Morgunblaðið - 30.12.1982, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1982
41
„Það er sitthvað menntun og menning. Þessir þsttir sýna e.t.v. óbeinlínis
hinn mikla mun, sem er á þessum tveimur hugtökum, því að enginn dregur í
efa hátt menntastig þeirra sem að þessu verki standa, bæði í sköpun og
flutningi.“
Sjónvarpið, þetta menningartæki,
er betra en nokkur skóli. Þar er
ekki sama hvað sýnt er — hvað
kennt er. Enda lætur eftirleikur-
inn ekki á sér standa. Glæpir,
ofbeldi og ólifnaður vaða uppi, og
eykst svo geigvænlega að hugs-
andi fólki stendur ógn af.
Hvar endar þessi leikur — allur
þessi leikur — sem fégræðgin eiur
við brjóst sér? Svífst einskis, ef
fólkið lærir ekki að velja og hafna,
meta réttilega hvað því er fyrir
beztu.
A hvers konar helgöngu er
mannkyn á þessari jörð? Sorinn
og afskræmingin eru hafin til vegs
og virðingar, en fegurðin, dyggðin
og jafnvel heilbrigð hugsun fótum
troðin. Lífið á jörðinni stendur
frammi fyrir þeim örlagaleik, að
mannskepnan með allri sinni
tækni, þekkingu og vísdómi, er bú-
in að skapa þær vítisvélar sem
eytt geta öllu lífi á jörðinni — ekki
aðeins einu sinni — heldur sjö
sinnum, ef hægt væri.
Þetta er vissulega mikið og um
leið hörmulegt afrek mannsand-
ans á sl. fjórum áratugum. í fram-
haldi af því vaknar spurningin:
Hvað verður hægt að eyða lífinu
mörgum sinnum að tveimur ára-
tugum liðnum — tuttugu sinnum
— hundrað sinnum? Ef það verður
þá um nokkurt líf að ræða á þess-
um hnetti um næstu aldamót.
Sem betur fer, þá er tími krafta-
verkanna þó ekki liðinn. Er það
ekki nokkurn veginn ljóst, eins og
allt er í pottinn búið, að mesta
kraftaverkið gæti orðið það, að
enginn verði til þess að hleypa öll-
um þessum gereyðingarvopnum af
stað. Hvers vegna eru menn að
framleiða öll þessi vopn? Hví er
þeim ekki eytt? En þá standa
menn jafnvel frammi fyrir því
vandamáli, að þeim sumum hverj-
um verður alls ekki eytt, nema þá
að granda jarðlífinu um leið.
Mannsandinn er sem sé á góðri
leið með — ef hann er þá ekki
búinn — að smíða slík ægitæki, að
þau munu eyða öllu lífi á jörðinni,
nema kraftaverk komi til. Hvers
virði er slík tækni og vísindi? Slík
tækniundur verða vissulega ekki
metin til fjár, ef þau eiga að kosta
líf og framtíð mannkynsins á
þessarijörð.
Þá væri betra að búa við minna
— og ætla sér af.“
Betra aö byrja strax
E.KrJ. skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Undanfarna áratugi hafa verið
uppi hatrammar deilur næringar-
fræðinga og fleiri um það, hvort
það væri hollt eða óhollt að borða
smjör. Allir vissu þeir að kolester-
ol var nauðsynlegt líkamanum, og
einnig vissu þeir, að stundum sett-
ist það innan á æðaveggi og stífl-
aði æðarnar, og var þá sérstaklega
lífshættulegt, er það stíflaði
kransæðar hjartans.
Báðir þessir fræðimannahópar
rökstuddu mál sitt svo vel, að
leikmanni gat flogið í hug, að þeir
væru alls ekki að tala um sama
kolesterolið. Nýlega kom reyndar í
ljós, að kolesterolin í blóðinu eru
tvö. Annað þeirra, það „vonda“
(LDL), hefir tilhneigingu til að
setjast innan á æðaveggi, en hitt,
það „góða“, hjálpar til að halda
blóðinu fljótandi.
Nú eru Svíar að fullkomna að-
ferð til að lækka innihald blóðsins
af „vondu" kolesteroli, og stígur
þá jafnframt innihald blóðsins af
„góða“ kolesterolinu. Þessar til-
raunir hafa minnkað mælanlega
æðakölkun hjá sex af átta fyrstu
sjúklingunum, sem þeim hefur
verið beitt við.
Jafn hatrammar deilur þessari
hafa verið um blöndun flúors í
drykkjarvatn, til varnar tann-
skemmdum. Hafa báðir aðilar,
meðmælendur og mótmælendur
flúorblöndunar, rökstutt mál sitt
vel.
