Morgunblaðið - 22.03.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
Páll Pétursson um framboð „göngumanna“:
Óskynsamlegt að
þeir fái BB-merk-
ingu á listann
Flokkurinn á ekki von á neinum uppbótarþingmanni
„ÞESSI listi er settur, ad því er mér
virðist á málflutningi aðstandenda
hans, mér til höfuðs og maður er
náttúrlega ekki glaður yfir því að
mennirnir skuli láta svona. Þeir
þeysa um kjördæmið og halda fundi
til þess að tjá sig um það hvað ég sé
slæmur og virðast starfa að því að
útbreiða þá kenningu sína af mikl-
um þrótti.
Það er auðvitað alltaf fallegt
þegar menn hafa hugsjón til að
berjast fyrir og þeir eru uppteknir
af þessu sem stendur," sagði Páll
Pétursson, efsti maður á lista
Framsóknarflokksins í Norður-
landskjördæmi vestra, aðspurður
um lista svonefndra göngumanna,
Svavar Gestsson, formað-
ur Alþýðubandalagsins:
Stóð fyrir
fundi í Iðn-
skólanum
án leyfis
SVAVAR Gestsson, formaður Al-
þýðubandalagsins og félagsmála-
ráðherra, heimsótti nemendur í
Iðnskólanum á hádegi síöastlið-
inn Töstudag og stóð þar fyrir
fundi. Ollu þessi fundarhöld
nokkurri truflun á skólastarfi, en
ekki hafði verið gefið leyfi fyrir
fundinum, samkvæmt upplýsing-
um sem Mbl. fékk hjá Ingvari
Ásmundssyni, skólastjóra Iðn-
skólans, í gær.
Sagði Ingvar að hvorki hann
né formaður nemendafélagsins
hefðu vitað um fundinn fyrir-
fram, þannig að annað væri
ekki að sjá en að fundur ráð-
herrans hefði verið í algeru
heimildarleysi. Það væri ekki
eðlilegt að fundir sem þessir
væru haldnir án leyfis og yfir-
leitt gerðu nemendur það
aidrei sjálfir. Ef þeir þyrftu að
halda fundi, þá fengju þeir
heimild tii þess.
Ingvar sagði að fundur Svav-
ars hefði verið haldinn í mat-
sal nemenda og staðið í um
klukkutíma, þannig að hann
truflaði kennslu, þar sem mat-
artíminn væri ekki svo langur.
Ingvar sagði að nemendur
hefðu ekki komið í kennslu-
stund á réttum tíma af þessum
sökum.
Ingvar kvaðst ætla að spyrj-
ast fyrir um það í mennta-
málaráðuneytinu hvaða reglur
giltu í tilfellum sem þessum,
þegar hann var spurður hvort
grípa ætti til einhverra ráð-
stafana vegna þessa, en hann
gat þess jafnframt að ráðu-
neytið veitti ekki leyfi til
fundarhalda, nema ræða um
það við skólayfirvöld.
Ekið á stúlku
á Laugavegi
KKIÐ var á unga stúlku síðastliðið
röstudagskvöld á Laugavegi, en
meiðsli hennar eru ekki talin alvar-
legs eðlis, samkvæmt upplýsingum
scm Mbl. fékk hjá lögreglunni í gær.
Atvik voru þannig að stúlkan
gekk suður yfir Laugaveginn á
móts við hús númar 118, en varð
fyrir bifreið af Volvo-gerð, sem ók
vestur Laugaveginn. Stúlkan
meiddist lítið, að því er talið er.
Slysið átti sér stað laust fyrir
klukkan 22.00.
sem standa að klofningsframboði
framsóknarmanna í kiördæminu.
Að sögn Guttorms Oskarssonar,
formanns kjördæmissambands
flokksins, verður haldinn fundur í
dag þar sem afgreiða á beiðni
göngumanna um að fá að nota
listabókstafina BB og bjóða fram í
nafni flokksins. Guttormur sagð-
ist algjörlega andvígur því að það
leyfi yrði veitt og kvað það geta
orðið niðurstöðu stjórnarinnar í
dag. Ef stjórn kjördæmissam-
bandsins afgreiðir beiðnina nei-
kvætt geta viðkomandi sótt eftir
heimiid til framkvæmdastjórnar
flokksins.
