Morgunblaðið - 25.03.1983, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983
Heildsala sem er að hætta
selur í kjallara Kjörgarðs ódýran fatnað á smábörn
og unglinga. Þessi útsala stendur tíl páska.
Útsalan í kjallaranum í Kjörgarði.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
NÁMSKEIÐ FYRIR STJORNENDUR
FYRIRTÆKJA OG STOFNANA
HVERNIG LÆKKA MÁ STJÓRNUNARKOSTNAÐ
HOW TO REDUCE OVERHEAD COSTS
Edward H. Hartmann
Presidant of Maynard
Management Instttute.
„Most prevalent and hardest to
discover is the waste of human
labor, because it doesn’t leave any
scrap behind which has to be
cleaned up.“
(Henry Ford)
Ráögjafaþjónusta
Stjórnun — Skipulag
Skipulagning — Vinnurannsóknir
Flutningatækni — Birgðahald
Upplýsingakerfi — Tölvuráðgjöf
Markaðs- og söluráðgjöf
Stjórnenda- og starfsþjálfun
Fyrirlesarinn E. H. Hartmann er yfimriaður Maynard Manage-
ment Institute USA og í stjóm H. B. Maynard & Co.
Hjá H. B. Maynard & Co. starfa um 300 manns og er það
meðal virtustu ráðgjafafyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu.
Allt frá stofnun þess 1934 hefur fyrirtækið verið þrautryðjandi í
þróun nýrra stjórnunaraðferða.
E. H. Hartmann hefur langa reynslu á alþjóðlegum vettvangi
sem ráðgjafi og fyrirlesari.
E.H. Hartman mun fjalla um
• NAUÐSYN KOSTNAÐARLÆKKUNAR
• MARKMIÐASETNING
• ÁÆTLUN — LEIÐIR
• KOSTNAÐARGREINING — NYTJAGREINING
• AVA-ATHUGANIR
• STJÓRNUN AÐGERÐA
• EFTIRLIT
• AÐFERÐIR VIÐ KOSTNAÐARLÆKKUN
Flestir eru sammála um nauösyn þess aö draga úr
stjórnunarkostnaði fyrirtækja og stofnana.
Aöferöir þær sem veröa kynntar eru margar nýjar
hér á landi en hafa margsannaö gildi sitt í
Bandaríkjunum og víðar.
Fundarstaður: Hótel Loftleiðir.
Tími: Þriðjudaginn 29. mars kl. 13.30 -18.00.
Þátttökugjald: Kr. 3000.-
Vinsamlegast tilkynniö þátttöku í síma 44033 sem
fyrst. Fjöldi takmarkaður. Síðast þegar Ed var hér
komust færri að en vildu.
REKSTRARSTOFAN
— Samstarf sjálfstæöra rekstrarráðgjafa á mismunandi svióum —
Hamraborg 1, 202 Kópavogi,
sími 91-44033.
Myndin er tekin á fundi Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins.
Rannsóknastofnun Fiskiðnaðarins:
Nýjar rannsóknir á
gæðamati sjávarafurða
Nú er verið aö vinna aö mörgum
nýjum rannsóknum á vegum Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins á
gæðamati sjávarafurða. Hér er eink-
um um að ræða rannsóknir á salt-
fiski, grálúðu, jarðslaga í skreið og
vinnslu vannýttra fiskistofna.
Þetta kom m.a. fram á frétta-
mannafundi sem efnt var til á veg-
um stofnunarinnar sl. miðvikudag til
kynningar á starfseminni. Að sögn
dr. Björns Dagbjartssonar forstjóra
Rannsóknastofnunarinnar á nú að
gera átak í að koma á framfæri
niðurstöðum af rannsóknum stofn-
unarinnar, og öðrum nýjungum. í
því skyni væri í ráði að gefa út hand-
bók fiskvinnslunnar innan skamms
sem síðan yrði reglulega tekin til
endurskoðunar a ári hverju.
Dr. Jónas Bjarnason efnafræð-
ingur sagði að rannsóknir á salt-
fiski hefðu einkum snúist um að-
ferðir til að koma í veg fyrir ýmis
vandamál í saltfiskvinnslu s.s. los
og sprungur, sem hefur þær af-
leiðingar að fiskurinn fellur í
lægri gæðaflokka. Það hefði komið
í ljós að hefðbundnar gæðarann-
sóknir hafi í mörgum tilvikum
ekki reynst nógu góðar og því væri
verið að kanna nýja aðferð, nokk-
urs konar gallalýsingu, sem næði
til fleiri þátta en áður. Tilraunir
hefðu einnig sýnt að efnasam-
bandið kalsíumklóríð drægi úr
losskemmdum þegar það væri sett
saman við salt. — Grímur Valdi-
marsson gerlafræðingur sagði að
nú væri verið að rannsaka jarð-
slaga í skreið á vegum stofnunar-
Tíðarhamur
í Skagafirði
Bjp, Höfða-strönd, 23. marz.
