Morgunblaðið - 30.12.1982, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
Nýjar reglur
um merking-
ar á farangri
FLUGLEIDIK vilja vekja athygli á nýjum reglum AlþjóAasambands flugfé-
laga (IATA) um merkingar á farangri flugfarþega.
Þessar reglur taka gildi 1. janú-
ar 1983. Samkvæmt þeim ber far-
þegum að merkja allan innritaðan
farangur með nafni og heimilis-
fangi bæði að utan- og innan-
verðu. Utan á ferðatöskum og öð-
rum farangri þarf einnig að koma
fram dvalarstaður fagþega á
áfangastað, til dæmis hótel, eða
annað það heimilisfang sem við-
komandi hefur meðan á dvöl
stendur.
Það starfsfólk flugfélaga sem
meðhöndlar óskilafarangur getur
þá komið farangri sem k.vnni að
misfarast rétta leið svo farþegar
sitji ekki uppi farangurslausir á
skemmti- eða viðskiptaferð.
Tilgangurinn með þessum nýju
reglum er sá að auðveldara verði
að koma öllum farangri tryggilega
til skila og flýta því að hafa upp á
eigendum óskilafarangurs. Enn-
fremur dregur þetta fyrirkomulag
úr líkum á að farþegar taki ranga
tösku á flugstöðvum.
Flugleiðum þykir rétt að undir-
strika, að þessar reglur gilda bæði
um innanlands- og millilandaflug.
(Fréttatilkynning)
Hættum að reykja-
námskeið í Lögbergi
TIL AÐSTOÐAR og hvatningar hin-
um fjölmörgu, sem ætla að hætta að
reykja um áramótin, heldur íslenska
bindindisfélagið Fimm daga áætlun
sina með tilstyrk Krabbameinsfé-
Verkalýðs- og
sjómannafélag
Keflavíkur
50 ára
VERKALÝÐS- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis varð 50 ára
í fyrradag og verður afmælið haldið
hátíðlegt í dag í Félagsbíói í Kefla-
vik og hefst hátíðin klukkan 20.
í félaginu eru 1.200 manns og
umdæmi þess er Keflavík, Njarð-
vík og Vatnsleysuströnd. Formað-
ur félagsins er Karl Steinar
Guðnason.
lags Reykjavíkur og Reykingavarn-
arnefndar.
Námskeiðið hefst sunnudags-
kvöldið 2. janúar 1983 kl. 20.30 og
verður til húsa í Lögbergi, Há-
skóla Islands, stofu 101. Leiðbein-
endur verða Jón Hjörleifur Jóns-
son frá Islenska bindindisfélaginu
og læknarnir Sigurður Björnsson,
Auðólfur Gunnarsson, Tryggvi
Ásmundsson, Sigurgeir Kjart-
ansson og Snorri Ingimarsson.
Innritun fer fram í síma 13899
fimmtudaginn 30. desember kl.
9—16.00 og í síma 36655 sunnu-
daginn 2. janúar. Þátttökugjald er
200 krónur.
„Mikil og góð reynsla er af
Fimm daga áætluninni bæði hér á
landi og erlendis. íslenska bind-
indisfélagið hvetur reykingafólk
til að nota þetta kjörna tækifæri
og byrja nýtt ár með því að segja
skilið við tóbakið," segir í frétta-
tilkynningu frá íslenska bindind-
isfélaginu.
Naustið:
Fyrstu breytingarnar í tæp 30 ár
I FYRSTA sinn í tæp 30 ár hafa verið framkvæmdar breytingar á veitingahúsinu Naustinu. Geirsbúð, sem svo
hefur verið nefnd — húsið sem gengur austur af Naustinu, hefur verið innréttuö að hluta og í framtiðinni mun
ætlunin að taka allt húsið í notkun.
„Við höfum við útbúið dansgólf og viljum með þessu sameina góðan mat og dans,“ sagði Ómar Hallsson
veitingamaður í samtali við Mbl. Þá er lokið við að einangra loft Naustsins og verið að vinna að einangrun
norðurveggins, en í norðanbáli hefur orðið óþægilega kalt í Naustinu og á það nú að vera úr sögunni.