Páll Pétursson sagði sína af-
stöðu þá að sér þætti óskynsam-
Iegt að veita heimild til notkunar
listabókstafanna BB. „Mér þykir
óskynsamlegt að þeir fái þá
merkingu á listann. Flokknum má
vera alveg sama. Það er ekki hægt
að tala um að flokknum nýtist at-
kvæði sem falla á þennan lista, því
við eigum ekki von á neinum upp-
bótarmanni. Af þeim kosningalög-
um sem í gildi eru við þessar kosn-
ingar þá skiptir það engu máli.
Það kemur flokknum ekkert betur
þó atkvæði falli á þennan sprengi-
lista fremur en aðra. Það er ekkert
nýmæli að þessir menn séu
óánægðir með mig, það hafa þeir
verið allt frá því að ég fór fyrst á
þing. Þessir menn gangast mjög
mikið upp í þessu, en ég tel ekki að
þeir eigi neinn kost á að koma
manni á þing, þeim gengur enda
nógu erfiðlega að sannfæra sjálfa
sig um það, hvað þá aðra,“ sagði
Páll að iokum.
Myndin er tekin á Akureyri í gær, en þar fauk þak af verkstæði Bflaleigu Akureyrar með þeim afleiðingum að
margir bflar stórskemmdust.
Þak fauk af verkstæði Bflaleigu Akureyrar
Akureyri, 20. niars.
ÞAK FAUK af bifreidaverkstædi
Bflaleigu Akureyrar á Fjölnisgötu
2A á tólfta tímanum í gærkvöldi.
Brakið lenti á tólf bflum bflaleig-
unnar og stórskemmdi þá flesta.
Einnig var fyrir skurðgrafa í
eigu Halldórs Baidurssonar á
Akureyri. Mjög mikið suðvestan
veður hafði þá gengið yfir um
kvöldið og mynduðust sterkir
sviptivindar sem komu ofan
Glerárdalinn og mæddu hart á
efri hluta byggðarinnar á Akur-
eyri og sérstaklega í Glerár-
hverfinu. „Tjónið hefur enn ekki
verið metið,“ sagði Vilhelm Ág-
ústsson hjá Bílaleigu Akureyrar,
þegar Mbl. hafði samband við
hann. „En telja má víst að það
nemi milljónum króna. Tjón
okkar er því verulegt þar sem
engar tryggingar ná yfir slíka
atburði. Við munum hefjast
handa strax á mánudag við að
meta tjónið og síðan að gera við
skemmdirnar," sagði Vilhelm að
lokum. G. Berg
Ný stjórnmálasamtök — „Samtök lýðræðissinna“:
Stofnuð
ályktun
í framhaldi af
áhugamanna
Sjálfstæðisflokkurinn:
Kosninga-
yfirlýsingin
birt í dag
Sjálfstæðisflokkurinn kynnir í dag
kosningayfirlýsingu sína fyrir kom-
andi alþingiskosningar.
Frambjóðendur flokksins komu
saman til helgarráðstefnu í Borg-
arnesi 12. og 13. mars sl. og var
kosningayfirlýsingin undirbúin
þar.
um jafnan kosningarétt
STOFNUÐ hafa verið ný stjórnmálasamtök sem hlotið hafa nafnið „Samtök
lýðræðissinna". í fréttatilkynningu frá bráðabirgðastjórn Samtakanna, sem
12 manns skipa, segir m.a. að samtökin muni ekki bjóða fram til alþingis í
þeim kosningum sem nú fara í hönd, til þess sé tíminn of naumur.
í fréttatilkynningunni segir, að
í framhaldi af samþykkt ályktun-
ar Samtaka áhugamanna um jafn-
an kosningarétt, sem haldinn hafi
verið 19. marz sl. hafi sú ákvörðun
verið tekin að stofna stjórnmála-
samtök „á breiðari grundvelli"
eins og það er orðað, „til að fylgja
eftir kröfunni um jafnrétti borg-
aranna og beita sér fyrir öðrum
málum, sem til heilla gætu horft
fyrir landsmenn alla.
í bráðabirgðastjórn Samtaka
lýðræðissinna eru: Auðunn Svavar
Sigurðsson, Ágúst Valfells, Frið-
rik Kristjánsson, Gottfreð Árna-
son, Hreinn Loftsson, Oddur
Thorarensen, Ragnar Ingimars-
son, Skafti Harðarson, Valdimar
Kristinsson, Valdimar J. Magn-
ússon, Þorsteinn Sæmundsson og
Þorvaldur Búason.
