Morgunblaðið - 06.02.1983, Side 1
80 SÍÐUR
30. tbl. 70. árg.
SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Baskar
sprengdu
banka
Bilbao, 5. febrúar. Al*.
MJÖG öflug sprengja sprakk í Viz-
caya-bankanum í Bilbao í gærmorg-
un og létust tveir af starfsmönnum
bankans, auk þess sem sjö manns
slösuðust meira eða minna. Bygging-
in skemmdist gífurlega.
Sprengjan sprakk aðeins fáein-
um mínútum eftir að maður, sem
ekki lét nafns getið, hafði hringt á
bæjarskrifstofurnar í Bilbao og
tilkynnt hvað i vændum væri.
Sami maður sagði aðskilnaðar-
hreyfingu Baska, ETA-samtökin,
bera ábyrgð á hryðjuverkinu.
Bankar í Baskahéruðum Spánar
hafa verið eftirlætisskotmörk
ETA síðustu vikurnar.
Samdráttur-
inn minnk-
ar vestra
Washington, 5. febrúar. Al\
ÝMISLEGT bendir til, að farið sé að
draga úr efnahagssamdrættinum í
Bandaríkjunum, atvinnuleysi hefur
minnkað nokkuð, bílasala aukist og
einnig húsbyggingar. Konald Reag-
an, forseti, spáði því í gær, að
Bandaríkjamenn væru komnir yfir
það versta og að hér eftir myndi
atvinnuleysingjum fækka stöðugt.
„Við erum komnir á skrið,“
sagði Reagan á blaðamannafund-
inum, sem Nancy, kona hans, sneri
síðar upp í afmælisveislu í tilefni
af 72ja ára afmæli manns síns.
Fundurinn var haldinn nokkrum
stundum eftir að atvinnumála-
ráðuneytið tilkynnti, að atvinnu-
leysið hefði minnkað í janúar um
0,6%, úr 10,8% í desember í
10,2%.
Bandarískir hagfræðingar eru
nú að verða sammála um, að
kreppan sé farin að dala nokkuð, í
bili a.m.k. Mikill fjörkippur hefur
hlaupið í bílasölu og síðast en ekki
síst hefur lifnað mjög yfir hús-
byggingum, sem hafa verið í lág-
marki síðustu árin. í Bandaríkjun-
um hafa auknar húsbyggingar
ávallt verið hafðar til marks um
trú almennings á betri tíð með
blóm í haga.
Vetrarbrim í Vestmannaeyjum
Drangarnir heita f.v. Jötunn, Hæna, Hani og Hrauney. Saman heita þær Smáeyjar.
Ljósm. Sigurgeir Jónasson.
„Reiðubúnir til samn-
inga hvenær sem er“
sagði Bush, varaforseti Bandaríkjanna, í Genf
Genf, IVking, 5. febrúar. AP.
GEORGE Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, sagði í Genf í
dag, að Bandaríkjastjórn væri
reiðubúin til að taka þátt í samn-
ingum um meðaldrægar eld-
flaugar svo lengi sem þurfa
þætti, líka eftir að Atl-
antshafsbandalagið hefði komið
þeim fyrir í Vestur-Evrópu.
George P. Shultz, utanríkisráð-
herra, og Deng Xiao-ping, leið-
togi kínversku stjórnarinnar,
voru í dag sammála um að stefna
að „framtíðarsamstarfi Kína og
Bandaríkjanna, sem byggt væri á
gagnkvæmu trausti“.
Bush sagði á fundi með
fréttamönnum, að Bandaríkja-
Flutti líkræðuna
yfír sjálíiim sér
Parma, Ohio, Bandaríkjunum, 5. febrúar. AP.
PKESTUK nokkur, 27 ára að aldri, sem lést eftir að hafa þjáðst í tvö ár af
krabbameini, Dutti sjálfur líkræðuna við jarðarför sína og var ekki aðeins,
að kirkjugestir gætu hlýtt á mál hans heldur gátu þeir einnig horft á hann
flytja ræðuna — af myndsnældu.
Presturinn, séra James Dotson,
hvíldi í opinni kistu fyrir altari en
við hlið hennar hafði myndsegul-
bandinu og sjónvarpstæki verið
komið fyrir. I upphafi flutti prest-
ur safnaðarins, séra Coy Siddall,
stutt eftirmæli en gaf síðan sr.
