Morgunblaðið - 22.03.1983, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
5
Sýning á passíumynd-
um Barböru Árnason
A SUNNUDAGINN var opnuð í
forkirkju Hallgrímskirkju sýning
i myndskreytingum Barböru
Árnason við Passíusálmana. Var
sýningin opnuð í tengslum við að-
alfund Listvinafélags Hallgríms-
kirkju, sem haldinn var samdæg-
urs.
Herra Sigurbjörn Einarsson
biskup er formaður Listvinafé-
lagsins og opnaði hann sýning-
una. Myndin er tekin við það
tækifæri. Listvinafélag Hall-
grímskirkju var stofnað í haust
og er eitt helsta markmið þess
að gæða kirkjuna lista- og
menningarlífi, m.a. með því að
halda myndlistarsýningar,
standa fyrir tónleikum o.fl.
Þessi sýning á passíumyndum
Barböru Árnason er fyrsta
myndlistarsýningin sem haldin
er í kirkjunni, en meiningin er
að þær verði margar í framtíð-
inni.
Listar kvennaframboðsins
Reykjavík
KVENNALISTINN í Reykjavík hefur
verið birtur. Efsta sætið skipar Sigrfð-
ur Dúna Kristmundsdóttir mannfræð-
ingur, annað sætið Guðrún Agnars-
dóttir læknir.
Að öðru leyti er listinn þannig
skipaður: 3. Kristín Ástgeirsdóttir
sagnfræðingur, 4. Þórhildur Þor-
leifsdóttir leikstjóri, 5. Guðrún
Halldórsdóttir forstöðumaður
Námsflokka Reykjavíkur, 6. Ingi-
björg Hafstað kennari, 7. María Jó-
hanna Lárusdóttir íslenskufræðing-
ur, 8. Elín G. Ólafsdóttir kennari, 9.
Kristín Einarsdóttir lífeðlisfræð-
ingur, 10. Helga Jóhannsdóttir hús-
móðir, 11. Kristín Jónsdóttir kenn-
ari, 12. Solveig Jónsdóttir húsmóðir,
13. Helga Thorberg leikkona, 14.
Sigríður Angantýsdóttir verkakona,
15. ína Gissurardóttir verslunar-
maður, 16. Guðný Guðbjörnsdóttir
prófessor, 17. Margrét Rún Guð-
mundsdóttir laganemi, 18. Hólm-
fríður Árnadóttir skrifstofumaður,
19. Kristín Blöndal fóstra, 20. Sigur-
björg Aðalsteinsdóttir fulltrúi,
21. Laufey Jakobsdóttir húsmóðir,
22. Eygló Stefánsdóttir hjúkrunar-
kona, 23. Ingibjörg Stefánsdóttir
bankastarfsmaður, 24. Guðrún
Jónsdóttir félagsráðgjafi.
Reykjaneskjördæmi
FRAMBOÐSLISTI Landssamtaka um
kvennalista í Reykjaneskjördæmi var
samþykktur á fundi f Kópavogi f
gærkvöldi. Fyrsta sætið skipar Kristín
llalldórsdóttir, húsmóðir, Seltjarnar-
nesi, annað sætið Sigríður Þorvalds-
dóttir, húsmóðir og leikari, Mosfells-
sveiL
Listinn er þannig skipaður að
öðru leyti: 3. Sigríður H. Sveinsdótt-
ir, Kópavogi, húsmóðir og fóstra, 4.
Þórunn Friðriksdóttir, Keflavík,
húsmóðir og kennari, 5. Gyða Gunn-
arsdóttir, Hafnarfirði, húsmóðir og
þjóðfræðingur, 6. Sigrún Jónsdóttir,
Kópavogi, húsmóðir og nemi, 7.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Hafnar-
firði, húsmóðir, 8. Guðrún S. Gísla-
dóttir, Garðabæ, húsmóðir og nemi,
9. Kristín Aðalsteinsdóttir, Hafnar-
firði, húsmóðir og hjúkrunarfræð-
ingur, 10. Þórunn G. Þórarinsdóttir,
Keflavík, húsmóðir og verkakona.
Nordurlandi eystra
EFSTA sæti kvennalistans f Norður-
landi eystra skipar Málmfríður Sigurð-
ardóttir, húsmóðir, Jaðri í Reykjadal,
annað sætið Elín Antonsdóttir,
verkakona, Akureyri.
Listinn er að öðru leyti þannig
skipaður: 3. Þorgerður Hauksdóttir,
kennari, Akureyri, 4. Hilda Torfa-
dóttir, kennari, Laugum í Reykja-
dal, 5. Anna Guðjónsdóttir, húsmóð-
ir, Raufarhöfn, 6. Hólmfríður Jóns-
dóttir, bókavörður, Akureyri, 7. Jó-
hanna Helgadóttir, húsmóðir, Dal-
vík, 8. Kristbjörg Sigurðardóttir,
verkakona, Húsavík, 9. Jófríður
Traustadóttir, fóstra, Grund í Eyja-
firði, 10. Þorbjörg Vilhjálmsdóttir,
kennari, Húsavík, 11. Valgerður
Bjarnadóttir, félagsráðgjafi, Akur-
eyri, 12. Jóhanna Steingrímsdóttir,
bóndi, Aðaldal.
