Morgunblaðið - 18.12.1982, Side 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
Búnaðarbankinn í Frakk-
landi, Credit Agricole, efndi
til íslandskynningar í aðal-
stöðvum bankans í Nor-
mandí dagana 18.—21. nóv-
ember. En Normandí er ann-
að þeirra héraða Frakklands,
sem vegna gamalla tengsla
við norræna menningu og
róta í víkingatímanum hefur
mikinn áhuga á íslendingum,
tungu þeirra og menningu.
En íslandskynningin var í
samvinnu og fyrir áhrif frá
íslenzkudeildinni í háskólan-
um í Caen og félaginu Ás-
garði, sem ræktar tengslin
við norrænan uppruna Nor-
mandí-búa og gefur út blaðið
Heimdall. Fulltrúum frá ís-
landi var boðið til Normandí
af þessu tilefni. Þrír þáðu
boðið, Njáll Ingjaldsson,
skrifstofustjóri Síldarútvegs-
nefndar og kona hans,
Hjördís Jónsdóttir, og
Sveinn Sæmundsson, for-
stöðumaður kynningardeild-
ar Flugleiða. Einnig voru
viðstaddir Gunnar Snorri
Gunnarsson, sendiráðsritari í
París, sem hafði verið milli-
göngumaður um útvegun á
munum, og Antoine Quitt-
ard, svæðisstjóri Flugleiða í
Frakklandi. Blaðamaður
Mbl. sá sér ekki fært að
þiggja boð bankans, en eftir
heimkomuna var leitað frétta
hjá Sveini Sæmundssyni.
— íslenska sýningin var opnuð
18. nóvember í samkomusal Bún-
aðarbankans í Saint-Lo, sem tekur
nokkur hundruð manns og var al-
veg fullt þar þótt á miðjum vinnu-
degi væri, sagði Sveinn. Prófessor
Regis Boyer frá Parísarháskóla,
sem dvaldi lengi á íslandi og hefur
þýtt íslenzkar bækur og fornsögur
á frönsku, flutti klukkutíma fyrir-
lestur um ísland og íslenzka
menningu. Og sýnd var íslands-
kvikmynd, sem fengin var að láni
frá sendiráðinu í París. En Gunn-
ar Snorri Gunnarsson mælti
þakkarorð fyrir Islands hönd og
opnaði sýninguna. Einnig töluðu
borgarstjórninn í Saint-Lo og
sýslumaðurinn í Manche.
Islenskum fyrirtækjum hafði
verið boðið að sýna þarna, en
þátttaka var fremur dræm. Sýnd-
ar voru ullarvörur frá Álafossi og
sendiráð Islands hafði útvegað
ljósmyndir frá Islandi. Auk þess
höfðu verið fengnir að láni munir
úr Þjóðminjasafninu og úr Byggð-
asafninu á Akureyri, m.a. fyrir
milligöngu íslenzkrar konu, Stein-
unnar Filipusdóttur Breton frá
Hrisey, sem búsett er í Normandí
og kennir íslenzku við háskólann í
Caen.
Eftir það hófst dagskrá fyrir
gestina frá Islandi, að því er
Sveinn sagði. Var farið um marg-
ar borgir í Normandí fylgd með
Gamli virkisveggurinn í Saint Lo.
Óskaplegt mannfall varð í Normandí I báðum heimsstyrjöldunum, en
þar var innrás Bandamanna í Normandí í þeirri seinni. Minnismerki um
þá sem fóru og ekki komu aftur.
íslandskynning 1 Normandí:
Komdu sæll,
sögðu Normandí-búar
í stað kveðjunnar
bon jour
Une délégation islandaise
a Cherbourg
íslenzku gestirnir (lengst til hægri) Sveinn Sæmundsson, Njáll Ingjaldsson og Hjördís Jónsdóttir ásamt
fulltrúum verzlunarráðsins í Cherbourg. Myndin er úr blaðinu La Presse de la Manche.
blaðafulltrúa bankans og M. Bern-
age, sem er formaður Asgarðs og
gefur út tímaritið Heimdall í Bay-
eux. — Ferðin var ákaflega
merkileg og vel undirbúin, sagði
Sveinn. Áhuginn á íslandi er meiri
á þessum slóðum en annars staðar
sem ég hefi komið erlendis. Er
sannarlega þess virði að auka
samskiptin milli íslands og þess-
ara staða. Alls staðar tóku á móti
Islendingunum borgarstjórar og
fulltrúar verzlunarráðanna á
staðnum svo og framámenn í
landbúnaði, fiskiveiðum og iðnaði.
Skipst var á upplýsingum. íslend-
ingarnir fræddir á samskiptum
viðkomandi borgar við íslandinga
og sagt frá atvinnulífi og viskipt-
um á hverjum stað. En íslend-
ingarnir veittu á móti upplýsingar
um ísland og íslendinga. Sjálfur
hafði Sveinn meðferðis kynn-
ingarefni frá Flugleiðum um fé-
lagið og íslenskt atvinnulíf.
Mikill íslandsáhugi
Á fyrsta degi var farið til
Cherbourg, sem á víkingatíman-
um hét Skerjaborg, að því er gest-
unum var tjáð. — Þótt Cherbourg
sé við Ermasund er þetta ekki
fyrst og fremst fiskibær, sagði
Sveinn. Öllu heldur mikilvæg
miðstöð verzlunar og viskipta. Til
dæmis fer um höfnina ógrynni af
bílum, sem dreift er þaðan um allt
meginlandið. Til dæmis er öllum
Toyotum frá Japan skipað þar
upp. Frá Cherbourg fóru á sínum
tíma flestir frönsku innflytjend-
urnir til Kanada. Þarna eru mikil
hafnarmannvirki og er nú verið að
breyta þeim. Áður kom fólk og
flutningar með járnbrautarvögn-
um og fór þar um borð í Atlants-
hafsfarskipin. Nú er verið að
breyta yfir í svokölluð „ro-ro“-
skip, sem taka bíla og allt annað
beint. Frá Cherbourg fer gífurlega
mikið af farþegum og flutningi
milli Frakklands og Bretlands
með ferjum. Og þar er eini flug-
völlurinn á stóru svæði.
— I Cherbourg urðum við
skemmtilega varir við þennan
mikla Islandsáhuga, sem er svo
áberandi í Normandí, sagði
Sveinn. En fólk virðist þar sem
víðar vera farið að hugsa meira
um uppruna sinn og rætur.
Tengslin við ísland eru mest frá
Víkingatímanum, er víkingarnir
sem töluðu íslenzku settust þar að.
Þarna hittum við eins og reyndar í
Bayerux fólk, sem ekki heilsaði
með ávarpinu „Bon jour“, heldur
„Komdu sæll og blessaður".