Flugeldasala hjálparsveita skáta fyrir áramótin:
„Við treystum á stuðning al-
mennings, eins og endranær“
— segir Tryggvi Páll Friðriksson, formaður Landssamb. hjálparsveita skáta
Landssamband hjálparsveita
skáta hefur um árabil verið lang-
stærsti heildsöluaðili fyrir flug-
elda hér á landi og selur reyndar
mun fleiri aðilum flugelda, en
hjálparsveitum skáta, t.d. íþrótta-
félögum, ýmsum líknarfélögum og
Flugeldasalan hefur haldið
sveitum félagsins gangandi
— segir Einar Sigurjónsson í Fiskakletti, björgunarsveit Slysa-
varnafélagsins í Hafnarfirði, um flugeldasölu slysavarnadeildanna
„FLUGELDASALAN hefur haldið okkar sveit gangandi þau 15 ár, sem við
höfum staöið í þessu, eins og reyndar öðrum sveitum félagsins í kringum
landið," sagði Einar Sigurjónsson í Fiskakletti, björgunarsveit Slysavarnafé-
lagsins í Hafnarfirði, í samtali við Mbl. er hann var inntur eftir gangi
flugeldasölu sveitarinnar og reyndar sölu annarra sveita félagsins, sem
sameinast hafa um þann rekstur undir nafninu SVD flugeldar.
„Á sínum tíma fórum við að
flytja flugeldana inn sjálfir og
fengum til liðs við okkur björgun-
arsveitirnar í Mosfellssveit,
Grindavík og Sandgerði. Þessir
aðilar hafa síðan annazt þessa
dreifingu í sameiningu," sagði
Einar ennfremur.
Einar sagði að um þessar mund-
ir væri sérstakt átak í ^angi hjá
björgunarsveitum SVFI, en það
' væri í sambandi við fjarskiptamál
þeirra. Þær hafa verið að koma
sér upp svokölluðu VHF-kerfi, auk
þess að kaupa inn svokallaðar
SSB-stöðvar, sem er nauðsynlegt
samkvæmt lögum. „Við slógum á
það í Slysavarnafélaginu, að
kostnaðurinn við kaup á SSB-stöð-
vum fyrir sveitir félagsins, er um
8 milljónir króna,“ sagði Einar
ennfremur. Það kom ennfremur
fram í spjallinu við Einar Sigur-
jónsson, að SVD flugeldar selja 67
aðilum víðs vegar um landið.
Ennfremur barst Morgunblað-
inu eftirfarandi fréttatilkynning
frá SVD flugeldum: „Eyðileggið
ekki ánægjustund með óvarkárni
eru einkunnarorðin á leiðbein-
ingamiðunum, sem SVD flugeldar
láta fylgja vöru sinni til viðskipta-
manna. SVD flugeldar er inn-
kaupaaðili fjögurra björgunar-
sveita innan SVFÍ, en þær eru
Fiskaklettur í Hafnarfirði, Kynd-
ill í Mosfellssveit, Þorbjörn í
Grindavík og Sigurvon í Sand-
gerði, er síðan annast dreifingu til
hinna 67 viðskiptaaðila víðsvegar
á landinu, björgunarsveita félags-
ins og fjölmargra annarra aðila,
íþróttafélaga og klúbba.
Viðskiptavinum SVD flugeldar
fjölgar stöðugt með hverju ári,
enda ávallt fyrirliggjandi úrval
allskyns flugelda, blysa, stjörnu-
ljósa og sóla. SVD flugeldar hefur
á boðstólum viðurkenndar vörur,
sem framleiddar eru í Kína, Eng-
landi og Þýskalandi. Þýsku flug-
eldarnir eru þeir einu, sem búnir
eru plasthettu yfir kveikjuþráðun-
„ÞETTA er okkar eina fjáröflunarleið og því ríður mikið á, eins og endra-
nær, að almenningur styðji við bakið á okkur, og reyndar efast ég ekki um að
svo verður,“ sagði Tryggvi Páll Friðriksson, formaður Landssambands hjálp-
arsveita skáta, í samtali við Mbl., er spjallað var við hann um hina árlegu
flugeldasölu hjálparsveitanna víðs vegar um land fyrir þessi áramót.
björgunarsveitum víðs vegar um
landið.
Tryggvi Páll Friðriksson sagði
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
hafa riðið á vaðið í flugeldasölu
fyrir einum 15 árum og síðan hafi
aðrar hjálparsveitir skáta fylgt í
kjölfarið fljótlega á eftir og nú
væri svo komið, að starfsemi
sveitanna stæði og félli fjárhags-
lega með árangrinum af flugelda-
sölunni um hver áramót.
„Það eru gríðarlegir fjármunir
sem fara í rekstur hjálparsveit-
anna á hverju ári, en þær verða að
standa undir rekstri sínum að
langmestu leyti sjálfar," sagði
Tryggvi Páll Friðriksson.
