Morgunblaðið - 18.12.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1982
93
Taka stæðin frá okkur
SJ. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Mig langar til að leggja orð í
belg og taka undir orð Olafs Jós-
efssonar, sem hann ritaðí í Vel-
vakanda 5. desember. Hann minn-
ist á, hvort ekki geti komið til
greina að taka Lækjargötuna und-
ir bílastæði fyrir MR-inga, og er
þá með í huga kröfu Verslunar-
skólans um bíiastæði í nágrenni
sínu.
Eg bý mjög nærri Menntaskól-
anum í Hamrahlíð. Ég sé ekki bet-
ur en sá skóli hafi næg bilastæði.
En viti menn. Fólkið nennir ekki
að nota þau, heldur leggur undir
sig stæðin við húsin okkar. Og við
megum leggja bílnum okkar langt
frá og bera vörur og annað, sem
maður kemur með, langar leiðir.
Svo þegar „unglingarnir" í skólan-
um hætta, þá koma þeir eldri, sem
eru í öldungadeild, og eru til kl. 7.
Það er sem sagt aðeins á kvöldin
sem við höfum stæðin fyrir okkur.
Og það skal tekið fram, að í hverj-
um bíl skólafólksins er yfirleitt
aðeins einn maður, bílstjórinn, í
hæsta lagi tveir. Góð nýting það.“
Svo má brýna deigt járn ...
eigendur
Pústkerfin eru
ódýrust hjá okkur
Hjá okkur fáið þið orginal pústkerfi í allar
gerðir Mazda-bíla.
Isetningarþjónusta á staðnum.
BÍLABORG HF.
Smiðshöfða 23
Símar: Verkstæði 81225 —Varahlutir 81265
Sigurdur G. Haraldsson skrifar:
„Velvakandi.
, Nú þegar fullveldisdagurinn 1.
desember er liðinn, er ekki óeðli-
legt að ýmsum séu ofarlega í huga
þær miklu kjaraskerðingar sem
dunið hafa á íslensku launafólki.
Ekki er heldur óeðlilegt að sjálf-
skipaður málsvari þeirra sem
minna mega sín, iáglaunafólksins
og fleiri, Alþýðubandalagið, sé
dregið inn í þessa umræðu. Eng-
inn ætti að velkjast í vafa um
hvers vegna Alþýðubandalagið er
nefnt í sömu dandrá og 10%
kjaraskerðingin. Ástæðan fyrir
því er sú, að enginn íslenskur
stjórnmálaflokkur hefur þóst bera
hag launafólks meira fyrir brjósti
en Alþýðubandalagið, sem er
skilgetið afkvæmi Kommún-
istaflokks íslands, sem starfaði á
ar þeim sem alls ekki vilja leyfa
fóstureyðingu, alveg sama hverjar
ástæðurnar eru hjá viðkomandi
konum. Hvað er hægt að gera,
þegar um er að ræða mjög ungar
telpur frá barnmörgum heimil-
um? Á þá móðir þeirra að taka við
og bæta á ómegðina? Hvernig er
ástandið í húsnæðismálum að því
er snertir einstæðar mæður? Ég
fullyrði, að það er hrikalegt fyrir
þessar konur að standa í að fá
leigt. Dóttir mín er dagmamma,
svo að ég þekki svolítið til þessara
mála og hef kynnst því í gegnum
árin. Og sjálf hef ég verið einstæð
móðir. Þetta er erfiðara mál en
þetta blessaða fólk virðist gera sér
grein fyrir. Það er ekki tilhlökk-
unarefni að fá í heiminn barn, sem
ekkert er hægt að gera fyrir, sem
fæðist inn í erfiðleika og basl og
varla hægt að gefa því að borða.
Eru þær konur, sem fordæma
fóstureyðingar, tilbúnar til að
leggja skerf af laununum sínum
til hjálpar þessum konum? Þetta
er bara fjáhagslega hliðin. Svo er
það sálræna hliðin og allt í kring-
um það. En við komumst aldrei
svo iangt, því að bara í þessu
óumflýjanlega og praktíska, fæði,
húsnæði og klæði, því sem við
verðum öll að fá hversu elskuleg
og sæt sem litlu börnin eru og
yndisleg, þar eru erfiðleikarnir við
hvert fótmál, og engin miskunn.
