Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 39 fclk í fréttum Stewart þykir sopinn góður + Ýmsar sögur hafa gengiö um drykkjuskap Rod Stewart og fé- laga hans, en Rod sjálfur ber é móti því, segist vera hinn mesti hófsemdarmaður á vín og eiturlyf snerti hann aldrei. Rod og félagar aetla aö halda hljómleika í Svíþjóð í sumar og það var eitt atriði í samningnum, sem Svíum þótti dálítið skrýtið. Rod og félagar fóru nefnilega fram á það, að í upphafi hverra hljómleika skuli þeim standa til reiöu tveir lítrar af koníaki, tvær púrtvínsflöskur, sjö lítrar af hrísgrjónabrennivíni og einn lítri af vodka. Á þessum skammti ætla þeir aö hressa sig fyrir hverja hljómleika. Það er kannski af þessari ástæöu, sem hótelin keppast ekki um að hýsa Rod Stewart og hljómsveit hans þegar þeir eru á feröalagi. + Rod Stewart með konu sinni Alttnu og bttrnunum. Þau eiga saman tvtt yngstu börnin en Rod bjó áttur mett Britt Ekland eins og kunnugt er. + Þatt er vissulega aö bera í bakkafull- an lækinn aö segja meira frá Jerry Lewis og nýju kon- unni hans, Sandra Pitnick, en viö get- um þó ekki stillt okkur um aö birta af þeim brúökaups- myndina. + Ringo Starr nær ekki upp í nef sér fyrir bræði þessa dagana eða eftir að hann las það í a.m.k. tveim- ur breskum blöðum, að hann væri hreint út sagt dauðvona maður. „Mér líður alveg prýðilega," segir Ringo, „en hins vegar er ég með ýmis áform á prjónunum og vil helst ekki að samstarfsmenn mínir eigi von á því að ég detti niður dauður á hverri stundu." Á þessari mynd er Ringo með Barböru konu sinni. Umboðsmaður — rennilásar Óskum eftir aö komast í samband viö einstakling eöa fyrir.tæki, sem getur tekiö aö sér sölu á belgískum rennilásum á íslandi. Æskilegt er aö viökomandi hafi tengsl viö íslenskan fatamarkaö eöa þekkingu á hon- um. Góö kjör í boði. Milliliöalaus viöskipti. Þeir sem áhuga hafa skrifi á ensku eða þýsku til: Firma Hans Poulsens EFTF, Krákás, N-3200 Sandefjord, Norge. Eigum til ailar tegundir af hinum þekktu Fiskarsskærum Stór sníöaskæri, heimilisskæri, hægri og vinstri handa, eldhússkæri og sauma- skæri. Einnig v-þýzk barnaskæri fyrir föndur og í skólann. Naglaskæri og hárskæri. FINNSKmijE FINNSK VIKA jjnr VORUKYNNING totgnnfrlnftift MetsöluHod á hverjum degi! SPUNNfÐ UM STALÍN eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN að Alexandra Bychkova verði látin hverfa. Hann gleðst yfir því. Samt segja þeir, að hún eigi „óæskilega vini“. Því trúði hann ekki og nú hristir hann höfuðið og blæs pípu- reyknum út í loftið og lætur hann mynda hringi, sem hverfa eins og vond minning. Stalín tekur upp bréf, sem hann hefur skrifað Svetlönu. Hann les það og brosir um leið: Halló, litli spörfuglinn minn! Vertu ekki reið við mig, þótt ég svaraði þér ekki strax. Ég á fjarska annríkt, en ég er hress og mér líður ágætlega. Ég scndi litla spörfugiinum mínum vænan koss. Undir- skrift: Þinn pabbi, J.S. Hann skrifar utan á bréfið: Frá ritaragreyi Setönku, bóndakarlinum Jósef Stalín. Hann leggur bréfið frá sér. Nadya kemur inn. Hún er æst og segir við hann: Ég þoli þetta ekki lengur. Ég er bæði hrædd um þig og börnin. Hrædd um mig og börnin? endurtekur Stalín. Já, segir hún, síðan Yakov reyndi að skjóta