Morgunblaðið - 30.12.1982, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.12.1982, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982 Ur ýmsum áttum mm I 1 I ;-= J> 1 , ít i * • 1 ,* • .*& i <** • ' # ll' * ‘1*», Frá vígslu á hinu glæsilega íþróttamannvirki á Akureyri. Eins og sjá má, er vítt til veggja og hátt til lofts. Glæsileg íþróttahöll tekin í notkun á Akureyri Hinn 5. desember sl. var ný íþróttahöll tekin í notkun á Akureyri. Tilgangurinn meö byggingu hallarinnar var að bæta úr mikilli þörf skóla, félaga og almennings fyrir æfinga- og keppnisaöstööu í íþrótt- um. Staöurínn fyrir húsið, sem afmarkast af Þórunnarstræti að vestan, Hrafnagilsstræti að sunnan, Skólastíg og Laugargötu að austan og sundlaugarlóð aö norðan, var valinn vegna nálægöar hans við þá skóla bæjarins sem nota myndu höllina mest, en það eru Gagnfræðaskólinn, Menntaskólinn og lönskólinn. Þá var við hönnun hallarinnar gert ráð fyrir aö ýmis önnur starfsemi en íþróttir gætu verið þarna innan veggja. Fréttamaöur blaðsins á Akureyri haföi samband víð formann bygginganefndar íþróttahallar- ínnar, Hermann Sigtryggsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á Akureyri, til að grennslast nánar fyrir um byggingu og rekstur þessa stóra húss. • Karl Stotz, þjálfarinn sem var rekinn frá austurríska landsliöinu eftir að liöið komst í HM-keppn- ina, verður líklega þjálfari síns gamla liðs, Austria Wien. Þar tek- ur hann viö af Erich Hof sem þyk- ir of dýr fyrir liðiö. • AC Roma, liðið sem Brasilíu- maðurinn Roberto Falcao leikur meö, krefst 5.500.000 krónur í skaðabætur frá ítölsku dagblaði fyrir aö hafa í leyfisleysi notað mynd af liöinu í auglýsingaskyni. • Á meðan Argentínumenn berj- ast í bökkum með fótboltalið sín virðist annað upp á teningnum hjá ítölum. Á síðasta tímabili var innkoman um 100 milljónum meiri en árið áður, og í prósent- um var aukningin um 20%. • Thrasybulos Kotsaras, 26 ára miðvallarspilari í annarrar deildar liðinu Kallithea, fékk 34 leikja bann fyrir að hafa ráöist á dómar- ann í leik á móti Panaigialeios. Dómarinn var borinn af leikvelli og lagður inn á spítala með heila- hristing. • Werder Bremen náöi sér fljót- lega eftir 9—2-ósigur gegn Ein- tracht Frankfurt í deildarkeppn- inni. En leikur þessi rennur markmanni liðsins, Hermann RUI- ander, líklega seint úr minni, því samningur hans viö liðiö var ónýttur og spilar hann núna sem áhugamaður hjá SV Meppen. • Knattspyrnufélög í Brasilíu hafa fengið því framgengt að þau fái 5% af gróða getrauna þar í landi. • Michel van de Korput, hol- lenski varnarmaðurinn í AC Tor- ino, var svo illur eftir aö hafa ver- ið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir slæma hegöun í leik á móti Fiorentina aö hann óskaði þess að samningur sinn við liöið yrði gerður ógildur. Liðsfélagar hans vildu hins vegar alls ekki missa van de Korput og tókst að koma honum á þá skoðun aö í AC Tor- ino væri best aö vera. Knattspyrnumennirnir sem í bókinni er rætt viö eru þessir: Pét- ur Pétursson og Arnór Guðjohn- sen, sem báöir hafa getið sér gott orö sem atvinnumenn í Belgíu, og Pétur áöur i Hollandi sem kunnugt er. Marteinn Geirsson, leikmaður meö Fram og áöur atvinnumaður í Belgíu, sá