Morgunblaðið - 24.12.1982, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.12.1982, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1982 13 Sjónvarp & útvarp Sjónvarp á jóladajr kl. 18.00: Úr mannheimum, álf- heimum og tröllheimum — í Jólastundinni okkar Á dagskrá sjónvarps kl. 18.00 á jóladag er Jólastundin okkar. Nokkrir nemendur í Bjarkarási flytja jólaguöspjallið. Ása fer aö leita 'að jólasveininum, því aö karlanginn hefur villst og lenda þau í ýmsum ævintýrum. Kannski rekast þau á álfa og tröll, a.m.k. eru Grýla, Leppalúöi og jólakötturinn á kreiki. Kór Kársnesskóla syngur undir stjórn Dórunnar Björnsdóttur og svo verður gengið kringum jólatréð. Umsjónarmenn Ása Helga Kagnarsdóttir og Oorsteinn Marelsson. Upptöku stjórnaði Viðar Víkingsson. Aftansöngur jóla í sjónvarpssal Kl. 22.00 er aftansöngur jóla í sjónvarpssal. Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Keflavíkurkirkju og Barnakór Tónlistarskólans á Akranesi syngja. Haukur Guðlaugsson leikur á orgelið. Upptöku stjórnar Maríanna Friðjónsdóttir. Beðið eftir jólunum: Gunnvör Braga, Jenna Jensdóttir, Bernharður Guðmundsson og Ingibjörg R. Magnúsdóttir í hópi jólabarna. llljóövarp á aófangadag kl. 10.20: Nú líður senn að jólum Á aðfangadag kl. 16.20 er á dagskrá hljóðvarps þáttur sem nefn- ist Nú líður senn að jólum. Umsjón- armaður: Gunnvör Braga. Aððstoð: Ágústa Ólafsdóttir. — Krakkarnir bíða jólanna ásamt nokkrum góðum gestum, sagði Gunnvör Braga. — Jenna Jensdóttir rithöfundur rifjar upp bernskujól og segir m.a. frá því þegar þær systurnar gáfu rebba jólamatinn sinn. Ingibjörg R. Magnúsdóttir, deildarstjóri í heil- brigðisráðuneytinu, segir frá ýms- um skemmtilegum siðvenjum sem hún viðhefur í jólamánuðinum. Séra Bernharður Guðmundsson segir frá jólum hér og annars staðar. Svo var sérstaklega rætt hvað við ætluðum að gera á að- fangadagskvöldið og Bernharður sagði okkur frá starfi kirkjunnar þetta kvöld, auk þess sem krakk- arnir spyrja margs um jólin í gamla daga. Og ekki má gleyma að geta þess, að til okkar kemur heill kór, Skólakór Kársnes- og Þing- hólsskóla og syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur; Marteinn H. Friðriksson leikur á píanó. Sjónvarp á jóladag kl. 20.15: Litla stúlkan með eldspýturnar Á dagskrá sjónvarps kl. 20.15 að kvöldi jóladags er söngleikur sem Magnús Pétursson samdi eftir hinu fræga ævintýri H.C. Andersens, Litlu stúlkunni með eldspýturnar. Leikstjóri er Kolbrún Hall- dórsdóttir, en leikarar eru 10 til 12 ára börn úr Fellaskóla. Aðalhlutverk: Rósa Jósefs- dóttir (litla stúlkan), Óla Björk Eggertsdóttir (amma), Halldór Snorrason (pabbi), Berglind Waage (mamma), Matthías Arngrímsson (götu- strákur). Undirleik og kór- stjórn annast Snorri Bjarna- son. Leikmynd er eftir Baldvin Björnsson og má í henni sjá eftirlíkingu af húsi H.C. And- ersens í Oðinsvéum. Rósa Jósefsdóttir í hlutverki litlu stúlkunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.