Morgunblaðið - 08.01.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1983
7
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu
mig á 90 ára afmæli mínu 3. janúar sl. meö
heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum og
geröu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi
ykkur öll.
Kristbjörg Bjarnadóttir,
Rauöalæk 59, Reykjavík.
Skákþing Reykjavíkur 1983
hefst að Grensásvegi 46 sunnudag 9. jan., kl. 14. í aðalkeppn-
inni tefla keppendur í einum flokki ellefu umferðir eftir
Monrad-kerfi.
Umferðir verða á sunnudögum kl. 14 og á miðvikudögum
og föstudögum kl. 19.30. Biðskákdagar ákveðnir síðar.
Skráning í mótið fer fram í síma Taflfélagsins á kvöldin kl.
20—22. Lokaskráning í aðalkeppnina verður laugardag 8. jan.,
kl. 14—18.
Keppni í flokki 14 ára og yngri hefst laugardag 15. jan., kl.
14. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad-kerfi og tekur
keppnin þrjá laugardaga, þrjár umferðir í senn.
Taflfélag Reykjavíkur
Grensásvegi 44—46, Reykjavík.
Símar 83540 og 81690.
Bílastilling Birgis
Skeifan 11 — Sími: 37888
viö hliðina á Braut.
NOTUM
1212 STILLITÖLVU
Mótorstilling
Hjólastilling
Ljósastilling
VÖNDUÐ VINNA
Seljum og setjum í bíla Sparkrite, platínulausu, raf-
eindakveikjuna. Seljum einnig kerti, platínu, þétta-
kveikju hamra, kveikjulok, kertaþræði, háspennukefli,
mótstöður, Redex sótthreinsiefni, loftsíur, bensínsíur,
bensínslöngur, ljósaperur, samlokur, ísvara o.fl.
Til þess
var stjórnin
mynduð
í greinum Óskars Guð-
mundssonar um AlþýAu-
bandalagið í Þjóviljanum,
sem gerðar voru hér að
umtalsefni á miðvikudag,
er að því vikið, að þátttaka
Alþýðubandalagsins í ríkis-
stjóm með framsókn og
Gunnari Thoroddsen hafi
ekki fegrað ímynd flokks-
ins. Óskar segir: „RíkLs-
stjómin var mynduð til
þess a) að verja féiagslega
ávinninga launafólks, b) til
að leysa stjómarkrcppu og
koma i veg fyrir utanþings-
stjórn, c) til að freista þess
að kljúfa pólitíska breið-
fylkingu burgeisanna,
Sjálfstsðisflokkinn."
Og svo segir helsti
stjórnmálablaðamaður
Þjóðviljans: „Við skapa-
dægur ríkLsstjórnarinnar er
ekki seinna vænna að láta
sér skiljast að það sem hér
hefur verið nefnt sem til-
gangur AB með myndun
ríkisstjórnarinnar hlýtur að
orka tvímælis." Hér kveð-
ur Óskar ekki skýrt að orði
en af framhaldinu verður
ráðið, að nú sé tímabært að
alþýðubandalagsmcnn geri
sér Ijóst, að með ríkis-
stjórninni hafi ekki neitt af
þessum þremur markmið-
um náðst.
„Launafólk hefur það al-
mennt ekki betra nú en
það hafði við myndun ríkis-
stjórnarinnar," segir Óskar
og slær því þar með föstu,
að stjórnin hafi bmgðist í
lið a) hér að ofan. Og síðan
segir hann um lið b): „í
öðm lagi hefur a.m.k. frá
því í sumar verið í raun
ríkjandi stjórnarkreppa þar
sem ríkisstjórnin hefur
ekki haft starfhæfan meiri-
hluta á alþingi." Ríkis-
stjómin sem átti að bjarga
þjóðinni frá stjórnarkreppu
hefur sjálf brcyst í stjórn-
arkreppu og kreppustjórn!
Og um lið c) segir Óskar
að það hafi verið „auð-
sætt“ að minnsta kosti
„allt frá ihaldssigrinum i
sveitarstjórnarkosningun-
um að ekki tókst að kljúfa
þá skipulagsbundnu ein-
ir JOÐVIUIN) 3 AðalMmi ÞioA«i|iitn\ rr m.UA kl. 1 - 2« inanudaii lil lnsluduuv 1 • m tim.i vi b.rv' .M' ii.i i H.i.i iiiiviiii • *i' i«*i • • ,ft ii,, in, - I ,.i ii, ,n i \inum Knvi|i,ins| tsj sl4*0*nt «1•1111101 u * íl „iii\ii.:u •, 1 .luy.inl.iiM U •» - 1-' vi lu cl .h' n.i 1 -.l-.-i- n'.lu KLrvm- 1 im.i • |«. 1 l*ii nlMiuOt iii Þiviit ln 1,n .itti.i ', >1' , 1 , '■le'iii 1*1. ; ■ , • k\.*l Aðalsimi Kvöldsi 81333 81341
| 1 osliHlagur 7. jamiar IW
Laga- og skipulagsnefnd Alþýðubandalagsins hefur störf
Ætlum að breyta skipu-
lagi og starfsháttum
.. segir Svavar Gestsson
Alþýðubandalagiö í nefiid
í tíö þeirrar ríkisstjórnar sem enn situr hefur sá háttur verið
tekinn upp aö skjóta öllum meiriháttar málum til ráöherra-
nefnda, en á þeim vettvangi hefur Svavari Gestssyni og
félögum gefist færi á aö beita neitunarvaldi sínu. Nú er búiö
að innleiða sömu starfshætti í Alþýðubandalaginu. Svar
Svavars Gestssonar og félaga viö vaxandi óánægju og upp-
lausn innan Alþýöubandalagsins er aö setja flokkinn í nefnd
— sem auðvitaö lýtur formennsku Svavars. Hefur Þjóöviljinn
flutt stórar og smáar fréttir af þessu nefndabrölti undanfariö,
og er fyrirsögnin hér að ofan frá baksíðunni í gær.
ingu sem burgeisarnir hafa
með sér í Sjálfstæðis-
flokki.“ Raunar efast
Óskar um skynsemina í því
pólitíska mati Svavars
Gestssonar & co. að það sé
skárra fyrir Alþýðubanda-
lagið, að Sjálfstæðisflokk-
urinn klofni!
