Morgunblaðið - 30.12.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
5
Lionsmenn
í Kópavogi
safna til
Sunnuhlíðar
UNDANFARIÐ hafa félagar úr
Lionsklúbbi Kópavogs selt sjúkra-
kassa til nota á heimilum eóa í bíl-
um. Ágóóanum er varið til að búa
Sunnuhlíð sem best úr garði.
Nýlega afhenti stjórn Lions-
klúbbsins 60.000 kr. sem kosta
mun allan búnað í tvær tveggja
manna sjúkrastofur á heimilinu.
Myndin var tekin við það tækifæri
er Jón Þórarinsson, formaður
Lionsklúbbs Kópavogs, afhenti
Ásgeiri Jóhannessyni, stjórnar-
formanni Sunnuhlíðar, afrakstur-
inn af sjúkrakassasölunni. Talið
frá vinstri: Leó Guðlaugsson, Jón-
as Frímannsson, Jón Auðunsson,
Jóhann Steinsson, Jón Þórarins-
son og Guðsteinn Þengilsson, sem
allir eru frá Lionsklúbbnum, en
Guðsteinn er jafnframt yfirlæknir
Sunnuhlíðar, Ásgeir Jóhannesson,
Páll Bjarnason stjórnarmaður,
Hildur Hákonardóttir fram-
kvæmdastjóri, Rannveig Þórólfs-
dóttir hjúkrunarforstjóri og
Soffía Eygló Jónsdóttir
félagsmálafulltrúi, öll frá Sunnu-
hlíð.
Nýr formaður
Umferðarráðs
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur
skipað Valgarð Briem hæstarétt-
arlögmann formann Umferðar-
ráðs frá 1. janúar nk. að telja, út
núverandi skipunartímabil ráðs-
ins, þ.e. til 1. mars 1984. Jafnframt
hefur dómsmálaráðherra veitt
Sigurjóni Sigurðssyni lög-
reglustjóra að eigin ósk lausn frá
starfi formanns Umferðarráðs frá
sama tíma.
_^^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
Kl. 19.00 tekur lúörasveit á móti gestum utan dyra.
Flugleiðir:
Annríki um áramót
Á GAMI.ÁRSDAG munu Flugleiðir fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Húsavíkur,
Patreksfjarðar Egilsstaða, Sauðárkróks, ísafjarðar (2 ferðir), Hafnar í Horna-
firði og Vestmannaeyja (2 ferðir). Innanlandsflugi Flugleiða lýkur klukkan
16.25 á gamlársdag er seinasta vél kemur til Reykjavíkur.
Ekki er flogið innanlands á ný-
ársdag, en sunnudaginn 2. janúar
verður mikið annríki hjá Flugleið-
um og farnar margar aukaferðir.
Samtals er gert ráð fyrir 23 ferðum
frá Reykjavík þann dag. Þá verða
margar aukaferðir á mánudag og
þriðjudag.
Flugleiðavél kemur frá Luxem-
borg síðdegis á gamlársdag og
heldur áfram til New York. Hún
fer síðan frá New York að kvöldi
nýársdags og lendir í Keflavík að
morgni 2. janúar.
Ekkert Evrópuflug verður á
gamlársdag eða nýársdag, en 2.
janúar fer Flugleiðavél með skíða-
fólk beint til Innsbruck í Austur-
ríki og áætlunarvélar félagsins
fara til Óslóar, Stokkshólms og
London. Mánudaginn 3. janúar
verður farið samkvæmt áætlun til
Glasgow og Kaupmannahafnar, en
auk þess verður aukaferð til Kaup-
mannahafnar og önnur til New
York. Fleiri aukaferðir verða í
millilandafluginu fyrstu dagana í
janúar, en þær síðustu verða til
Kaupmannahafnar og Gautaborg-
ar 9. janúar.
Dolli og Doddi leikararnir Sig-
uröur Sigurjónsson og Randver
Þorláksson flytja Ijúfan skemmti-
þátt.
Helga Möller syngur nokkur lög.
Björgvin Halldórsson syngur
meö hljómsveit sinni fram eftir
Monica Abendroth leikur á
hörpu.
Pétur Þorvaldsson á selló.
Haukur Morthens syngur viö
undirleik
Árna Elvars.
Magnús Kjartansson og Finn-
bogi Kjartansson leika dinner-
tónlist.
Frumsýning: Dansstúdíó Sóleyj-
ar Jóhannsdóttur frumflytur
dansinn Stripper.
Veizlustjóri veröur hinn sívinsæli
Haukur Morthens.
Yfirmatreióslumaöur: Ólafur
Ingi Reynisson.
Yfirframreióslumaóur: Höröur
Sigurjónsson.
Hljóó- og Ijósastjórn: Gísli
Sveinn Loftsson.
Allt þetta fyrir aóeins kr. 850.-.
Allir gestir fá hatta og knöll.
Spariklæðnaður.
Matseoill
VILLIBRADASÚPA að hætti
villta veiðimannsins.
LAXASALAT léttleikans.
NAUTASTEIK a 'la Broadway
DESERT RAINBOW.
Borðvín.
nóttu.
BROADW/
Gleðilea jól
SUNNUDAGUR 2. JANUAR
FINASTA BALL ARSINS GALA-DINNER
Nýársfagnaöur Broadway meö miklum glæsibrag. Eingöngu fyrir matargesti.
--------m
*
mognari
meðinnbyggt útvarp og segulband
f
o
%
J O □ U Q • O
Kr. 13.800
ÚTVARP: FM-stereo-AM-miðbylgja+langbylgja.
MAGNARI: 2x30 vatts-80hms.
SEGULBAND: 2 mótorar-lagaleitari-Dolby.
UMMÁL: 44 x 37.1 x 11.3cm.
^KENWOOD FÁLKINN
^ SÍMI85884