Dotson orðið.
„Ykkur kann að finnast það
undarlegt að sjá mann jarðsyngja
sjálfan sig,“ sagði Dotson við
söfnuðinn, „en það voru þó ekki
undarlegheitin, sem fyrir mér
vöktu.“ Síðan sagði hann frá bar-
áttunni við banvænan sjúkdóm-
inn og hvernig honum leið þegar
hann vissi, að endalokin voru
nærri. Hann hafði Biblíuna í
hendi sér og vitnaði stöðugt í
hana undir ræðunni, sem stóð t
hálfan klukkutíma. Hann bað
söfnuðinn að láta ekki sorgina
sitja í fyrirrúmi, útför sín ætti að
vera „sigurhátíð" trúarinnar á al-
góðan Guð.
„f þau 28 ár, sem ég hef annast
jarðarfarir, er þetta það stór-
kostlegasta, sem ég hef upplifað,"
sagði John M. Busch, útfarar-
stjórinn, sem sá um undirbúning
athafnarinnar.
stjórn væri ákveðin í að leita
eftir samningum um meðal-
drægar eldflaugar, áður eða
eftir að Nato hefði komið fyrir
572 slíkum eldflaugum í Vest-
ur-Evrópu. Hann tók þó fram,
að þessum eldflaugum yrði
ekki komið fyrir ef Sovétmenn
vildu fallast á að eyðileggja
þau hundruð SS-eldflauga, sem
þeir beina nú að Vestur-
Evrópu. Á það hafa Sovétmenn
ekki viljað hlusta, heldur
leggja þeir aðeins til fækkun í
eldflaugabirgðum sínum gegn
því, að Nato komi engum slík-
um fyrir í Vestur-Evrópu.
George P. Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, er nú
staddur í Peking í Kína á ferð
sinni um Austurlönd. Á fundi,
sem hann átti með Deng Xiao-
ping, leiðtoga Kínverja, urðu
þeir ásáttir um að efla sam-
skipti þjóða sinna, með gagn-
kvæmt traust að leiðarljósi, og
sagði í tilkynningu utanríkis-
ráðuneytisins, að fundur þeirra
ráðamanna hefði verið „ákaf-
lega árangursríkur". Sihanouk,
Kambódíuprins, sem dvelst í
Peking, skoraði í dag á Banda-
ríkjamenn og Frakka að veita
þjóð sinni lið við að reka víet-
namskt innrásarlið af höndum
sér. Hann’ kvartaði undan því
að Bandaríkjamenn væru tví-
stígandi og skirrist við að veita
aðra hjálp en siðferðilega.
„Slátrarinn frá
Lyon“ sendur til
Frakklands
l.a Paz. 5. fobrúar. AP.
STJÓRNVÖLD í Bólivíu hafa rek-
ió Klaus Altmann-Barbie, þýska
stríósglæpamanninn, úr landi og er
fór hans heitiA til Frakklands.
„Frakkland er eina landið sem vill
taka við Barbie," sagði Mario
Koncal, innanríkisráðherra Ból-
ivíu, í samtali við fréttamenn í gær.
Karbie gekk gjarnan undir nafn-
inu „slátrarinn frá Lyon“. llann
slapp frá pýskalandi í stríðslok og
hefur dvalið í Bólivíu síðan
snemma á sjötta áratugnum undir
nafninu Klaus Altmann.
Einn þeirra sem mun bera
vitni gegn Barbie er landi hans
Gottlieb Theofil Fuchs, sem nú
er 79 ára. „Ég var viðstaddur er
Barbie pyntaði frönsku and-
spyrnuhetjuna Jean Moulin.
Hann barði hann skelfilega með
harðgúmmíkylfu sem hann bar
jafnan á sér. Að barsmiðunum
loknum dró hann Moulin á fót-
unurn að kjallaratröppum þeim
er lágu til klefa hans. Hann
skildi hann þar eftir og öskraði
til undirsáta sinna að ef þessi
hundur væri enn á lífi daginn
eftir, myndi hann ganga endan-
lega frá honum. Moulin lést síð-
an,“ sagði Fuchs.