Morgunblaðið - 06.02.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1983
7
HUGVEKJA
eftir
Pétur Sigurgeirsson biskup
Þegar réttarhöldin fóru
fram gegn Jesú, varpaði róm-
verski landshöfðinginn Pílatus
fram þessari frægu spurningu:
„Hvað er sannleikur?"
Jesús var þá rétt búinn að
svara Pílatusi um að kon-
ungsríki sitt væri ekki af þess-
um heimi. Pílatus sagði: Ert
þú þá konungur? Jesús svar-
aði.
„Rétt segir þú. Eg er kon-
ungur. Til þess er eg fæddur og
til þess kom eg í heiminn, að eg
bæri sannleikanum vitni. Hver
sem er af sannleikanum, heyr-
ir mína rödd.“ (Jóh. 18. 37.)
Þá spurði Pílatus, hvað væri
sannleikur og gekk að svo
mæltu út úr landshöfðingja-
höllinni og gaf sig á tal við
Gyðingana þar fyrir utan.
Margir hafa reynt að spá í
það, hvað lá á bak við spurn-
ingu landshöfðingjans. Enski
heimspekingurinn Francis
Bacon gerði á sínum tíma
spurningu Pílatusar nokkur
skil með athugasemd sinni:
„Hvað er sannleikur sagði
Pílatus háðgjarn og vildi ekki
bíða eftir svari.“
Þegar við lítum á þetta í
ljósi réttarhaldanna og að
fenginni nær tvö þúsund ára
reynslu var sannleikann að
finna í manninum, sem Pílatus
hafði fyrir framan sig og var
að yfirheyra. Jesús hafði svar-
að spurningu Pílatusar áður
en hann spurði: Til þess er eg
fæddur, og til þess er eg kom-
inn í heiminn, að eg beri sann-
leikanum vitni.
Það var kristindóminum sig-
uraflið mikla, að menn áttuðu
sig á þessu svari við spurning-
unni. Þeim var sannleikurinn
síðan dýrmætastur og lögðu
allt á sig til þess að birta hann.
Sannleikurinn er Kristur. En
hver er Jesús Kristur?
Hvað sögðu þeir, sem fyrst
áttuðu sig á því, hver hann
var. Margir hafa svarað spurn-
ingunni. Einn þeirra var Páll
postuli. Svar hans er stórkost-
legt í upphafi 15. kafla fyrra
Korintubréfs:
„Eg minni yður bræður, á
fagnaðarerindi það, sem eg
boðaði yður, sem þér og veittuð
viðtöku og þér einnig standið
stöðugir í. Fyrir það verðið þér
og hólpnir, ef þér haldið fast
við orðið, fagnaðarerindið, sem
eg boðaði yður, og hafið ekki
ófyrirsynju trúna tekið. Því að
það kenndi eg yður fyrst og
fremst, sem eg einnig hef með-
tekið, að Kristur dó vegna
vorra synda samkvæmt ritn-
ingunum, að hann var grafinn,
að hann reis upp á þriðja degi
samkvæmt ritningunum." (1
Kor. 15. 1-4.)
Páll undirstrikar síðan upp-
risu Jesú með því að telja upp
þá sem vottuðu, að hafa séð
hann. Hann segir frá stórum
hópi, „að Jesús birtist meira en
fimm hundruð bræðrum í einu,
sem flestir eru á lífi allt til
þessa (bréfið er skrifað um ár-
ið 54) en nokkrir eru sofnaðir
(þ.e. dánir). Síðan birtist hann
Jakobi (einn yngri bræðra
Jesú), því næst postulunum
öllum. En síðast allra birtist
hann einnig mér, eins og
ótímaburði. Því eg er sístur
postulanna og er ekki þess
verður að kallast postuli, með
því að eg ofsótti söfnuð Guðs.“
(l.Kor. 15. 6-9).
Þannig skrifaði Páll vegna
þess, að hann hafði áður verið
svarinn óvinur kristinna
manna og gengið manna mest
fram í því að draga þá fyrir
dóm til hegningar og lífsláts
fyrir trú sína. En Páll snérist
og afturhvarf hans er eitt hið
áhrifamesta í allri sögu kristn-
innar. Hann fékk svarið við
spurningunni um sannleikann.
