Morgunblaðið - 22.03.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
7
félagsins verður haldin aö Hótel Sögu nk. föstudag
25. marz.
Hátíðin hefst kl. 19.30 með lystauka á Mímisbar.
Boröhald hefst kl. 20.00.
Dagskrá:
Hátíðin sett: Valdimar Jónsson, formaður. Aöalræöa
kvöldsins: Stefán Jasonarson, Vorsabæ. Gamanþátt-
ur: Sigurbjörn Báröarson. Einsöngur: Friðbjörn
Jónsson, undirleikari Sigfús Halldórsson (lögin hans).
Borðapantanir fimmtudaginn 24. marz kl. 17—19 að
Hótel Sögu. Aögöngumiðar afhentir um leiö, og á
skrifstofu félagsins næstu daga kl. 13—18.
Hittum í hátíöarskapi. .. . ... ..
Hestamannafélagið Fakur.
TSííamaikadutinn
^ý-tettisýötu 12-18
Toyota Carina G.L. 1981
Brúnsans, 5 gira ekinn 31 þús. km. Verð
175 þús.
B.M.W. 518 1980
Grænn, ekinn 35 þús. km. Utvarp,
segulband. Snjó- og sumardekk. Verö
225 þús. (skipti á ódýrari).
Bronco 1974
Grænsans 8 cyl. (302). Beinsk. i gólfi.
Aflstýri. Útvarp og segulband. Jeppi í
sérflokki Veró 135 þús. Skipti möguleg
á góóum fólksbíl.
Mazda 323 (1300) 1982
Blásans. ekinn 15 þús. km. Veró kr. 160
þús. (Skípti ath. á ódýrari).
Range Rover1976
Citroen G.S.A. Pallas 1982. Orapp ek-
inn 23 þús. km. Verö 195 þús. (skiptl á
ódýrari).
Rússajeppi frambyggð
ur 1977 dtesel
Volvo 244 V. 1980
Ðrúnsanseraóur. Ek '2 þús. km.
Sjálfskiptur m/öllu. Vt >30 þús.
Galand 1600 G.L. Station
Ljósbrúnn B.M.C. diesel vól (72HA)
Breiö snjódekk, upphækkaöur. Sætl f.
14. Litaö gler i rúöum. Verö 140 þús.
Stelngrár (sans). Ekinn 50 þús. km. Fal-
legur bíll Verð kr. 150 pus. SKipti
möguleg, jafnvel á ódýrarl bíl.
Tvennar kosningar
Bessí Jóhannsdóttir, formaður sjálfstæðiskvennafélagsins Hvat-
ar, ritar inngangsorð í nýlegt fréttabréf félagsins, sem verður
innihald Staksteina í dag. Hún segir m.a.:
„Framundan eru alþingiskosningar. Ekki er Ijóst hvort þær verða
einar eða tvennar. Við Sjálfstæðismenn leggjum á það áherslu
að fá tvennar kosningar. Astæðan er einföld, við viljum láta reyna
á hina nýju kjördæmaskipan þannig að Alþingi endurspegli vilja
þjóðarinnar betur en nú er gert. Æskilegt hefði verið að fá meiri
jöfnuð atkvæða. Það er mannréttindamál og allir sitji við sama
borð, einn maður — eitt atkvæði. Þetta fékkst ekki viðurkennt af
meirihluta þingheims og það þýðir ekki að berja höfði við stein
og halda að við núverandi aðstæður fáist meiri jöfnuður. Ef
Sjálfstæðismenn hefðu fellt bráðabirgðalögin, sem í raun voru
orðin dauð lög, þá hefði farið svo að engar breytingar hefðu verið
gerðar, e.t.v. næstu fjögur árin.“
Arfurinn:
skuldir og
verðbólga
Bessí Jóhannsdóttir seg-
ir í grein sinni:
„Efnahagsmál þjóðar-
innar eru í miklum ólestri.
Um 25% af úthlutunar-
framleiðslunni fer í að
borga afborganir og vexti
af erlendum íánum.
Stærsti hluti þeirra lána,
sem tekin hafa verið að
undanfdrnu eru til að
halda gangandi fyrirtækj-
um, sem bera sig ekki.
Þessar eyðsluskuldir eru
meiri en nemur öllum
tekju- og eignarskatti
landsmanna.
Verðbólgan stefnir í
70—80% á árinu, ef ekkert
verður að gert
Heimilin og fyrirtækin
eru að verða gjaldþrota.
Þjóðin krefst þcss að tekið
verði til höndum og ný
stefna tekin upp f efna-
hagsmálum. I>essi stefna
þarf m.a. að fela í sér eftir-
farandi."
Breytt fjár-
festingarstefna
„Núverandi stefna
mótast af því að fjármagn
er látið í fyrirtæki, sem
cngan arð hcra. Keyptir
hafa verið tvöfalt fleiri tog-
arar til landsins, en þarf til
að veiða, nú þegar of-
veidda fiskistofna við land-
ið. í landbúnaði hefur fjár-
magni verið um of veitt í
óarðbærar hefðbundnar
fjárfestingar. Iðnaðurinn
er hornreka meðan gjald-
eyrir er seldur á útsölu-
verði.
Taka þarf peningamálin
sem mest úr höndum
stjórnmálamanna. Núver-
andi sjóðakerfi er úrelt.
