Morgunblaðið - 30.12.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
15
staða dómsins var sú, að Eimskip
skyldi vera sýkn af kröfum Gylfa
Guðmundssonar en málskostnaður
felldur niður.
Málinu var áfrýjað til Hæsta-
réttar með stefnu 24. janúar 1973
og féll dómur 11. desember 1975.
Hæstiréttur viðurkenndi rétt
Gylfa til bóta úr hendi Eimskips
fyrir missi búslóðarinnar. „Verður
að leggja til grundvallar í malinu
að hvorki áfrýjandi sjálfur né
nokkur af hans hálfu hafi fengið í
hendur skilríki um flutningsskil-
mála. Ekki verður talið að áfrýj-
anda hafi verið eða átt að vera
kunn framangreind ákvæði farm-
skírteinisins(ákvæði Haag-reglna,
en eftir þeim ber farmflytjandi
m.a. ekki ábyrgð á brunatjóni,
nema það stafi af yfirsjónum hans
sjálfs: innsk. Mbl.), sem ganga
lengra að leysa hann undan ábyrgð
af varningnum en leiða má af meg-
inreglum íslenzkra laga.
Samkvæmt 99. gr. siglingalaga
nr. 66/1963 ber farmflytjanda að
bæta tjón á farmi, sem er í umsjá
hans á skipi eða á landi, nema ætla
megi að hvorki hann né neinn
maður, sem hann ber ábyrgð á, eigi
sök á tjóninu. Opinber rannsókn
fór fram vegna brunans í vöru-
geymsluhúsi stefnda. Liggja þau
gögn fyrir í málinu. Þau leiða ekki
í ljós, að loku sé fyrir það skotið að
starfsmenn stefnda eigi sök á
brunanum." segir m.a. í dómi
Hæstaréttar frá 11. desember
1975.
Með þessum úrskurði Hæsta-
réttar var úrskurðað að Eimskipa-
félag væri skaðabótaskylt. Að
þessum úrskurði gegnum bauðst
Eimskipafélag Islands til þess að
greiða þær skaðabætur, sem Gylfi
gerði kröfu um fyrir bæjarþingi,
gkrónur 578 þúsund með innláns-
vöxtum eins og þeir voru ákveðnir
á hverjum tíma af Seðlabanka ís-
lands auk málskostnaðar.
Á þetta vildi Gylfi ekki fallast
og vildi nú hærri upphæð en hann
gerði kröfu til upphaflega og bar
fyrir sig að íslenzka krónan hefði
rýrnað mjög vegna verðbólgu á
þeim árum, sem liðin eru frá því
búslóðin eyðilagðist í brunanum.
Ekki náðist samkomulag og birti
Gylfi stefnu fyrir bæjarþingi
Reykjavíkur. Hann krafðist þess
að fá greiddar gkrónur 16.016.456
með 4.5% dráttarvöxtum frá 1.
marz 1980, en til vara jafngildi
sænskra króna 69.283,78 með vöxt-
um sem voru nánar tilgreindir.
Þessar kröfur voru studdar þeim
rökum, að þegar búslóðin hefði
verið flutt til landsins 1967 hefði
verðmæti þeirrar eignar verið tal-
in 60 þúsund sænskar krónur.
Verðbólga hér á landi hefði breytt
öllum hlutföllum um verðgildi. Að-
alkröfuna byggði hann á viðmiðun
við launataxta verkamanna innan
Dagsbrúnar á tímabilinu, taldi
rétt að verðgildi búslóðarinnar
yrði framreiknuð eins og launa-
taxtar Dagsbrúnar.
Dómur féll í málinu 28. júlí 1980.
Ekki var fallist á kröfur Gylfa um
að verðgildi búslóðarinnar yrði
framreiknað. Eimskip var gert að
greiða Gylfa gkr. 578 þúsund krón-
ur (nýkr.5.780) með nánar til-
greindum vöxtum og félaginu var
gert að greiða 210 þúsund gkrónur
í málskostnað, sem renna skyldu í
ríkissjóð. Þessum úrskurði áfrýj-
aði Gylfi til Hæstaréttar 28. nóv-
ember 1980 og gerðar sömu kröfur
og fyrir bæjarþingi. Dómur féll í
Hæstarétti 23. nóvember síðast-
liðinn og var dómur Bæjarþings
staðfestur og Gylfa gert að greiða
Eimskipafélagi 4 þúsund krónur í
málskostnað fyrir Hæstarétti.
Er þar með lokið málaferlum í
þessari langvinnu deilu — rúmum
15 árum eftir að búslóð Gylfa Guð-
mundssonar eyðilagðist í eldsvoð-
anum í Borgarskála 30. ágúst 1967.
H.Halls.
Grikkir
bjartsýn-
astir, Perú-
menn böl-
sýnastir
London, 28. desember. AP.
GRIKKIR og Perúmenn horfa
björtustu augum til ársins 1983,
en Perúmenn og Belgar eru
svartsýnastir, samkvæmt skoð-
anakönnun Gallups í 31 landi að
sögn Daily Telegraph í dag.
Bandaríkjarnenn eru bjartsýn-
astir vestrænna iðnaðarþjóða á
árið 1983. Einu Vestur-Evrópurík-
in, þar sem bjartsýnismenn voru
fleiri en svartsýni.smenn, voru
Grikkland og Bretland. I svipaðri
skoðanakönnun fyrir þremur ár-
um voru Bretar svartsýnastir.
Bjartsýnismenn eru 44% fleiri
en svartsýnismenn í Grikklandi,
37% í Suður-Kóreu, 30% í Kól-
ombíu, 18% í Bandaríkjunum,
Costa Rica og Brazilíu, 17% á
Indlandi, 13% í Bretlandi, 10% í
Kanada og 3% í Japan og á Fil-
ippseyjum.
Svartsýnismenn eru 55% fleiri
en bjartsýnismenn í Perú, 53% í
Belgíu, 48% í Luxemborg, 39% í
Austurríki, 33% í Danmörku og
Hollandi, 32% á írlandi, 29% á
Ítalíu, 24% í Frakklandi, 15% í
Portúgal og 14% í Ástralíu.
Á Indlandi telja 71% engar lík-
ur á annarri heimsstyrjöld innan
tíu ára, 55% í Chile og 41% í
Grikklandi.
Hins vegar telja 17% í Costa
Rica 80% líkur á heimsstyrjöld og
15% Bandaríkjamanna og hvítra
Suður-Afríkubúa.
Almanak 1983
Vandað litprentaö 12 síðna almanak með völdum
landslagsmyndum. Tilvalin gjöf til vina heima og
erlendis um jól og áramót.
Sendum í póstkröfu.
Mosfellssveit - Sími 66620
Aörir útsölustaðir:
Reykjavík: Rammagerðin, Eymundsson, Penninn, Mál og menning,
Bókabúöir Braga og aðrar bókabúöir.
Hafnarfjörður: Bókabúö Olivers.
Akureyri: Búkabúö Jónasar.
GEYSIFJÖLBREYTT URVAL
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
Viö höfum séö landsmönnum fyrir áramótaflugeldum og neyöarmerkjum frá 1916
Skipablys — skipaflugeldar — okkar sérgrein fjölskyldupokar — góöur afsláttur — kr. 400 og kr 700
ÁNANAUSTUM GRANDAGARÐI. SÍMAR 28855 — 13605.