Morgunblaðið - 24.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.12.1982, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 289. tbl. 69. árg. FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982 Frentsmiöja Morgunblaðsins Svíar reka rúss- neska njósnara Stokkhólmi, 23.descmlK*r. AP. TVEIR sovczkir stjórnarcrindrekar hafa verió reknir frá Svíþjóð fyrir starf- semi, sem „samræmist ekki stöðu þeirra sem diplómata", að sögn sænska utanríkisráðuneytisins. I>riðji Rússinn verður líklcga einnig rekinn, en hann er ekki diplómat. Stjórnarerindrekarnir eru aðal- ræðismaður Rússa í Gautaborg, Yuri Averine, og aðstoðarhermála- fulltrúi sovézka sendiráðsins í Stokkhólmi, Piotr Skiroky undirof- ursti. Þriðji Rússinn er sovézkur starfsmaður skipaskráningar- skrifstofunnar í Gautaborg. Ræðismannsskrifstofa Rússa í Gautaborg hefur 19 starfsmenn í þjónustu sinni, fleiri en nokkur önnur ræðismannsskrifstofa í borginni. Það hefur leitt til bolla- legginga um að þeir kunni að hafa stundað iðnaðarnjósnir, nánar til- tekið í skipasmíðaiðnaðinum í borginni. Gert er ráð fyrir því að Rússar hafi aukið tilraunir sínar til að afla upplýsinga um vestræna tækni með njósnum í Svíþjóð og öðrum óháðum ríkjum síðan Bandaríkja- menn bönnuðu tækniútflutning til Sovétríkjanna. Fréttastofan TT segir að Rússar virðist einnig hafa reynt að koma sænskum embættismönnum undir sinn verndarvæng og koma upp neti stuðningsmanna úr röðum sænskra stjórnmálamanna og full- trúa sænskra þrýstihópa til að efla sovézka hagsmuni við töku ákvarð- ana í sænsku ríkisstjórninni og á sænska þinginu. ☆ Sovézki sendiherrann í Stokk- hólmi, Boris Pankin, var kvaddur í sænska utanríkisráðuneytið, þar sem honum var skýrt frá ákvörð- uninni. Áður hafði blaðafulltrúi Rússa, Vyatcheslav Vasilyev, sagt að ásakanirnar væru uppspuni frá rótum, kæmu gersamlega á óvart og sköðuðu góð samskipti Svíþjóð- ar og Sovétríkjanna. Talsmaður sænska utanríkis- ráðuneytisins, Magnus Fraken, við- urkenndi að ákærurnar gegn stjórnarerindrekunum stæðu í sambandi við njósnir, en sagði að meira væri ekki hægt um málið að segja af öryggisástæðum. Frakkland: Jólasveinninn aldrei vinsælli l.ihournc, Krakklandi, 23. dcscmbcr. Al*. JÓLASVEINNINN er vinsælli en nokkru sinni í Erakklandi ef marka má bréfaflóðið, sem honum hefur borist að undanförnu. Þrátt fyrir innrás tölvuleiktækja i tuttugustu aldarinnar hafa óskir | barnanna lítið breyst í mörgum til- fellum. Meirihluti stúlkna óskar eftir brúðum, en strákarnir eru flestir að vonast eftir bílum eða járnbrautarlestum. Fyrir tæpri viku höfðu frönsku póstþjónustunni borist 140.000 bréf stíluð á jólasveininn. Starfsmenn póstsins í Frakklandi bjuggust ekki við öðru en þeim bærust tæplega 200.000 bréf áður en yfir lyki. í fyrra bárust rúmlega 170.000 bréf. „Jólasveinninn, Himnaríki" er gjarnan skrifað utan á bréfin eða þá „Jólasveinninn, Norðurpólnum". Tuttugu manns hafa þann starfa að svara þessum bréfum hafi börn- Austur-Þýskaland: Karl Marx og Engels á toppnum Itcrlín, 23. dcscmbcr. Al*. HVERJAR skyldu vera metsölubæk- urnar í Austur-Þýskalandi? Alistair Maclean eða austur-þýskar æviskrár? Nei, þeir vinsælustu fyrir þessi jól eru gömlu mcnnirnir Karl Marx