Morgunblaðið - 18.12.1982, Page 30

Morgunblaðið - 18.12.1982, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982 U axn*u Erlendar hljomplötur og bækurtil gjafa Hagstætt verö. Bokabúo Steinars Bergstaöastræti 7-Sími 16070 Bókin umþi|* veistu hver þú eít? Þetta er bókin sem þú skrifar með eigin hendi, ÆTTARBÓKIN þín. Þú safnar upplýsingum og færir þær inn í ÆTTARBÓKINA og smám saman verður til ritverk, sem rekur sögu ættar þinnar, spennandi og viðburðaríka sögu með fjölmörgum persónum, sögu sem veitir þér nýja innsýn inn í lífið i landinu bæði fyrr og nú. Og enginn skammtar þér tima til þessa verks eða rekur á eftir þér, því að bókin þín er þegar komin út. ÆTTARBÓKIN skrifar sig ekki sjálf fremur en aðrar góðar bækur. Það verk er þér ætlað að vinna — en ekki hjálparlaust. ÆTTARBÓKIN geymir lykilinn sem þú þarft á að halda, skrá yfir heimildir sem þú getur leitað til og einfalt skrá- setningarkerfi, sem er aðgengilegt og auðskilið. ÆTTARBÓKIN er ekki einvörðungu geymslu- staður fyrir mannanöfn, dagsetningar og ártöl, heldur rúmar hún líka fróðleik og frásagnir, sem þú bjargar frá glötun. ( ÆTTARBÓKIN er ætluð fólki á öllum aldri, sem vill vita meira um annað fólk, umhverfi ög sögu. Hún er ætluð þér. ÆTTARBÓKIN erjólagjöf sem tengir stórfjöl- skylduna aftur saman. SOGGSTEINN Vilmundur Gylfason sýknaðurí meiðyrðamáli HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað ViJ- mund Gylfason, alþingismann, í meiðyrðamáii, sem Jósafat Arn- grímsson, kaupmaður í Keflavík, höfðaði vegna ummæla sem Vil- raundur viðhafði í sjónvarpi í frétta- þættinum Kastljósi 20. desember 1974. Jósafat gerði þær kröfur að ummæli í átta liðum, sem Vilmundur viðhafði í Kastljósi, yrðu dæmd dauð og ómerk og að honum yrði dæmd tilhlýðileg fjárhæð til að greiða kostnað af birtingu málsloka í sjón- varpi eða öðrum fjölmiðli. Til vara krafðist Jósafat að Vilmundur yrði dæmdur í þyngstu refsingu, sem lög leyfa, fyrir að að raska opinberlega friði einkalífs síns. Þá krafðist hann þess, að Vil- mundi, Ríkisútvarpi og fjármála- og menntamálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs yrði gert að greiða fégjald fyrir ófjárhagslegt tjón eða miska. Dómur féll í héraði Vilmundi í vil og krafðist hann þess, að sá dómur yrði staðfestur. Fyrir Hæstarétt voru lögð ný gögn, þar á meðal endurrit af dómi sakadóms Gullbringusýslu frá 5. maí í sumar. Þar var Jósafat sakfelldur fyrir að hafa gefið út 21 tékka, samtals að fjárhæð gkrón- ur 21.463.375, án þess að næg inni- stæða væri fyrir hendi. Jósafat var dæmdur í sex mánaða fangelsi en fullnustu þeirrar refsingar frestað og hún felld niður að tveimur árum liðnum frá upp- kvaðningu dómsins ef almennt skilorð 57. gr. almennra hegn- ingarlaganna, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955, verður haldið. Við ákvörðun refsingar tók sakadómari tillit til þess, að brot voru játuð greiðlega og að langt var liðið frá því að þau voru fram- in — eða 1974. Þá höfðu hinir inni- stæðulausu tékkar allir verið gerðir upp að fullu ásamt kostn- aði. Jósafat krafðist þess, að um- mæli Vilmundur í átta liðum yrðu dæmd dauð og ómerk. Hæstiréttur hafnaði þessari kröfu, taldi um- mælin hvorki refisverðar móðgan- ir né aðdróttanir, né voru þau tal- in brjóta í bága við friðhelgi einkalífs í skilningi 229. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19/1940 eða vera óskráðar grundvallar- reglur um persónuvernd. Þó var einn liður ummæla Vil- mundar í umræddu Kastljósi tal- inn óviðurkvæmilegur en þau voru svohljóðandi: „Og maðurinn segir við vini sína: Hafið engar áhyggj- ur, ég er dæmdur, ég er dæmdur trekk í trekk, ég fer aldrei í tukt- hús.“ Kröfu um fégjald fyrir ófjár- hagslegt tjón eða miska var hafn- að, svo og fékröfu til greiðslu kostnaðar af birtingu dóms. Þá var kröfum’á hendur Ríkisútvarp- inu, menntamálaráðherra og fjár- málaráðherra hafnað. Jósafat var gert að greiða málskostnað fyrir ríkissjóð og Ríkisútvarpið en málskostnaður fyrir Hæstarétti milli Jósafats og Vilmundar var felldur niður. Fann loft- netsstangir MAÐUR nokkur í Hlíðunum fann í sunnudag fimm loftnetsstangir í bif- reið sinni. Virðist sem stöngunum hafi verið stolið og þær skildar eftir í bifreiðinni. Þeir sem sakna loft- netsstanga geta vitjað þeirra hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. Wterkurog k-J hagkvæmur auglýsingamiöill!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.