Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 45 VELVAK ANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS íríinVtfín'ttitor^ hirða allt það merkilegasta eða eyðileggja. Auðvitað áttu strangar reglur um komu út- lendinga til landsins að vera löngu komnar, en betra er seint en aldrei og mætti setja þær fyrir sumarið. Minar tillögur um reglur eru þessar: 1. Enginn erlendur aðili má koma til landsins nema á vegum íslenzks aðila, t.d. ferðaskrifstofu, þess opin- bera, félaga eða einstakl- inga. 2. Enginn erlendur aðili má koma með eða flytja inn vélknúið ökutæki, sem hefur drif á fleiri en einni „hás- ingu“, eða sem samsvarar því. 3. Enginn erlendur aðili má koma með eða flytja inn vélknúið ökutæki, sem sann- anlega getur tekið fleiri en 12 farþega. 4. Enginn erlendur aðili má koma með eða flytja inn vélknúið ökutæki, sem talist gæti til torfærutækja. Gaman væri að heyra í fleir- um um þessi mál.“ Gráskinna 1962, Gríma 1964, Rauðskinna 1971, sögur ólafs Davíðssonar, og núna seinast sög- ur Sigfúsar Sigfússonar. En safn Sigfúsar er stærsta þjóðsagnasafn sem til er á íslensku. Ásamt þessu hefur Hafsteinn ráðist í endurprentun á árbókum fornleifafélagsins. Það rit hóf út- komu 1880, og voru flestir árgang- ar þess löngu uppseldir. Hafði ljósprentun bókarinnar verið lengi á döfinni, en ekki komist i verk sökum mikils kostnaðar. Hafsteinn hefur hér farið inná svipaða braut og sá ágæti Emil Thomsen í Færeyjum. Emil hefur látið ljósprenta flest af öndvegis- verkum gömlu færeysku rithöf- undanna. Einnig blöð og tímarit, sem voru vopn í færeyskri sjálf- stæðisbaráttu um sl. aldamót. Er þetta þeim mun nauðsynlegra, þar sem færeyskur bókakostur er mun rýrari en sá íslenski, enda fær- eyska mjög ungt ritmál. Danska var lengst af lögskipuð í skólum og embættisrekstri. En alþýða eyj- anna varðveitti málið í fornkvæð- um og þjóðsögum. Þó þjóðsöguútgáfa Hafsteins sé vel úr garði gerð að ytra útliti, skortir nokkuð á fræðilegan frá- gang þeirra, einkum minni sagna- safnanna. Nefni ég t.d. Rauð- skinnu. í III bindi hennar er Suð- urnesjannáll sr. Sigurðar Br. Sí- vertsen prentaður. Þar hefði ég kosið vandaðari frágang. Nokkuð skortir á nákvæmni í texta, og sums staðar þarf að samræma rit- hátt danskra mannanafna, sem annars geta valdið misskilingi. Einnig hefði ég kosið að ýtarleg greinargerð hefði fylgt um höf- undinn og verk hans, ásamt lýs- ingum á handritum þeim, sem varðveitt eru af Suðurnesjaannál, og að getið sé frávika frá texta þeim sem notaður er í prentuðu útgáfunni. Að vísu er stutt ævi- ágrip Sigurðar aftarlega í annáln- um, en hægt er að gera það mun fyllra, enda heimildir nægar um þennan merka framkvæmdamann. Ártöl hefði og mátt setja efst á síður annálsins til hægðarauka við uppflettingu. Vonandi verður úr þessu bætt í þriðju útgáfu Rauð- skinnu. En þrátt fyrir smáhnökra á sagnasöfnunum er útgáfa þeirra merkilegt framlag til íslenskra þjóðfræða, og ein besta vörn til varðveislu íslensks þjóðernis á þeim tímum, sem þjóðlíf flestra landa fær á sig æ alþjóðlegri blæ vegna aukinna samskipta og tækniframfara." Duran Duran á listahátíð: Tónleikasalir hér mundu trodfyllast K.H: skrifar: „Kæri Velvakandi. Ég las hérna í dálkunum þínum að beðið var um hljómsveitina Duran Duran á listahátíð. Ég vildi ítreka þá ósk til yfirmanna hátíð- arinnar með þessu bréfi. Duran Duran er liðlega 5 ára gömul hljómsveit og er gífurlega vinsæl í heimalandi sínu, Bret- landi, og einnig víðar. Það má sjá á því til dæmis að nýja lagið þeirra, „Is There Something I Should Know“, þaut