Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
94. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
Prentsmiðja Morgunblaösins
Reagan um málefni Mið-Ameríku:
Washington, 27. apríl. AP.
RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, hvatti í kvöld þing og þjóð til að styðja
stefnu stjórnarinnar í málefnum Mió-Ameríku og sagði, að Bandaríkja-
mönnum væri það „lífsnauðsynlegt" og baeri „siðferðileg skylda“ til að
koma í veg fyrir valdatöku kommúnista í þessum heimshluta.
„Öryggi allra þjóða Ameríku er
í veði. Ef við getum ekki varið
okkur sjálf, getum við ekki varið
aðra,“ sagði Reagan í ræðu, sem
Albanía:
Stjórnar-
andstaðan
margfaldar
fylgið
Vin, 27. npril. AP.
BÆJAR- og sveitarstjórnarkosn-
ingar fóru fram í Albaníu sl.
sunnudag og greiddi hver einn
og einasti kjósandi atkvæði eða
100%. Stjórnarflokkurinn, Lýð-
ræðisfylkingin, vann með yfir-
burðum eins og endranær og
hlaut 99,99% atkvæða að því er
segir í frétt frá Ata, hinni opin-
beru fréttastofu.
í fréttinni frá Ata segir, að
„mikill byltingarmóður og
hrifning" hafi ríkt á kjördag
þegar kosnir voru fulltrúar
fólksins í bæjar-, borgar-, hér-
aðs- og þorpsstjórnum auk
dómara. Engin mótframboð
komu fram gegn Lýðræðisfylk-
ingunni, sem hlaut 1.653.663
atkvæði samtals. Það bar til
tíðinda í þessum kosningum,
að 175 menn voru á móti og þvi
ljóst, að stjórnarandstöðunni
hefur stórkostlega aukist fylgi
frá því í þingkosningunum 14.
nóvember sl. þegar aðeins einn
maður var á móti Lýðræðis-
fylkingunni.
hann flutti fyrir báðum deildum
þingsins. Megintilgangur hennar
var að fá þingið til að samþykkja
110 milljón dollara aðstoð við E1
Salvador en öldungadeildin er treg
til og hefur aðeins viljað fallast á
30 milljónir dollara enn sem kom-
ið er. Reagan lagði einnig fast að
þinginu að samþykkja áætlun
hans um 600 milljón dollara að-
stoð við öll ríki Mið-Ameríku á
næsta ári og sagði hana minni en
einn tíunda af því, sem þjóðin færi
með í sjónvarpsleiki á einu ári.
Þetta er í fyrsta sinn sem Reag-
an flytur ræðu um utanríkismál
frammi fyrir þingmönnum úr báð-
um deildum. Venjan er sú, að
Bandaríkjaforseti ávarpi þingið
aðeins á þann hátt þegar hann.
flytur hina árlegu stefnuræðu
stjórnarinnar.
Habib Shartouri, sem grunaður er um moróið i Bashir Gemayel, bróður núverandi forseta Líbanons, Amíns
Gemayels, sést hér fluttur með bundið fyrir augun í aðalstöðvar Ifbanska hersins. Hann hefur verið hafður í haldi hjá
hermönnum falangista í sjö mánuði. Bashir Gemayel var myrtur nokkru eftir að hann var kjörinn forseti áður en
hann tók við embætti. ap.
Viðbrögð við kafbátaskýrslunni:
Varnir Danmerkur verði
teknar til endurskoðunar
Fyrir hverja eiga Norðurlönd að vera kjarnorkuvopnalaus? spyr Jyllandsposten
Kaupmannahofn, Ósló, Moskvu, 27. aprfl. AP.
MIKIL viðbrögð hafa orðið í Dan-
mörku við skýrslu sænsku stjórnar-
innar um ferðir sovéskra kafbáta
innan sænskrar landhelgi. Er það
rauði þráðurinn í yfirlýsingum
stjórnmálamanna og fjölmiðla, að
Sovétmenn séu til alls vísir og að
þeir meti einskis hlutleysi og rétt
smáþjóða hvað sem öllu friðarhjali
þeirra líði. Danir eru mjög uggandi
Begin ítrekar
fyrri kröfur
Jerúsalem, Beirut, 27. apríl. AP.
MENACHEM Begin, forsætisráðherra ísraels, skýrði Shultz, utanríkisráð-
herra Bandarfkjanna, frá því í dag á fundi þeirra í Jerúsalem, að öryggis-
hagsmuni ísraela yrði að tryggja í væntanlegu samkomulagi um brottflutning
erlendra herja frá Líbanon. Shultz er nú á ferð um Miðausturlönd til að
reyna að greiða fyrir viðræðunum en Bandaríkjastjórn er nú mjög farin að
ókyrrast vegna þess hve lítið hefur miðað.
Á fundi Begins og Shultz, sem
er þeirra fyrsti, lýsti Begin því yf-
ir, að ísraelar hygðust ekki vera
deginum lengur í Líbanon en þeir
teldu nauðsynlegt en áður en þeir
færu þaðan yrði að fást full trygg-
ing fyrir því, að ekki yrðu framar
gerðar árásar á ísrael fra Suður-
Líbanon. ísraelska útvarpið sagði
í dag, að nokkrum stundum fyrir
fund þeirra Shultz hefði Begin
skýrt utanríkis- og öryggismála-
nefnd þingsins frá því, að ekki
kæmi til mála að falla frá þeirri
kröfu, að Saad Haddad majór færi
með öryggisgæsluna í Suður-
Líbanon. A það getur Líbanon-
stjórn ekki fallist.