Islendingur sem flesta landsleiki hefur leikiö. Hörður Hilmarsson, lengst af leikmaöur meö Val, en atvinnumaöur í Sví- þjóð í tvö ár. Þórólfur Beck, hinn þekkti leikmaöur meö KR og síöar St. Mirren og Glasgow Rangers í Skotlandi og meö félögum í Frakklandi og Bandaríkjunum. — Fengur er aö þessu viðtali viö Þór- ólf, enda hafa ekki birst viö hann viötöl í fjöldamörg ár. Þá er í bók- inni rætt viö þær Rósu Á. Valdi- marsdóttur og Ástu B. Gunnlaugs- dóttur, hinar snjöllu knattspyrnu- konur úr Breiöabliki og landslið- inu, sem nú hafa fengið tilboð um aö leika meö liöum í Svíþjóö og Bandaríkjunum. Viötöl eru við feðgana Björgvin Schram og Ellert B. Schram, sem báöir hafa haft • Fjórum dögum eftir að Ijóst var að Kaiserslautern myndi mæta Real Madrid I Evrópukeppni bik- arhafa höfðu Kaiserslautern- menn fengið 45.000 skriflegar beiðnir um miöa á heimaleikinn. Vandamáliö var hins vegar það að völlur þeirra, Betzenberg, tek- ur ekki nema 34.000 áhorfendur. • Það er orðin venja að liöin tvö sem mætast í úrslitaleik FA- bikarkeppninnar gefi safni Wembley-vallar eina keppnis- treyju hvort. Aðeins eitt félag hef- ur hingað til stungið upp í þiggj- endur. Það var Manchester Unit- ed sem árið 1979 sendi safninu eina treyju með reikningi upp á 300 krónur. • í þau 51 ár sem spánska deild- arkeppnin hefur verið við lýði hefur Hercules Alicante aldrei tekist að sigra Real Madrid á heimavelli sínum. Á síðasta keppnistímabili var þó tæpt á því. Alicante átti stórleik og varðist vel, og hinn pólski markmaður liösins, Jan Tomaszewski, varði vítaspyrnu frá Uli Stielike, en þegar aöeins tíu mínútur voru til leiksloka skoraði José Maria Cartagena sjálfsmark, og þar hvarf sú von. • Emlyn Hughes hefur verið frægur fyrir þaö að gala manna mest inni á vellinum hvort heldur hann spilaöi með Liverpool eða Wolverhampton, og einnig lands- liðinu. Nú, þegar hann er oröinn framkvæmdastjóri í Rotherham, hafa hrópin og köllin ekkert minnkað. Þegar lið hans mætti Halifax fyrir nokkru hóf hann upp raust sína, og skammaðist yfir því hversu fáir mættu á völlinn, það mætti telja áhorfendur á ann- arri hendi. Þetta varö til þess aö einn áhorfandi hrópaöi á móti og bað hann vinsamlegast að halda sér á mottunni. Hughes rauk til mannsins og baö hann kurteis- lega afsökunar. mikil áhrif á íslenska knattspyrnu, sem leikmenn en þó fyrst og fremst sem formenn KSÍ um ára- bil. Magnús Jónatansson, hinn kunni þjálfari isfiröinga og áöur KR og nú nýráöinn þjálfari Breiöa- bliks, er meöal viömælenda í bók- inni, og fer vel á því aö hafa í bók- inni viötal við fulltrúa knattspyrnu- þjálfaranna. Ellert Sölvason (Lolli í Val) er einn viömælenda höfundar, einnig Diörik Ólafsson markvöröur úr Víkingi, og tveir Keflvíkingar, Karl Hermannsson og Rúnar Júlí- usson, sem á sínum tíma voru bæöi landsliðsmenn í knattspyrnu og meðlimir í frægustu rokkhlj- ómsveit á íslandi, Hljómum, en á þeim árum hneyksluöust margir á því aö „bítlar“ skyldu leika knattspyrnu. Þá er viötal við Viöar Halldórsson, knattspyrnumann í FH og landsliðsmann úr Hafnar- firði. Bókin er tæpar 200 blaðsíður í hentugu broti, prýdd mörgum tug- um Ijósmynda. Hverjir standa að þessari bygg- ingu og hvenær var byrjað