Morgunblaðið - 25.03.1983, Side 14
SINDRA
STALHF
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983
Fyrirliggjandi í birgðastöð
Kaldvalsaó plötujárn
Plötuþykktir fra 0,8 — 2 mm
Plötustæröir 1000x2000 mm
og 1250x2500 mm
Boraartúni31 sími27222
Styrjöld yfirvof-
andi á milli Hond-
úras og Nicaragua
Managua, Nicaragua, 24. mars. AP.
HARÐIR bardagar urðu á milli stjórnarhersins og hægrisinnaðra útlaga,
sem stjórnvöld segja að komi frá Hondúras, í nótt. Þá sögðu stjórnvöld
í Hondúras í dag, að þau væru að því komin að segja Nicaragua stríð á
hendur.
Stjórnin sendi í gær 300 manna
herlið til borgarinnar Matagalpa í
norðurhluta landsins til þess að
aðstoða hermenn, sem lokast
höfðu inni í héruðunum E1 Dor-
ado, Chachagua og hæðunum í
Palo Preta. Þá bárust fregnir af
hörðum bardögum í bæjunum
Quilali og Wiwili í nærliggjandi
héraði, Nueva Segovia.
„Við erum að því komnir að
segja Nicaragua stríð á hendur,"
sagði sendiherra Hondúras, En-
rique Ortez, á fundi Öryggisráðs
Gluten Blue Star er náttúrulegt,
óbleikjað hveiti. Heimabaksturinn fær
þess vegna fallegan, gullinn blæ.
Gluten Blue Star er danskt hveiti sem
blandað eramerísku mjöli. Hátt hlutfall
sterkju (gluten) tryggir frábæra
bökunareiginleika og fallegan bakstur.
Prófaðuuppskriftirnaráumbúðunum.
í versluninni þar sem þú kaupir Gluten
Blue Star færðu einnig bækling með
uppskriftum að girnilegum kökum
og tertum
Gluten Blue Star. Danskt hveiti
blanöað amerísku mjöli.
Biðjið um hveitið með bláu stji
Sameinuðu þjóðanna í gærkvöld
þegar teknar voru fyrir ásakanir
stjórnar Nicaragua í garð Banda-
ríkjamanna. Stjórnvöld ásaka
Bandaríkjamenn um að standa að
baki innrás útlaganna.
„Ríkisstjórn Hondúras firrir sig
allri ábyrgð á atburðunum í Nic-
aragua,“ sagði í opinberri yfirlýs-
ingu frá yfirvöldum í Tegucigalpa,
höfuðborg Hondúras, í dag. í til-
kynningunni sagði ennfremur, að
ekki væri um neinar búðir and-
stæðinga stjórnar Nicaragua að
ræða í Hondúras og fráleitt væri
að ætla að ríkisstjórn Hondúras
styddi við bakið á þeirm.
Að sögn yfirvalda í Nicaragua
hafa 205 stjórnarandstæðingar
látið lífið í átökum á síðustu dög-
um og 57 úr röðum stjórnarhers-
ins. Tölur frá hinum aðilanum
segja á hinn bóginn, að 293 stjórn-
arhermenn hafi fallið, en aðeins
fjórir úr þeirra liði.
Andrei Gromyko
Gromyko skipað-
ur fyrsti vara-
forsætisráðherra
Moskvu, 24. mars. AP.
TILKYNNT var í dag, að Andrei
Gromyko, sem verið hefur utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna síðastliðin
26 ár, hafði verið skipaður fyrsti
varaforsætisráðherra landsins. Tveir
aðrir menn, Ivan Arkhipov og Geid-
ar Aliev, hafa þegar sömu titla.
Ekki var skýrt nánar frá ástæð-
unni fyrir skipan hans í embættið
og því ekki staðfest hvort hann
heldur embætti utanríkisráðherra
áfram. í frétt frá Tass síðar í dag
var greint frá því, að Gromyko
væri utanríkisráðherra áfram og
hefði því bæði áðurnefnd embætti
með höndum.
„Ballið er rétt að byrja," sagði
vestrænn diplómat og sagði skip-
an Gromykos í þetta embætti að-
eins upphafið að verulegri upp-
stokkun í röðum æðstu ráða-
manna landsins.
Walesa skýrir
frá banatilræði
Varsjá, 24. mars. AP.
LECH Walesa skýrði í dag frá því,
að óþekktir menn hefðu reynt að
ráða hann af dögum á ferð hans til
Rómar og Genf árið 1981. Þetta
eru í sjálfu sér ekki nýjar fréttir,
en í fyrsta sinn sem Walesa segir
sjálfur frá tilræðinu. Walesa
sagði, að hann hefði verið yfir-
heyrður af pólsku lögreglunni á
mánudag.