Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 16

Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 verðinu niðri, enda bjóðum við aðeins „toppferðir með toppaf- slætti", þ.e. valda gististaði í fögru umhverfi þar sem veðrið er öruggt fyrir mun lægra verð þeg- ar á heildina er litið en „sumar- búðirnar", sem ég kalla svo.“ Eru sumarhúsin að sækja á sem kostur á alþjóðaferðamark- aði? „Nei, ekki svo vitað sé, nema á íslandi, svona prógrömm þýðir ekki að bjóða neinum erlendum ferðamönnum í Evrópu nema ís- lendingum. Þess vegna eru sumarhús föl um alla Norður- Evrópu, eigendurnir og samland- ar þeirra vilja ekki búa þar. Þeir velja betri kosti, skemmtilegri lífsstíl, öruggt sólskin og unað sólarlanda, þar sem verðlag er líka miklu lægra. T.d. má benda á að verð á mat og drykkjum er um framundan. Á slíku ferðalagi bíða fólks margir óvæntir út- gjaldaliðir og erfiðleikar. Það kom líka kippur í pantanir hjá okkur til sólarlanda þegar frétt- ist af kuldanum og vosbúðinni hjá fólki sem valdi sumarhúsin um páskana. Okkar fólk kom ljómandi af ánægju úr sólinni á Spáni. En meira að segja í júlí og ágúst eru 12—14 rigningardagar í mánuði í Hollandi og Rínarlönd- um þegar ekki kemur dropi úr lofti á Costa del Sol og Algarve í Portúgal og sólskinsstundir eru 11—12 daglega." Hvert stefnir þróunin í ferða- málum hér? „Hvað Útsýn snertir, reynum við að halda gæðunum uppi en * — segir Ingólfur Guöbrandsson forstjóri Utsýnar „UNDANFARIÐ hefur verið stöðugur straumur fólks hingað. Lætur nærri að um 100 pantanir hafi borist dag- lega að meðaltali. Þótt bókan- ir væru dræmari í upphafi en undanfarin ár eru margar ferðir að seljast upp. Enda eru sumarleyfisferðir enn ódýrar miðað við flest annað; svo að ekki sé talað um almennan ferðakostnað innanlands og erlendis, sagði Ingólfur Guð- brandsson forstjóri Ferða- skrifstofunnar Útsýnar í sam- tali við Mbl. um horfur á ferðamarkaðnum í ár, en nú er sem kunnugt er sá tími sem íslendingar fara að huga að sumarleyfisferðum sínum. „Fullyrða má að við spörum einum farþega í 3ja vikna ferð 20—30 þús. kr. miðað við almenn fargjöld og gistingu, en sjálfur greiðir hann á bilinu 10—18 þús. eftir ferðatíma og gististað. Þetta tekst einungis vegna einstaklega hagstæðra samninga Útsýnar, sem byggjast á traustum sam- böndum og langri reynslu í skipu- lagningu og þjónustu. Það er ein- ber blekking að ódýrara sé að fara í sumarhús í rigningarbæl- um Norður-Evrópu, eða þeysast á bílum eftir endalausum hrað- brautum með óvissan náttstað Costa del Sol sem fyrr eftirsóttasti staðurinn SCARSDALE-kúrinn — eftir Jón Úttar Ragnarsson Eitthvert þrálátasta heilbrigð- isvandamál Vesturlandabúans er offita og fylgifiskur hennar: megr- unin. Nær daglega berast nýjar fregn- ir af megrunarkúrum sem þessi eða hinn prófaði með góðum árangri. Má skipta öllum þessum nýju kúrum í tvennt, í töfrakúra og alvörukúra. Töfrakúrar eiga það sammerkt að þeir eru kynntir með miklu brambolti og fullyrðingar gefnar sem ekki standast. Sjálfir geta svo kúrarnir verið með margvíslegasta móti. Scarsdale-kúrinn er ekki dæmi- gerður töfrakúr. Hann er að vísu kynntur með fullyrðingum sem ekki standast. En kúrinn sjálfur virkar að nokkru leyti og hefur án efa hjálpað einhverjum. Kjarni málsins Lítum fyrst á það neikvæða við þennan kúr, ekki vegna þess að ég Sterkurog hagkvæmur auglýsingamiðill! 2*lov)jimWflí»tí> vilji einblína á það, heldur vegna þess að það blasir við á titilsíðu nýútkominnar bókar um þennan kúr. Þessi kúr er kynntur þannig að rækilega er gefið í skyn að á hon- um geti fólk lést um hálft kíló á dag og jafnframt tekið fram að það sé um leið sá meðalhraði sem flest- ir ná. Þessi fullyrðing getur að vísu staðist í sumum tilvikum, en hún er villandi í meira lagi, þar sem ekki er jafnframt skýrt hvers eðlis þessi þyngarlækkun er. Kjarni málsins er sá, að meðal- maður brennir að jafnaði um 2500 hitaeiningum á dag og að á þessum kúr fær hann að jafnaði 1000 hita- eininga fæði. Mismunur þarna á er 1500 hitaeiningar. Þetta þýðir einfaldlega að fitu- vefurinn rýrnar daglega sem nem- ur 1500 hitaeiningum á dag eða sem nemur um 200 grömmum af fituvef. Á einni viku yrðu það 1,5 kíló og á tveim vikum 3 kíló. í Scarsdale-bókinni er hins veg- ar fullyrt að maður missi að jafn- aði 7 kíló á tveim vikum. Hvernig má þetta vera? Hver er ástæðan fyrir þessum mismun (4 kíló og 7 kíló)? Ástæðan er einfaldlega sú að