Morgunblaðið - 25.03.1983, Page 25

Morgunblaðið - 25.03.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983 25 Faxaflóasvæðið: 2—300 uppsagnir í skipaiðnaði STARFSFÓLKI skipasmíðastöðva á Paxaflóasvæðinu hefur fækkað um 200—300 á undanförnum mánuðum, segir í frétt frá Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja. Er þá miðað við meðalfjölda starfsmanna þessara fyrirtækja hin síðari ár. í fréttinni kemur fram, að það vinnuafl sem enn er eftir í stöðvunum sé vannýtt um þessar mundir og því væru frek- ari uppsagnir yfirvofandi, og væru þær í sumum tilvikum þegar hafnar. Þar segir ennfremur, að vegna hins slæma ástands í skipaiðnaði innanlands hafi verið haldinn fé- lagsfundur í Féiagi dráttarbrauta og skipasmiðja í Reykjavík 4. mars sl., þar sem ýmsar fyrri ályktanir félagsins hefðu verið ítrekaðar um að ríkisstjórnin hlutist til um að þegar í stað verði samræmdar reglur um starfs- Perú: Neyðarástand eftir aurskriður Lima. Perú, 22. mare. AP. hætti lánastofnana, sem lána til nýsmíði fiskiskipa og viðgerða og breytinga á þeim. Telur félagið, að ekkert hafi gengið varðandi láns- fjármögnun nýsmíði í hinu svo- kallaða ráðsmíðaverkefni eða til annarra skipasmíða, þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar. í fréttinni segir, að helzta ástæðan til þess séu samskipta- örðugleikar Fiskveiðasjóðs og Byggðasjóðs, en þaðan áttu lán til áðurnefndra verkefna að koma. í fréttinni kemur einnig fram, að lánsfjáráætlun fyrir árið 1983 sé ekki til að auka bjartsýni í skipa- iðnaði, því samkvæmt henni sé einungis ráðgert að útvega fjár- muni til nýsmíðaverkefna, sem þegar séu hafin. Síðan segir m.a.: „Þá virðist heldur ekki hugsað fyrir nauðsynlegum breytinga- og viðgerðaverkefnum við fiskiskipa- flotann. Er það því undarlegra sem ýmsir úr hópi ráðamanna hafa viljað að slík verkefni yrðu í sífellt meira mæli viðfangsefni ís- lenskra skipasmíðastöðva næstu árin, enda óumdeilt að ástand sumra skipa fiskiskipastólsins getur vart forsvaranlegt talist." Nemendur sjöunda, áttunda og níunda bekkjar Hólabrekkuskóla héldu á miðvikudag árshátíð sína. Árshátíðin hófst með skrúðgöngu niður í íþróttahús Fellaskóla, þar sem fram fór íþróttahátíð. Samkoma með ýmsum skemmtiatriðum var síðan haldin á sal skólans síðdegis og hátíðinni lauk með dansleik í Þórskaffi um kvöldið. Um 270 nemendur eru í bekkjunum þremur, en rúmlega 1100 í skólanum öllum. Meðfylgjandi mynd var tekin á íþróttahátíð Hólabrekkuskólanema. STJÓRNVÖLD lýstu yfir neyðar- ástandi í nokkrum héruðum norður af Lima í dag, eftir að gífurlegar aurskriður höfðu fallið í kjölfar rign- inga. Talið var, að margir hefðu slas- ast, en ekki var hægt að fá nákvæm- ar tölur í dag. Margir vegir voru sundurskorn- ir vegna vatnavaxta og víða höfðu flóð sópað með sér brúm, þannig að mjög erfitt var að koma við hjálp. Stjórnvöld sögðu að fjórir væru þegar taldir af vegna aurskrið- anna, en á sumum þessara staða er meira en hundrað manns sakn- að. Ustinov í Ungverjalandi Vín, 23. mars. AP. DMITRI F. Ustinov, varnamálaráð- herra Sovétríkjanna, og Viktor Kul- ikov marskálkur, sem er yfirmaður herafla Varsjárbandalagsins, komu í dag til Búdapest og ræddu við ung- verska yfirmenn, að því er segir í fregnum frá ungverskum embættis- mönnum. Ekki var nánar kveðið á um um- ræðuefni fundarins, en bæði sov- éska fréttastofan TASS og ung- verska fréttastofan MTI birtu fregnir um fundinn. Þyrluslys Teiscndorf, V l>jskmlandi, 23. mmre. AP. ÞRÍR létu lífið er sjúkraþyrla, gerð út af Adac-bifreiðaverksmiðjunum hrapaði skammt frá fjallaþorpinu Teisendorf í gær. Vont veður var er slysið bar að höndum, snjókoma og slæmt skyggni. Flugmaðurinn, einn færasti í sinni röð í V-Þýskalandi, ruglaðist í ríminu í kófinu og snart þyrlan trjátoppa með þeim afleiðingum að flugmaðurinn missti vald á henni. Hrapaði hún og brann til ösku. Tveir létust samstundis, en þriðji farþeginn lést af sárum sín- um í gærkvöldi. Vinnubíllinn frá MAZDA með mörgu möguleikana E 1600 pallbíllinn frá MAZDA hefur þegar sannað ágæti sitt við fjöl- breyttar aðstæður í íslensku atvinnulífi. Hann er frambyggður, með 1 tonns burðarþoli, byggður á sterkri grind og með tvöföldum afturhjólum. Hann er óvenju þægilegur í hleðslu og afhleðslu, þar sem pallgólfið er alveg slétt og án hjólskála og hleðsluhæðin er að- eins 73 cm með skjólborðin felld niður. Örfáir bílar til afgreidslu strax á sérstöku afsláttarverði. Verð áður kr. is&Ætpr VERÐ NÚ KR. 174.198 GENGISSKR 1 3 83 Athugið: Verð þetta getur hækkað verulega eftir 6. apríl næstkomandi. BÍLABORG HF. Smiðshöfða 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.