og Fried- rich Engcls og svo undarlega vill til, að þeir hafa verið á toppnum allar götur frá 1945, þegar kommúnistar komust til valda. Það er fréttastofa í Vestur-Berlín, sem flytur okkur þessar fregnir en hún fylgist mjög vel með því, sem gerist austan gaddavírsins. Það af verkum gömlu mannanna, sem best selst, er „Kommúnistaávarpið", alls sjö milljón eintök á síðustu tíu árum, en á hæla því kemur svo „Auðmagn- ið“, raunar nokkuð langt á eftir, því að aðeins tvær milljónir eintaka hafa gengið út á þessum sama tíma. in látið heimilisfang sitt fylgja. En í flestum tilvikum er svo. V estur-Þýskaland: Epli í há- deginu og kirsuber á kvöldin Honn, 23. dcscmbcr. Al*. OFFRAMLEIÐSLA ávaxta er eitt af vandamálunum, sem Vestur-Þjóðverja hrjá, en nú hafa tveir þingmenn þar i landi loks- ins fundið lausnina. Þeir vilja, að hcrmennirnir verði látnir éta allt, sem umfram er. Á síðasta sumri var uppsker- an af eplum, kirsuberjum og perum um 4,65 milljón tonn og er það algert met og einkum þakkað_ löngu og heitu sumri. Þar af var eplauppskeran ein 2,77 millj. tonn. I bréfi, sem tveir þingmenn sendu varnarmála- og land- búnaðarráðherranum, segja þeir, að af ávaxtafjallinu þurfi engar áhyggjur að hafa því að „vítamínin, sem hermennirnir þurfa, má auðveldlega fá úr ávöxtunum". Þeir leggja því til, að dátarnir verði látnir éta ávexti í öll mál, ásamt öðru að vísu, en taka þó ekki fram hvað mikið hver hermaður verður að láta í sig af eplunum. Ijósm: KOE Pólland: Föngum sleppt heim fyrir jól — og jafnframt tilkynnt um nýjar handtökur Varsjá, 23. dcscmbcr. AP. POLSKA herstjórnin tilkynnti í dag, að öllum þeim, sem handleknir hefðu verið á tíma hcrlaganna, yrði sleppt fyrir jól að undanteknum sjö mönnum, forystumönnum í Samstöðu, sem hafa verið fangelsaðir á ný og sakaðir um glæpi. „Innanríkisráðherrann hefur tilkynnt, að allir gæsluvarðhalds- fangar verði látnir lausir ekki síð- ar en 23. desember," sagði í frétt- um PAP, hinnar opinberu frétta- stofu. „Gæsluvarðhaldsbúðir eru hér með úr sögunni." Jafnframt var tilkynnt, að sjö menn, sem all- ir voru í forystusveit Samstöðu, hefðu verið handteknir á ný fyrir glæpi gegn ríkinu. Ekki var sagt hvað mennirnir hefðu unnið til saka en haft er eftir ýmsum emb- ættismönnum að þar sé um að ræða undirróður, sem dauðasök getur legið við í Póllandi. Meðal þessara manna er And- rzej Gwiazda, sem næstur gekk Walesa að völdum í Samstöðu, en hann dró aldrei neina dul á, að hann vildi kommúnismann feigan. Að auki eru svo fjórir aðrir í haldi, sakaðir um undirróður. Það eru forystumenn KOR, samtaka and- ófsmanna, og er Jacek Kuron þeirra þekktastur. í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu kemur fram, að alls hafi 10.131 maður verið handtekinn á þeim tíma, sem liðinn er frá upphafi herlaga. Yuri Andropov, leiðtogi Sovét- ríkjanna, þáði með þökkum það boð Jaruzelskis hershöfðingja að koma í kynnisferð til Póllands áð- ur en langt um líður en Jaruzelski er nú staddur í Moskvu. í ræðu, sem Jaruzelski flutti, þakkaði hann Sovétmönnum „ómetanlega aðstoð þeirra í innanlandserfið- leikum Pólverja" og kvaðst meta mikils „bróðurlega hjálp þeirra á örlagastund“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.