Morgunblaðið - 04.02.1983, Síða 24

Morgunblaðið - 04.02.1983, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 Hver er kosninga- réttur minn? — eftir Magníis Jónsson skólastjóra í dag barst mér seðill varðandi skoðanakönnun um kjördæma- málið. Fer vel á, að álits almenn- ings sé leitað. Það rýrir gildi þess- arar skoðanakönnunar, að ekki er nægur tími til að leita álits allra landsmanna. Varðandi jafnan kosningarétt, þarf að fleiru að hyggja en því, að flokkarnir og héruðin fái réttan þingmannafjölda í hlutfalli við at- kvæðamagn. Það þarf einnig að ganga þannig frá málum, að ein- staklingurinn, kjósandinn, hafi raunverulegan kosningarétt. Til að skýra mál mitt skal ég taka nærtækt dæmi. Nýlega er bú- ið að ganga frá framboðslista sjálfstæðismanna á Vestfjörðum. Kördæmaráð ákvað, hverjir skyldu verða þingmenn flokksins þar. Þessi fámenni hópur tók í sín- ar hendur kosningarétt allra sjálfstæðismanna á Vestfjörðum. Aðrir sjálfstæðismenn á Vest- fjörðum geta mætt á kjörstað og staðfest fylgi sitt við flokkinn, en þeir hafa engan umsagnar- eða kosningarétt um það, hvaða menn fara á þing. Hver er persónulegur kosn- ingaréttur þessara Vestfirðinga? Er hann ef til vill sáralítill eða sama og enginn? Starfsaðferðin varðandi fram- boðið var sú sama og gilt hefur um langan tíma og ýmsir telja enn hina einu réttu aðferð til að til- nefna frambjóðendur. Prófkjör Prófkjör voru tekin upp til að ráða bót á þeim annmörkum, að viðkomandi uppstillingarnefnd ákvæði hvert sinn upp á sitt ein- dæmi hverjir yrðu frambjóðendur. Þessi aðferð hefur heldur ekki reynst gallalaus. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur framkvæmt prófkjör með þrennskonar hætti. Lokað prófkjör: Samanber prófkjör til undirbúnings borgar- stjórnarkosningum í Reykjavík í vetur. Kosningarétt í því prófkjöri höfðu flokksbundnir sjálfstæðis- menn, 16 ára og eldri. Gallinn við þetta fyrirkomulag er nokkuð í ætt við vald uppstillingarnefnd- anna, sem sagt sá að þeir, sem ekki eru flokksbundnir, eru að mestu leyti sviptir kosningarétti. Þeir geta ráðið úrslitum um einn og einn þingmann, sem er til- nefndur af öðrum en þeim. Hálfopið prófkjör: Prófkjör sjálfstæðismanna, sem fram fór í vetur til undirbúnings væntanleg- um alþingiskosningum, var hálf- opið prófkjör. Kosningarétt höfðu flokksbundnir sjálfstæðismenn, 16 ára og eldri og þeir, sem undir- skrifuðu stuðning við Sjálfstæðis- flokkinn. Þetta fyrirkomulag gengur lengra í lýðræðisátt en lok- aða prófkjörið. Gallinn við þetta fyrirkomulag var sá, að ýmsir óflokksbundnir stuðningsmenn gerðu sér ekki grein fyrir að þeir gátu kosið, svo voru aðrir, sem ekki felldu sig við að þurfa að und- irskrifa yfirlýsingu til að mega kjósa. Allir þessir tapa að mestu atkvæðisrétti sínum varðandi næstu kosningar, eins og áður er lýst. Opið prófkjör: Hjá Sjálfstæðis- flokknum í Reykjavík hefur um nokkurt skeið verið viðhaft opið prófkjör, þau hafa gengið vel. Ég hef ekki heyrt um sérstök vand- kvæði á því fyrirkomulagi, og veit ekki, af hverju var frá því horfið. Hjá Sjálfstæðisflokknum hafa núna í vetur farið fram opin prófkjör í nokkrum kjördæmum. Þar hefur þátttakan verið meiri en gera mátti ráð fyrir, miðað við fylgi flokksins við síðustu kosn- ingar. Að vísu koma þarna