Morgunblaðið - 04.02.1983, Síða 23

Morgunblaðið - 04.02.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 „Fjöldi vísindamanna er al- farid þeirrar skoðunar, að beint samband sé á milli áfengismagns, sem þjóð eða annar tiltekinn hópur drekk- ur, og fjölda ofdrykkju- manna og drykkjusjúklinga. Það sé heildarmagn hins hreina vínanda, sem skiptir máli, en ekki hvort áfengið sé neytt í formi öls, víns eða sterkra drykkja.“ dreifbýli, þegar þeir voru 14 ára, áttu á hættu að verða drykkjusýki að bráð.“ I framhaldi af þessum stað- reyndum flutti ég á Alþingi, ásamt öðrum flokksbræðrum mín- um, tillögu til þingsályktunar um mörkun opinberrar stefnu í áfeng- ismálum. Tillagan var samþykkt og nú hefur ríkisstjórnin ákveðið að skipa nefnd manna til að vinna að þessu verkefni með skjótum og öruggum hætti. Þetta tel ég eitt mikilvægasta skref, sem stigið hefur verið hér á landi til að marka þá stefnu, sem farið verður eftir í baráttunni geng ofneyslu áfengis. f tillögunni voru eftirfarandi meginatriði dregin fram: Að draga verði úr heildarneyslu áfengis. Að stórauka skipulagða fræðslu og upplýsta umræðu um áfeng- ismálastefnu. Að skilgreina eðlilega uppbygg- ingu „meðferðarkveðju" og auka stuðning við áhugamannasamtök. Að verslun ríkisins með áfengi leggi ríkisvaldinu þær skyldur á herðar að vinna gegn ofneyslu vín- anda með fyrirbyggjandi starfi og fræðslustarfsemi og geri ríkis- valdinu skylt að liðsinna þeim, sem eiga við áfengisvandamál að stríða. Við mótun opinberra stefnu í áfengismálum verði m.a. settar fram hugmyndir um eftirfarandi viðfangsefni: 1. Hvernig draga megi úr heild- arneyslu áfengis með úrræðum í dreifingu áfengis og markvissri stefnu í verðlagningarmálum áfengra drykkja eftir tegundum og styrkleika. 2. Hvernig auka megi hvers konar fyrirbyggjandi starf og fræðslustarf um áfengismál til þess að fá fram virkt almennings- álit gegn misnotkun og ofneyslu áfengra drykkja og breyta drykkjusiðum þjóðarinnar. t því sambandi verði sérstaklega athug- að hvernig gera megi skipulags- breytingar á starfsemi Áfengis- varnaráðs og áfengisvarnanefnda í sveitarfélögum og tengja starf- semi þessara aðila skipulögðu fræðslustarfi í skólum og fjölmiðl- um svo og upplýsingastarfsemi og öðru fyrirbyggjandi starfi frjálsra samtaka um áfengismál. 3. Hvernig bæta megi og auka rannsóknir á áfengisvandamálinu og örsökum þess, svo að hægt sé að gera sér grein fyrir umfangi vandans, orsökum og afleiðingum svo og hvernig áfengisvandamálið tengist öðrum félagslegum, fjár- hagslegum og heiisufarslegum viðfangsefnum. Áhersla verði lögð á að fylgjast vel með öllum breyt- ingum, sem verða kunna á áfeng- isvandamálinu, svo að stjórnvöld geti á hverjum tíma brugðist við nýjum aðstæðum. 4. Með hvaða hætti bæta megi þekkingu og þjálfun þeirra manna á áfengismálum og meðhöndlun ofneytenda áfengis, sem afskipti hafa af slíkum málum og er þá t.d. átt við starfslið sjúkrahúsa og fyrr en 23. ágúst. Vegið meðal- gengi krónunnar var þá 14,3% lægra en verið hafði þegar skrán- ing var felld niður, sem samsvarar 16,7% hækkun á vegnu meðal- gengi erlendra gjaldmiðla. Vegið meðalgengi krónunnar lækkaði frá árslokum 1981 til árs- , loka 1982 um 47,3%, sem svarar til I hækkunar erlendra gjaldmiðla ■ gagnvart krónu um 89,6%. Vegið ársmeðalgengi krónunnar 1982 var 37,9% lægra en vegið ársmeð- algengi 1981, en það samsvarar 61,0% hækkun erlendra gjald- miðla gagnvart íslenskri krónu. í árslok 1981 var kaupgengi bandarísks dollars 8,161 kr., en í árslok 1982 16,60 kr. Bandaríkja- dollar hefur því hækkað um 103,4% gagnvart íslenskri krónu á þessu tímabili, og samsvarar það 50,8% lækkun á gengi krónunnar gagnvart dollar. Ársmeðalgengi Bandaríkjadollars gagnvart ís- lenskri kónu á árinu 1982 var 72,9% hærra en meðalgengi 1981, sem svarar til 42,2% lækkunar á gengi krónunnar gagnvart dollar. Allmiklar breytingar urði á gengi ýmissa gjaldmiðla á árinu 1982. Sænsk króna var lækkuð um 16% hinn 8. október, norsk króna var lækkuð um 3% hinn 6. september, finnskt mark var lækkað um 4% hinn 8. október og aftur um 6% hinn 10. október. Gengi Banda- ríkjadollars fór hækkandi á gjald- eyrismörkuðum til loka október en lækkaði nokkuð í nóvember og desember. Gengi Bandaríkjadoll- ars hækkaði gagnvart eftirtöldum myntum frá ársbyrjun til ársloka 1982 sem hér segir: Sterlingspundi 18,6%, þýsku marki 5,8%, frönsk- um franka 18,4%, svissneskum franka 11,1%, sænskri krónu 32,1% og japönsku yeni 7,0%. Raungengi krónunnar Með