Morgunblaðið - 30.12.1982, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
33
Skátakveðja:
Helgi S. Jónsson
Keflavík
Stutt kveðja frá þriðju sveit
Hann Helgi er farinn heim.
Minningarnar hrönnuðust upp í
huga okkar daginn sem við frétt-
um lát hans. Ekki svo að skilja að
þessar dásamlegu minningar um
æskuárin í návist Helga ylji okkur
iðulega í dagsins önn, en Helgi er
órjúfanlegur hluti þeirra fyrir
okkur, sem kynntumst honum í
starfi og leik. Heimsstyrjöldin síð-
ari kom okkur, sem þá vorum börn
og unglingar, úr jafnvægi. Okkur
vantaði fótfestu. Daglega bárust
fréttir af þessum voða hildarleik,
óneitanlega ruglaði þetta okkur í
ríminu, sem höfðum búið við frið
og leik í landinu okkar. Þá þegar
hafði Helgi stofnað skátafélag í
Keflavík. Starf þeirra var þrótt-
mikið og heilbrigt. Við telpurnar
áttum ekkrt skátafélag, en nú var
tími til kominn að hefjast handa.
Þá var auðvitað leitað til Helga,
sem tók okkur með hlýju og skiln-
ingi. Hann hvatti okkur til þess að
smala saman „einni tylft af telp-
um“ til að byrja með og koma svo
til sín aftur. það stóð ekki á okkur
telpunum, við vorum 27 sem stofn-
uðum þriðju sveit sumarið 1943 og
urðum við þá meðlimir í skátafé-
laginu Heiðabúar. Það er erfitt að
lýsa starfi okkar skáta á þessum
árum, það er svo gjörbreytt nú frá
því sem var. Við vorum hvött til
dáða, hvött til að hjálpa öðrum, en
til þess þurftum við auðvitað að
læra að hjálpa okkur sjálf. Helgi
hvatti okkur telpurnar til að verða
ekki eftirbátar strákanna, hann
lét okkur finna, að þrátt fyrir
glens og gaman var þetta ekki allt
leikur, heldur haldbær undirbún-
ingur fyrir allt lífið.
Það er erfitt að lýsa manninum
Helga. Hann var fjölhæfur gáfu-
maður, listamaður og maður. Nú
finnst okkur, að í honum hafi
blundað margir menn. Manngæsk-
an var.þó hans aðalsmerki. Guðs-
trú var honum heilagri en allt
annað, hann lét okkur finna að við
vorum öll jöfn fyrir Guði. Þá
hvatti hann okkur til að deila öllu
með öðrum og þakka almættinu
það, sem okkur var gefið. Ef við
lítum yfir „farinn veg“ — þá finn-
um við, að þessi tími æskuára
okkar var til mikils gagns, og
mörg okkar hafa aldrei skilið við
þennan tíma, því minningarnar
geymum við sem dýrgripi og vilj-
um ekki glata þeim. Við getum
fyrst og síðast þakkað Helga það.
Við viljum „vera viðbúin", eins og
Helgi var, þegar kallið kemur að
fara heim.
Kveðja frá lleiðabúum
Stofnandi félagsins okkar, Helgi
S., er farinn heim, eftir langa og
oft stranga sjúkdómsgöngu.
Það var mikill merkisdagur í
æskulýðsmálum Keflavíkur, er
átta ungmenni komu þar saman
hinn 15. september 1937 og stofn-
uðu með sér skátafélag. Félagið
hlaut nafnið Heiðabúar og tók sér
að kjörorði ljóðlínurnar: — Heið-
arbúar, vísið veginn,/ vörðum
hlaðið eyðisand —.
Aðalhvatamaðurinn að stofnun
Heiðabúa og um langt skeið fé-
lagsforingi var Helgi Sigurgeir
Jónsson, sem allir Keflvíkingar og
allir skátar landsins þekktu sem
HelgaS.
