Morgunblaðið - 28.04.1983, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 28.04.1983, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 Eiginmaöur minn, INGVAR MAGNÚSSON, Skúlagötu 62, lést í Landakotsspítala aöfaranótt sunnudagslns 21. apríl. Jarðað veröur frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. apríl kl. 1.30. Þórlaug Bjarnadóttir og vandamenn. + Eiginkona mín og móöir okkar, SIGRÚN JÚNÍA EINARSDÓTTIR, Hörgsési 4, Egilsstööum, er látin. Ástréóur Magnússon og börn. + Móöir okkar, GUÐRÚN EINARSDÓTTIR, Skólavöröustíg 26, andaöist þriöjudaginn 26. apríl. Börnin. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, GUDMUNDUR BJARNASON, Markarflöt 33, Garöabæ, lést aöfaranótt 26. þessa mánaöar. Bryndís Víglundsdóttir, Sólbjört Guömundsdóttir, Grímur Guðmundsson. + Unnusta mín, dóttir okkar og systir, BRYNDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR, Sviðugöróum, lést í Borgarspítalanum þriöjudaginn 26. april. Oddur Magnús Oddsson, Selma Albertsdóttir, Davíö Axelsson, Sígríöur Siguróardóttir, Guömundur Sigurösson og systkini. + Móöir okkar, ÞÓRA ÁGÚSTA ÓLAFSDÓTTIR, lést aö Sólvangi, Hafnarfiröi 25.apríl. Fyrir hönd vandamanna, Margrét Þóröardóttir, Þorlékur Þóröarson. + Bróðir minn, INGVAR JÓNSSON, Hrafnistu, sem andaöist 19. april, veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu mánudaginn 2. maí kl. 4. Kjartan Jónsson. + Maöurinn minn og faöir, BOOVAR PÉTURSSON, fyrrverandi kennari, er lést þann 21. april aö Hátúni 10B, veröur jarösunginn frá Foss- vogskirkju þann 3. maí kl. 15. Ósk Siguröardóttir, Siguröur Böövarsson. + Bróöir okkar, GUDMUNDUR SIGURÐSSON, vislmaöur é Kópavogshæli, lést í Borgarspítalanum þann 19. apríl. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey. Sigrún Siguröardóttir, Leifur Sigurösson, Guörún Siguröardóttir, Karl Sigurösson, Þóröur Sigurösson, Agnes Siguröardóttir, Rafn Sigurösson. Astmundur Guð- mundsson - Minning Fæddur 28. júlí 1910 Dáinn 19. aprfl 1983 Vinur minn og samstarfsmaður um áratugaskeið, Ástmundur í Stálsmiðjunni, er látinn. Hann lést í Landakotsspítala þann 19. þ.m. Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni í dag. Enn er genginn einn af gömlu SÍBS-forystumönnunum. Það er mikil eftirsjá í hverjum og einum. Reynsla þeirra og félagslegur þroski var með eindæmum. Þeir kunnu betri skil en flestir aðrir á vissum vandamálum þjóðfélags okkar, þeir höfðu vilja og getu til þess að bæta að nokkrum mun úr erfiðleikunum. Ástmundur, sonur Guðmundar Guðmundssonar, bóksala, og seinni konu hans, Snjólaugar Jak- obínu Sveinsdóttur, fæddist á Eyrarbakka, þar sem foreldrar hans bjuggu, þ. 28. júlí 1910. Guð- mundur, faðir hans, var ættaður frá Minna-Hofi á Rangárvöllum, en Snjólaug var Skagfirðingur að ætt. Að barnaskólanámi á Eyrar- bakka loknu hélt Ástmundur til framhaldsnáms í Verslunarskól- anum í Reykjavík. Áður en námi lyki þar, bauðst honum framtíð- arstarf hjá Vélsmiðjunni Héðni og þar hóf hann störf árið 1929. Nokkru síðar stofnuðu smiðjurnar Hamar og Héðinn sérfyrirtæki er annast skyldu skipaviðgerðir, plötusmíði og járnsteypu. Þessum fyrirtækjum, Stálsmiðjunni og Járnsteypunni, var Ástmundi fal- ið að stjórna og það gerði hann í áratugi, það er að segja á meðan heilsan leyfði. Það sýnir mat þeirra, er hann þekktu, á stjórnunarhæfileikum Maöurinn minn og faöir okkar, SVANUR BREIDFJÖRD TRYGGVASON frá Arnarbœli, Dalasýslu, Bræðratungu 2, Kópavogi, lést af slysförum mánudaginn 25. apríl. Jaröarförin auglýst síöar. Bryndís Guömundsdóttir og börn. Minningarathöfn um HJÖRLEIF MAGNÚSSON frá Víðvík, Hellissandi, veröur gerö frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. maí kl. 1.30. Vandamann. + Faöir okkar, INGVAR JÓHANNSSON, Hvítárbakka, Biskupstungum, veröur jarösunginn laugardaginn 30. apríl. Athöfnin fer fram frá Skálholtskirkju kl. 14. Jarðsett verður í Bræðratungu. Systkinin. + Móöir okkar, tengdamóðir og amma, BENEDIKTA JÓNSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirói, áöur til heimilis aö Reynimel 49, veröur jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 29. apríl kl. 13.30. Daníel Pótursson, Hrönn K. Johnson, Guöný Pétursdóttir, Hólmsteinn Sigurösson, Jón Pétursson, Jódís Vilhjálmsdóttir og barnabörn. + Litli drengurinn okkar og bróöir, VIDAR KRISTINSSON, Grentiteig 13, Keflavík, veröur jarösunginn frá Kirkjuvogskirkju, Höfnum, laugardaginn 30. apríl kl. 2 e.h. