Morgunblaðið - 25.03.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983
17
Nöfn á flugvélum Flugleiða munu enda á fari
Dagfari, Náttfari,
Vorfari, Heimfari,
Frónfari, Langfari
FLUGLEIÐIR efndu til almennrar samkeppni um nöfn á flugvélar félagsins í
september sl. og bárust tillögur frá 423 aðilum, samtals um 780 tillögur. Á
blaöaraannafundi félagsins var skýrt frá því, að dómnefndin hefði oröið sam-
mála um að mæla með nöfnum, sem enda á fari og var sú tillaga samþykkt af
stjórn Flugleiða.
Samtals bárust tillögur frá 60 aðilum ura nöfn með endingunni fari. Dregið
var úr nöfnum þessara þátttakenda á skrifstofu Borgarfógetans í Reykjavík og
komu upp nöfn hjónanna Eyglóar Magnúsdóttur og Jóns S. Gunnarssonar.
Þau hjónin hljóta því verðlaunin,
sem í boði voru, ferð fyrir tvo til
Puerto Rico, svo og heiðursskjal og
gullpenna Flugleiða. Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, af-
henti þeim hjónum verðlaunin á
blaðamannafundinum, en dóm-
nefndina skipuðu þeir Björn Theó-
dórsson, framkvæmdastjóri mark-
aðssviðs Flugleiða, Leifur Magn-
ússon, framkvæmdastjóri flug-
rekstrarsviðs Flugleiða, og Ólafur
Stephensen.
Dómnefndin leitaði álits og að-
stoðar Jóns Friðjónssonar, lektors,
varðandi meginreglur við myndun
nafna með endingunni. í greinar-
gerð hans er lagt til að miðað verði
við eftirfarandi þrjár forsendur: 1)
Nýyrðið verður að vera myndað á
réttan hátt, þ.e. í samræmi við
fastar venjur, og má ekki brjóta í
bág við málkennd fólks. 2) Nýyrðið
verður að fela í sér einhverja
skynsamlega merkingu, enda eitt
megineinkenni íslenzku að hún er
að því leyti gagnsæ að í langflest-
um tilvikum er unnt að gizka á
merkingu samsettra orða út frá
merkingu einstakra liða. Ut frá
þessu getur þó brugðið, einkum er í
hlut eiga sérnöfn. 3) Nýyrði sem
notuð verða að verulegu leyti er-
lendis mega helzt ekki geyma
hljóðasambönd sem ekki eru til í
grannmálunum og því erfið í fram-
burði fyrir útlendinga. í lið eitt er
miðað við tímaviðmiðun, stefnuvið-
miðun í lið tvö og staðar- eða vett-
vangsviðmiðun í lið þrjú.
í samræmi við þetta hafa verið
ákveðin nöfn á þær sjö flugvélar
félagsins, sem eru í rekstri hér
heima, Dagfari, Náttfari, Árfari,
Vorfari, Heimfari, Frónfari og
Langfari. Síðan er ein vél félagsins
í Nígeríu og tvær í Saudi-Arabíu,
en þeim hefur ekki verið gefið nafn.
Ljósmynd Mbl. Kristján Einarsson.
Sigurvegararnir í nafnasamkeppni Flugleiða, hjónin Jón S. Gunnarsson og
Eygló Magnúsdóttir, við eina Fokker-vél Flugleiða.
Frá aöalfundi Eimskipafélags Islands.
Siglingar
til Portúgals
ar á Bretlandseyjum. Allt var þá
bundið við komu til Leith. Þá
bauðst hann til að opna verzlun-
arútibú í Hull og stóð við það.
Þarna opnaðist góð leið, sem
framlengd var til Hamborgar.
Að lokum annað dæmi: Hér á
árunum vorum við þrír menn
sendir til ísrael vegna vöru-
skiptaverzlunar við það land. í
einni ferðinni komum við til
Kýpur. Okkur hugkvæmdist að
hægt væri að selja íslenzkan fisk
þar, samband náðist fljótlega við
kaupendur, en svar þeirra var
stutt og ákveðið: Hér á Kýpur
höfum við gott siglingasamband
við Gautaborg í Svíþjóð og fáum
reglulega hóflegt magn af fiski
frá Norðurhöfum, þar með var
málið útrætt.