Einn þeirra, sem leitað var upp-
lýsinga hjá, var bandaríski dá-
lestramaðurinn Edgar Cayce. Að-
spurður í dásvefni (í mars 1943)
sagði hann öllu máli skipta, hvaða
önnur efni vatnið innihéldi. „Ef
ákveðin prósentutala af fluorine
er í vatninu, ásamt óbundnu kalki,
er það til bóta. Ef það er, ásamt
smávegis af magnesíum, brenni-
steini eða öðru álíka, megum við
búast við mislitun (mottling) í
fyrsta lagi og holum við góminn í
öðru lagi.“
Einnig sagði hann: „Þar sem í
vatninu er járn eða brennisteinn
eða magnesíum, verður að sýna
aðgætni (við flúoríblöndun).
Nafn Edgar Cayces mun orðið
það þekkt hérlendis, að flestir vita
einhver deili á þessum ómenntaða
Bandaríkjamanni, sem lést árið
1945. í að minnsta kosti 80 ár hafa
menn notið lækningafyrirsagna
hans, og í jafnlangan tíma hafa
aðrir menn reynt að finna mót-
sagnir eða rangar upplýsingar í
dálestrum hans. En það er vafa-
mál, að nokkru sinni hafi verið
sönnuð á hann villa. Að vísu er
afar margt ennþá ósannað af dá-
lestrum hans, en þar valda meðal
annars takmörk mannlegs skiln-
ings.
Ég læt hér fljóta með ráð, sem
Cayce gaf til varnar tveimur
okkur alltof kunnum sjúkdómum:
„Manneskja, sem borðar tvær eða
þrjár möndlur á dag, þarf aldrei
að óttast krabbamein; sá, sem
nuddar allan likamann vikulega
upp úr jarðhnetuolíu, þarf aldrei
að óttast gigt.“
Ef einhver vill reyna að afsanna
þessi ráð Edgar Cayces á sjálfum
sér, þá er betra að byrja strax, því
að það getur tekið meiri tíma en
hlutaðeigandi á eftir ólifað."
GÆTUM TUNGUNNAR
Ef það mætti
framkalla bros
Björn Ilúason, Ólafsfirði, skrifar
í nóvember: „Þakka þér, Velvak-
andi, fyrir aðstoðina.
Sára fáir hafa skrifað. Ég er
ekki að biðja um að gefa mér ljóð
því sjálfsagt er að greiða fyrir
yrkingarnar eftir samkomulagi.
Það er hugmynd mín að lofa fólki
að skyggnast síðar í þau gaman-
og alvöruorð í ljóðum frá síldarár-
unum, ef það mætti framkalla
bros á vör hjá einhverjum, ekki
síður en „I de gamle gode dager,
da alt kom an paa silla — far.“
Sést hefur: Þau horfðu á hvort annað.
Rétt væri: Þau horfðu hvort á annað. (Stundum færi vel: Þau
horfðust á.)
03^ SlGeA V/öGA fi \iLVtRAU
HAPPDRÆTTI
STYRKTARFÉLAGS
VANGEFINNA
Vinningsnúmer:
1. vinningur: Saab Turbo, bifreiö, árgerö 1983, nr.
23225
2. vinningur: Bifreiö aö eigin vali aö upphæö kr.
130.000.— nr. 86656
3. —10. vinningur: Húsbúnaður að eigin vali, hver
aö upphæö kr. 30.000,— nr. 27742 — 38673 —
41197 — 60102 — 69420 — 82644 — 84001 og
88904.
Félagið flytur öllum hugheilar þakkir fyrir veittan
stuöning.
Styrktarfélag vangefinna.
sern
Herra mittisúlpa Jmttr 599.00
Herra skíðaúlpa 499.00
Herra skíðaúlpa jm-m 599.00
Herra peysa -aæ-exr 299.00
Dömuúlpa með hettu ^mm 689.00
Dömumittisúlpa 499.00
Dömupeysa 199.00
Barnaúlpa 399.00
Barnaúlpa -64ótftr 449.00
Barnaúlpa 299.00
Barnaíþróttagalli jimm- 89.95
Dömukuldaskór loðfóðraðir jmm 599.00
Barnakuldaskór loðfóðraðir 299.00
Verðlækkun sem lítandi er á!
Þó útsalan sé ekki hatin hötum við þegar lækkað
nokkrar vörur, þú gerir betri kaup með því að versla strax.
0piðíkvöldtílkl.8
HAGKAUP
Reykjavík-Akureyri
VÖLLO ÁXíl\IÓNW\ lllllllll