Morgunblaðið - 22.03.1983, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
13
þau yfirvöld, sem um eiga að
fjalla. Ég tel ekki annað koma
til greina en áfrýjun," sagði
Ingólfur Stefánsson.
Hann sagði ennfremur, að í
raun hefði ekki verið lögð mikil
áherzla á fjölda vélstjóra um
borð í skuttogurum t.d. Þar
gengi þriðji vélstjóri iðulega til
vinnu eins og háseti. Ákvæði
segja hins vegar skýrt og skor-
inort, að á fiskiskipum með allt
að 250 hestöfl skuli vera einn
vélstjóri, á fiskiskipum með
251 til 1000 hestöfl skuli vera
tveir vélstjórar og þrír vél-
stjórar á fiskiskipum með 1001
til 2300 hestöfl.
Verði hægt að framvísa
pappírum upp á innsigli á olíu-
gjöf, hefur bað áhrif á rétt til
veiðileyfa. í lögum um veiðar í
fiskveiðilandhelgi íslands frá
1976 er gerður greinarmunur á
skuttogurum með yfir 999 hest-
afla vél og þeim sem eru með
vélar allt að 999 hestöflum og
auk þess undir 39 metrum að
lengd. Minni skipin mega vera
á öðrum svæðum og nær landi
á ákveðnum tíma, upp að 4 sjó-
mílum sums staðar og annars
staðar er lína dregin á annan
hátt. Jón B. Jónasson í sjávar-
útvegsráðuneytinu var spurður
hvernig þetta mál horfði við
frá hans sjónarhorni:
„Mér finnst það undarlegt ef
við erum með opinberan aðila,
sem sér um skráningu skipa,
stærð og mælingar á vélum og
gefur út skipaskrá og skírteini
fyrir skip, ef menn geta svo
komið og veifað einhverjum
allt öðrum plöggum og meira
mark er tekið á þeim. I lögum
segir, þegar rætt er um lengd
skipa, að átt sé við mestu lengt
samkvæmt mælingum Sigl-
ingamálastofnunar ríkisins.
Það er hins vegar ekki sér-
staklega vísað til þess í sam-
bandi við vélarstærðina.
Varðandi reglugerðir, sem
við höfum gefið út, miðum við
alfarið við mælingar Siglinga-
málastofnunar. Sömu sögu er
að segja um leyfisveitingar, við
tökum ekki aðra pappíra til
greina en þá sem eru staðfestir,
eða í samræmi við mælingar
Siglingamálastofnunar," sagði
Jón B. Jónasson.
„Okkar biblía varðandi stærð
skipa og véla er skipaskráin,
sem Siglingamálastofnun gefur
út,“ sagði Guðmundur Kjærne-
sted, skipherra, er Morgun-
blaðið ræddi við hann í stjórn-
stöð Landhelgisgæzlunnar.
„Skipaskráin eða mælingar
Siglingamálastofnunar er eina
viðmiðunin, sem við höfum og
því verðum við að fara eftir
henni. í þessu einstaka tilfelli
með Einar Benediktsson verð-
um við að beygja okkur fyrir
niðurstöðum dómstóla, en
breyti Siglingamálastofnun
ekki skráningu sinni á vél
skipsins, finnst mér koma til
greina að taka skipið aftur,"
sagði Guðmundur Kjærnested.
Togskipið Einar Benedikts-
son var byrjaður veiðar á sömu
slóðum undan Vík í Mýrdal
fljótlega eftir að dómurinn féll
í Vestmannaeyjum. Vél skips-
ins verður væntanlega talin
910 bremsuhestöfl þar til æðra
dómsstig kemst að annarri
niðurstöðu, það er að segja ef
áfrýjað verður í málinu. Eins
og fram kemur hér að framan
eru margir mjög ósammála
dómnum, sem féll í Vest-
mannaeyjum fyrir 10 dögum.