George P. Shultz, utanríkisráð-
herra, færði Beginb bréf frá Reag-
an, Bandaríkjaforseta, en ekki
hefur verið skýrt frá efni þess.
Shultz mun fara til Líbanons á
morgun, fimmtudag, og aftur til
Israels samdægurs. Hann vonast
einnig til að geta fundið að máli
Hafez Al-Assad, Sýrlandsforseta.
vegna þeirra upplýsinga, sem fram
koma í skýrslunni og hefur verið
hvatt til endurskipulagningar á vörn-
um landsins með tilliti til þeirra.
Hans Engell, varnarmálaráð-
herra Dana, hefur hvatt til, að sjó-
varnir Danmerkur verði endur-
skoðaðar í ljósi þess, að Sovét-
menn geta komist með kafbáta
sína yfir grynningarnar úti fyrir
ströndum landsins og upp í fjöru-
borð, og í svipaðan streng hefur
tekið Kjeld Olesen, fyrrum utan-
ríkis- og varnarmálaráðherra úr
flokki jafnaðarmanna. Olesen
sagði einnig, að Sovétmenn hefðu
gerst sekir um „alvarlegasta brot
gegn fullveldi ríkis við Eystrasalt
frá stríðslokum".
Leiðarahöfundum ber saman
um, að „friðaráróður" Sovét-
manna hafi nú endanlega verið af-
hjúpaður en furða sig um leið á
þvi, að þeir skuli hafa tekið þessa
áhættu. Aktuelt, málgagn verka-
lýðshreyfingarinnar og jafnað-
armanna, segir, að „Sovétmenn
hafa komið þeirri orðsendingu á
framfæri, að þeir eru vísir til alls
hvar og hvenær sem er“ og Jyl-
landsposten vakti athygli á því, að
engir væru jafn hrifnir af tillög-
unni um kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd og Sovétmenn. Kjarn-
orkuvopnalaus fyrir hverja?
spurði blaðið. Land og Folk, mál-
gagn danska kommúnistaflokks-
ins, var hins vegar á því, að hér
væri um pólitískt moldviðri að
ræða og að engar sannanir væru
fyrir því, að kafbátarnir hefðu
verið sovéskir.
Norsk blöð fjalla í dag mikið um
sænsku skýrsluna og segir Verd-
ens Gang, að ferðir sovésku kaf-
bátanna séu „hernaðar- og árásar-
aðgerðir gegn Svíum" og að þeir,
sem hafi staðið að þeim, séu þeir,
sem hæst láti í um frið og afvopn-
un nú á dögum.
Sovéska fréttastofan Tass sagði
í dag, að þær ásakanir Svía, að
sovéskir kafbátar hefðu verið inn-
an sænskrar landhelgi á sl. hausti,
væru tilhæfulaus áróður spunninn
upp af stríðsæsingamönnum og
hatursmönnum Sovétríkjanna.
Sjá „Veit ekkert um kaf-
báta ... “ á bls. 22
Noregur:
Kafbáts leitad í
Harðangursfirði
Osló, 27. apríl. Frá fréltaritara Mbl.
KORVETTA, tveir kafbátar og flugvél af Orion-gerð leituðu í kvöld ákaft að
óþekktum kafbáti, sem í morgun sást í Húsnesfirði fyrir austan eyna Slorð
í Vestur-Noregi. Húsnesfjörður er innfjörður úr Harðangursfirði.
Það voru kafarar, sem komu
auga á kafbátinn, á bátsturninn,
úr lítilli fjarlægð og segja yfir-
menn norska hersins enga ástæðu
til að draga orð þeirra í efa.
Stjórnstöð sjóhersins í Stafangri
var strax gert viðvart og var þá
send til leitar korvetta, tveir
kafbátar og Orion-flugvél, sem
búin er ákaflega fullkomnum
kafbátaleitartækjum. Þegar síð-
ast fréttist hafði ekkert fundist
en ef um kafbát er að ræða á hann
sér margar undankomuleiðir.
Yfirstjórn norska sjóhersins
segir, að enginn kafbátur frá ríkj-
um Atlantshafsbandalagsins sé á
þessum slóðum og þvi er einnig
haldið fram, að góðar vonir séu
um að takast megi að finna hugs-
anlegan kafbát á þessum stað.
I janúar sl. sást kafbátur á
þessum sama stað og frá 1969 hef-
ur 230 sinnum verið tilkynnt um
kafbáta inni á norsku fjörðunum.
Aðeins tíu sinnum hefur verið
hafin leit en aldrei hefur tekist að
neyða neinn upp á yfirborðið. í
viðtali, sem Roy P. Breivik, y'ir-
maður norska flotans, átti í dag
við Arbeiderbladet í Ósló, sí gði
hann, að stefna Norðmanna \æri
að reka erlenda kafbáta á brott úr
norskri landhelgi. Norski herinn
ræður hins vegar yfir tundur-
skeytum, sem elta uppi bráðina,
en Breivik sagði, að mikið mætti
við liggja svo til þeirra yrði grip-
ið.
Bað um stuðning
þings og þjóðar