beint í fyrsta sæti breska vinsældalistans (og siglir hraðbyri upp aðra). Breið- skífa þeirra RIO var vel og lengi föst í efsta sæti vinsældalistans og var kosin besta breiðskífa ársins í Bretlandi. Á síðasta ári var hljómsveitin valin sú besta í Bretlandi og Sim- on LeBon, söngvari hljómsveitar- innar, valinn myndarlegasti söngvarinn. Duran Duran er með nýrómantíkina í lögum sínum og eru þau afbragðsgóð. Aðdáendur Duran Duran eru fjölmargir hér á landi sem annars >5 J > ~ - -S! Ihiran Duran staðar. Duran Duran er vinsæl- asta hljómsveit í heimi og tón- leikasalir hér myndu troðfyllast ef til kæmi. Vonandi láta fleiri í sér heyra um þetta, sem ég efast ekki um, því að Duran Duran er æðis- lega frábærlega góð hljómsveit. Með von um birtingu." Ein vinsælasta hljóm- sveit í heiminum Ó.Þ. skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig langar til að koma því á framfæri við umsjónarmenn lista- hátíðar í ár að fá hljómsveitina Duran Duran hingað til landsins á hátíðina. Duran Duran er ein vinsælasta hljómsveit í heiminum um þessar mundir og á hún allar þær vinsældir skilið fyrir góð lög og frábæra sviðsframkomu og myndbönd. Vonandi taka listahátíðarmenn þetta til athugunar, því ég veit um fjölmarga aðdáendur hér á landi sem annars staðar. Næstum allar plötur Duran Duran, breiðskífur sem smáskífur, hafa þotið upp alla vinsældarlista og verið þar lengi. Sem dæmi mætti taka RIO sem er í 6. sæti bandaríska vinsældalist- ans eftir að næstum ár er liðið frá útkomu plötunnar og lag af henni, Hungry like the Wolf, er í 6. sæti í Bandaríkjunum. Þeir sem taka ekki mark á bandarískum lista geta litið á breska listann, en þar er hlóm- sveitin á topp 10. Duran Duran hefur notað nýrómantíkina sem stökkpall og á henni hafa þeir orð- ið stórstjörnur. Með fyrirfram þökk.“ Margir hafa skrifað eða hringt og verið sama sinnis og Duran Duran-aðdáendurnir Ó.Þ. og K.H., svo sem Svava S., Siddý og Lína, E.M.M., 9734-4639 og 3501-9484, S.H., Vippi, Sigurður Ben., Kata, E.K.P. og A.A., Lilja, o.fl. o.fl., en þar sem erindinu hafa nú verið gerð nokkuð rækileg skil í dálkum Velvakanda, verða sýnishornin tvö að nægja að sinni. Hef aldrei get- að trúað því Á.Þ.Ó. (0674-4826) skrifar: „Velvakandi. Ég hefi aldrei getað trúað því, að alla visku og allan manndóm væri að finna í einum stjórnmála- flokki, en aðeins fávísi og vesal- dóm í öðrum.“ Svo ritar Duff Cooper í „Old Men Forget“. Cooper var breskur stjórnmálamaður og ráðherra á tímabili." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Fólkið á bænum skammaði hvert annað. Rétt væri: Fólkið ... skammaði hvað annaö. SlGeA V/öGA í EG HElMTfl RÐ PU HUNDSKflMMlR HRNfl,6VEN0URÍ HÚN KRLLR9I MIG JÖLflSVEIN, ÍSTRU6EL6, NflNÖS,PRÆLfl-J PÍSKflRR, VISKÝVÖMB 06 EINHVERN ÓFRÝNILEÖRSTfl SKflRFINN fl NORÐURHVELI JflRÐflRÍ FINNSKmm FINNSK a 3Q4 VIKA llr VORUKYNNIHC FINNSK gæðavara í sérflokki. Ef vanda á vöruna smíðum við eingöngu úr úrvals smíðafuru frá Finnlandi. Veggklæðning (panill) úr þurrkaðri smíðafuru ávallt fyrirliggjandi. Gluggar úr góðri smíðafuru og margt, margt fleira. Pantið í tíma. Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244. Alltaf á fóstudögum „I SKOLANUM, I SKÓLANUM ... Litið inn á vinnuvikur í tveimur skólum í Kópavogi og rætt við nemendur og kennara. Tvenns konar kvillar Þriðji þátturinn í greinaflokknum um ófrjósemi. „ÞÉR HEFUR BARA ALVEG TEKIST AÐ MÁLA SÁLINA í MÉR“ Ágúst Petersen og portrettmyndasýning hans í Listmunahúsinu. Föstndagsblaðið ergott forskot á helgina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.