Helgi S. var vel til forystu fall-
inn og honum lét einkar vel að
stjórna unglingum og leiðbeina
þeim. Hann var „fæddur ferða-
maður“, náttúruunnandi, sem bar
djúpa virðingu fyrir landinu sínu,
enda stóð félagið vel undir nafni
með hann við stýrið.
Fljótlega varð ljóst, að fjár var
þörf til að standa undir kostnaði
af starfsemi félagsins. Þá fann
Helgi S. þá fjáröflunarleið, sem
enn er undirstaðan undir fjár-
hagslegu sjálfstæði Heiðabúa og
aðalfjáröflunarleið fjölmargra
skátafélaga annarra, ferming-
arskeytasöluna. Og alla tíð síðan
hefur Helgi S. tekið virkan þátt í
fermingarskeytasölu Heiðabúa, og
síðast í vor var hann mættur til
leiks í skátahúsinu með gullblek
sitt og penna og skrautritaði
skátaskeyti til styrktar félaginu
sínu, þrátt fyrir alvarlegan heilsu-
brest.
En Helgi S. var víðar brautryðj-
andi. Hinn 2. júlí 1943 stofnaði
hann kvenskátasveit, þriðju sveit,
innan vébanda Heiðabúa. Á þeim
tíma þekktist það hvergi í heimin-
um, að drengir og stúlkur störfuðu
saman innan sama skátafélags, en
síðan hefur sá siður rutt sér mjög
til rúms.
Helgi S. vann stórvirki í félags-
málum. Hann starfaði víða og
hvarvetna var hann sá burðarás,
sem treyst var á. Hann tileinkaði
sér öðrum fremur einkunnarorð
skáta. Það var sama hvenær og af
hvaða tilefni til hans var leitað,
hann var ávallt viðbúinn. Þyrfti
að flytja gamanmál, semja leik-
þátt, leikstýra, mála leiktjöld,
flytja stórræðu, eða leysa hvern
annan vanda, er til féll í félags- og
menningarmálum, þá var Helgi S.
sá, sem leitað var til — og hann
leysti hvern vanda með sóma,
hversu skammur sem undirbún-
ingstíminn var.
Við vottum eftirlifandi eigin-
konu Helga S. og afkomendum,
innilega samúð okkar, en það má
vera þeim huggun í harmi, að
hann á áreiðanlega góða heim-
komu.
Ef til vill gefa fá orð, sem Helgi
S. ritaði eigin hendi í fyrsta tölu-
blað Liljunnar, sveitarblaðs þriðju
sveitar, í ágúst 1943, gleggri lýs-
ingu á manninum Helga S. Jóns-
syni, en við megnum að gera í
langri blaðagrein:
„Nú eruð þið að gerast starfs-
menn skátahreyfingarinnar, ekki
aðeins Heiðabúa, heldur þátttak-
endur í alþjóðastarfi skáta. Ykkar
bíða ónumin lönd, ný sjónarmið og
ný störf. Ef til vill heltast einhver
ykkar úr lestinni, en fleiri munu
finna verk við sitt hæfi, eitthvað,
sem heillar hugann, eitthvað, sem
svalar æskuþrótti ykkar. Skáta-
hreyfingin — skátalögin fela í sér
takmarkalaust viðfangsefni —
fagurt eins og fjallabláma — erf-
itt eins og úfið hraun — seiðandi
eins og samstilltur varðeldasöng-
ur. „Ég lofa að gera það, sem í
mínu valdi stendur" — sé ykkar
yfirskrift.
Verið djarfar og gætnar í senn
og gleymið aldrei, að þið eruð að
vinna verk í þágu lands og þjóðar
með því að aga ykkur sjálfar og
opna öðrum leið til þáttöku í
leiknum, sem heillað hefur millj-
ónir æskumanna og kvenna um
allan heim. — Æskan er stutt og
kemur aldrei aftur — notið árin
því vel!“
SACHS
kúpplingar
og höggdeifar
Leitiö upplýsinga
Jóhann Ólafsson & Co.
43 Sundaborg 13, 104 Reykjavík,
sími 82644.