Morgunblaðið - 18.12.1982, Síða 17
Siglufjörður:
Óánægja með
snjómokstur
Siglufirði, 15. desember.
MEGN óánægja er nú ríkjandi hér á
Siglufirði með slælega framgöngu
Vegagerðarinnar við snjómokstur
hingað til kaupstaðarins. Hér er
ófært dag eftir dag, þótt vitað sé að
aðeins er um örstutta kafla á vegin-
um að ræða. Virðist því sem Vega-
gerðinni væri vandalaust að opna
veginn fieiri daga en föstudaga og
þriðjudaga, sem eru hinir „lög-
boðnu“ mokstursdagar.
Hér á Siglufirði búa um 2.000
manns, og það hlýtur að vera
sanngirniskrafa okkar að sam-
göngumálum okkar sé sinnt á
þann veg nú, er stórhátíð fer í
hönd, að unnt sé að aka til og frá
bænum alla daga, að minnsta
kosti á meðan færð er ekki verri
en nú er.
— FrétUriUri
Nafn gagnrýn-
anda féll niður
í Morgunblaðinu síðastliðinn
miðvikudag birtist ritdómur um
barnabókina „Óskasteinninn" eft-
ir Ármann Kr. Einarsson. Yfir-
skriftin, bókmenntir, og nafn
gagnrýnandans, Sigurðar Hauks
Guðjónssonar, féllu hins vegar
niður. Ennfremur varð kápumynd
viðskila við frétt um útkomu bók-
arinnar. Biður Morgunblaðið vel-
virðingar á mistökunum.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
65
★ Albert Guðmundsson ★ Veitingahúsið Fell
áritar bók sína. býður kaffi.
★ Breiðholtsbakarí
býður jólabakkelsi
Þjónusta í hverfinu. — Næg bílastæði.
BrciðhcnsBakan
Völvufelli 13 - Slmi 7365S
Nýtt og ferskt jólabrauð frá
handverksbakaranum.
Veitingahúsið
Fell,
Völvufelli 17, sími 71355.
Látið veitingahúsið Fell létta
ykkur störfin í jólaönnunum.
Mbókabúðhm
Membla
Völvufelli 21, sími 76366.
Leitið ekki langt yfir skammt.
Allt í jólapakkann í Bókabúð-
inni Emblu.
I meira en hundrað löndum