Grunntónn og allur sam-
hljómur sannleika Krists er sá
að Guð elskar manninn, barn
sitt. Þetta opinberaðist Páli og
þess vegna kallaði hann kenn-
ingu sína fagnaðarerindi.
Þetta mikla erindi býr í orðun-
um, „að Kristur dó vegna
vorra synda". Saklaus tók
hann sökina á sig og innsiglaði
það með dauða sínum.
Biblíudaguriim:
Hvað
er
sann-
leikur?
Kærleikanum er ómögulegt
að sanna sig án fornar. Þannig
snertir hann mannsins hjarta.
„Fyrir Jesú er heilagur andi,
andi sannleikans, og hið mikla
verk hans er að flytja mönnum
sannleik Guðs. Við eigum sér-
stakt orð yfir það að gefa
mönnum sannleik Guðs. Við
köllum það opinberun." (Willi-
am Barcley.)
Það er þetta, sem Biblían er,
opinberun um sannleik Guðs.
Þessi opinberun kærleikans
gerir það að verkum, að Biblí-
an hefur lifað. Lífsmáttur og
kraftaverk þessarar helgu bók-
ar tekur því öllu fram að lífs-
gildi og útbreiðslu, sem þekk-
ist í heimi bókmenntanna.
Eftir seinni heimstyrjöld
var allt í rúst að heitið gat í
Póllandi. Einkum var svo í
Varsjá, byggingar, kirkjur,
mannvirki — allt var hrunið
eftir hinar linnulausu árásir.
í Varsjá var hús biblíufé-
lagsins hrunið, utan partur af
framhliðinni, en þar stóð
skrifað: Himinn og jörð munu
líða undir lok, en orð mín
munu aldrei undir lok líða.“
(Mark. 13.31.) Er fólk gekk
þarna framhjá, nam það stað-
ar, sumt tárfelldi, sumir krupu
á kné, allir voru snortnir að
sjá táknið um sannleiksgildi
orðanna.
Ástæðan til þess að Biblían
líður ekki undir lok er sú, að
orð hennar finnur ætíð hið
mennska hjarta. Þegar alls er
gætt er það mannshjartanu
dýrmætast að geta fundið, að
til er lækning við hverju böli
og hverri synd. Biblían er stað-
reyndin um þennan sannleik.
Ef einhver hefur enn ekki
fundið þennan kærleik koma í
hjarta sitt, þá er það óbrigðult
ráð að opna Biblíuna og lesa
hana. Þá á ég sérstaklega við
Nýja testamentið, þar sem
Jesú Krist er að finna, því að
hann er svarið við spurningu
Pílatusar. Sá, sem á við vanda-
mál að stríða, fær svar eftir
lengri eða skemmri lestur í
Guðs orði. Þetta hefur reynsl-
an sýnt í óteljandi tilvikum.
Það er ekki undarlegt, að
elsta starfandi félag í landinu
skuli vera Hið íslenska Biblíu-
félag, stofnað 1815. Nú er þess
dagur í dag eins og áður 2.
sunnudag í níu vikna föstu.
Kirkjan helgar daginn Heil-
agri Ritningu með sérstökum
hætti. Takmark félags okkar,
eins og allra biblíufélaga í
heimi er, „að Guðs Orð verði
aðgengilegt öllum mönnum á
máli, sem þeir auðveldlega
skilja og fyrir það verð, sem
hver og einn hefur ráð til að
greiða."
Það er hverju orði sannara
um tímana, sem við lifum á, að
við erum áhyggjufull og mæð-
umst í mörgu. Þetta hugar-
ástand virðist ekki síður eiga
við um tíma velgengni en
þrenginga. Sá skortur er sár-
astur, þegar manninum finnst
hann vera einn og yfirgefinn
og andlega bjargarlaus.
Ráðið við kvöl og syndavit-
und, sem maðurinn ræður ekki
við, er það sem Jesús kallaði
„góða hlutskiptið" og sagði
„Eitt er nauðsynlegt" (Lúk. 10,
42) í samtali sínu við Mörtu og
Maríu.
Það nauðsynlega er að opna
Biblíuna og finna Jesú Krist,
finna sannleikann, finna elsku
Guðs.
„ ... að sjálfur (íud art sór oss (ók
hin st'ku börn meó foóurnáó".