Sjálfsgagn-
rýni Svavars
Kins og kommúnistafor-
ingja er siður hefur Svavar
Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, ástund-
að dálitla sjálfsgagnrýni nú
síðustu vikur þegar við öll-
um blasir, jafnvel honum
sjálfum, að innviðir Al-
þýðubandalagsins eru
teknir að bogna vegna
dæmafárrar firringar for-
ystunnar miðað við eigin
loforð og kröfur flokks-
manna. f áramótagrein
sinni 31. desember 1982
tekur Svavar undir með
Óskari Guðmundssyni og
viðurkennir að ríkisstjórn-
inni hafi mistekist að ná
þeim þremur markmiðum,
sem Alþýðubandalaginu
voru kærust við myndun
hennar. Svavar segir: 1)
„Kreppan hefur með öð-
rum orðum knúið dyra hér
hjá okkur, en henni hefur
enn ekki verið hleypt inn í
landið.“ 2) „Frá síðustu
áramótum hefur núverandi
ríkisstjórn misst meirihluta
sinn í neðri deild alþingLs."
3) „Frá síðustu áramótum
hafa farið fram sveitar-
stjórnarkosningar, þar sem
íhaldið vann stórfelldan
kosningasigur.“
Vörn Svavars
Eftir að Svavar Gestsson
er þannig komin á undan-
hald snýst hann til varnar:
„Það er augljóst, að sterkt
Alþýðubandalag getur tog-
að Framsóknarflokkinn og
jafnvel Alþýðuflokkinn til
vinstri." I áramótagrein
sinni hafnar Svavar
Gestsson þeirri kenningu
Þrastar Ólafssonar, aðstoð-
armanns Ragnars Arnalds,
sem hann setti fram hér í
blaðinu á sínum tíma um
Sjálfstæðisflokkinn og
áhrif hans. Svavar segir:
„Hinn stóri vandi ís-
lenskra stjórnmála stafar
ekki síst af því að Sjálf-
stæðisflokkurinn er alltof
sterkur og ekkert nægilega
sterkt mótvægi er til and-
spænis Sjálfstæðisflokkn-
um í íslenska flokkakerf-
inu.“
Og enn segir Svavar:
„Það er á valdi vinstri-
manna að breyta Alþýðu-
bandalaginu í voldugt
bandalag vinstrimanna
sem verjast árásum íhalds-
ins, sem snúa vörn í sókn
til betri iífskjara, blómlegr-
ar menningar og skýlausr-
ar hollustu við sjálfstæði
þjóðarinnar." Hvorki
meira né minna! Það á sem
sé að byrja aftur þar sem
frá var horfið þegar Al-
þýðubandalagið settist í
ríkisstjórn 1978.
Alþýðubandalagið mun
leita nýrra leiða og kynna
hugmyndir sínar fljótlega
eftir áramót sagði Svavar á
gamlársdag. Hinar stór-
huga hugmyndir hafa nú
verið kynntar. Frá því var
skýrt í gær, að laga- og
skipulagsnefnd Alþýðu-
bandalagsins undir for-
mennsku Svavars Gests-
sonar mundi þann sama
dag halda sinn fyrsta fund!
Áskriftarsíminn er 83033
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær Vesturbær
Miöbær I
Miöbær II
Skólavöröustígur
Ingólfsstræti
Þingholtsstræti
Úthverfi
Tjarnarstígur
Garöastræti
Bárugata
Faxaskjól
Skerjafjöröur
sunnan flugvallar
Gnoöarvogur 44—88
Hjallavegur
Skeiðarvogur
Sala kindakjöts:
Helmingi meiri
í mánuðunum
fyrir verð-
hækkanir en
annars
Á SÍÐASTA verðlagsári, frá septem-
ber 1981 til ágúst 1982, var sala
kindakjöts innanlands 10.546 tonn og
samsvarar það því, að hver íslending-
ur hafi borðað rúm 45 kíló af kinda-
kjöti að meðaltali það árið. Nokkuð er
neyslan mismunandi á milli ára, en er
þó alltaf á bilinu 40 til 50 kíló á mann.
Salan er ákaflega mismunandi
eftir mánuðum. Á síðastliðnu verð-
lagsári var saian lángmest í maí,
1504 tonn, í febrúar, 1358 tonn, i
nóvember, 1080 tonn og í ágúst 940
tonn. Þetta eru í öllum tilfellum
mánuðirnir fyrir verðhækkun
kjötsins, og er augljóst af þessu að
verslanir og almenningur hefur
tekið mikið mið af verðhækkunum
landbúnaðarafurða á þriggja mán-
aða fresti, og birgt sig vel upp mán-
uðinn fyrir hækkun, því salan í
mánuðunum eftir verðhækkun er
helmingi minni, nema í sláturtíð-
inni, en þá heldur salan sér nokk-
urn veginn.