raungengi krónunnar er átt við gengi hennar að tiltölu við hlutfallslega verðþróun þjóðar- framleiðslu hérlendis á móti sam- svarandi verðþróun í viðskipta- löndum. Hátt raungengi er að öð- ru jöfnu atvinnuvegunum þungt í skauti, en hamlar á móti hækkun tekna og verðlags, en hið gagn- stæða á við um lágt raungengi. Ut- reikningur raungengis tekur ekki tillit til hins sérstaka verðlags á útflutningi og innflutningi, né að sjálfsögðu til breyttrar framleið- ni, og er þannig aðeins einn þeirra þátta, sem höfð er hliðsjón af við ákvörðun gengisins. Raungengi krónunnar var árin 1979 og 1980 mjög nálægt meðal- tali tímabilsins 1970—1982, aðeins um 1% hærra. Framkvæmd geng- isstefnunnar árið 1981 hafði svo í för með sér hækkun meðalraun- gengis um tæp 5% frá árinu áður, og varð það þá eilítið hærra en 1978, þegar ytri skilyrði voru góð og batnandi. Áföll og erfiðleikar atvinnuveganna urðu þess vald- andi, að hverfa varð til mun lægra raungengis, og lækkaði það um 8% að ársmeðaltali milli 1981 og 1982, og stóð þá stíðara árið 2,4% lægra en meðaltalið 1970—1982. Eftir gengisbreytinguna nú upp úr áramótunum er raungengið að vísu enn lægra en þetta, en er sí- felldum beytingum háð af völdum hækkandi verðlags í landinu. heilsugæslustöðva, starfsfólk löggæslu, starfsfólk endurhæf- ingarstöðva, æskulýðsfulltrúa og aðra slíka opinbera starfsmenn, sem þurfa að hafa afskipti af áfengisvandanum og vandamálum áfengisneytenda í störfum sínum. 5. Hvernig standa skuli að með- ferð áfengissjúklinga þ.á m. hvernig ríkisvaldið geti stutt sam- tök og stofnanir sem þá meðferð hafa með höndum, hvernig styðja megi áfengissjúklinga til endur- hæfingar og hjálpa aðstandendum þeirra og þeim sjálfum til að leita eðlilegs lífs á nýjan leik með að- gerðum á sviði heilbrigðismála, fé- lagsmála og atvinnumála. 6. Kanna sérstaklega þátt heimabruggs og smyglaðs áfengis í heildarneyslu vínanda hér á landi, þar eð tölur Áfengis- og tó- baksverslunar ríkisins segja hvergi nærri alla söguna um áfengisneyslu íslandinga. 7. Hvernig bregðast eigi við aukinni neyslu annarra fíkniefna en vínanda, sem færst hefur í vöxt og virðist mjög tengjast ofnotkun áfengra drykkja. 8. Hvernig leita megi samstarfs við erlenda aðila og stofnanir um upplýsingar og fróðleik um áfeng- isvandamálið, orsakir og afleið- ingu, meðferð og rannsóknir. Tillögur þessar og hugmyndir skal senda Alþingi í sérstakri skýrslu um málið ásamt tillögum ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á sviði lagasetningar og opinberrar stjórnsýslu, sem fylgir slíkri stefnumörkun. Það er ástæðulaust að fara mörgum orðum um þær þjáningar og þá kvöl, sem fylgir hverskonar misnotkun áfengis. I því sambandi má þó nefna rannsókn, sem gerð var á tengslum áfengisneyslu og glæpa. Þar kom í ljós, að áfengi var með í spilinu í 13 til 50% allra nauðgana, 24—72% rána og 28—86% morða. Hin síðari árin hafa hverskonar önnur fíkniefni haft vaxandi áhrif á afbrot. Hér er ekki talinn hinn gífurlegi kostnaður, sem þjóðfélagið verður að greiða vegna þeirra andlegu og líkamlegu sjúkdóma, sem eru fylgifiskar áfengisneyslu. Ýmsir hafa leitt getum að því, að „hagn- aður“ ríkisins af áfengissölu nægi ekki til að bæta það tjón, sem af neyslunni hlýst. Þá er heldur ekki talin með sú þjáning, sem allir þekkja í næsta umhverfi sínu, og fylgir áfengisneyslunni. Heill og hamingja þjóðarinnar er undir því komin, að rétt verði brugðist við þessum vanda og að reynt verði að stemma stigu við neyslu hinna nýrri fíkniefna, sem oft eru fylgifiskar áfengis. Starf SÁÁ er líklega mikilvægasti þátt- urinn í björgun mannslífa úr þessu kviksyndi. Því ber okkur að styrkja og styðja samtökin. Smíða páfavagn í Costa Rica San Jost‘, Costa Rica, 2. fcbrúar. Al'. FYRIRTÆKI á ('osta Rica hefur ákveðið að smíða sérhannaða bifreið vegna fyrirhugaðrar ferðar Jóhann- esar Páls páfa II um Mið-Ameríku. Páfi heimsækir öll lönd þessa heimshluta, sjö að tölu, í ferð sinni. Leiðtogar rómversk/kaþólsku kirkjunnar lýstu því yfir, að ógjörningur væri að flytja bifreið- ina, sem var sérstaklega hönnuð vegna ferðar páfa um Spán, til Suður-Ameríku. Bifreiðin, sem á ensku er nefnd „pope-mobile" eins og fyrri sér- hannaðar bifreiðir fyrir páfa, verður í meginatriðum eins og bif- reiðin, sem smíðuð var á Spáni. Tekur hún fimm manns og er sér- staklega búin öryggistækjum. Stórglæsileg HiiómPioíiiLss^^ ^ rýmingarsala stendur yfir v/ Næst síðasti dagur. Armúla 38

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.