Morgunblaðið - 04.02.1983, Síða 30

Morgunblaðið - 04.02.1983, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1983 30 Pregiö í bikarkeppni KKÍ: Suðurnesjaliðin mætast í aðalleik umferðarinnar Dregið var í gær í átta liða úr- slitum bikarkeppni Körfuknatt- leikssambandsins, og drógust erkifjendurnír ÍBK og UMFN sam- an. Fer leikurinn fram í Keflavík og er hér tvímælalaust um að ræða stórleik umferðarinnar. Að- rir leikir ættu einnig aö geta orðið skemmtilegir en leikirnir í átta liða úrslitunum eru þessir: Þór, A. — Valur ÍS/ÍRB — Grindavík ÍR — Haukar Allt gætu þetta oröið hörku- skemmtilegar viöureignir. Þórsarar eru erfiðir heim að sækja, þó óneitanlega teljist Valsmenn sigur- stranglegri. Grindvíkingar eru í stööugri framför eftir aö Douglas Kintzinger hóf að leika meö liöinu og sigraði ÍS Grindvíkinga naum- lega á dögunum. Leikur ÍR og Hauka veröur eflaust einnig mjög skemmtilegur. ÍR-ingar hafa tekiö miklum stakkaskiptum eftir að Pétur Guömundsson gekk til liös viö þá — sjálftraust þeirra hefur aukist og hafa þeir leikiö afar vel undanfariö. Llngu strákarnir í Haukum hafa einnig leikiö mjög vel i vetur undir stjórn Einars Bolla- sonar og þar er liö framtíöarinnar á ferö. Fjórar spennandi viöureign- ir gætu því veriö í uppsiglingu. Leikjum þessum á aö vera lokiö fyrir febrúarlok. Einnig var dregiö í bikarkeppni kvenna, og mætast þar UMFN og ÍS, en KR situr hjá og er komiö í úrslit. Sigurvegarinn úr leik Njarö- víkinga og Stúdenta leikur því til úrslita viö KR-stúlkurnar. —SH. • Axel Nikulásson með knöttinn í viðureign ÍBK og UMFN í úr- valsdeildinni á dögunum. Liðin mætast í áttaliða úrslitum bikar- keppninnar. Ljósm. Einar Falur Ingólfsson. ..Ætlun mín var að fá fag- legar umræður en ekki að stofna til illdeilna“ — Morgunblaðið birtir bréf Páls Eiríkssonar til HSÍ Eins og mönnum er eflaust i fersku minni birtist ekki alls fyrir löngu viðtal í Morgunblaðinu við Pál Eiríksson, lækni, í tilefni af því að hann sagöi af sér sem trúnaöarlæknir Handknattleikssambands íslands. Út af umræddu viðtali spunnust nokkrar deilur, en í samtali við blaöa- mann Morgunblaðsíns síðar, sagðist Páll geta samþykkt í meginat- riöum þaö sem eftir honum var haft, nema hvað hann var ekki sáttur við fyrirsögnina, enda var hún blaðamannsins. Til að fyrirbyggja allan misskilning hefur Morgunblaöið fengið leyfi Páls til að birta bréf þaö sem hann sendi HSÍ, en í því kemur margt fram sem hann sagði í viðtalinu við blaðið. Þess má geta að í íþróttaþætti í útvarpi, er þeir komu fram í, Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfari og Páll, sagði sá fyrrnefndi, að hann gæti fallist á flest allt sem fram heföi komið í bréfi Páls. Er Mbj. spjallaði við Pál í gær, sagðist hann enn ekki hafa fengið svör frá HSÍ viö bréfi sínu, þannig aö hann vissi ekki hvort þeir heföu tekið uppsögn hans til greina en nú er liðinn einn og hálfur mánuöur síðan hann skrifaði bréfið. Páll sagöi að tilgangurinn með bréfinu heföi verið að fá faglegar umræður um málið, en ekki að efna til illdeilna. Bréfiö fer hér á eftir, óstytt: „Reykjavik, 15.12. '82. Til stjórnar HSÍ, Reykjavík. Allt frá árinu 1968 hefur veriö leitaö til mín um læknisfræöilega aðstoö í landsliði Islands í hand- knattleik. Undanskilin eru þó þau ár, er ég dvaidist erlendis viö fram- haldsnám. Stundum hefur verið hringt í mig af m.a. formanni HSÍ meö nokkurra klukkustunda fyrir- vara fyrir leik. Hafi ég átt þess nokkurn kost hef ég ávallt staöiö reiðubúinn til aö hlaupa undir bagga meö Handknattleikssam- bandinu þótt oft hafi staðið illa á og fyrirvari nær enginn oft á tíðum. Ekki hefi ég fariö fram á greiösl- ur fyrir tíma minn og vinnu, og því síður hefur mér verið boðið slíkt. Óneitanlega hef ég þó oft oröiö fyrir óþægindum vegna þessa gagnvart annarri vinnu minni. Oll þessi ár hef ég i reyndinni verið aö búast við aö einhver