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á barnaspítala Hringsins eöa Þroskahjálp á Suðurnesjum. Kristinn Þorsteinsson, Eygló Óladóttir og systkinin. + Faðir okkar, tengdafaöir og afi, JÓN GUÐMUNDSSON frá Noröurgaröi, Mýrdal, sem andaöist 15. apríl, veröur jarösunginn frá Skeiðflatarkirkju, laugardaginn 30. apríl kl. 15. Bílferö verður frá Umferöarmiöstööinni kl. 11 árdegis. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á minningarkort Skeiöflatarkirkju eöa líknarstofnanir. Rannveig Jónsdóttir, Ólafía Vosk, Erlendur Jónsson, Valdimar Jónsson, Sigurður Jónsson, og barnabörn. Eltas Andri Karlsson, Theodor Vosk, Sesselja Þóröardóttir, Auöur Pedersen hans, að honum skyldi ungum að aldri falin stjórn tveggja stórfyr- irtækja á þeirra tíma vísu. Það hefur án efa verið Ástmundi mikil lífsfylling, að sjá þau fyrirtæki, er honum var ungum falið að stjórna, vaxa og dafna og þótt sjúkdómar styttu starfsævi hans til muna, þá var þarna um ævi- starf að ræða, sem sómi var að. 1934 kvæntist Ástmundur Ág- ústu, dóttur Ágústs Guðmunds- sonar og konu hans, Ingigerðar Sigurðardóttur. Þau Ástmundur og Ágústa eignuðust 4 börn, frisi, sem á 16 ára gamlan son, Ást- mund Agnar Norland, Guðlaugu, sem gift er Níels Indriðasyni, verkfræðingi, Björn Ágúst, for- stjóra Reykjalundar, sem kvæntur er Guðmundu Arnórsdóttur frá Siglufirði, og Ástu Ingigerði, meinatækni, sem er gift Erni Sig- urðssyni, lögfræðingi. Heimili þeirra hjóna, Ágústu og Ástmundar, er víðfrægt fyrir gestrisni og hlýju. Þangað hefur um langt árabil legið leið stórs hóps vina og kunningja, er hafa notið þar ánægju og fróðleiks- stunda á glæsilegu heimili þeirra hjóna að Grenimel 1 í Reykjavík. Þau hjón hafa verið óvenju sam- hent í búskap sínum og Ágústa sýnt honum einstaka ástúð, nær- gætni og umhyggju í langvarandi veikindum síðustu ára. 1939 veiktist Ástmundur af lungnaberklum. Hann lá þá um nokkurra mánaða skeið á Vífils- stöðum. Þar fékk hann allgóðan bata og með skilningi á sjúkdómn- um og nauðsyniegum lífsvenju- breytingum, þá tókst Ástmundi að styrkja heilsuna. Berklarnir angr- uðu hann ekki oftar, en það er meira en hægt var að segja um marga aðra á þeim tíma. Kynni okkar Ástmundar hófust, er hann var sjúklingur á Vífils- stöðum. Samtök berklasjúklinga voru þá nýstofnuð og við áttum strax við fyrstu kynni mörg sam- eiginleg áhugamál. Eftir veru hans á Vífilsstöðum var heimili hans ósjaldan samkomustaður fé- laga hans og samsjúklinga þaðan. Þar voru vandamálin rædd og leiða til betra lífs leitað. Margir af þeim, sem þarna komu, urðu lífs- tíðarvinir fjölskyldunnar. 1940 keypti Ástmundur sumar- hús í landi Reykja í Mosfellssveit. Svo vildi til, þegar Vinnuheimilinu að Reykjalundi var valinn staður, að þau Ástmundur og Ágústa urðu nágrannar okkar, þ.e. landspilda sú, er Reykjalundur fékk úr landi Reykja, lá að landi þeirra. Vegna áhuga Ástmundar á mál- efnum SÍBS og þekkingar hans á uppbyggingu og rekstri fyrir- tækja, var hann kosinn í vara- stjórn Reykjalundar árið 1948, að- eins 3 árum eftir, að Vinnuheimil- ið tók til starfa. 1958 varð hann svo stjórnarformaður og því starfi gegndi hann samfleytt til ársins 1982. SÍBS var mikill styrkur að því að hafa Ástmund sem stjórn- arformann. Þekking hans á rekstri fyrirtækja, örugg dóm- greind og félagslegur þroski hans hjálpaði mjög til við lausn vanda- mála. Við hjónin höfum misst einlæg- an vin og samstarfsmann. Ást- mundur var glæsimenni, léttur í viðmóti, ræðinn og víðlesinn. Hans munu margir sakna en eiga eftir minningu um góðan dreng. SÍBS og Reykjalundur votta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.