Og það eru fleiri skip, sem
gætu látið innsigla olíugjöf
véla sinna eins og þeir á Einari
Benediktssyni. í því sambandi
má nefna Baldur EA, Skipa-
skaga AK, Sjóla RE, Haförn
GK og Krossanes SU. Öll eru
þessi skip styttri en 39 metrar
og var Sjóli reyndar styttur,
eins og frægt varð, er skipið
kom til landsins.
x-woo
HI-FI SYSTEM
Frábær hljómflutningstæki
með tæknilega yfirburði og hönnun
fyrir fagurkera.
KR. 21.800.-
■g m
KIP
HA.RCU
MAGNARI: 2X25 WÖTT RMS
ÚTVARP: 3 BYLGJUR. FM MUTING
KASETTUTÆKI; DOLBY B NR
PLÖTURSPILARI: HÁLFSJÁLFVIRKUR
HÁTALARAR: 40 WÖTT
UTSÖLUSTAOIR Portiö Akranesi — KF Ðorgl Borgarnesi —
Veris Inga. Hellissandi — Patróna. Patreksfiröi — Seria. Isafiröi —
Sig Pálmason, Hvammstanga — Alfhóll. Siglufiröi — Cesar. Akureyri —
Radióver, Húsavík — Paloma, Vopnafiröi — Ennco. Neskaupsstaö —
Stálbúöin. Seyöisfiröi — Skógar. EgilsstOöum — Djúpiö. Djúpavogi —
Hornbær. Hornafiröi — KF Rang Hvolsvelli — MM. Selfossi —
Eyjabær. Vestmannaeyjum — Rafeindavirkinn. Grindavík — Fataval, Keflavik
HLJOMBÆR
HUÐM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SIMI 25999
K ■ —----------------------------------------------------
Fundur um
heimilis-
fræðakennslu
og skólanesti
Hú.sstjórnarkennarafélag íslands
og Manneldisfélag íslands boða til
sameiginlegs fundar í kvöld um:
Kennslu í heimilisfræóum og skóla-
nesti.
Dagskrá fundarins er: Salome
Þorkelsdóttir ræðir um tillögu
þingsályktunar um eflingu heimil-
isfræða í grunnskólum, Bryndís
Steinþórsdóttir námsstjóri segir
frá stöðu heimilisfræða í grunn-
skólum í dag, Oddur Helgason
framkvæmdastjóri segir frá til-
raun með skólanesti í grunnskól-
um Reykjavíkur og hússtjórnar-
kennararnir Benedikta G. Waage
og Anna Finnsdóttir kynna skóla-
nesti.
Laufey Steingrímsdóttir stjórn-
ar umræðum.
í frétt frá fundarboðendum seg-
ir að á fundinum verði fyrst rætt
um heimilisfræði í skólakerfinu og
hugsanlegar breytingar í framtíð-
inni. Því næst verður fjallað um
skólanesti, en til umræðu er að
taka upp skólamáltíðir í grunn-
skólum Reykjavík. Þegar hafa ver-
ið hafnar tilraunir með það í
tveimur skólum og verður á fund-
inum rætt um kosti og galla þessa
fyrirkomulags. Fólk er eindregið
hvatt til að mæta og kynna sér
málin.
Fundurinn verður haldinn í
stofu 101 í Lögbergi, Háskóla Is-
lands, þriðjudaginn 22. mars, kl.
20.30 og er öllum opinn.
VOLVO BM
ámokstursvélar gröfur.
og lyftarar
VELTIR HE
? Suóurlandsbraut 16 • Simi 35200
Miðað er við gengi 14 2 83
BM 622 Loader án skóflu
BM 642 Loader án skóflu
BM 4200 Loader án skóflu
BM 4300 Loader án skóflu
BM 4400 Loader án skóflu
BM 4500 Loader án skóflu
BM 4600 Loader án skóflu
BM grafa 616 B
BM grafa 646
Hafið samband við sölumanninn
Sigurstein Jósefsson, sem veitir allar
upplýsingar.
kr. 1.300.000-
kr. 1.400.000,-
kr. 1.500.000,-
kr. 1.900.000-
kr. 2.000.000,-
kr. 2.400.000,-
kr. 3.600.000 -
kr. 1.850.000,-
kr. 2.000.000 -