Morgunblaðið - 22.03.1983, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.03.1983, Blaðsíða 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983 Hverju spá þjálfarar liðanna? Bogdan þjálfari Víkings: „Um þetta fyrirkomulag er ekk- ert nema gott aö segja, handbolt- inn sem slíkur nýtur góös af þessu og þó sér í lagi landsliöiö þar sem leikmennirnir fá vitanlega mikla leikreynslu. Ég held aö KR vinni titilinn í ár,“ sagði Bogdan þegar hann var spurður um það hverjir ynnu þessa keppni, „enda mjög erfitt fyrir okkur að vinna eitt árin enn“. — BJ. Gunnar Einarsson þjálfari Stjörnunnar: „Já, já mér líst ágætlega á þetta fyrirkomulag, þar sem fjögur efstu liðin berjast um meistaratitilinn. Hins vegar er þetta allt of stíft leik- ið og því of mikið álag á leik- mönnum. „Um úrslitin í mótinu vildi Gunnar ekki spá að svo komnu máli. „Við erum að finna okkur í þessum leikjum og erum til alls líklegir næstu helgar enda verður barist til síðasta blóð- dropa.“ Anders Dahl þjálfari KR: „Það fer ekkert á milli mála að þessi fjögur lið eru þau sterkustu, og því alveg sjálfsagt að láta þau spila saman um titilinn, auk þess sem þetta kemur mjög vel út fyrir landsliöiö þar sem menn venjast miklu álagi. „Þegar Anders var spurður um hvaða liö hann teldi sigurstranglegast sagði hann aö of snemmt væri að segja til um þaö að svo stöddu, en að öllum líkind- um yrðu það KR og FH sem berð- ust um titilinn. Geir Hallsteinsson þjálfari FH: „Nei, ég get ekki sagt aö ég sé hlynntur þessu fyrirkomulagi þar sem þetta er allt of strembiö, og ef meiðsli fara aö hrjá liðin, sem er ekki ólíklegt í svona harðri keppni geta þau misst mörg stig. Mér fyndist raunhæfara að hafa úr- valsdeild þar sem 6 liö leika hverju sinni, en úrslitum sem þessum er ég alveg á móti.“ Geir vildi ekki spá neinu fastákveönu um þaö hvaða lið færi með sigur af hólmi. Yfirburðcibtll á ótrúlegu verði S' Vn- < $Ji, $ ' k*, ■ - ;.J:J ■K _ '■ tl* ' , '■■>;■ s*■'*<: t IIm y .. s 4 ; riAMC qWDEagle STÓR VERÐLÆKKUN VERD FRÁ KF T 450.000,-° Verd mióeó við gengi 09.02.83. Eagle 4x4 er bíll fyrir þá sem vilja komast allra sinna ferda í ófærð, hvort heldur í snjó og hálku eöa uppi á heiðum landsins í veiöiferöum eða feröalögum. Eagle 4x4 er meö afturdrifi, en meö einu handtæki er bíllinn fjórhjóladrifinn torfærubíll. Eagle er með styrktum undirvagni. Eagle er meö 6 strokka vél 258“ cc, vökva- og veltistýri, 3 þrepa sjálfskiptingu, aflhemlum og Delux innréttingu. Eagle með útlit og þægindi fólksbíls en torfæru-eiginleika jeppans. // FÍAT EINKAUMBOÐÁ //DAVÍÐ SIGUt J/ SMIDJUVEGI 4, KÓPA ISLANDI SIGURÐSSON hf. KÓPAVOGI. SlMI 77200. ALLTÁ SAMA STAD EGILL VILHJÁLMSSON SÍMAR 77202 — 77200 ■ SMIÐJUVEGI 4 KÓP. SÍMAR 77700 — 77720. Coe setti sitt 11. heimsmet Stórhlauparinn Sebastian Coe gerir þaö ekki enda- sleppt þessa dagana. Síö- astliðinn laugardag setti Coe sitt ellefta heimsmet á hlaupabrautinni. Coe setti heimsmet í 1000 m innan- húss í Osló er landskeppni fór fram á milli Englands og Noregs í frjálsum íþróttum. Tími Coe var 2:18,50. Gamla metið var 2:19,1 mín. Coe er nýbúinn að setja heimsmet í 800 metra hlaupi innanhúss. Hlaupið var á 200 metra hringbraut og var millitími Coe í hlaupinu þessi: 200 m 27,2 sek, 400 m 55,39 sek, 600 m 1:23,51 og 800 m 1:52,01. England sigraöi í landskeppni þjóöanna meö 104 stigum gegn 56. Coe á nú átta heimsmet utanhúss og þrjú innanhúss. Turin býður 40 milljónir króna í Wöller EINN efnilegasti knatt- spyrnumaöur V-Þýskalands, Rudi Wöller, sem leikur meö Werder Bremen, hefur feng- ið meiri háttar tilboö frá ít- alska knattspyrnuliöinu AC Torino á Ítalíu. Torino vill kaupa Wöller á fjórar millj- ónir marka, eða 40 milljónir íslenskra króna. Wöller hef- ur skoraö 14 mörk í 1. deild- arkeppninni í vetur og sýnt frábæra frammistööu. Tilboð ítalska liösins hefur vakiö mikla athygli í V-Þýskalandi og mikiö veriö skrifað um það í þýsk blöö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.