stefna yrði mörkuö í landsliðsmál- um handknattleiksmanna varöandi læknisfræöilega uppbyggingu leikmanna bæði hvaö varöar lík- amlega uppbyggingu svo og and- lega. Því miöur verö ég þó aö segja, aö ég hef ekki getað séö neina markaða stefnu hjá stjórnum HSÍ gegnum árin hvaö þetta varö- ar. Helst virðast menn hafa getað skilið aö læknishjálp á leikvelli sé nauðsynleg en því miöur verð ég að segja aö mér hefur stundum jafnvel virst það fara eftir skapi þjálfarans í þaö og þaö skipti hvort læknisfræöilegrar hjálpar var æskt. Oll þessi ár hef ég og reynt aö fá ráöandi aðila til þess aö gera sér grein fyrir því, aö ekki er nægi- legt aö hlaupa til rétt fyrir leik og ætlast til aö öllu megi „redda“ á síöustu stundu. Ef litiö er til uppbyggingar þess- ara mála hjá ýmsum af þeim þjóð- um sem íslendingar etja kapp viö má sjá aö allt ööruvísi er tekið á málum þar en hér. Ekki fer á milli mála, aö íslendingar geta státaö af góöum handknattleiksmönnum enda getur engin þjóö veriö örugg um sigur yfir íslandi ef leikiö er hér á landi. Því miður virðist góöur heimaárangur hafa glapiö mönnum sýn því ennþá sýnist mér ekki unnið aö uppbyggingarmálum landsliöa eins og unnt væri. Áriö 1978 bjó ég í Noregi og er íslenska landsliöiö stansaði þar i nokkra daga á leiö til Danmerkur í heimsmeistarakeppni ræddi ég nokkuö viö einstaka leikmenn. Mikiö óöryggi var í hópnum og lík- amlegt ástand var ekki eins og best var á kosiö þrátt fyrir gífurleg- ar æfingar. T.d. má benda á að einn leikmanna var illa veikur í baki án þess aö því hefði verið sinnt. Ég þekkti persónulega alla þessa leikmenn og hafði þjálfað suma þeirra sjálfur sem þjálfari ungl- ingalandsliösins 1970. í mörg ár hafði ég sjálfur staðiö i eldlínunni í handknattleik og frjálsum íþróttum og er mér því fullkunnugt um þær fórnir, sem menn leggja á sig og þann tíma og þá áreynslu, sem þarf til aö ná árangri. Hér vildi ég leyfa mér aö koma því aö, aö síðan ég fór aö sérhæfa mig innan sviös geölækninga, hef ég einkum ein- beitt mér aö því sem skeður í hóp- um og ekki síst hvernig stjórna beri hópum svo þeir nái árangri. Hef haldiö marga fyrirlestra um stjórnun og uppbyggingu hópa þ.á m. íþróttahóþa bæði hérlendis en þó mest erlendis. í Danmörku 1978 sá ég eitt al- best mannaða íslenska landsliöiö sem ég hef nokkru sinni séö tapa hverjum leiknum á fætur öörum þrátt fyrir miklar æfingar og undir- búning. Samtímis sá ég landsliö Dana sigla á toppinn þrátt fyrir lak- ari einstaklinga aö mínum dómi. Kynnti ég mér undirbúning danska liösins eftir keppnina og var þar haldiö á spilunum á allt annan hátt en hérlendis. Það sem ég fyrst og fremst sá þarna í Danmörku var léleg stjórn- un, þar sem flest virtist í lausu lofti. Leið mér ekki vel aö sjá andlegt ástand leikmanna aö síöasta leik loknum. Gífurlegri vinnu hafði lok- iö meö álíka vonbrigöum, allt unn- iö fyrir gýg. Þess vegna hljóp ég til er til mtn var kallaö af næsta landsliðsþjálfara íslands þrátt fyrir lítinn tíma. Meðan Jóhann Ingi Gunnarsson og Jóhannes Sæ- mundsson fóru meö stjórn lands- liösins fór ég eina ferö meö lands- liöinu á Baltic Cup. Reyndar haföi ég komið seint inn í myndina svo læknisfræðilegur undirbúningur heföi getaö veriö betri. Þó höföu allir leikmenn undirgengist líkam- lega skoöun og blóörannsóknir. Kom þar ýmislegt athugavart í Ijós. Samstarf okkar þriggja var gott og samstarf við aöalfararstjóra, Júlíus Hafstein, var og gott. Bæöi fannst mér Jóhann Ingi og Jóhann Sæ- mundsson nýta sér læknisfræði- lega kunnáttu mína, en ekki kannske síður reynslu mína og þekkingu á stjórnun hópa. Árangur þessa unga og reynslulitla liös var góður aö minum dómi. Varöandi næsta keppnistímabil landsliösins ræddum við og um betri uppbygg- ingu líkamlegs og andlegs atgerfis leikmanna. Ráöageröir þessar fóru því miður út um þúfur þegar ekki náöist samkomulag milli HSI og Jóhanns Inga. Á