Það er ekki eðlilegt að
stjórnmálamenn ráðskist
með almannafé í þcim
mæli sem þeir gera nú. Um
leið og bankakerfið er
styrkt til að taka við hlut-
verki sjóðanna þá þarf
ekki síöur að draga úr
áhrifum stjórnmálamanna
þar. Bankarnir eiga að vera
reknir með arösemissjón-
armið í huga. Þá menn á
að draga til ábyrgöar, sem
sólunda sparifé almenn-
ings í fyrirtæki, sem fyrir-
sjáanlegt er aö gefi ekki
arð. Bankarnir eiga sem
mest að dreifa áhættufé
sínu, og renna þannig stoð-
um undir fleiri fyrirtæki."
Ný skattastefna
„Draga þarf úr heild-
arskattbyrði hcimila og
fyrirtækja. Tekjuskattur á
almennar launatekjur
verði afnuminn. Tekjum
hjóna verði skipt milh
þeirra við álagningu skatts.
Með því er dregið úr
opinberri íhlutun í málefni
heimilanna.
Hlutafé í fyrirtækjum á
að sæta sömu kjörum og
sparifé. Almenningur fær
þannig hag af því að eign-
ast hlut í atvinnurekstri.
Hafa menn tekið eftir því
hver er auglýst arðbærasta
fjárfestingin. Jú, það eru
verðtryggð ríkLsskuldabréf.
Svo er málum komið að
arðbærast er að setja aukið
fé í ríkishítina, sem börnin
okkar eiga svo að borga.
Þau fyrirtæki, sem
blómstra mest hér á landi
eru samvinnufyrirta'kin.
Því meira sem þau vaxa
því erftðara verður fyrir
einkareksturinn að keppa
við þau.“
Þak yfir
höfuöiö
„Eitt af grundvallar-
atriðum þess að hér fái
haldist lýðræði og frelsi er
að fólk eigi sitt eigið hús-
meði. Með því fæst visst
sjálfstæði; framtak ein-
staklinganna er virkjað á
jákva'ðan hátt. Skapa þarf
nýja grundvöll undir
húsnæöislánakerfið þannig
að ungt fólk, sem er að
byggja í fyrsta sinn fái
hærri lán og lengri
greiðslutíma. Mikilvægt er
og að auðvelda eldra fólki
að skipta um húsnæði.“
Vegamál —
byggðastefna
„Betri regir eru besta
byggðastefnan. Einhver
arðbærasta fjárfesting á ís-
landi er að byggja upp
vegakerfið. Það er raunar
til skammar að ekki skuli
vera lokið við aðalvegi
landsins. íslendingar koma
til þróunarlanda og undr-
ast að þar skuli vera vega-
kerfí mörgum sinnum full-
komnara en á íslandi.
Hvers vegna? Jú, vegirnir
eru lífæð framfara á öllum
sviðum."
Samtaka-
máttur —
stefnufesta
Bessí rteðir ennfremur
um nauðsyn þess að laða
fjármagn í orkuiðnað hér á
landi, til að treysta at-
vinnuöryggi og auka þjóð-
artekjur. Bendir hún rétti-
lega á að ef íslenzka ríkið
hefði átt álverksmiðjuna
undanfarin tapár í rekstri
hennar væri löngu búið að
segja upp stórum hluta
starfsfólks, auk þess sem
tapið hefði sagt til sín hjá
skattborgurum! Hún ræðir
ennfremur um nauðsyn
þess að sinna fræðslu- og
skólamálum belur en verið
hefur og segir síðan orð-
rétt:
„Mörg fleiri mál mætti
nefna en hér læt ég staðar
numið. Við Sjálfstæðis-
menn þurfum í kosninga-
baráttunni að vera sam-
taka og stefnufastir, þá
trúa menn því að við verð-
um það líka aö kosningum
loknum. Því ella væri til
einskis unnið."
Úr nýju versluninni,
Hvannbergsbræður í nýtt húsnæði
Hvannbergsbræður, ein elsta skó-
verslun borgarinnar, hefur nýlega
flutt frá Laugavegi 24, í eigið hús-
næði að Laugavegi 71, þar sem áður
var verslunin Klausturhólar.
Verslunin er á tveimur hæðum.
Á neðri hæð hússins eru seldir
karlmannaskór, kvensór og annar
skófatnaður. Á götuhæð eru seldir
kvenskór auk þess er þar til sýnis
stór hluti þess skófatnaðar, sem
til er í versluninni.
„Verslunin Hvannbergsbræður
selur allar gerðir skófatnaðar og
hefur ávallt gott úrval af þeim
skóm sem hún hefur haft umboð
fyrir í áratugi, svo sem BALLY og
LOAKE. Kappkostað er að fylgj-
ast með því nýjasta og vandaðasta
í skófatnaði og halda vöruverði
lágu, með því að kaupa beint af
framleiðendum á erlendum skó-
sýningum,“ segir í frétt frá versl-
uninni. Hönnuður verslunarinnar
að Laugavegi 71 er Ásgerður
Höskuldsdóttir.
Verslunin var stofnuð árið 1916
af bræðrunum Erlendi og Jónasi
Hvannberg. Núverandi eigendur
eru hjónin Ebba og Gunnar
Hvannberg.