Það var bara þetta sem mig lang-
aði að kæmi fram.
Sigurður G. Haraldsson.
árunum 1930—38. En Alþýðu-
bandalagið var einmitt stofnað
upp úr rústum Sósíalistaflokksins
og sameiningarflokks alþýðu.
þetta nafn er einmitt táknrænt
fyrir það, þegar íslenskir komm-
únistar reyna með því að skipta sí
og æ um nafn á samtökum sínum
að villa um fyrri fólki sem svo því
miður hefur glapist til að ljá þeim
atkvæði sitt og ætíð því til óheilla
er upp hefur verið staðið. Gamalt
og gott máltæki segir, að svo megi
brýna deigt járn að bíti.
Ég tel það engum vafa undir-
orpið, að er íslenskir kjósendur
ganga að kjörborðinu, og það get-
ur orðið fyrr en varir, muni þetta
máltæki sannast áþreifanlega og
þá á þann hátt, að kjósendur
munu veita Alþýðubandalaginu þá
ráðningu sem það á skilið fyrir að
ráðast aftur og aftur á kjör þeirra.
Að lokum þetta: Maður veltir
því ósjálfrátt fyrir sér, hvort það
verði ekki erfitt fyrir verkalýðs-
leiðtoga Alþýðubandalagsins,
hvort sem þeir heita Guðmundur
J. eða eitthvað annað, að horfa
framan í kjósendur eftir að hafa
tekið þátt í 10% kaupráninu.
Sjálfstæðisflokkurinn er eini
flokkurinn sem hefur borið gæfu
til að vernda og varðveita lífskjör
launafólks og almennings á liðn-
um árum. Það hefur nefnilega
alltaf orðið hlutskipti Sjálfstæðis-
flokksins að hreinsa til og koma
lagi á hlutina eftir óráðsíu og
óstjórn vinstri flokkanna. Það er
trú mín og vissa að svo muni einn-
ig verða raunin á nú. Aðeins með
því að stórefla Sjálfstæðisflokkinn
að völdum og áhrifum í næstu
kosningum getur fólk vænst batn-
andi lífskjara á næstu árurn."
Leiðrétting
I grein dr. Magna Guðmunds-
sonar, Gamla fólkið og spariféð,
sem birtist hér á föstudag, 17. des.,
varð meinleg prentvilla. Ástæða
þykir til að birta aftur efnisgrein-
ina sem úr skorðum fór við þetta,
um leið og dr. Magni er beðinn
afsökunar á mistökunum:
„Það er hins vegar engin ný-
lunda, að áróðursmenn fyrir há-
vöxtum, þeirra á meðal okurkarl-
ar, beri fyrir sig gamalt fólk, líkt
og afbrotamenn bera stundum
fyrir sig gísla í varnarskyni. Af
því tilefni vil ég láta þess getið, að
ég gerði fyrir 2 árum ítarlega
könnun fyrir Tryggingastofnun
ríkisins á tekju- og eignastöðu
ellilífeyrisþega. í ljós kom, að til-
tölulega mjög fáir þeirra eiga
sparifé. Hjá þeim, sem það áttu,
var — með örfáum undantekning-
um — um smáar upphæðir að
ræða. Nú er orðinn almennur
skilningur á því, að þjóðfélaginu
beri skylda til að treysta afkomu
þessa fólks, svo að það þurfi ekki
að reiða sig á sparifé, sem það
kann að hafa getað nurlað saman
á langri ævi.“
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Hann er á förum til Japan.
Rétt væri: ... til Japans.
eigendur
Við bjóðum ykkur snjódekk á felgum und-
ir bílinn á sérstöku tilboðsverði:
Mazda 323 allar gerðir kr. 1.900.00 pr. stk.
Mazda 626 allar gerðir kr. 2.000.00 pr. stk.
Mazda 929 allar gerðir kr. 2.100.00 pr. stk.
Greiðsluskilmálar: Vz út og eftirstöðvar á
3 mánuðum.
Tryggið öryggi í vetrarakstri og notið
ykkur þetta hagstæða boð.
BÍLABORG HF.
Smiðshöfða 23 Sími 81265