auk þess að missa fituvef (sem er hin eina fullgilda megrun) getur maður misst talsvert af vatni, jafnvel 4 kíló á tveim vikum. í fyrsta lagi er hætt við að mað- ur sem fer í megrun brjóti niður glýkogenið, en það kallast skammtímaorkuforði líkamans. Við það tapar maður um 2 kílóum af vatni. Til viðbótar getur maður misst viðbótarvatn ef fæðið er saltsnautt og auðugt af hvítu (próteini). Með þessu móti er hægt að koma þyngdartapinu í heild í 7 kíló alls. Mergurinn málsins er hins vegar sá að af þessum sjö kílóum eru aðeins 3 raunveruleg rýrnun á fituvef. Hitt er svo vatn sem kemur aftur um leið og venjulegt fæði er borðað á ný. Þetta er það sem ég kalla „bak- reikning" í megrunarkúr. Og það er jafnframt ástæðan fyrir því, að ef ég þyrfti að fara í megrun mundi ég fá bakþanka varðandi þennan kúr. Það er þessi bakreikningur Scarsdale-kúrsins sem gerir það að verkum að kúrinn er töfrakúr en ekki alvörukúr. Hann byggist á að blekkja, ekki að fræða og upplýsa. Til viðbótar ættu allir að hafa í huga að megrunarhraði er ákaf- lega einstaklingsbundið fyrirbæri. Til þess liggja margvíslegar ástæður og skal ég benda á nokkr- ar. í fyrsta lagi er fólk mismunandi stórvaxið. Kona sem er 80 kíló brennir mun meiri orku en kona sem er 50 kíló. Á sama fæði grenn- ist stóra konan mun hraðar en litla konan. í öðru lagi er hreyfing og líkam- leg áreynsla afar mismunandi hjá fólki. Maður sem vinnur erfiðis- vinnu grennist miklu hraðar en skrifstofumaður á sama megrun- arfæði. Það sem hér hefur verið sagt að framan gilti um meðalmanninn og var þá miðað við 2500 he brennslu á dag. Flestar konur brenna aðeins um 200 he og grennast því enn hægar. í alvörumegrunarkúrum er yfir- leitt miðað við að fólk missi eitt til tvö kíló á tveim vikum. Sjálfur hef ég yfirleitt ráðlagt um 1 kíló á viku fyrir þá óþreyjufullu, þ.e. þorrann. Málsbætur En þessi megrunarkúr á sér margar málsbætur sem gera það að verkum að ég vil kalla hann töfrakúr sem virkar. Virðast margir hafa náð nokkrum árangri með því að nota hann. En það að megrunarkúr virkar er ekki trygging fyrir því að hann „Scarsdale-kúrinn er ekki dæmigerður töfra- kúr. Hann er að vísu kynntur með fullyrðing- um sem ekki standast. En kúrinn sjálfur virkar að nokkru leyti og hefur án efa hjálpað einhverj- um.“ sé æskilegur. Fæðið sem boðið er upp á verður jafnframt að vera þess eðlis að það fullnægi nær- ingarþörfum. Scarsdale-kúrinn er þess eðlis að það fæði sem er boðið upp á er að ýmsu leyti gott. Meira hefði þurft að gera af því að staðfæra það, en það er ekki aðalatriði. f rauninni er kúrinn það góður að maður furðar sig á því að höf- undur hans skuli hafa tekið þann kost að selja hann á fölskum for- sendum, eða a.m.k. skýringarlaust. Til þess geta legið margar ástæður. Líklegust er sú að Tarn- ower (hann er ekki doktor, þ.e. ekki með PhD) er læknir og lækn- ar læra yfirleitt lítið í næringar- fræðum. Það er því sennilegast að höf- undurinn hafi ekki verið vísvitandi að blekkja neinn, heldur hafi hann hreinlega ekki gert sér grein fyrir því hvers kyns var. Það breytir þó engu um það að maðurinn hefur augsýnilega mikla reynslu í að grenna fólk og mörg af þeim ráðum sem hann gefur eru góð og gild, sum raunar mjög þörf. Lokaorð Fólk sem fer í megrun hefur í mörgum tilvikum reynt kúra sem hafa mistekist. Því er mikilvægt að þegar boðið er upp á nýjan kúr að spilin séu lögð á borðið og fólk upplýst um eðli hans. Slíkt hefur ekki verið gert. Kúrnum er skipt í tveggja vikna tímabil. f tvær vikur grennast menn hratt. Næstu tvær vikurnar er fólk á fæði sem á að tryggja að það standi í stað. Ekki er útskýrt að á þessu seinna tímabili er verið „að greiða bakreikninginn", þ.e. að vinna upp vökvatap og þá væntanlega að tapa a.m.k. eins miklu af fituvef sem því samsvarar. Þessi aðferð er út af fyrir sig ekki svo slæm, þ.e. að skipta megr- uninni upp í tímabil. En þegar maður áttar sig á tilganginum fer maðurað hugsa sig um tvisvar. En sem sé — eins og áður var sagt — þá er það fæði sem boðið er upp á og mörg af þeim ráðum sem gefin eru gagnleg og góð. Þessi bók er því ágæt til eignar. Mestu skipt- ir að menn viti hvers kyns þessi kúr er og taki svo ákvörðun. Jón Óttar Kagnarsson er doktor í matræla- og næringarefnafrædi og stjórnar fæðurannsóknardeild Rannsóknarstofnunar landbúnaó- arins og er dósent rið Háskóla ís- lands í matrælafræði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.