Tíðarhamur nokkur hefur gengið
yfir Skagafjörð eins og víðar, en
stormur hefur verið töluverður svo
að vegir eru að nokkru auðir,
nema helzt í kringum hús og á
heimavegum. Reynt er að nokkru
að halda opnum vegum þó að
fenni í traðir.
Togararnir á Sauðárkróki
hafa komið með um 100 tonn
hvor af ruslfiski svo atvinna í
frystihúsum hefur verið sæmi-
leg að undanförnu. Mjög óskýlt
er og vetur konungur virðist
hafa völdin þó sól sé farin að
hækka á lofti. Björn
Lagerinn
Smiðjuvegi 54 Kópavogi
Ótrúlega mikið af nýjum
vörum í dag
Opin mánudag kl. 12—18, þriöjudag kl. 12—22,
miðvikudag kl. 12—18, fimmtudag kl. 12—18,
föstudag kl. 12—22, laugardag kl. 10—16.
innar, en það væri galli sem orsak-
aðist af svörtum eða rauðum
myglugróðri á roði fisksins. Grím-
ur sagði að enn hefði ekki tekist að
ráða bót á þessum vanda, en ljóst
væri að myglan væri mjög háð
lofti og rakastigi fisksins.
Annar þáttur í starfsemi stofn-
unarinnar er flokkun grálúðu. Á
fundinum kom fram að holdafar
grálúðu er mjög misjafnt, en
kaupendur, sem einkum eru Þjóð-
verjar, gerðu ákveðnar kröfur svo
að hún sé hæf til reykingar. Og
sökum þess að nokkur misbrestur
hefði verið á því að fyrsta flokks
grálúða kæmist í hendur kaup-
enda hefði stofnunin staðið fyrir
námskeiðum fyrir eftirlitsmenn
sölusamtaka hraðfrystiiðnaðarins
til að auka samræmi í mati holda-
fars grálúðu.
Á fundinum kom einnig fram að
stofnunin hefur haft forgöngu um
að auka vinnslumöguleika van-
nýttra fiskistofna. Undanfarin
5—6 ár hefðu slíkar rannsóknir
fyrst og fremst beinst að því að
nýta kolmunna til manneldis. M.a.
hefði verið þróaður útbúnaður
fyrir vélþurrkun á kolmunna og
öðrum smáfiski og reynd inni-
þurrkun á skreið, sem mælst hefði
vel fyrir í Nígeríu. Ennfremur
hefði stofnunin haft frumkvæði að
hönnun vinnslurásar fyrir kol-
munnaflök sem væri nú komin í
mörg íslensk skip. — Einnig má
geta þess að Rannsóknastofnunin
tekur á móti daglegum fram-
leiðslusýnum sjávarafurða á er-
lendan markað til gæðamats.
Nú vinna um 50 manns hjá
Rannsóknastofnuninni, sem hefur
útibú á ísafirði, Neskaupstað og
Akureyri en auk þess er daglegum
rekstri stofnunarinnar stjórnað
frá Vestmannaeyjum.
Bolungarvík:
Jón Ragnars-
son hlaut
lögmæta
kosningu
SÉRA Jón Ragnarsson, farprestur,
sem undanfarið hefur þjónaó í Bol-
ungarvík, var kjörinn sóknarprest-
ur Bolvíkinga, lögmætri kosningu,
en atkvæði voru talin á skrifstofu
biskups í gær.
Alls voru 786 manns á kjörskrá
að sögn Bernharðs Guðmunds-
sonar, fréttafulltrúa þjóðkirkj-
unnar. Af þeim kusu 506, séra Jón
hlaut 505 atkvæði, einn seðill var
auður. Kosningin var því lögmæt.
Séra Bernharður Guðmundsson
kvaðst í samtali við Morgunblað-
ið í gær sérstaklega vekja athygli
á því, að hér væri um mjög góða
kjörsókn að ræða, þar sem utan-
kjörstaðakosning við prestskosn-
ingar væri ekki leyfð, og hlyti
slíkt að skipta máli í bæjum þar
sem fjöldi manns væri í þurtu á
þessum árstíma, s.s. sjómenn og
skólafólk. Slíkt kæmi niður á
kjörsókn, og hefði kirkjan lengi
óskað eftir breytingum hér á, en
án árangurs.