þessu tímabili var ég útnefnd- ur trúnaðarlæknir HSÍ og hef ekki fengiö neina tilkynningu frá stjórn HSÍ um aö ég hafi verið settur af. Þrátt fyrir þaö er lítiö til mín leitaö eftir að nýi þjálfarinn tók viö stjórn. Þekkti ég hann þó aöeins aö góöu. Skyndiiega var þó hlaupið til nokkrum dögum fyrir B-keppni í Frakklandi og ég beðinn aö koma meö. Var þá komið langt fram á keppnistímabilið og engin skoðun haföi fariö fram á landsliös- mönnum. Þar sem ég vissi hversu mjög margir landsliðsmanna höföu lagt sig fram viö æfingar, en ég þekkti nær alla persónulega, fannst mér ekki rétt að skorast undan. Einnig haföi þaö áhrif aö mér var tjáö, aö leikmenn sjálfir heföu beöiö um aö ég kæmi meö. Sló ég því til þrátt fyrir aö undir- búningur liösins læknisfræðilega séö væri mér alls ekki aö skapi. j þessari keppnisferö í Frakk- landi síöastliöiö ár fannst mér ég sjá kennslubókardæmi um mörg mistök í stjórnun íþróttahópa. Menn höföu greinilega ekki gert sér grein fyrir, aö allt annarrar stjórnunar er þörf á langri keppn- isferö en 1—2 landsleikjum í „Höll- inni“. Fyrir þessa ferö haföi ég rætt viö þjálfarann og tjáö honum, aö hann gæti til mín leitað inn á sviö minnar þekkingar, þ.e.a.s. stjórn- unar hópa en ég myndi á engan hátt trana mér fram. Því miður var þessi þekking lítiö nýtt. Ef ég var spurður einhvers var þaö löngu seinna og þaö þegar allt of seint var orðið aö grípa inn í og þaö fremur til þess aö finna útskýringar á hvernig hlutirnir heföu gerst. Sem betur fer var óvenju lítiö um meiösl í þessari ferö svo hlut- verk mitt var lítið. í viöræöum viö einstaka leikmenn sannfæröist ég um óöryggi þaö sem ég þóttist sjá í stjórnun hópsins. Á ytra boröinu virtist þó allt slétt og fellt. Meö í feröinni voru nokkrir blaöamenn og snöpuöu þeir ýmis- legt uppi og þeirra áhrif voru ekki litil. Nokkrir þeirra reyndu aö fá mig til þess aö segja skoöun mína á því sem ég sá miður fara, en ég taldi rétt aö halda skoðunum mín- um á þessari hópstjórn fyrir mig, sérlega af því að mér haföi skilist aö alvarlegar umræöur um undir- búning og árangur þessarar feröar myndi fara fram er heim kæmi inn- an vébanda þeirra er aö feröinni stóöu. Einnig haföi ég búist viö aö mér myndi gefast tækifæri til aö vinna meö þjálfara aö skynsam- legri uppbyggingu landsliðs hvaö varðaöi læknisfræöilegan og and- legan undirbúning fyrir næstu keppnistímabil. Síöan þessari keppnisferö lauk er nú liðiö u.þ.b. eitt og hálft ár og á þessu tímabili hefur verið hringt í mig einu sinni og þaö var 1—2 mánuðum eftir heimkomu og þá var talað í síma um framhaldsvið- ræöur. Síöan þá hef ég hvorki heyrt frá þjálfara né stjórn Hand- knattleikssambands íslands. Ég hef hvorki veriö beðinn um aö aö- stoöa við leiki né undirbúning. Veit ég ekki hvernig túlka skal þetta þar sem mér hefur ekki verið tilkynnt um aö ég sé ekki lengur trúnaöarlæknir HSÍ. Vona ég þó, aö þaö sé fákunnátta og skiln- ingsleysi á gildi starfs míns, en ekki hræösla viö þá gagnrýni sem ég heföi fulla ástæöu til aö koma fram meö. Vil ég ekki lengur sitja meö þá ábyrgö, sem ég tel aö þeir aöilar sitji með sem standa fyrir núver- andi undirbúningi fyrir enn eina heimsmeistarakeppnina. Tel ég því rétt aö afsala mér þeim „heiðri" aö vera trúnaðarlæknir HSÍ. Til þess aö foröast allan mis- skilning vil ég udnirstrika aö öll mín persónulegu samskipti sem ég hef átt við þjálfara og stjórnar- meðlimi HSI hafa verið góð. Vil ég að lokum leyfa mér að færa fram þá von mína og ósk að stjórn HSÍ beri gæfu til að undir- búningi undir andlega sem líkam- lega krefjandi keppnisferðir verði hagað þannig, að þeir einstakl- ingar sem keppa undir merki ís- lands í handknattleik hafi mögu- leika á að ná sem bestum árangri bæði fyrir sjálfa sig og jafnframt auka hróður landsins. Með bestu kveðjum. Fáll Eiríksson, læknir.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.