II. Ilálfd.
Gagnvart þessu eina nauð-
synlega skiptir eigi máli, hver
þú ert, eða hvað á þér hvílir.
Leitaðu í orðum Biblíunnar
þangað til þú finnur, að Guð
elskar þig. Þá hefur þú fundið
Krist, fengið svar við því, hvað
sannleikur er:
„Það er hjartans hlýja,
sem hugurinn þráir mest.“
Frímann Jónasson.
MetsoluHad á hverjum degi!
eða 8% ?
Verötrygging veitir vörn gegn veröbólgu — en hefur þú hugleitt
hversu mikla þýöingu mismunandi raunvextir hafa fyrir arðsemi
þína?
Vfirlitiö hér aö neöan veitir þór svar viö því.
VERÐTRYGGÐUR SPARNAÐUR - SAMAN6URÐUR A AVðXTUN
Verötrvgging m.v.lánskjaravísitölu Nafn- vextir Raun- ávöxtun FjökJi ára til aö tvöf raungildi höfuðstóls Raunauknmg hofuöst eftir 9 ár
Veðskuldabréf 3% 8% 9ár 100%
Sparisk. rikissj. 35% 3.7% 19ár 38 7%
Sparisjóðsreikn. 1% 1% 70ár 9.4%
Verðbréfamarkaöur Fjárfestingarfélagsins hefur víötæka reynslu í
veröbréfaviöskiptum og fjármálalegri ráögjöf og miöar þeirri þekk-
ingu án endurgjalds.
GENGIVERÐBRÉFA
6. FEBRUAR 1983:
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
1970 2. flokkur
1971 1. flokkur
1972 1. flokkur
1972 2. flokkur
1973 1. flokkur A
1973 2. flokkur
1974 1. flokkur
1975 1. flokkur
1975 2. flokkur
1976 1. flokkur
1976 2. flokkur
1977 1. flokkur
1977 2. flokkur
1978 1. flokkur
1978 2. flokkur
1979 1. flokkur
1979 2. flokkur
1980 1. flokkur
1980 2. flokkur
1981 1. flokkur
1981 2. flokkur
1982 1. flokkur
1982 2. flokkur
Medalávöxtun umfram
3,7—5,5%.
VEÐSKULDABRÉF
Sölugengi pr. kr. 100.- Sölugengi nafn- Ávöxtun
10.808.92 m.v. vextir umfram
9.438.69 2 afb./ári (HLV) verötr.
8.184.28 1 ár 96,49 2% 7%
6.935,86 2 ár 94,28 2% 7%
4.972,17 3 ár 92,96 2Vi% 7%
4.579,83 <1 1 77 4 ár 91,14 2V4% 7%
O. lOI, í ! 2.598,81 S ár 90,59 3% 7%
1.957,92 6 ár 88,50 3% 7V«%
1.855.64 7 ár 87,01 3% 7V«%
1.481,91 8 ár 84,85 3% 7Vi%
1.374,88 9 ár 83,43 3% 7V4%
1.148,10 10 ár 80,40 3% 8%
932,19 733,43 15 ár 74,05 3% 8%
618.25
478,40
357.85
281,39
241,76
179,55
163,00
121.85
verötryggingu
VERDTRYGGÐ
VEÐSKULDABRÉF
ÓVERÐTRYGGD:
Sölugengi m.v. nafnvexti
(HLV)
12% 14% 16% 18% 20% 47%
1 ár 63 64 65 66 67 81
2 ár 52 54 55 56 58 75
3 ár 44 45 47 48 50 72
4 ár 38 39 41 43 45 69
5 ár 33 35 37 38 40 67
HAPPDRÆTTISLAN RÍKISSJÓÐS Pr. ötugengi kr. 100.-
B — 1973 3 266.14
C — 1973 2.777,76
D — 1974 2.403.13
E — 1974 1 808.03
F — 1974 1 808.03
G — 1975 1 198.59
H — 1976 1 142,08
I — 1976 869.00
J — 1977 808,57
1. fl. — 1981 161 *>Ó
Olanskráð gengi er m.v. 5% ávöxti
P-á. umfram verðtryggingu auk vim
ingsvonar. Happdrættisbrétin eru ge
in út á handhafa.
Vcrðbréfamarkaður
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavik
lönaóarbankahúsin" Sími 28566