti sig ekki við hvað allir voru uppteknir, þreyttir og streittir. Sagan um hvernig hún bjargar tímalausu fólki frá tímaþjófunum er eins og ævin- týri — börn njóta þess sem ævin- týris — fullorðnir hugsa sitt. Kr. 395,20 JAKOB HÁLFDANARSON Sjálfsævisaga — bernskuár Kaupfélags Þingeyinga. Jónas frá Hriflu kallaði Jakob „föö- ur samvinnuhreyfingarinnar“. Þessi bók er skrifuð um síöustu aldamót og hefur ekki birst fyrr á prenti. Það er fróðlegt að lesa þessar samtímalýsingar á upphafi sam- vinnuhreyfingarinnar — og ævi Jakobs hefur heldur ekki verið viðburðasnauð. // Bcrnskuar kaupfclags lhngcyinga Kr. 444,60 KÆRI HERRA GUÐ, ÞETTA ER HÚN ANNA eftir Flynn. Saklaus börn eru dásamlegustu verur sem nokkur maður getur kynnst. Anna litla var einlæg og hreinskilin í athugun sinni á tilver- unni, sem og í samtölum við Guð. Þessari bók er ekki hægt að lýsa — hana verður að lesa. (Hún var útvarpssaga í haust). | FYNN kæri herra GUÐ ta er3 húu ANNA Kr. 345,80 ALLI OG HEIÐA Hljómplata og bók 25 barnalög, létt, skemmtileg og fróöleg. Þessi plata er sniöin aö þörfum barrianna sjálfra — hún er einföld og skýr. Falleg bók fylgir plötunni. (Ath. Alli og Heiöa eru reiöubuin að skemmta á samkomum, í af- mælum o.s.frv. Umboössimi 17165). ÍSAFOL Kr. 299,- mm y I W£Z.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.