Morgunblaðið - 22.03.1983, Síða 27

Morgunblaðið - 22.03.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1983 35 íslenska hljómsveitin Tónlist Ragnar Björnsson „Kurt, hvar ertu?“, forleikur eftir Atla Heimi, var upptakt- ur tónleikanna. Forleikurinn er einfaldur í sniðum, saminn um „motiv" úr söng Makka hnífs í Túskildingsóperunni. Skemmtilegt upphaf og Atli hefur æfinlega lag á því að láta áheyrandanum ekki leið- ast. „Vom Tod im Walde" (ekki Wald) op. 16, veit ég ekki hvort átti að taka alvarlega, en einna helst líktist það því að vera kominn inn á fyrstu æfingu hjá skólahljómsveit þar sem enginn þekkti stíl Weills. Ástæðulaust er að fjölyrða um flutninginn svo fjarri var hann höfundunum og kom það jafn- vel sem eðlilegt framhald þeg- ar söngvarinn, Guðmundur Jónsson, lokaði bókinni og tók af sér gleraugun á meðan eft- irspilið var leikið, slíkt gerir enginn sem tekur hlutverk sitt alvarlega, eitt er góð söngrödd, annað er list. Enginn skal ætla að Weill sé auðveldur í flutn- ingi og því miður var flutning- ur Svítunnar úr Túskildings- óperunni, saminn fyrir blást- urshljóðfæri, víða mjög los- aralegur og stíll Weills svo fjarri að á stundum hélt mað- ur sig vera að hlusta á Mozart en ekki tónskáld kvöldsins. Ólöf K. Harðadóttir er góður listamaður og gerði það sem í hennar valdi stóð til þess að „stílisera" Jenny í Alabama- söngnum, en var þetta rétt Jenny? í óperunni syngja Jenny og 6 stelpur þennan söng og segir í raun lítið um tilgang þeirra annað en það að þær eru í leit að viskí-bar og dollurum. E.t.v. hefði því verið heppilegra að kynna Jenny með hennar eiginlegu fyrstu aríu í óperunni, þar sem hún segir Jack frá uppruna sínum og hvernig komið sér fyrir henni, semsagt hrá, miskunn- arlaus mella. Það er ekki Ólaf- ar sök að hún skilar ekki þess- ari manngerð. óperusöngvar- inn verður að víkja hjá Weill og tilfinningar mellunnar eru „herb“, hrjúfar, og á annarri sönggráðu en „lyrik" óperu- söngvarans eða Broadway- musicalsins. Það virðist sum- um seint skiljast að ef hlut- verkið er skakkt skipað er söngvaranum enginn greiði gerður. Ánægjulegt var að kynnast Sinfóníu nr. 2 eftir Weill. Hljómsveitin er skipuð mörg- um bráðefnilegum ungum hljóðfæraleikurum, t.d. er strokhljóðfærahópurinn áber- andi, sama má segja um suma blásarana, og get ég ekki stillt mig um að benda á básúnuleik- ara í því sambandi, hvers nafn ég ekki veit. Af einhverjum ástæðum var samleikur sveit- arinnar nokkuð í molum og fór sumstaðar úr böndunum. En stjórnandinn, Guðmundur Emilsson, á þakkir skildar fyrir að kynna okkur sinfón- íuna. Völundar gluggar i Smíðum glugga úr furu, oregonpine og teakviði. ® Einnig smíðum við glugga úr gagnvarinni furu, | sem fjórfaldar endingu glugganna. | Stuttur afgreiðslufrestur. Hagstætt verð. Valin efni, vönduð smíð og yfir 75 ára reynsla tryggir gæðin. Gjörið svo vel og leitið tilboða. Lýsi og mjöl h/f.: Bæjarsjóð- ur Hafnar- fjarðar sel- ur hlut sinn BÆJARSJÓÐUR Hafnarfjarð- ar seldi nýverið hlutafé sitt að nafnverði 62.700 kr. í fyrirtæk- inu Lýsi og mjöli hf. og var söluverðið 955.500 kr. Að sögn Einars I. Hall- dórssonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, keyptu aðrir hluthafar í fyrirtækinu hlutabréf bæjarsjóðs og Bæjarútgerð Hafnarfjarðar sem eru 58% hlutafjár. Að- spurður sagði Einar, að í kjölfar stöðvunar fyrirtækis- ins í fyrrasumar vegna rekstrarerfiðleika, hefði komið fram sú ósk frá stjórn Lýsis og mjöls hf. að bæjar- sjóður seldi sinn hlut í fyrir- tækinu til að gera öðrum að- ilum kleift að eignast hlut- deild í fyrirtækinu og rekstri þess. Bæjarstjórn hefði síðan samþykkt að bjóða hluta- bréfin til sölu skömmu fyrir síðustu áramót. í framhaldi þess hefði verið gerður samningur við hæstbjóðandi aðila, en að lokum hefðu hluthafar í fyrirtækinu nýtt forkaupsrétt sinn. G)dan daginn! Timburverzlunin Vólundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 Komnar teinamöppur fyrir eftirfarandi tímarit: (jcstajaílnn rate&coöMiLD iDGYTíX’DGD <• +' IIMAKII UM MAI SKHKITl'M r.KH.SKVUK \\<K. HMMII.II) yeVjurö ísieosl^ burdo áFongar 1*1 %mSk*. _Somir gög TifRZANS &GOKKE lcg ÍYf. Fást í öllum bókaverslunum Slml: 53948

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.