Að lokum vil ég varpa fram
þeirri spurningu, hvort skipafé-
lögin hafi e.t.v. með óeðlilega
miklum siglingum til sumra
Norðurlanda skapað það mikla
misræmi, sem orðið er í verzlun
á milli okkar og þessara þjóða,
sem við kaupum margfalt meira
frá en þær frá okkur.
Að endingu — lifið heilir allir
Eimskipsmenn og styðjið alltaf
frjálsar siglingar og viðskipti!
— eftir Berg G.
Gíslason
EFTIRFARANDI ræða var ætl-
uð til flutnings á aðalfundi hf.
Eimskipafélags íslands sl.
mánudag, en þar sem umræður
þróuðust með þeim hætti á fund-
inum, var þess ekki kostur og
birtist ræðan því hér á eftir:
Mér þykir tilhlýðilegt á sam-
komu sem þessari, þar sem svo
margir verzlunar- og frammá-
menn koma saman, að nota þetta
tækifæri til þess að minnast á
stórmál, sem hlýtur að ráða
miklu í utanríkisviðskiptum
okkar íslendinga innan tíðar.
Það er þegar flestum Ijóst, að
gagnkvæm viðskipti verður að
þróa við viss lönd og bezt væri að
koma þeim á með frjálsu móti,
frekar en vöruskiptum, eins og
við þekktum þau á árunum eftir
stríðslok.
Portúgalar ganga fast eftir
því, að við fslendingar neytum
og notum meira af þeirra fram-
leiðslu. Þá er það fyrsta, sem
kemur upp í huga manns, að
nauðsyn sé á beinum siglingum
til þess lands, sem væntanlega
gæti þjónað viðskiptum við
Norður-Spán. Ennfremur mætti
hugsa sér ferð með minna skipi,
er gæti einnig flutt ferðamenn í
heita loftslagið þar.
í þriðja lagi má nefna, að við
íslendingar ættum máske að
temja okkur að neyta meira af
framleiðslu Portúgala, svo sem
ávaxta, grænmetis, léttra vína
og fleira og notast einnig við
ýmsar iðnaðarvörur frá þeim.
Nú getur óskabarn þjóðarinn-
ar sýnt það í verki hvers það er
megnugt. Það má ekki lifa enda-
laust á því, sem okkar gömlu
menn komu í framkvæmd. Ég
skora á skilningsgóða menn í
þessum hópi að koma hér upp í
ræðustól og leggja þessu nauð-
synjamáli lið. Hjálpið til þess að
beina frjálsum viðskiptum til
þeirra, sem eru svo áhugasamir
og duglegir að borða fiskinn frá
okkur. Góðar og allra helzt bein-
ar siglingar eru grundvöllur til
þess að skapa hagkvæm við-
skipti öllum til blessunar.
A það má minna, að lítilshátt-
ar átök urðu í gamla daga, þegar
faðir minn og líklegast aðrir
börðust fyrir því, að siglingar
yrðu teknar upp til staðar sunn-
Fjárhagsstaða Flugleiða veik á síðasta ári:
Sjáum merki þess að eitthvað
kunni að rofa til á næstunni
„FLUGLEIÐIR hafa ekki fariö
varhluta af þeim erfiðleikum, sem á
öllum flugrekstri hafa dunið á und-
anförnum árum, nema síður sé. Svo
sem reikningar félagsins fyrir sl. ár
bera með sér, er fjárhagsstaða þess
nú mjög slæm og veikari en nokkru
sinni fyrr, eiginfjárstaðan orðin
neikvæð um 179,4 milljónir króna og
mjög verulegur rekstrarhalli fjórða
árið í röð,“ sagði Örn Ó. Johnson,
stjórnarformaður Flugleiða, meðal
annars í ræðu sinni á aðalfundi fé-
lagsins.