at- kvæði flokksmanna 16—20 ára, en það nægir ekki til að skýra þennan mismun. Annaðhvort hefur flokk- urinn aukið fylgi sitt, eða fleiri en sjálfstæðismenn hafa tekið þátt í prófkjörinu. Gísli Jónsson menntaskóla- kennari skrifaði fyrir skömmu, grein í Morgunblaðið um prófkjör. Hann benti á, að með því að prófkjör allra flokka færu fram samtímis í sama kjördæmi, mætti framkvæma opið prófkjör, svo að aðeins þeir sem fylgja viðkomandi flokki, taki þátt í prófkjöri hans. Eykur á ríg og óeiningu Bent hefur verið á, að sam- keppnin í prófkjörinu sundri sam- flokksmönnum og valdi jafnvel „Ég vil með þessum línum vekja athygli á að það er ekki öllu réttlæti fullnægt með því að tryggja kjördæm- um og flokkum rétta þing- mannatölu í hlutfalli við at- kvæðamagn. Það þarf einnig aö gæta að atkvæðisrétti hvers kjósanda.“ ófriði þeirra á milli. Það er í sjálfu sér ekkert nýtt, að samkeppni sé á milli sam- flokksmanna, um völd og aðstöðu, það hefur verið svo lengi sem flokkspólitísk barátta hefur verið háð. Annað er ef til vill meira sérkennandi fyrir okkar tíma, það er hve þáttur fjölmiðla með nú- tíma tækni er orðinn stór og áhrifaríkur. Þeir sem skrifa í blöðin til að mæla með frambjóðanda, þurfa að gæta þess, að lasta ekki annan. Ekki er síður nauðsynlegt, að þeir, sem starfa við blöðin eða stjórna þeim, gæti hlutleysis gagnvart frambjóðendum viðkomandi flokks. Það hleypir illu af stað — sama í hvaða flokki er — ef verið er með sífelldan áróður fyrir ákveðna eða ákveðinn frambjóðanda, með stöð- ugu oflofi og svo á hinn bóginn að leggjast á aðra frambjóðendur, með því að fela sem mest það sem vel er um þá sagt og reyna á allan hátt, eftir því sem fært og fram- bærilegt er, að gera þeirra hlut sem minnstan. Blað, sem þannig hagar sér, er friðarspillir, sem eykur ófrið milli samflokksmanna, kemur af stað og viðheldur innanflokkserjum. Það er ekki prófkjörsformið sjálft, sem skapar ófriðinn, heldur ræður þar um, hvernig að fram- kvæmd þess er staðið. Frambjóðendur og stuðnings- menn þeirra þurfa að sýna fyllstu prúðmennsku. En áhrifaríkastir eru fjölmiðl- arnir, hvort sem um er að ræða að skapa frið eða valda ófriði. Lokaorð Skoðanakönnunin um kjör- dæmamálið var tilefni þessara hugleiðinga. Ég vil með þessum línum vekja athygli á, að það er ekki öllu réttlæti fullnægt með því að tryggja kjördæmum og flokk- um rétta þingmannatölu í hlut- falli við atkvæðamagn. Það þarf einnig að gæta að atkvæðisrétti hvers kjósanda. Seint verður fundið kosninga- fyrirkomulag, sem er gallalaust og allir verða ánægðir með. Þrátt fyrir galla prófkjörsins eru það miklu fleiri, sem telja það fyrirkomulag betra en uppstillin- garaðferðina. Hugsanlegt er að taka upp kosn- ingakerfi með óröðuðum listum, og gefa kjósendum þannig kost á því á kjördegi, að velja jafnt ein- stakling sem flokk. Almennar kosningar leystu þá einnig hlút- verk prófkjörsins með þeim hætti, að fyrir það væri girt, að aðrir en kjósendur flokksins hefðu áhrif á, hvaða einstaklingar hlytu kosn- ingu. Útvarp — fyrir fólk- ið eða ílokkana — eftir Þorstein Ein- arsson verkfræðing Er það ekki þversögn að á tím- um upplýsingaþjóðfélags skulum við lifa við það að það eru full- trúar fjögurra stjórnmálaflokka sem ákveða hverjir koma fram í þættinum Um daginn