Frambjóöcndur Sjálfstæðisflokksins á ferð um Norðurlönd:
Fjölsóttir fund-
ir í fjórum borgum
ÞKIR Birgir ísleifur Gunnarsson, al-
þingsmaður, og Geir H. Haarde,
formaður Sambands ungra sjálf-
stæðismanna, hafa að undanfórnu
verið á ferðalagi um Norðurlönd.
Haldnir hafa verið fundir með ís-
lendingum búsettum í Þrándheimi,
Osló, Stokkhólmi og Uppsölum og
framundan eru fundir í Jönköping,
Gautaborg, Lundi, Kaupmannahöfn,
Árósum og ef til vill víðar.
„Fundir þeir sem við höfum átt
með íslendingum á þessum stöð-
um hafa bæði verið fjölsóttir og
skemmtilegir," sagði Geir H.
Haarde, í samtali við Morgunblað-
ið í gærdag. „Á þeim fjórum fund-
um, sem búið er að halda, hafa
tæplega 150 manns mætt, fæstir í
Þrándheimi, eða 20, en mest 60 í
Stokkhólmi. Námsmenn hafa ver-
ið í meirihluta á þessum fundum,
en einnig hefur verið talsvert af
læknum og aðrir, sem búsettir eru
á þessum stöðum eða hafa verið
þar á ferð.
Á þessum fundum höfum við
Birgir ísleifur Gunnarsson rætt
um stjórnmálaástandið á íslandi,
efnahagsmálin, og horfur í at-
vinnu- og húsnæðismálum. Við
höfum einnig rætt önnur mál, sem
á döfinni eru eins og kjördæma-
málið, álmálið og utanríkis- og
varnarmál. Mikið hefur verið
spurt um öll þessi mál og afstöðu
Sjálfstæðisflokksins til þeirra. Þá
hafa ýmis mál, sem tengjast
námsmönnum sérstaklega, einnig
komið til umræðu, þar á meðal
málefni Lánasjóðs námsmanna.
Okkur hefur alls staðar verið
vel tekið og fundarmenn tekið
virkan þátt á fundunum. Það er
greinilegt, að þetta framtak
Sjáifstæðisflokksins að senda
menn til fundar við fslendinga er-
lendis mælist mjög vel fyrir, en
við byrjuðum á þessu í fyrra fyrir
bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
ingarnar þegar við Davíð Oddsson
fórum í svipaða ferð,“ sagði Geir
H. Haarde að lokum.
w
tnn
ӣ&****
90.00:
j^orvlow-b
Vegna feiknalegra vinsælda fyrri rokkhátíða, höldum víð hana
hátíðlega eina ferðina enn.
Á Broadway hittir þú gömlu djammfélagana sem þú hefur ekki séð
síðan í Glaumbæ, forðum daga, og rifjar upp gömul kynni.
Nu munu eflaust marglr setja á sig gamla góöa lakkrísbindlö fara í lakkskóna og konurnar draga upp gömlu góðu
rokkkjólana og alfir skella sór á Broadway, því þar veröur haldin heljarmikil rokkhátiö eins og þær geröust beztar
hér á árum áður. Altt aö 2ja tíma skemmtiatriði. Allir fá eitthvaö viö sitt hæfi.
Margt góöra manna mun troða upp þar á meðal rokksöngvararnir góðu: Ómar Ragnarsson, Harald G. Haralds,
Guðbergur Auöunsson, Þorsteinn Eggertsson, Astrid Jenssen, Berti Möller, Anna VHhjélms, Mjöll Hólm,
Sigurdór Sigurdórsson, Garöar Guömundsson, Stefén Jönsson, Einar Júlíusson og Siguröur Johnny — hver
man ekki ettir þessum gömlu góöu kempum.
Stórhljómsveit Björgvins HaHdörssonar leikur rokktónlist. Hljómsveítina skipa: Björn Thoroddsen, Hjörtur Hows-
er. Rafn Jónsson, Pétur Hjaltested, Haraldur Þorsteinsson, fíúnar Georgsson og Þorleifur Gisiason. Sæmi og
Didda rokka. Syrpustjórarnlr Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þorsteinsson kynna.
Gisli Sveinn dustar rykiö af gömlu rokkplötunum Ómar Ragnarsson skemmtir. Aðgangseyrir kr. 150,-
S04
Stefán Jónsson
d
Garöar
Guömundsson
Guöbergur
Auðunsson
Berti Möller
Þorsteinn
Eggertsson
Astrid Jenssen
Broadway spyr, gesti á rokkhátíd:
Hvernig skemmtir þú þér á rokkhátíö?
Guötaugur Bergmann:
„Frábær skemmtun, þaö var gaman aö sjá allt þetta fólk saman komið og hvaö söngvaramir voru jafnvel betri, en
i gamla daga. Sérstaklðga vil ég geta þess hve sýningunni var vet stjórnaö.*
Kristjén Kristjén, KK:
Þessi sýning hitti svo sannarfega í mark, það var ekki dauöur punktur allan tímann. meðhöndlun hljómsveitarinnar
á lögum var frábær.
Gunnar Þöröarson:
Ég skemmti mér konunglega og þaö var melriháttar aö heyra að söngvararnir eru enn i toppformi.
Ólafur Gaukur:
Viö hjónln höfóum mjög gaman af þessari sýningu, og sérstaklega var gaman af því hvaö allir þessir söngvarar
stóöu sig frábærlega vel þó flestir þeirra hafa ekki komiö fram í mörg ár.
Miðasala í Broadway frá kl. 9—5.