Morgunblaðið - 25.03.1983, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983
11
fyrirskipunum flugumferðarstjór-
ans. Og á þeim tíma sem hann var
að sinna flugvélunum sjö var hóp-
ur af skólakrökkum inni í stjórn-
herberginu. Loks var hann búinn
að vera á 15 nær samfelldum vökt-
um í mánuðinum þegar atvikið
átti sér stað 15. marz.
Það stendur þó alveg upp úr í
þessu máli, að Orion-flugvélin fór
út úr sínu svæði og flaug í a.m.k.
fjórar mínútur beint mót Arnar-
flugsvélinni, en á þeim tíma nálg-
uðust þær hvor aðra með ógnar-
hraða. Ekki hefur verið upplýst
hvers vegna varnarliðsflugvélin
yfirgaf svæði sitt. Og í ljósi þessa
atviks vaknar sú spurning hvort
flugvélar varnarliðsins hagi sér
yfirleitt að geðþótta í loftrýminu
yfir íslandi. í fersku minni er flug
klúbbflugvélar varnarliðsmanna
yfir eldstöðvunum við Heklu 1980.
Flugvélin olli margfaldri árekstr-
arhættu með því að fljúga öfugt
við umferðarreglur yfir eldstöðv-
unum. Flugumferðarstjórar hafa
tjáð undirrituðum, að flugmenn
varnarliðsins fari títt út fyrir út-
hlutuð æfingasvæði og fljúgi í öðr-
um hæðum en heimildir kveða á
um. Það er auðvitað háalvarlegt,
enda misbýður slíkt háttalag öllu
flugöryggi. Ef þetta er á rökum
reist hlýtur það að vera eðlileg
krafa að gripið verði til aðgerða og
spornað gegn þessum flugháttum
til að tryggja öryggi flugfarþega.
Og í ljósi atviksins við suður-
ströndina er einnig nauð-
synlegt að gera breytingar á
fyrirkomulagi flugumferðar-
stjórnarinnar. Flugumferðarstjór-
um hefur verið treyst fyrir mikilli
ábyrgð. Og flugmenn hafa hingað
til treyst þeim fyrir að sjá um að
fjarlægð milli flugvéla sé það mik-
il að hætta verði ekki. En vinnu-
dagur flugumferðarstjóranna er
langur og auk þess vinna þeir gíf-
urlega aukavinnu, einkum á sum-
rin þegar flugumferð er mest, og
það sér hver maður að það er ekki
beinlínis til að auka flugöryggið.
Þess vegna er aðgerða og úrbóta á
þessu sviði einnig þörf.
ísafjörður:
Grænlenzkir tog-
arar landa rækju
ísafirði, 22. marz.
GRÆNLENZKI rækjutorgarinn Kiporkak kom til ísafjarðar í morgun með
80 tonn af úthafsrækju sem hann veiddi ura 200 mflur vest-suðvestur héðan.
Að sögn skipstjórans Oddnar Paulsen frá Þórshöfn í Færeyjum hefur gengið
erfiðlega að veiða sökum illviðris og íss. Honum gekk þó vel fyrstu þrjá
dagana en þá fékk 39 tonn af rækju.
Fyrsti vélamaður togarans varð
þá fyrir því að meiðast á hendi og
varð togarinn að fara með hann til
Patreksfjarðar til aðgerðar. Síðan
hefur gengið heldur erfiðlega. Þar
sem vélstjórinn fékk ígerð í sárið
varð að stytta veiðiferðina og þess
vegna kom togarinn til hafnar á
ísafirði í morgun.
Þrettán manna áhöfn er á tog-
aranum og yfirmenn allir fær-
eyskir, en undirmenn grænlenskir,
auk þeirra eru tveir japanskir
fulltrúar rækjukaupenda um borð.
Að sögn Oddnars eru sjö græn-
lenskir togarar þarna á rækju-
veiðum, fjórir færeyskir og einn
danskur. Aflakvóti grænlensku
togaranna er 200—470 tonn á skip
á þessum miðum. Þegar skipin
hafa fyllt kvótann halda þau til
veiða við vesturströnd Grænlands,
en óvenjumikill ís hefur hamlað
veiðum við vesturströnd Græn-
lands það sem af er árinu og sá
mesti þar síðan Oddnar Paulsen
hóf rækjuveiðar við Grænland ár-
ið 1974.
í kvöld er von á næsta græn-
lenska togaranum Ivivilek með
100 tonn af rækju og síðan koma
þeir hver af öðrum til löndunar
næstu daga og er von á frystiskipi
til að flytja aflann á markað í
Danmörku eftir fáa daga. Rækjan
er heilfryst um borð í togurunum
en fullunnin að hluta í rækjuverk-
smiðjum í Danmörku en besta
rækjan er flutt óskelflett á mark-
að í Japan.
Tækiö er mjög næmt þannig aö silfurhlutur getur
fundist á nokkurra feta dýpi viö góöar aðstæöur.
Gisli Jónsson & Co. hf„
Sundaborg 41, tími 86644.
AÐ SJA
UNDIR JORÐINA
Þaö getur veriö gagnlegt en einnig mjog spenn-
andi. Þú finnur kannski ekki gullskip, en hver
veit?
Björgvin
Feröaskrifstofaw
ÚTSÝN
Fordrykkur í boöi Ferðamálaráðs Lignano. Gjafahappdrætti býöur upp á margs
konar lukkuvinninga. Á borðum veröa kræsingar, s.s. súpa og gratineraðir
gómsætir sjávarréttir á ítalska Lignano-vísu meöan Big Band Birgis Sveins-
sonar innleiðir lauflétta suöræna stemmningu, því á þessu kvöldi er ekki dauður
punktur. ítalska hátízkan er útfærð í sýningu Modelsamtakanna og hársnyrti-,
snyrti- og danssýning frá Salon Ritz er sannkallað augnayndi. Og ekki vantar
músíkina. „Gulltenórinn" Hjálmar Hjálmtýsson syngur vinsælustu ítölsku lögin
beint inn í hjörtu ykkar. Úrvalshljómsveit Björgvins Halldórssonar heldur dun-
andi fjöri í dansinum og spilar einnig meö nýju söngstjörnunni Ólöfu Ágústs-
dóttur. Hinar frábæru, fimu og stæltu Jazz-sportstúlkur fá þig til aö grípa
andann á lofti aö ógleymdri feguröarsamkeppninni. Síöasta tækifæri aö bætast
í keppnina Ungfrú og Herra Útsýn ’83, eina eftirsóttustu fyrirsætukeppni lands-
ins þar sem stór ferðavinningur er í boði. Freistiö gæfunnar í stórferöabingói
meö glæsilegum vinningum fyrir alla fjölskylduna.
Það er á hreinu að þetta er skemmtun í sérflokki. Bæjarins besta sem þú
hefur ekki ráð á að láta fara fram hjá þér.
BORÐAPANTANIR OG AOGÖNGUMIDAR I BROADWAY. SÍMI 77500.
Velkomin á ítalska hátíö á Broadway
SKRYDDA
Kynnir
Þorgeir
Ástvaldsson
Modelsamtökin
sýna íslenskan
fatnað frá verslun-
inni
Má bjóda þér
í 10 ára afmæli Útsýnar
f Lignano?
Reykjavík 25.—27. marz á vegum Ferðamálaráðs Lignano og Utsýnar á
Itölsk heloi
BKCAIÐWAr
SUNNUDAGSKVOLDIÐ 27. MARZ
OG HEFST KL. 19.00