og veginn. Ef einhver hefur haldið að dag- skrármenn ríkisútvarpsins sæu um það þá er sá misskilningur hér með leiðréttur. í tillögum útvarpslaganefndar að nýjum útvarpslögum er lagt til að einkarétti Ríkisútvarpsins á út- sendingu útvarpsefnis verði af- numinn. Leyfi til útvarpsreksturs verði í höndum sérstakrar nefndar sem á að heita útvarpsréttar- nefnd. Þessi nýja nefnd — sem verða í sjö menn og sjö varamenn — verð- ur auðvitað kosin hlutfallskosn- ingu á alþingi. Hlutverk hennar er að fylgjast með því að hinar svo- kölluðu frjálsu útvarpsstöðvar virði tjáningarfrelsi. Til nefndarinnar geta síðan þeir aðilar klagað sem ekki hafa fengið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri á þann hátt sem þeir geta við unað. í þeim málum er úrskurður nefndarinnar bindandi. Þetta þýðir að nefnd sem spegl- ar meirihluta alþingis hefur heim- ild til að ákveða hverjir koma fram í hinum ýmsu útvarpsstöðv- um sem reknar eru af óháðum samtökum. Þessi útvarpsréttarnefnd hefur ekkert að gera með útvarpsráð því það verður til áfram og mun ein- göngu fjalla um málefni ríkisút- varpsins. Nú kann einhver að segja að út- varpsréttarnefnd muni ekki starfa á þessum grundvelli. Hún sé til verndar tjáningarfrelsi og eigi að tryggja að allar skoðanir fái að koma fram í frjálsum útvarps- stöðvum. Tökum dæmi. Gefum okkur að íbúar í einhverju þorpi ákveði að stofna kapalsjónvarpsstöð. Þeir ákveða einnig að ekkert skuli sýnt annað í sjónvarpinu en upptökur af framboðsræðum Geirs Hall- grímssonar. Gerum síðan ráð fyrir að einhver klagi þetta athæfi til útvarpsréttarnefndar. Þá getur útvarpsréttarnefnd samkvæmt álitinu skipað íbúum að framvegis skuli í dagskrám koma fram full- trúar allra flokka í hlutfalli við styrk þeirra á alþingi. Þetta er vissulega mjög ýkt dæmi. En aðalatriði málsins er ekki það hversu sennilegt það er að þetta komi fyrir heldur sú af- staða sem þarna kemur fram. Þeg- ar rætt er um að efla frelsi í um- ræðum og til tjáningar á skoðun- um þá hafa fulltrúar gamla flokkakerfisins sagt að það sé allt í lagi — á meðan þeir ráða. Hvernig skipan útvarpsmála verður í framtíðinni er mál sem varðar alla þjóðina. Ekki bara flokkakerfið. { drögum að málefnagrundvelli Bandalags jafnaðarmanna er fjallað um útvarp. Það eru þjrú atriði sem eru grundvallaratriði: 1. Einokun Ríkisútvarpsins til útsendingar á útvarpsefni skal afnumin. Ríkisútvarpið skal samt hafa einkarétt á útsendingu á auglýsingum. 2. Útvarpsráð skal lagt niður og útvarpsréttarnefnd aldrei stofnuð. 3. Að heimilt sé að stofna félög um útvarpsrekstur. Þessar tillögur fela í sér stór- aukið frelsi á miðlun skoðana í landinu. Við leggjum áherslu á að það eru félög þar sem fólk safnast saman sem skal fá leyti til út- varpsreksturs en ekki félög þar sem fjármagn safnast saman. Að útvarpsráð sé lagt niður er í eðli- legu samhengi við tillögur okkar um aðskilnað löggjafarvalds og framkvæmdarvalds — það er al- þingis og ríkisstjórnar. Að útvarpsréttarnefnd verði aldrei stofnuð er sjálfgefið. Það er ekki í samræmi við ráðandi hug- myndir um lýðræði að löggjafar- valdið skuli vera allsherjardómur á það hver er rétt blanda af skoð- unum fólks. Það er til líf utan valdakerfis stjórnmálaflokkanna. Það á ekki að vera hlutverk ráðs sem kosið er