Ályktun Samtaka áhugamanna,
sem forsvarsmenn nýju stjórn-
Listi Alþýðuflokksins á Vestfjörðum:
Karvel í fyrsta sæti
og Sighvatur í öðru
Framkvæmd prófkjörsins gölluð
GENGIf) var frá lista Alþýðuflokksins á Vestfjörðum á fundi kjördæm-
isráðs flokksins á sunnudag, en fundinn sátu á milli 50—60 manns.
Fyrsta sæti listans skipar Karvel Pálmason, alþingismaður, en annað sæti
Sighvatur Björgvinsson formaður þingflokks Alþýðuflokksins. Þá var
samþykkt tillaga sem felur í sér að taka prófkjörsfyrirkomulag flokksins
til endurskoðunar og að framkvæmd nýafstaðins prófkjörs í kjördæminu
hafi verið gölluð.
Listi flokksins var samþykkt-
ur einróma og skipa eftirtaldir
næstu sæti á eftir þeim Karvel
og Sighvati: 3. Gunnar Péturs-
son, Patreksfirði, 4. Helgi Már
Arthursson, Reykjavík, 5. Krist-
ín Ólafsdóttir, Suðureyri.
Miklar umræður urðu um
prófkjör flokksins og lauk þeim
með einróma samþykkt áður-
greindrar ályktunar sem er svo-
hljóðandi: „Kjördæmisráð Al-
þýðuflokksins á Vestfjörðum tel-
ur einsýnt að framkvæmdin á
nýafstöðnu prófkjöri hafi verið
gölluð og þess ekki gætt nægi-
lega vel að fylgja ákvæðum í
reglugcrðum flokksins. Af sjálfu
leiðir að siík mistök í fram-
kvæmdinni varpa rýrð á próf-
kjörið og niðurstöður þess. Kjör-
dæmisráð telur að mistök af
þessu tagi megi ekki endurtaka
sig og ályktar jafnframt að taka
verði prófkjörsfyrirkomulagið
allt til endurskoðunar á vegum
flokksins hið allra fyrsta."
Karvel Pálmason sagði í við-
tali við Mbl. að mikill einhugur
hefði ríkt á fundinum og að
menn gengju sameinaðir til
kosningabaráttunnar. Sighvatur
Björgvinsson sagðist hafa tekið
þá ákvörðun að skipa annað sæti
listans þar sem stuðningsfólk
hans hefði lagt hart að honum
að gera það. Hann kvaðst taka
sætið af frjáisum og fúsum vilja.
málasamtakanna vitna til, er svo-
hljóðandi:
„Samtökin lýsa vanþóknun sinni
á þeirri afgreiðslu alþingis í kjör-
dæmamálinu að hafa að engu
áskoranir kjósenda um að
atkvæðisréttur landsmanna verði
jafnaður að fullu. Með hliðsjón af
skoðanakönnun þeirri, sem nýlega
fór fram á vegum samtakanna,
þarf enginn að efast um, hver sé
vilji meirihluta kjósenda i þessu
efni. Ef alþingi hefði talið frekari
ástæðu til að kanna hug kjósenda,
hefði mátt ganga úr skugga um
hann með sérstakri atkvæða-
greiðslu við næstu alþingiskosn-
ingar. Enginn áhugi var á slíku, og
segir það sína sögu.
Með afgreiðslu sinni í kjör-
dæmamálinu hafa alþingismenn
sýnt, að þeir meta hagsmuni
flokkanna ofar lýðræðislegum
óskum þess fólks, sem hefur veitt
þeim umboð til þingsetu. Með því
að sameinast um þessa sérstæðu
málsmeðferð hafa flokkarnir gert
hinum almenna kjósanda ókleift
að koma fram skoðun sinni í þessu
mikilvæga máli með því að kjósa
einn flokk fremur en annan í kom-
andi kosningum."
í fréttatilkynningunni segir
einnig að gengið verði frá stefnu-
skrá samtakanna á næstunni.
Forseti íslands
til Frakklands
FORSETI íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, hefur þegið boð forseta
Frakklands, Francois Mitterand, um
að koma í opinbera heimsókn til
Frakklands.
Heimsóknin mun standa yfir
dagana 12. til 15. apríl næstkom-
andi.