Morgunblaðið - 25.03.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983
23
Skólaskákmót Reykavíkur:
Úrslit fengust í eldri flokki
ÚRSLITAKEPPNI skólaskákmóts
Reykjavíkur _ fór fram sl. þriðju-
dagskvöld. í eldri flokki sigraði
Andri Ás Grétarsson úr Breið-
holtsskóla, en í yngri flokki urðu
Arnaldur Loftsson, Hlíðarskóla, og
Hannes Hlífar Stefánsson, Fella-
skóla, efstir og jafnir og verða þeir
því að heyja skákeinvígi sín á milli
um Reykjavíkurtitilinn. Alls tóku
150—200 þátt í undanrásum keppn-
innar í eldri flokki, en nálægt 700 í
yngri flokki. Að sögn Ólafs H. Ólafs-
sonar hjá Taflfélagi Reykjavíkur
voru tefldar 7 umferðir eftir
Monrad-kerfi í úrslitakeppni.
Sagði Ólafur að keppnin hefði
verið mjög hörð og skemmtileg og
hefðu úrslitin í eldri flokki, (7.-9.
bekkur grunnskóla) þessi: I fyrsta
Sigurvegari skólaskákmóts Reykja-
víkur í eldri flokki, Andri Ás Grét-
arsson.
sæti varð eins og áður sagði Andri
Ás Grétarsson og hlaut hann 6
vinninga af 7 mögulegum. f öðru
sæti varð Guðmundur Árnason,
Hagaskóla, með 5% vinning, en
þriðji varð Tómas Björnsson með
5 vinninga. Að vísu hlutu nokkrir
aðrir sama vinningsfjölda og
Tómas, en honum var úrskurðaður
sigurinn vegna betri stigatölu.
f yngri flokki (1.—6. bekkur),
urðu Arnaldur Loftsson og Hann-
es H. Stefánsson efstir og jafnir
með 6% vinning hvor af 7 mögu-
legui.i, en í þriðja sæti á stigum
varð Þröstur Árnason, Seljaskóla,
með 5 vinninga. Loks má geta þess
að tveir efstu í hvorum flokki öðl-
ast rétt til þátttöku á Landsmóti
skólanna í skák.
Páfi til
Wroclaw
Varsjá, 23. mars. AP.
FERÐADAGSKRÁ Páls páfa 2.
var birt í Póllandi í gær, en hann
kemur til landsins 16. júní og fer
aftur 22. júní. Meðal viðkomu-
staða páfa verða borgin Wroclaw
og tvær borgir í Silesíu, en þar
var mikil ólga í verkalýðsátökun-
um 1980—81.
Páfinn mun koma við á átta
stöðum á ferð sinni um Pól-
land. Auk fyrrgreindra borga
mun hann einnig staldra við í
Krakow, Poznana og Varsjá.
Meðal annars mun hann eiga
viðræður við Jaruzelski hers-
höfðingja og halda tvær mess-
ur, aðra utanhúss, hina innan-
húss.
TJöfðar til
ll fólks í öllum
starfsgreinum!
Arnaldur Loftsson (Lv.) og Hannes H. Stefánsson urðu efstir og jafnir {yngri
flokki og verða því að keppa til úrslita um Reykjavíkurtitilinn.
Samtök um kvennalista í Reykjavík og Reykjanesi
halda opinn fund um náttúruverndarmál á Hótel
Borg, laugardaginn 26. mars kl. 14.00.
„Hver eru brýnustu verkefni á sviöi náttúruverndar í
nánustu framtíö?"
Fulltrúar kvennalistans, Náttúruverndarráös og
Landverndar, Félags leiösögumanna og Félags land-
varöa, flytja stutt framsöguerindi.
Almennar umræöur. Þetta eru mál sem varöa okkur
öll. Fjölmenniö á fundinn.
Kvennalistinn
Hafskip á meginlandi Evrópu:
Stórbætt
þjónustuaðstaða í
Hamborg
L.apríl
Hamborg er með stærstu viðskiptahöfnum okkar á meginlandi Evrópu.
Þangað koma fjölhæfniskip okkar Skaftá og Rangá vikulega, lesta og losa vörur.
Frá og með 1. apríl hefur Hafskip hf. stórbætt alla aðstöðu sína í Hamborg hvað varðar
lestun og losun, þar sem fullkomnustu tækni er beitt.
Ennfremur opnað eigin þjónustuskrifstofu í Hamborg með eigin starfsmönnum
frá sama tíma.
Markmiðið er einfalt: Aukin hagkvæmni, betri vörumeðferð, lækkun flutningsgjalda og
hraðari þjónusta.
Hafskip (Deutschland) G.m.b.h.
Chilehaus A
Fischertwiete 2
2000 Hamburg 1
Sími (040) 339341 - 2 - 3
Telex 2165028 hafud
Forstöðumaður: Sveinn Kr. Pétursson.
Okkar menn,- þínir menn
HAFSKIP HF.