„Við höfum í gegnum árin lagt
okkur sérstaklega fram um að
bjóða aðeins góða og örugga vöru
og ég held að okkur hafi bara tek-
izt bærilega upp í því efni. Til að
stuðla sem bezt að öryggi við-
skiptavina okkar höfum við í
gegnum tíðina afhent þeim sér-
staka upplýsingabæklinga, þar
sem ítarlega er greint frá heppi-
legri meðferð skotelda, sem þarf
að umgangast með aðgát. Ef skot-
eldarnir eru hins vegar meðhöndl-
aðir rétt er engin hætta á ferð-
um,“ sagði Tryggvi Páll Friðriks-
son.
hinn daglega rekstur. Þörfin á að-
stoð almennings er því augljós,
auk þess sem hinar einstöku
hjálparsveitir standa ekki síður í
fjárfestingum. Nægir þar að
nefna, að sveitin í Reykjavík mun
á næstunni flytja í eigið húsnæði í
Skátahúsinu og bygging nýs hús-
næðis sveitarinnar í Garðabæ er
hafin. Allar standa svo sveitirnar
í endurnýjun á búnaði sínum og
nægir þar að nefna allsherjar
endurnýjun á fjarskiptabúnaði,
sem farið hefur fram síðustu
misseri og er reyndar ekki lokið.
Við treystum því óneitanlega á
stuðning almennings að þessu
sinni, eins og endranær," sagði
Tryggvi Páll Friðriksson, formað-
ur Landssambands hjálparsveita
skáta að síðustu.
um og verður að losa, áður en flug-
eldunum er skotið á loft. Þessi
ágæti öryggisbúnaður er til þess
eins gerður að varna því að óhöpp
eða neistaflug geti kveikt í öðrum
flugeldum, sem tilbúnir eru til
notkunar. Þýsku flugeldarnir eru
fáanlegir í 10 mismunandi stærð-
um, sem kosta frá kr. 55.00. Þá má
ekki gleyma hinum vinsælu fjöl-
skyldupökkum, sem þekktir eru af
vöruvöndun og vöruúrvali og kosta
kr. 210.00, 380.00 og 600.00.
Stjörnutilboð SVD flugelda að
þessu sinni er fjölskyldurisapakk-
inn, sem inniheldur 47 mismun-
andi flugelda af öllum stærðum og
gerðum, með 17% afslætti frá
lausasöluverði og kostar kr.
800.00. Að sjálfsögðu er einnig
hægt að fá allan varning í
stykkjatölu. Forsvarsmenn SVD
flugelda beina þeim eindregnu til-
mælum til allra að fara í einu og
öllu eftir þeim reglum, sem leiðb-
einingamiðarnir geyma í máli og
myndum og vera ávallt með
hanska, þegar verið er að hand-
leika flugelda eða blys. Munið, að
öllu gamni fylgir ábyrgð og alvara
og ánægjustund allrar fjölskyld-
unnar er auðvelt að eyðileggja
með óvarkárni og aðgæsluleysi."
Jazz í Stúdenta-
kjallaranum
FIMMTUDAGINN 30. desember og
sunnudaginn 2. janúar verður djassað
í Stúdentakjallaranum við Hring-
braut. Þar munu leika Eyþór Gunn-
arsson á píanó, Friðrik Karlsson gít-
ar, Gunnlaugur Briem trommur, Sig-
urður Flosason altsaxófón og Tómas
R. Einarsson kontrabassa. Áðgangs-
eyrir er krónur 50.
Jazzinn hefst bæði kvöldin kl. 21.
Aðspurður um hvaðan flugeld-
arnir kæmu sagði Tryggvi Páll, að
uppistaðan kæmi frá Bretlandi,
Vestur-Þýzkalandi, Kína og Sví-
þjóð. Ennfremur kæmi nokkuð
magn frá öðrum löndum og loks
væri ákveðinn hluti þeirra fram-
leiddur hér á landi.
Það kom fram í samtalinu við
Tryggva Pál Friðriksson, að
Landssamband hjálparsveita
skáta er nýflutt í eigið húsnæði í
hinu nýja Skátahúsi við Snorra-
braut og sagði hann, að þar yrði til
húsa stjórnstöð hjálparsveitanna,
sem búin yrði öllum nauðsynleg-
um tækjum. „Við höfum því þurft
að fjármagna okkar hlut í bygg-
ingunni, auk þess að fjármagna
Arsafmæli Bíóbæjar:
Frítt í bíó
á nýársdag
KVIKMYNDAHÚSIÐ Bíóbær á
Smiðjuvegi 1 í Kópavogi á ársafmæli
nú á nýársdag. f tilefni dagsins verð-
ur fólki boðið til ókeypis kvikmynda-
sýninga á afmælisdaginn, klukkan
3,5,7 og 9.
Á sýningunum eru tvær myndir,
annars vegar barnamyndin Undra-
drengurinn Remi og hins vegar
kvikmyndin Að baki dauðans dyr-
um. Öllum er sem fyrr segir heimill
ókeypis aðgangur að sýningum
þennan daginn.