Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 17 fimmfalt hærra í Danmörku en í Portúgal.“ Hvernig eyðir þú þínum eigin fríum? „Til hvíldar, fróðleiks og skemmtunar en fyrst og fremst til líkamsræktar og heilsubótar. Lækningamáttur sólarinnar er óviðjafnanlegur. Góð heilsa er gulli betri, en mína góðu heilsu þakka ég fyrst og fremst heil- brigðum lifnaðarháttum, sólböð- um og líkamsrækt. Nú ætla ég að kynna öllum sól- arlandaförum okkar líkamsrækt í sumarleyfinu og bjóða þeim 6 ókeypis sólbaðsstundir í nýrri heilsuræktarstöð í Reykjavík, áð- ur en ferðin hefst, til undirbún- ings. En þeir þurfa ekki að nota sólbaðslampa í Útsýnarferðum, þar er sólskinið, sem allir sækjast eftir, öruggt og innifalið." Hvaða sólarlönd eru nú vinsæl- ust? „Costa del Sol á Spáni er enn sem fyrr langeftirsóttasti staður- inn, enda eru margar ferðir þang- að uppseldar eða að seljast upp. Þar á eftir kemur Portúgal, eina nýjungin í sólarlandaferðum í ár. Þar eru hreinustu og fegurstu strendur Evrópu og flestar sól- skinsstundir yfir sumarmánuð- ina. Portúgal er geysivinsælt og aðbúnaður frábær, en auk þess hefur það verðlagið með sér, því að það er talið ódýrasta land Evr- ópu í dag. Mallorca er sívinsæl, og þar hefur Útsýn tryggt farþeg- um sínum mjög eftirsótta gisti- staði í Palma Nova og Magaluf. Það er þar, sem fólkið skemmtir sér. Þó mætti segja mér, að þeir farþegar, sem halda upp á 10 ára afmæli Útsýnar í Lignano á ít- alíu í sumar verði í hópi hinna ánægðustu. Ástæðan er m.a. sú, að þar verður tekið á móti far- þegunum með kostum og kynjum í tilefni afmælisins," sagði Ingólf- ur að lokum. Franskir geðlæknar: Vilja athuga misbeitingu geðlækninga (>enf, 25. aprfl. AP. HÓPIJK vestrænna sálfræðinga hefur lýst yfir stuðningi sínum við þá ákvörð- un nokkurra franskra kollega sinna að fara til Sovétrfkjanna og kanna hvað hæft sé í fréttum um að andófsmönnum sé haldið á geðveikrahælum. Á fundi samtaka, sem fjalla um pólitíska misbeitingu geðlækninga, í Genf var því fagnað, að Aspec, félag franskra geðlækna, hefur ákveðið að senda nefnd til Sovétríkjanna og kanna málin af eigin raun en hins vegar var talið ólíklegt, að sovésk stjórnvöld heimiluðu slíka ferð. í yfirlýsingu frá fundinum sagði, að eftir að Sovétmenn sögðu sig úr alþjóðasamtökum geðlækna sé hætta á að geðlæknar á Vesturlöndum láti sig minna varða það, sem fram fer í þessum málum í Sovétríkjunum auk þess sem sovéskir geðlæknar ein- angrist æ meir frá kollegum sínum fyrir vestan. Sagt var, að vitað væri um „500 manns, sem settir hefðu ver- ið á geðveikrahæli vegna stjórnmála- skoðana" en raunveruleg tala næmi þúsundum. Nemendur Víghólaskóla mótmæla EINS OG komið hefur fram í fréttum Morgunblaðsins hafa verið uppi hugmynd- ir um að skólahúsnæði Víghólaskóla í Kópavogi yrði notað sem húsnæði fyrir Menntaskólann í Kópavogi næsta haust. Þessu hafa nemendur Víghólaskóla mótmælt og vilja að húsnæðisvandi menntaskólans verði leystur með öðr- um hætti en að þeirra skóli verði tekinn í þágu menntaskólans. Um daginn stöðvuðu þau umferð um Reykjanes- braut til þess að leggja áherzlu á mál- stað sinn og síðastliðinn þriðjudag fóru nemendur Víghólaskóla í kröfugöngu og gengu þá m.a. frá skólanum að skrifstofum Kópavogskaupstaðar. Myndin er tekin af göngumönnum, en ekki viðraði sem bezt á meðan á mót- mælunum stóð. MorgunblaAid/ KEE RENAULT BÍLL FRAMTÍÐARINNAR Renault 9 var valinn bíll ársins 1982 í Evrópu og bíll ársins 1983 í U.S.A. Við ættum að geta treyst fulltrúum 52 bíla- blaða til að velja rétt. Besta trygging sem þú getur fengið fyrir vali góðs bíls- og hagkvæmri fjárfestingu á tímum sparnaðar. Renault 9 er ódýr „stór bíll“ sem eyðir ótrúlega litlu. Það þarf ekki að hugsa það mál lengi til að finna svarið. . . Renault 9 er bíllinn fyrir þig. Gerð Vél Eyðsla Verð R9TC 48 din 5,41 210.000 R9GTL 60 din 5,41 231.000 R9GTS 72 din 5,41 248.000 R 9 Autom. 68 din 6,31 239.800 Gengi í apríl '83 i b! ipiðíl k •< l/C ÍUI ill kl.2 Q) HAGKAUP Skeifunni15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.