sig. Stalín stendur upp og segir hæðnislega: Hann særðist ekki einu sinni, hann getur ekki miðað byssu, hvað þá annað! Hann segir, að þú hafir brugðizt sér, segir Nadya. Það er rangt, svarar Stalín og reiðist. — Að fara fram í eldhús í íbúðinni okkar í Kreml af öllum stöðum og skjóta sig þar í viðurvist alls heimsins! bætir hann við með fyrirlitningu. Og þetta á að heita sonur minn! Yakov er ólíkur móður sinni. Ég vil ekki líta hann augum oftar. Auðvitað þurfti hún að deyja ung, en hann að lifa. Þessi aumingi og fyllibytta! Hún var góð, en guðhrædd. Eins og móðir mín. Það voru einu ókostir þeirra. Og veikleiki. Þú ert að minnsta kosti ekki haldin þeirri hræsni, Nadya. Vasily verður vonandi skárri en Yakov. Ég er undrandi á því hvernig þú talar. Og einnig hvernig þú tekur þessu, segir hún. Ég er skelfingu lostin! Ég hef gaman af að stunda nám í tækniskólanum. En ég þori varla að fara þangað lcngur. Stalín segir: Það þekkir þig enginn þar. Ég vcit það, svarar hún, en það er alveg sama. Þeir geta farið að snuðra uppi, hver þessi Nadya Alliluyeva er, og ég þoli ckki, að þcir þekki mig. Ég skammast mín fyrir svo margt. Hann segir: Hættu að hugsa urn fíflaskapinn í Yakov. Ég get það ekki, hrópar hún. Ég hcf reynt að vera góður kommúnisti, scgir Nadya, og siðalögmál flokksins er mér inngróið, en það merkir að félögunum ber að lifa hófsamlega. Þú veizt það sjálfur að það fer enginn eftir þcssu og þið drekkið of mikið. Hann hrópar: Hættu þcssu, kona, hví ásakar þú mig? Þú getur aldrci séð mig í réttu Ijósi. Stundum er cngu líkara en þú sért mesti óvinur minn. Nadya segir með fyrirlitningu: Óvinur ríkis- ins kannski! Hann hrópar: Storkaðu mér ekki, ögraðu mér ekki með þessum hvössu orðum þínum! Hún svarar: Þú crt of góður maður til að standast ekki þessa auvirðilcgu tilburði þeirra. Þú safnar að þér kjölturökkum. Þið eruð ekki að koma á sósíalísku ríki í Sovétríkjunum, heldur karlaveldi. Fyrirskipaðu þeim að hætta að dýrka þig, eins og þeir gcra. Gcrðu þá að mönnum, ef það er þá hægt. Hann svarar: Ég get ekkert við þetta ráðið, manneskja. Víst getur þú það, segir Nadya. Segðu þeim að taka myndirnar af þér niður. Það fýkur aftur í Stalín: Það er ómögulcgt, hrópar hann, þeir verða að fá að ráða þessu. Ég verð að taka tillit til þeirra. Þeir verða að hafa eitthvað að trúa á. Ef þeir hafa ekki mig, eiga þeir sér engar aðrar hclgimyndir. Stjórnmál án glansmynda ganga ekki í nokkra manneskju. Og hvar stendur ríkið þá? Eða flokk- urinn! Hún hrópar: Segðu þcim að dýrka þig í góðuni vcrkum. Þú ert fulltrúi þess bezta í mannlífinu. Hann svarar: Ég skal gera allt fyrir þig, en biddu mig ekki um þetta. Hún segir: Þeir láta þig vinna skítverkin fyrir sig. Láttu þá ekki nota þig svona. Hann segir: En þú? Hvernig ert þú orðin? Vcnjuleg og drepleiðinleg ciginkona! Bylt- ingareldurinn brunninn út. Hún svarar, æst: Hvað áttu við? Hann bætir við: Ég þarf konu, sem eflir með mér þcnnan eld. Hún hrópar: Rosa gctur glætt þennan eld, cr það ekki? Hann verður orðlaus. Starir agndofa á hana. Segir svo með uppgjafartón: Einu sinni varst þú cldhugi byltingarinnar, Nadya. Það bráir af henni. Hún vcrður FRAMHALD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.