hlutfallskosningu á alþingi að samþykkja dagskrá út- varps og sjónvarps áður en hún er send. Mat á efni og skoðun um- ræðu í þjóðfélaginu á ekki að vera háð því hverjir eru í meirihluta á alþingi á hverjum tíma. Það getur heldur ekki verið rétt að útvarpsráð skuli vera umsagn- araðili um hverjir verða ráðnir til starfa við dagskrárgerð í útvarpi eða sjónvarpi. Þar hefur reynslan sýnt að þar hafa skoðanir haft meira að segja en hæfni þegar út- varpsráð hefur fjallað um ráðn- ingar á starfsfólki. Við leggjum til að forsætisráð- herra ráði útvarpsstjóra til fjög- urra ára. Allt sem snýr að dag- skrárgerð og ráðningu starfsfólks skal vera í höndum Ríkisútvarps- ins sjálfs. Þá leggjum við einnig til að eftirlit með að starfsemi Ríkisútvarpsins sé í samræmi við Þorsteinn Einarsson „Það á ekki að vera hlutverk ráðs sem kosið er hlutfalls- kosningu á alþingi að sam- þykkja dagskrá útvarps og sjónvarps áður en hún er send.“ lög og reglur verði í höndum al- þingis. Þó með þeim hætti að efni sé aðeins tekið til umfjöllunar eft- ir útsendingu. Þessar tillögur miða allar að því að efla sjálfstæði Ríkisútvarpsins gagnvart flokkakerfinu. Hér hefur ekki verið fjallað um einstök útfærsluatriði eins og með hvaða hætti rekstur Ríkisútvarps- ins verður fjármagnaður. En ljóst er að tryggja verður að Ríkisút- varpinu verði gert kleift að gera langtímaáætlanir um gerð dag- skrár. í áliti útvarpslaganefndar er lagt til að annað hvert ár verði haldin ráðstefna um dagskrár- stefnu Ríkisútvarpsins með þátt- töku fulltrúa helstu fjöldahreyf- inga. Við teljum að þetta sé skref í rétta átt þó það sé vel mögulegt að hafa opna fundi um þessi mál þar sem allir eiga aðgang. Ríkisútvarpið á að vera í nanum tengslum við fólkið og lífið í land- inu. Það verður það aldrei meðan boðin ganga í gegnum pýramíða flokkakerfisins. Beringspuntur, ný grastegund: Uppskerumikill og harðger — á fullt erindi á sáðsléttu hérlendis ÁRIÐ 1974 var fyrst komió með fræ af beringspunti frá Alaska hingað til lands. Það gerði Þor- steinn Tómasson sérfræðingur hjá Rannsóknarstofnun landbún- aðarins. Síðan hafa verið gerðar tilraunir með þessa grastegund. Niðurstöður þeirra benda til að beringspuntur sé uppskerumikill og harðger. Frá upphafi hafa til- raunir verið gerðar Hvanneyri og meðal annars hafa farið fram rannsóknir þar á verkun þurr- heys úr beringspunti og fóður- gildi hans. Samanburður var gerður á vallarfoxgrasi og beringspunti. Nýlega kom út skýrsla frá Bændaskólanum á Hvanneyri um þessar rannsókn- ir. Höfundur skýrslunnar er Bjarni Guðmundsson. Samkvæmt niðurstöðunum frá Hvaneyri virðist berings- puntur standa vallarfoxgrasi að flestu leyti fyllilega á sporði og taka því fram í sumum greinum, sé miðað við þurr- heysverkun og fóðrun á þurr- heyi. í niðurstöðum skýrslunn- ar segir meðal annars: „Reynsla bænda og niðurstöð- ur athugananna eru á svipaðan veg, hvað varðar lystugleika heys af beringspunti. Niður- stöður könnunarinnar styrkja því í helstu atriðum ályktanir þær, sem dregnar voru af at- hugunum á Hvanneyri. Á grundvelli þeirrar reynslu má telja, að beringspuntur eigi fullt erindi í sáðsléttu hérlend- is, og ennfremur að nokkuð megi á sig leggja við öflun fræs af honum.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.