á framkvæmdum? Aö byggingunni stendur aö mestu leyti Akureyrarbær en svo kemur ríkissjóöur inn í myndina og tekur þátt í kostnaöi að svo miklu leyti sem þetta er skólahúsnæöi og svo styrkir íþróttasjóöur þetta aö hluta. Ég get ekki sagt um hvernig þessi kostnaðarskipting veröur endanlega þar sem ekkert er búiö aö semja um þaö ennþá viö ríkis- sjóð. Framkvæmdir hófust viö íþróttahöllina í júní 1977 en þá var unnið að útgreftri og jarðvegs- skiptum í lóö og grunni og siöan hafa verkáfangar verið þannig að 1978 var lokiö við aö steypa kjall- ara, 1980 var fyrsta og önnur hæö í hliöarbyggingum og stafnar í sal steyptir og 1981 var húsiö gert fokhelt. Þaö ár hófst innrétt- ingasmíöi og múrverk og nú í ár standa mál þannig aö aöalsalurinn er næstum fullbúinn og fjórir af sex búningsklefum á sömu hæö eru til- búnir. Eftir er aö ganga frá kjall- ara, aöalinngangi aö sunnan, kaffi- teríu, noröur- og suðurálmu aö sunnan og noröan á efri hæö. Hver er stærð hallarinnar og hvað á hún að rúma? Stærð hallarinnar er sem hér segir: Grunnflötur er 2.919 m2, grunnflötur gólfa er 5.909 m2, íþróttahöllin alls 32.179 m . Aöal- salur hallarinnar er 27x45 m, sem hægt verður aö skipta í þrennt. Til hliöar við salinn eru annars vegar áhaldageymslur og sena. Á efri hæö þeim megin er rými til ýmissa afnota, m.a. gistiaöstaöa fyrir aö- komuhópa en hinsvegar eru bún- ingsklefar, böö, kennaraherbergi, dómaraherbergi, sjúkraherbergi og þvottahús. Einnig verður þeim megin salur fyrir heilsurækt. Viö enda aðalsalar aö sunnan og noröan eru minni æfingasalir, sem hægt er aö opna inn í aöalsal og fæst viö þaö 65 m hlaupabraut. Viö austurhliö salar, yfir búnings- klefum, er áhorfendasvæöi fyrir 800 manns, en síöar er gert ráö fyrir bekkjum þar fyrir framan fyrir 600 manns, sem dragast fram á salargólfiö. Á efri hæð austan aöalsalar er kaffistofa fyrir 180 manns, fata- geymsla og snyrtingar. j suöur- enda á sömu hæö er aðalinngang- ur ásamt forstofu og litlum sal og í norðurenda eru tvö fundaherbergi. í kjallara veröur salur fyrir lyftingar og 25 m skotbakki. Tveir bún- ingsklefar og böö eru í kjallara. Þá er í kjallara hita-, rafmagns- og loftræstibúnaöur ásamt geymsl- um. Á jaröhæö í norðausturálmu er inngangur fyrir iökendur íþrótta, þar er einnig dagleg afgreiösla og aöstaöa starfsfólks. Aöalinngang- ur inn á áhorfendasvæöiö og kaffi- stofuna er aö sunnan. Hvaða starfsemi verður önnur í höllinni en íþróttir? Fyrst um sinn, á meöan höllin er ekki fullbúin, þa verður aöallega um íþróttir aö ræöa. Eins og er eru þó Gagnfræöaskólanum leigöar tvær kennslustofur og lítil kennarastofa í noröurálmu hús- sins. Þaö var 150 m2 salur, sem innréttaður var til bráöabirgöa. Þegar húsiö veröur fullbúiö eru hinsvegar ýmsir möguleikar fyrir hendi. j í aöalsalnum er leiksviö sem er 15x7 metrar og möguleikar á stækkun fram í salinn og gæti þaö þá oröiö allt aö 130 til 150 m2. Þar ættu aö vera möguleikar á stærri leiksýningum og tónleikum. Um hljómburö í húsinu vitum viö ekki nákvæmlega ennþá. Þegar kaffiterían veröur tilbúin, er væntanlega hægt aö hafa þar fjölbreyttan veitingarekstur auk fleiri möguleika sem slík veit- ingastofa gefur. í hliöarsölum aö noröan og sunnan veröa