Morgunblaðið - 25.03.1983, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 25.03.1983, Qupperneq 32
rs ___kHglýsinga- síminn er 2 24 80 iír0«íMíiiþiiífo _ ^skriftar- síminn er 830 33 FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1983 ísafjörður: Samningur Ljónsins og kaupfélags- ins dreg- inn til baka ísafirói, 24. marz. EINS og fram hefur komið í fréttum keypti Kaupfélag ísfirdinga eignir verzlunarinnar Ljónsins á ísafirði á síðastliðnu ári. Samkvæmt þeim kaup- um átti að ganga frá kaupsamningi á verzlunarhúsnæði Ljónsins á Skeiði fyrsta febrúar síðastliðinn. Ágreiningur kom upp áður en til þess kom og hafa staðið yfir samningaviðræður vegna þessa að mestu óslitið síðan í febrúar. Samningar náðust ekki þar sem kaupfélagið hefur neitað, að sögn Heiðars Sigurðssonar, fram- kvæmdastjóra Ljónsins, að staðfesta samninginn og hefur Ljónið ákveðið að draga samninginn til baka og hef- ur sent kaupfélaginu bréf þess efnis að kaupfélagið rými húsnæðið, sem er um 1.900 fermetrar, fyrir 6. apríl næstkomandi. Að sögn Sverris Bergmann, kaup- félagsstjóra, neitaði hann að stað- festa samninginn vegna þess að hús- ið hefur ekki verið samþykkt af brunamálayfirvöldum. Hann segir, að nauðsynlegar breytingar kosti um 2,2 milljónir króna og vill hann að Ljónið taki á sig þann kostnað. Sverrir sagðist neita að fara út 6. apríl og biði úrskurðar fógeta um lögmæti þeirrar ákvörðunar Ljóns- ins. Heiðar Sigurðsson segir að kaup- endum hafi verið fullkunnugt um í hvaða ástandi húsið sé og komi þvi ekki til greina að gera neinar breyt- ingar á upphaflegum samningi. - Úlfar Bjargaði fé- laga sínum frá drukknun Slasaðist og verður því tekjulaus með 5 manna fjölskyldu í einn og hálfan mánuð ÍsaörAi, 24. marz. „VIÐ komum að Hilmi II þar sem hann lá við Grandagarð í Reykjavík um klukkan 8 að morgni síðastliðins sunnudag, en Bjarnþór Sverrisson er skipverji á því skipi,“ sagði Róbert Róbertsson, stýrimaður, sem bjargaði félaga sínum úr höfinni síðastliðinn sunnudag. „Sleipt var á bryggjunni en ég komst þó auðveldlega um borð, en þegar Bjarnþór ætlaði á eftir mér skrikaði honum fótur og skipti engum togum að hann féll í sjóinn milli skips og bryggju. Þegar hon- um skaut upp kallaði hann til mín og sagðist hafa fengið högg á höf- uðið og gæti ekki klifrað upp dekkjaröðina, sem notuð er sem fríholt milli skips og bryggju. Ég klifraði þá niður fríholtin og reyndi að ná honum upp, en það dugði ekki. Þá reyndi ég að henda til hans spotta, en það dugði ekki heldur. Ég klifraði þá niður frí- holtin aftur og alveg þar til sjór- inn tók mér upp undir hendur. Gat ég komið Bjarnþóri upp á axl- ir mér og síðan þokað okkur upp dekkjaröðina upp á þilfarið á Hilmi 11. Ég kom Bjarnþóri niður í klefa, háttaði hann og færði í þurr föt. Hann var þá orðinn mjög kaldijr og farinn að missa rænu. Ég dreif mig því upp í brú og kallaði á lögreglu og sjúkrabfl i gegnum talstöð skipsins. Þegar sjúkralið- arnir komu um borð skömmu síð- ar, var Bjarnþór orðinn rænulaus en hann braggaðist þó fljótlega eftir að hann kom á sjúkrahúsið og var farinn út á sjó um 11 leytið um morguninn. Þegar ég ætlaði að fara að tygja mig í land fór ég að finna til sárs- auka í vinstri fæti, sem óx ört og komst ég við illan leik að slysa- varnarhúsinu á Grandagarði, þar sem Tilkynningaskyldan er til húsa. Vaktmaður þar hringdi fyrir mig á lögregluna, sem flutti mig upp á Slysadeildina. Við athugun kom í ljós, að flísat hafði upp úr ristarbeini einhvern tímann þegar ég var að aðstoða Bjarnþór án þess að ég tæki eftir því. Á Borgarspítalanum var búið um fótinn og mér tilkynnt að ég gæti reiknað með að geta byrjað að vinna aftur eftir einn og hálfan mánuð ef ég færi vel með mig.“ Svo að það varð heldur stutt í Róbert Róbertsson, stýrimaður á ísafirði, f gær. Hann hefur fyrir 5 manna fjölskyldu að sjá, en fær engar bætur, þar sem hann er ekki munstraður á sama bát og sá er hann bjargaði. MorgunblaAið/ Úlfar. þessari vertíð Róberts Róberts- sonar stýrimanns, sem byrjaði á Búrfellinu frá Keflavík fyrir hálf- um mánuði, skömmu eftir að hann bjargaði skipsfélögum sín- um ásamt Bjarnþóri í land af ms. Hafrúnu frá Bolungarvík, þegar hún strandaði undir Stigahlíð um síðustu mánaðamót. Þetta verður fjölskyldu Róberts erfitt, en hann hefur fyrir fimm manna fjölskyldu að sjá, þar sem hann var ekki löggildur björgun- armaður eða skipverji á viðkom- andi skipi, þegar