„Ljóst er að ekki verður lengi
haldið áfram á sömu braut. Verði
ekki verulegar breytingar til batn-
aðar á fjárhagsafkomu félagsins á
næstunni, hlýtur að verða óhjá-
kvæmilegt að gera miklar og
afdrifaríkar breytingar á rekstr-
inum.
Félagið á, og hefur átt, við mörg
mjög erfið vandamál að stríða á
undanförnum árum. Hæst hafa
— sagði Örn Ó.
Johnson, stjórn-
arformaður m.a.
í ræðu sinni
borið þeir erfiðleikar, sem fylgt
hafa Norður-Atlantshafsfluginu,
þ.e. fluginu milli Bandarfkjanna
og Luxemborgar. Olíuhækkanir,
samdráttur í efnahagslífi þjóð-
anna beggja vegna hafsins og síð-
ast en ekki sízt óheft samkeppni,
sem fylgt hafa óraunhæf fargjöld,
hafa gert aðstöðu Flugleiða óvið-
unandi á þessari flugleið. Við höf-
um lengi vonað að úr rættist, en
það hefur ekki orðið til þessa,“
sagði Örn ó. Johnson ennfremur.
„Það er fyrst nú, þessa síðustu
mánuði, að eitthvað virðist vera
að rofa til með auknum hagvexti í
Bandaríkjunum, lækkandi olíu-
verði og lækkandi vöxtum. Allt
eru þetta jákvæð teikn, sem breytt
geta neikvæðum aðstæðum í já-
kvæðar, verði framhald og aukn-
ing á, en þó því aðeins að þau verði
ekki til þess að fargjöld á þessari
leið verði lækkuð í sama mæli og
batanum nemur. Þróun þessara
mála næstu mánuði mun því að
líkum verða mjög afdrifarík fyrir
Flugleiðir. Við munum því enn um
sinn reyna að „þreyja þorran og
góuna" í þessum efnum, en nauð-
synlegt er að menn geri sér grein
fyrir því, að styrkur og geta til
þess fer þverrandi eftir því sem
hallarekstur varir lengur," sagði
Örn Ó. Johnson.
f lok ræðu sinnar dró Örn ó.
Johnson saman stöðuna og sagði
þá um Atlantshafsflugið: „Afkom-
an hefur verið slæm á liðnu ári og
er enn. Hinsvegar sjást nú í fyrsta
sinn um árabil merki þess, að þar
kunni að rofa eitthvað til á næst-
unni. Um það er þó ekkert hægt að
fullyrða ennþá, en væntanlega
munu línur skýrast á næstu mán-
uðum. Flutningar munu vaxa, en
afkoman getur því aðeins orðið
hagkvæm að raunfargjöld hækki.“
Um Evrópuflugið sagði Örn:
„Sennilegt er, að ferðalög íslend-
inga muni dragast saman á þessu
ári vegna versnandi ástands hér-
lendis. Líklegt er að erlendum
ferðamönnum fjölgi eitthvað, en
flutningsrými mun aukast veru-
lega á árinu, bæði með flugvélum
og skipum, og samkeppnin harðn-
ar. Þessi þáttur mun því ekki
reynast félaginu jafn arðbær og til
þessa í næstu framtíð."
Um innanlandsflugið sagði Örn:
„Vonir standa til að takast megi
að koma því úr hallarekstri á yfir-
standandi ári og það verður að
takast. Ekki er rétt að reikna með
aukningu fiutninga á þessu ári
vegna hins erfiða ástands í efna-
hagsmálum landsmanna." Þá
sagði hann um leiguflugið, að bú-
ast mætti við áframhaldandi
harðari samkeppni á þessu sviði
hér á landi og erlendis, en halda
beri áfram að afla allra þeirra
verkefna, sem fáanleg séu og hag-
kvæm reynast.
Örn Ó. Johnson stjórnarformaður
Flugleiða hf.