tveir salir annar 100 m2 og hinn 150 m2 (sá sem G.A. leigir nú). I þessum söl- um geta veriö fundir og hverskon- ar sýningar. í tveim 70 m2 hliöarsölum í vest- anveröu húsinu er m.a. gert ráö fyrir aö íþróttahópar geti gist. Aö- alsalurinn auk annarra minni sala í höllinni og kaffiterían gefa síöan góöa möguleika á aö halda stærri sýningar, eins og iðnsýningar, vörusýningar, stærri mót og ráö- stefnur. Hvernig er starfseminni hátfað núna? íþróttakennsla á vegum Gagn- fræðaskólans, Menntaskólans og Iðnskólans hófst 7. desember og er kennt í aðalsalnum þrískiptum auk hliöarsala, þannig aö 4 skóla- hópar geta verið þarna samtímis. Kennsla hjá skólunum hefst kl. 8.15 og er til kl. 16.15, en þá taka viö hópar iþróttafólks í ýmsum íþróttagreinum og eru til kl. 23.15. A laugardögum og sunnudögum nota íþróttahópar salinn frá kl. 9—18 báöa dagana. Föstudags- kvöld og laugardagseftirmiödagar eru ætlaöir fyrir íþróttakeppni. Allir tímar eru þegar leigöir út. Þá færist keppni smám saman úr skemmunni í íþróttahöllina og mun deildakeppnin í handbolta þegar fara meö alla sína leiki þangað. Einnig körfuboltinn um leiö og tæki sem til þarf eru komin í höllina. Aörar greinar veröa meö sína keppni einnig eftir því sem tök eru á. Áhorfendasvæöi eru ekki fullbúin ennþá en eru nothæf fyrir um 800—1000 manns, síöar munu koma færanlegir bekkir fyrir fram- an þau sem nú eru fyrir og er þá rúm fyrir 1500—1800 manns. Á meðan höllin er í byggingu er erfitt aö taka aöra starfsemi en íþróttir þar inn, þar sem aðal- áherslan var lögö á aö koma hús- inu í not fyrir skólana en þeir hafa ekki fengiö íþróttatíma á þessum vetri fyrr en nú. Þess má geta að þegar leiö aö því aö taka íþróttahöllina í notkun, var ákveöið aö „stokka upp“ út- leigöa tíma í öllum íþróttahúsunum í bænum og lausir tímar auglýstir til umsóknar. Mun fleiri umsóknir bárust en hægt var aö sinna og fjöldamargir fengu enga úrlausn. Hverníg verður starfseminni háttað aö sumri til? Eins og meö önnur íþróttahús verða skólar þá ekki starfandi í höllinni og íþróttahópar minnka þá eitthvaö sína starfsemi þar. En þá eru möguleikar til þess aö hafa hinar stærri sýningar sem taka yfir nokkurn tíma. Tjaldstæöi bæjarins er þarna i næsta nágrenni og gæti kaffiterían komiö sér vel fyrir gesti þess. Þá er hægt aö leigja gisti- aöstööu fyrir íþróttahópa o.ffl. jafnt sumar sem vetur. Að lokum. Hvenær verður höll- in fullbúin? Þaö fer alveg eftir því hversu mikið fé veröur veitt til áframhald- andi framkvæmda viö höllina á fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir áriö 1983. a.S. Ný bók um knattspyrnu: Fimmtán kunnir knattspyrnumenn MIKIL gróska virðist vera í útgáfu á bókum um knattspyrnu hér á landi um þessar mundir og á þessu ári hafa komið út að minnsta kosti fimm bækur helgaðar knattspyrnu og knattspyrnumönnum. Ein þeirra er bókin „Fimmtán kunnir knattspyrnumenn" eftir Anders Hansen blaða- mann, en bókin kom út rétt fyrir jól. í bókinni ræðir höfundur við fimmtán þekkta íslenska knattspyrnumenn, þar sem þeir segja frá ferli sínum, minnast eftirminnilegra leikja og atvika, ræða um íslenska knattspyrnu fyrr og nú, og margt fleira.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.