Morgunblaðið - 18.12.1982, Side 32
80
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
Bladburðarfólk
óskast!
Austurbær
Skólavöröustígur
Laugavegur 1—33
Flókagata 1—51
Vesturbær
Tjarnarstígur
Garðastræti
Faxaskjól
Skerjafjöröur
sunnan flugvallar
Úthverfi
Gnoðarvogur 44—88
Hjallavegur
GÆEÐAMERK!Ðfæst nú á ís,andi
Litrófið er lengra en stafróið. Óteljandi tegundir af
peysum, buxum o.fl. fyrir dömur og herra frá 12
ára — 99 ára.
SILFURSKIN
Skólavörðustíg 5. Sími: 15050
0 12
Barnaföt, peysur, buxur, skyrtur, o.fl. frá 0—12 ára.
Skólavörðustíg 4A. Sími 18875.
„ ERTU ELDKLÁR?"
Það er alltaf gaman til
þess að vita þegar einkaaðil-
ar eða einhver félagsskapur
tekur sig til og skoðar
brunavarnamálefni síns hér-
aðs og beitir sér fyrir að fólk
komi lagi á hlutina á sínu
heimili. Landssambandi
slökkviliðsmanna er ánægja
að bjóða JC Árbæ velkomna
í hóp brunavarnamanna á
íslandi.
Nú þegar dregur að jólum
og áramótum eykst bruna-
hætta á heimilum mjög mik-
ið, kerti, jólatrésseríur, blys
og rakettur eru tekin fram
og þótt slökkviliðin búi sig
undir þessa auknu hættu er
skaðinn oft skeður þegar það
kemur á vettvang. Búum
okkur því sjálf undir hið
aukna hættuástand og fjár-
festum í þeirri ódýru líf-
tryggingu sem slökkvitæki
og reykskynjarar eru, það
hefur sannast margoft að
þessi tæki hafa bjargað
mannslífum og enn oftar
hafa þau bjargað eða komið í
veg fyrir stórkostlegar
skemmdir á heimilum fólks.
Börnin á heimilunum eru
oftast í hvað mestri hættu
þegar eldur verður laus, er
ekki kominn tími til að við
útbúum okkar eigin flótta-
áætlun, kennum öllum hvað
hver eigi að gera ef eldur
brýst út og hvar eigi að hitt-
ast er út er komið. Athugið
að ávallt verður að vera um
tvær leiðir að velja út úr
hverju herbergi. Hér á eftir
koma svo nokkrar spurning-
ar sem gott væri að kunna
svörin við.
í eldi geta sekúndur skipt
máli því er nauðsynlgt að
hafa tilbúna og æfða flótta-
áætlun. Rétt væri að hver
fjölskylda ræddi og æfði eft-
irfarandi atriði:
l*ú ert að laga hádegismatinn,
þegar siminn hringir. Þú ferð fram
til að svara og þegar þú kemur til
baka stendur eldtunga upp frá
steikarpönnunni. Hvað áttu að
gera?
A: Flytja pönnuna af eldavélinni?
B: Slökkva hina brennandi feiti
með því að hella vatni á pönnuna?
C: Slökkva á eldavélinni og setja
lok á steikarpönnuna?
Þú býrð í gomlu húsi. Það hefur
aukist að það springi öryggi og
jafnvel að það finnist brunalykt
þegar kveikt eru Ijós í kjallaran-
um. Það er liðin hálf klst. síðan þú
varst þar síðast og nú finnur þú
brunalykt og sérð reyk leggja upp
eldhúströppurnar, þú hleypur
niður og sérð reyk koma út um
hálfopnar kjallaradyrnar. Hvað
áttu að gera?
A: Galopna kjallaradyrnar og
opna glugga til að fá reykinn út úr
kjallaranum?
B: Loka kjallaradyrunum og láta
nágrannana vita?
C: Fara niður í reykinn og athuga
hvað hafi skeð?
D: Kalla á slökkvilíðið og jafnvel
halda dyrunum rökum með vatni?
Þú situr reykjandi í hæginda-
stól, þegar dyrabjallan hringir. Þú
leggur sigarettuna frá þér á ösku-
bakka sem stendur á stólarminum.
Þegar þú kemur til baka hefur síg-
arettan fallið ofan i stólinn og
kveikt í honum. í hvaða röð áttu að
framkvæma eftirfarandi?
A: Kæfa eldinn meö teppi.
B: Sækja vatn og skvetta því á
stólinn með hendinni.
C: Færa stólinn frá gardínum og
öðrum stofuhúsgögnum.
ist við að reyna slíkt.
8. Farið í næsta hús eða
íbúð til að hringja í
slökkviliðið.
9. Leggið símanúmer
slökkviliðsins á minnið.
Svör við spurningum 1-c,
2-c-a-b, 3-b-d.
Þekkirðu hætturnar:
1. Kertaljós er of nálægt
gardínunum.
2. Straujárnið stendur í
sambandi á straubrettinu.
3. Rafmagnsinnstungan er
ofhlaðin af straumfrekum
rafmagnstækjum.
4. Bensín notað við hrein-
gerningu, þar sem logar ljós
og rafmagnsofn er í sam-
bandi.
5 Barnið er að leika sér að
eldspýtum.
6. Föt eru þurrkuð á raf-
magnsofni.
7. Reykingar í rúmínu eru
oft orsakir dauðsfalla.
1. Sofið með herbergisdyrn-
ar lokaðar, það heldur af-
tur af hinum eitraða reyk.
2. Reykskynjarinn mun
væla og vekja fjölskyldu
þína.
3. Athugaðu dyrnar, ef þær
eru heitar, notaðu hina
flóttaleiðina, séu þær
kaldar settu öxlina í hurð-
ina og vertu viðbúinn að
loka ef reykur eða hiti
kemur inn.
4. Skríddu í reyk, reykurinn
og annað eiturloft stígur
upp svo það er skárra loft
niðri við gólf.
5. Vertu fljótur út.
6. Farðu á hinn valda móts-
stað svo þú getir athugað
hvort öll fjölskyldan sé
óhult.
7. Farðu ekki aftur inn í eld
eða reyk og vertu viss um
að aðrir fari ekki heldur
inn, fjöldi fólks hefur lát-
8. Rafmagnssnúra er fest
við vegginn með nagla.
Góðir landsmenn, sýnum
gætni og árvekni á komandi
hátíðum. Tökum höndum
saman til að fækka eldsvoð-
um og mannslátum á Is-
landi.
ERT ÞÚ ELDKLÁR?
f.h. Landssambands
slökkviliðsmanna
Höskuldur Einarsson
formaður.
9 »