hann bjargaði félaga sínum. Því fær hann engar bætur þann langa tíma, sem hann verður frá störfum nema sjúkra- dagpeninga sjúkrasamlagsins. - Úlfar Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða á aðalfundi: Gengistap Flugleiða 549 milliónir króna Meginmarkmiðin sem sett voru náðust, en utanaðkomandi áhrif settu strik í reikninginn „ÞRÁTT fyrir að þau meginmarkmið, sem sett voru um rekstur félagsins á árinu 1982, hafi náðst að verulegu leyti hafa utanaðkomandi atvik og óhag- stæð þróun leitt til þess, að afkoma félagsins er verulega neikvæð. Tap fé- lagsins á árinu nemur 105 milljónum króna," sagði Sigurður Helgason, for- stjóri Flugleiða, m.a. í skýrslu sinni á aðalfundi félagsins, sem haldinn var í gærdag. „Þar vegur þyngst að afskrifuð hefur verið heildareign félagsins 1 Cargolux og nemur sú upphæð um 62,4 milljónum króna. Hér er vissu- lega um gífurlegt áfall fyrir Flug- leiðir að ræða, að þurfa að afskrifa þessa eign að fullu. Þróun í fargjöld- um var ekki hagstæð á árinu og þar kom til áframhaldandi mikil sam- keppni í Norður-Atlantshafsflugi fé- lagsins, svo og á Evrópuleiðum. Veik staða Evrópumynta gagnvart Bandaríkjadollar var mjög ákvarð- andi um afkomu félagsins, en sem kunnugt er eru svo til öll útgjöld félagsins í dollurum eða dollara- tengd, því íslenzka krónan er tengd dollar. Miðað við áætlun og stöðu mála eins og hún var í upphafi skakkaði um 38 milijónum króna, sem upp á vantar, og hefði hagur félagsins verið betri um þessa upp- hæð ef gengisþróun hefði ekki verið svo óhagstæð sem raun varð á,“ sagði Sigurður ennfremur. „Innlandsflugið var enn rekið með tapi eitt ár til viðbótar, þrátt fyrir ríkisstjórnarsamþykkt frá 1. des- ember 1981, þar sem heitið var eðli- legri verðlagningu í innanlandsflugi í samræmi við kostnað. Heildartapið á innanlandsfluginu varð um 20 milljónir króna, sem er hærri upp- hæð, en nokkurt annað ár. Gengistap félagsins vex sffellt f takt við verðbólguna og nam á árinu samtals 549 milljónum króna miðað við 214 milljónir króna árið 1981. Að auki hefur félagið orðið fyrir geng- istapi vegna veikrar stöðu Evrópu- mynta, sem áður er að vikið og kem- ur það fram, sem tekjurýrnun," sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða. Sjá nánar frásögn af aðalfundi Flugleiða bls. 17. VORUMARKAÐUR Eigandi Ljénsins vill Kaupfélagið út úr verzlunarhúsinu fyrir 6. aprfl. MorpiablaAii/ Úlfar Geir Hallgrímsson á fjölmennum fundi á Akureyri í gærkveldi: Sjálfstæðisflokkurinn geng- ur heill til þessara kosninga Tilbúnir aÖ takast á við þjóðarvandann Akureyri, 24. mars. Frá blm. Morgunblaðsins, Ólafi Jóhannssyni. „Við upphaf kosningabaráttunnar vek ég athygli á því, að Sjálfstæðis- flokkurinn gengur heill til þessara kosninga og vandamálin frá 1979 eru senn að baki, farsællega til lykta leidd. Ágreiningurinn í þingflokki Sjálfstæðisflokksins er brátt úti, tveir stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar sögðu skilið við hana á síðastliðnu sumri, tveir ganga nú undir merkjum Sjálfstælðisflokksins til þessara kosn- inga og fimmti þingmaðurinn hefur lýst því yfir að hann verði ekki í fram- boði, og ég fagna þeirri ákvörðun Gunnars Thoroddsen," sagði Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, á fjölmennum fundi á Ak- ureyri í gærkveldi. „Ég undirstrika þá staðreynd, að allir frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins í kosningunum ganga til þeirra á grundvelli sameiginlegrar stefnuskrár og þar með er ágreining- urinn úr sögunni. Eg fagna eining- unni, en harma þó að nokkrir sjálf- stæðismenn á Vestfjörðum vilja ekki una niðurstöðum réttra stofnana flokksins um skipan framboðslista," sagði Geir. Geir sagði, að vaxandi sundrung væri í öðrum stjórnmálaflokkum. „Við Sjálfstæðismenn höfum nú ráðið fram úr vandamálum okkar, og erum tilbúnir til að takast á við þjóðarvandann. Síðastliðin ár hafa verið Sjálfstæðisflokknum erfið, en þegar upp er staðið sýnum við, að við höfum herst í eldinum og erum þess albúnir að horfa fram á veginn," sagði Geir. Geir varaði flokksmenn við því að vera of sigurvissir fyrir kosningarn- ar, því möguleiki væri á að andstæð- ingarnir sameinuðust að þeim lokn- um. „Við getum aðeins komið í veg fyrir það með því að gera sigur Sjálfstæðisflokksins svo stóran, að fram hjá honum verði ekki gengið, að kosningum loknum," sagði Geir Hallgrímsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.