Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 47

Morgunblaðið - 28.04.1983, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983 47 • Atli fagnar sigurmarki Fortuna DUsseldorf á móti Borussia Dortmund á útivelli. En Atli sem skoraöi markid lék meö B-Dortmund áður en hann fór til Fortuna DUsseldorf. Atli verður áfram hjá Fortuna Dússeldorf: Skrifar undir tveggja ára samning í dag ATLI Eðvaldsson skrifar í dag undir tveggja ára samning við Fortuna Diisseldorf. Atli hefur veriö hjá félaginu síðastliðin tvö keppnistímabil og endurnýjar nú samning sinn við fé- lagið. Atli gekk frá öllum smáatriöum við samning sinn í gærkvöldi og í dag verður boðað til blaöamannafundar á knattspyrnuvelli félagsins og þar mun Atli undirrita samn- ing sinn. Atli sagöi í gærkvöldi aö samningur sá sem hann undirrit- aöi væri mjög góöur. Hann hefði náö fram ýmsum kröfum sem hann heföi lagt fram og væri hann ánægöur meö þaö. Þá sagöi Atli að þaö væri viss kostur aö þurfa ekki aö breyta til. Hann væri búinn aö vera tvö ár hjá fé- laginu og væri nú kominn vel inn í alla starfsemi þess svo og leik liösins, en slíkt tæki oft langan tíma. „Fjölskyldunni hefur liöið vel hér og viö höfum kunnaö ein- staklega vel viö okkur, enda er Dússeldorf ein af fallegustu borgum í V-Þýskalandi. Þaö er því gott til þess aö vita aö viö veröum hér áfram og aö búiö er aö ganga frá þessum málum," sagöi Atli. Aö sögn Atla voru félög frá Frakklandi og Spáni búin aö vera meö fyrirspurnir og góö tilboö voru komin frá Frakklandi. En Fortuna Dússeldorf vildi ekki sleppa markaskorara sínum og geröi Atla þaö gott tilboö aö hann ákvað aö vera áfram hjá félaginu. Atli hefur staöiö sig mjög vel í vetur meö liöi sínu og er nú einn af markahæstu leikmönnum í 1. deild. Þaö sem af er keppnistímabilinu er Atli búinn aö skora 12 mörk og þau hefur hann skorað í 11 leikjum. Atli er í níunda sæti á markalistanum í ár ásamt tveimur öörum leik- mönnum. Á laugardag leikur liö Atla vlö Werder Bremen sem er eitt af sterkustu liöunum í deildinni og á mikla möguleika á aö hreppa V-Þýskalandsmeistaratitilinn í ár. Alti sagði aö þetta yröi mjög erf- iöur leikur og þeir yröu aö taka á honum stóra sínum ef stig ætti aó nást út úr leiknum, jafnvel þó á heimavelli væri. — þr. ArmaHex Armstrong Orðsending frá Þ. Þorgrímssyni & Co. til þeirra, sem hafa fengið boösbréf á kynningarfundinn á Armstrong Armaflex-pípueinangrun í fundar- sal í lönaöarmannahúsinu viö Hallveigarstíg. Muniö aö kynningar- fundurinn er í dag klukkan 5. ÞÞ Þ. ÞORGRÍMSSON & CO 'Armúla 16 sími 38640 Hittu naglann á höfuðið með handverkfær- um frá okkur. Við bjóðum úrval afhandverk- færum, rafmagnsverkfærum, málningarvör- um, lími, þéttiefnum, lökkum, skrúfum, boltum, róm, lyklaefni, penslum, lásum, læsingum, og fl. fl. Okkar verð er þér hagstætt. Komdu í heimsókn. OPIÐ í HÁDEGINU OG Á LAUGARDÖGUM TIL HÁDEGIS PPBUÐIN VW HÖFMNA É' Sjálfsbjargar I félagar Sjálfsbjörg, landssamband fatlaöra og MFA (menn- ingar og fræöslusamband alþýöu) hafa ákveðið aö gangast fyrir tveimur helgarnámskeiöum fyrir fatlaöa. Fyrra námskeiöiö veröur haldiö á Akureyri, í Bjargi, dagana 7. og 8. maí, en síöara námskeiöiö verður í Sjálfsbjargarhúsinu í Reykjavík dagana 14. og 15. maí. Námskeiöin hefjast kl. 9.00 f.h. Dagskrá þeirra veröur: Laugardagur: 1. Helstu réttindi launafólks: a) í veikinda- og slysatilfellum b) í uppsagnartilfellum c) Til orlofs d) Samkvæmt vinnulöggjöfinni e) Til atvinnuleysistrygginga 2. Hlutverk trúnaöarmanna á vinnustöðum 3. Lög um almannatryggingar. Sunnudagur: 1. Lífeyrissjóöir og hlutverk þeirra 2. Lög um málefni fatlaöra Námskeiðum lýkur fyrir kvöldmat á sunnudagskvöld. Æskilegt er aö þátttakendur veröi frá sem flestum Sjálfsbjargarfélögum. Þátttaka vegna helgarnámskeiösins á Akureyri til- kynnist til skrifstofu Sjálfsbjargar félags fatlaöra á Akureyri fyrir 4. maí, en vegna námskeiösins í Reykjavík til skrifstofu landssambandsins fyrir 11. maí. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.