Morgunblaðið - 22.03.1983, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983
Eimskip:
Verulegur árangur hefur
náðst í öryggismálum
starfsmanna vöruafgreiðslu
VKRULEGUR árangur hefur náðst
í oryggismálum starfsmanna vöru-
afgreiðslu Eimskipafélagsins.
„Með sameiginlegu sérstöku átaki
allra starfsmanna í Sundahöfn, þá
hefur vinnuslvsum fækkað svo um-
talsvert er, og voru á síðastliðnu
ári færri enn nokkru sinni fyrr,“
sagði Halldór H. Jónsson, stjórn-
arformaður Eimskips, m.a. í ræðu
sinni á aðalfundi félagsins.
Starfandi er sérstök öryggis-
nefnd, og beitti hún og örygg-
ismálafulltrúi félagsins sér fyrir
fjölmörgum fundum um örygg-
ismál og annarri fræðslustarf-
semi á sl. ári. „Þá hafa ýmsar af
þeim framkvæmdum, sem unnið
var að í Sundahöfn á árinu ,
beinlínis verið gerðar með það í
huga að bæta öryggi á vinnu-
stað. Stefnt er að því að ná enn
betri árangri á þessu sviði,"
sagði Halldór ennfremur.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, skýrir reikninga félagsins.
Eimskip mun greiða 10% arð
Halldór H. Jónsson stjórnarformaður flytur ræðu sfna, fv. Hjalti Geir Kristjánsson, Jón H. Bergs, Indriði
Pálsson, Thor R. Thors, Pétur Sigurðsson, Ingvar Vilhjálmsson, sem sitja í stjórn félagsins, Þorkell Sigurlaugs-
son, ritari fundarins og forstöðumaður áætlanadeildar félagsins, Axel Einarsson, stjórnarmaður, Davíð
Oddsson, borgarstjóri og fundarstjóri og Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips. i.jósmjnd Mbi. ól. K. M.
Halldór H. Jénsson, stjórnarformaður Eimskips, um árið 1983:
Svipaðir flutningar en
breytt vörusamsetning
ÞAÐ hefur verið stefna stjórnar
Eimskipafélagsins, að arður sé
greiddur til hluthafa á hverju ári.
Hefur arður verið greiddur nú
samfleytt í 20 ár. Félagsstjórnin
samþykkti samhljóða, að leggja til
við aðalfundinn í gærdag, að
greiddur yrði 10% arður af hlutafé
miðað við síðastliðin áramót og var
EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur
gengið frá samningi um kaup á
þýzka skipinu John Wulff, sem er
smíðað í Þýzkaiandi árið 1977, og
hefur tæplega 4.000 tonna burðar-
getu. Lestarrými skipsins er
225.000 rúmfet og er það stærsta
skip í eigu félagsins að undan-
skildum ekjuskipunum Alafossi og
Eyrarfossi.
Kaupverð skipsins er tæplega
4 milljónir dollara, en kaupverð
á sambærilegu nýju skipi væri
tæplega 7 milljónir dollara, sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem
komu fram á aðalfundi Eim-
skipafélagsins í gærdag. Skipið
verður væntanlega afhent Eim-
skipafélaginu í september nk.
sú tillaga samþykkt.
Þá samþykkti aðalfundurinn
ennfremur tillögu stjórnarinnar
um útgáfu jöfnunarhlutabréfa,
þannig að hlutafé félagsins var
þrefaldað, þe. hækkað úr
19.500.000 krónum I 58.500.000
krónur. Útgáfan fer fram í árs-
lok 1983.
Lengd skipsins er 93,4 metrar
og breidd 14,5 metrar. Það er
sérstaklega gert til stórflutn-
inga, en er auk þess vel búið til
gámaflutninga og getur flutt 160
20 feta gámaeiningar. Skipið
hefur eina stóra lestarlúgu á
veðurþilfari og stórar þilfarslúg-
ur, sem fjarlæga má, þegar
þeirra er ekki þörf. Skipið er bú-
ið tveimur 15 tonna krönum, sem
saman geta lyft um 30 tonnum.
Aðalvél skipsins er að MAK
gerð, 3.000 hestöfl, og brennir
svartolíu. Ganghraðinn er 14
mílur á klukkustund.
Eimskip hefur á undanförnum
mánuðum leitað að hentugum
skipum til kaups í stað þeirra
„ÞRÁTT fyrir að syrti í álinn í ís-
lenzku efnahagslífí, þá gerum við
ráð fyrir, að flutningsmagnið í
heild verði ekki minna en árið
1982, og aukist ef til vill nokkuð,“
sagði Halldór H. Jónsson, stjóm-
arformaður Eimskips, m.a. í ræðu
sinni á aðalfundi félagsins í gær-
dag, þegar hann fjallaði um verk-
efni ársins 1983 og önnur framtíð-
arverkefni.
Samsetning flutninganna mun
hins vegar breytast. I rekstrar-
áætlun ársins 1983 er gert ráð
sem seld hafa verið. Einkum hef-
ur verið leitað að skipi sem hent-
ar í flutninga á stórum förmum
af inn- og útflutningsvörum
landsmanna. John Wulff upp-
fyllir flest þau skilyrði, sem gera
þarf til skips, sem annast slíka
flutninga að mati Eimskipafé-
lagsmanna. Skipið er sérstak-
lega hentugt til lestunar og los-
unar í höfnum, þar sem hafnar-
aðstaða er takmörkuð, eða
ófullnægjandi kranakostur í
landi.
Skipið er smíðað í Sietas-
skipasmíðastöðinni í Þýzkalandi,
sem hefur sérhæft sig í smíði til-
tölulega lítilla, sérhæfðra og
vandaðra gámaskipa, og er það
smíðað samkvæmt fyllztu kröfu
flokkunarfélagsins Germanisch-
er Lloyd’s.
fyrir svipuðu magni í innflutn-
ingi. í innflutningi er gert ráð
fyrir minnkun á flutningi á ým-
iss konar varanlegri neyzluvöru,
en aukningu í staðinn á stór-
flutningsvöru og hráefni til
stóriðjurekstrar. Þá er fyrir-
sjáanleg aukning á útflutningi á
áli. Sömuleiðis er gert ráð fyrir
einhverri aukningu á sjávaraf-
urðum, meðal annars vegna
birgðaminnkunar.
Félagið gerir ráð fyrir að 21
skip verði í föstum rekstri á ár-
inu, eins og var á árinu 1982, en
taka þurfi leiguskip til að mæta
flutningasveiflum. Unnið verður
áfram að því að selja nokkur
skip félagsins og að endurnýjun
þeirra með hagkvæmari skipum.
„Af meiri háttar verkefnum
vil ég nefna, að áfram verður
unnið að breyttum frystiflutn-
ingum í samráði við Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, sérstaklega
endanlegri stefnumótun flutn-
inganna til Bandaríkjanna, en sú
breyting tengist almennu flutn-
ingunum til og frá Bandaríkjun-
um.
Þá er unnið að endurskoðun á
siglingum félagsins til Skand-
inavíu og Eystrasaltshafna, og
tengist sú athugun einnig athug-
un á breyttu fyrirkomulagi
strandflutninga félagsins, og þar
með möuleikunum á betri þjón-
ustu við landsbyggðina. í þessum
verkefnum eru nú 5 skip, og er-
um við meðal annars að kanna,
hvort fækka megi skipunum, án
þess að minnka þjónustuna. Ver-
ið er að kanna, hvaða skip munu
vera heppilegust til þessara sigl-
inga í framtíðinni. Er ljóst, að
núverandi skip munu ekki henta
til frambúðar til þessara flutn-
inga,“ sagði Halldór H. Jónsson.
Halldór sagði ennfremur, að
þegar gengið hafði verið frá
samningum við borgaryfirvöld í
Reykjavík um Sundahafnar-
svæðið, hafi veri gert heild-
arskipulag um það svæði. „Fé-
lagið vinnur nú að því í sam-
vinnu við bandarískt ráðgjafa-
fyrirtæki að endurskoða núver-
andi skipulag í ljósi nýrrar
reynslu. Er þá horft til lengri
framtíðar, metið hvert heppilegt
innra flutningaflæði svæðisins
skuli vera, hvaða tækjabúnaður
muni henta bezt og hver stað-
setning vörugeymsluhúsa og
annarra mannvirkja muni verða.
Er niðurstaðna að vænta innan
tveggja mánaða og fyrirsjáan-
legt að sumar þeirra verða mjög
athyglisverðar."
Halldór sagði ennfremur, að á
árinu 1983 væri gert ráð fyrir
áframhaldandi endurnýjun
tækjakosts vöruafgreiðslu og
endurnýjun gáma. „Félagið er
með áform um að tengjast betur
flutninganeti meginlands Evr-
ópu og Bandaríkjanna, eins og ég
hefi áður getið um, meðal annars
með fleiri þjónustuhöfnum og
betri tengingu við markaðs-
starfsemina sjálfa, Við teljum að
ná megi betri árangri fyrir fé-
lagið sjálft og viðskiptavini þess
í ýmsum flutningatæknimálum.
Er þá ekki aðeins átt við breytta
flutningahætti eins og á frystum
fiski, saltfiski eða ferskum fiski,
heldur breytt vinnubrögð fyrir
einstök fyrirtæki með eininga-
flutningum alla leið, sem á end-
anum kunna einnig að hafa áhrif
á innra flutningakerfi fyrirtækj-
anna og vinnubrögð þeirra
sjálfra. Eru iðnfyriræki hér
meðal annars höfð sérstaklega í
huga,“ sagði Halldór H. Jónsson.
Engar
breyt-
ingar á
stjórn
Eimskips
ENGAR breytingar urðu á stjórn
Eimskipafélags íslands á aðal-
fundi félagsins í gærdag. Þeir sem
ganga áttu úr stjórn voru þeir Hall-
dór H. Jónsson, stjórnarformaður,
Ingvar Vilhjálmsson, varaformað-
ur, Jón H. Bergs, meðstjórnandi,
og Pétur Sigurðsson, meðstjórn-
andi. Þeir voru allir endurkosnir
einróma.
Fyrir í stjórn félagsins voru
Axel Einarsson, Hjalti Geir
Kristjánsson, Indriði Pálsson og
Thor R. Thors. Auk fyrrgreindra
átta stjórnarmanna skipar ríkið
síðan fulltrúa sinn í stjórn fé-
lagsins. Halldór E. Sigurðsson,
sem setið hefur í stjórninni, var
endurskipaður fram að næsta
aðalfundi.
Endurskoðendur voru og
endurkosnir þeir ólafur Nilsson
og Víglundur Möller, auk þess
sem ríkið endurskipaði Sigur-
björn Þorbjörnsson.
Forstjóri Eimskipafélagsins
er Hörður Sigurgestsson, en
framkvæmdastjórar þeir Valtýr
Hákonarson, Viggó E. Maack og
Þórður Magnússon.
Hið nýja stórflutningaskip Eimskipafélagsins.
Eimskip kaupir nýtt
stórflutningaskip
Verður afhent félaginu í september