Morgunblaðið - 28.04.1983, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1983
Textílhönnuður
ársins 1982 kom
frá Tampella
— nýir vindar leika um starfsemi fyrirtækisins
„PAÐ var okkur mikil viðurkenning
í fyrra þegar hönnuður ársins var
útnefndur í textfliðnaðinum í Finn-
landi, að þau verðlaun skyldu falla
okkar fremsta hönnuöi í skaut. Sam-
keppnin á þessu sviði er geysileg
hérna í Finnlandi, en þessi útnefn-
ing undirstrikar, að Tampella lætur
sinn hlut hvergi í samkeppninni,"
sagði Outi Löfgren, svæðissölustjóri
hjá Tampella-fyrirtækinu í Tampere,
er blm. var þar á ferð.
Það er sama sagan með Tamp-
ella og önnur finnsk risafyrirtæki,
framleiðslan er ekki bundin við
eitt svið. Hjá Tampella byggist
reksturinn að langstærstum hluta
upp á skógar- og stáliðnaði og til
samans er 86% heildarveltu fyrir-
tækisins að finna í þessum tveim-
ur þáttum. Sá þáttur sem að ís-
Nýja línan keraur vel fram á þessari
mynd. Smáa mynstrið f stólsetunni
brýtur upp stórgerða mynstrið í
gluggatjöldunum að baki.
landi einum snýr, textíliðn-
aðurinn, er ekki nema 7% af veltu
fyrirtækisins (tölur miðaðar við
árið 1981). Alls var heildarveltan
rúmir 2,7 milljarðar marka 1981,
eða sem svarar um 11 milljörðum
ísl. króna. Um 7.600 manns vinna
hjá fyrirtækinu, þar af 860 í text-
íliðnaði einvörðungu.
Tampella er orðið býsna gamalt
fyrirtæki, stofnsett árið 1856.
Starfsemi fyrirtækisins hefur með
tímanum dreifst að meira eða
minna leyti um allt landið, en höf-
uðstöðvar textíliðnaðarins hafa
alla tíð verið í Tampere. Sú borg
hefur enda iðulega verið nefnd
Manchester Finnlands sökum hins
öfluga iðnaðar í borginni og þá
einkum á sviði vefnaðar.
Að sögn Löfgren var velta
textíldeildar fyrirtækisins tæpar
160 milljónir marka árið 1981 og
þar af nam útflutningurinn 45
milljónum marka. Útflutningur-
inn til íslands er um 5% af heild-
arútflutningi textíldeildarinnar
og því býsna stór hluti.
„Finnar eru að ég held í eðli
sínu litaglatt fólk,“ sagði Löfgren.
„Sennilega stafar það af hinum
miklu og snöggu árstíðaskiptum.
Veturinn er langur hiá okkur, rétt
eins og hjá ykkur á Islandi, og ég
held það sé einkum þá, sem öll
björtu litamynstrin fæðast hjá
hönnuðunum."
Að sögn Löfgren leggur Tamp-
ella mikið upp úr heildarmyndinni
á heimilinu og framleiðir því allar
tegundir áklæða og gluggatjalda.
Þá sagði Löfgren það ennfremur
staðreynd, að Tampella væri held-
ur dýrara vörumerki en almennt
gerðist á þessu sviði, en engu að
síður hefði fyrirtækið haldið sinni
markaðshlutdeild og vel það og
það sýndi e.t.v. öðru betur að fólk
kynni að meta vörur þess.
Óhætt er að segja að nýir vindar
blási hjá Tampella nú og það í
tvennum skilningi. Ekki aðeins
hefur fyrirtækið komið fram með
splunkunýja vorlínu, heldur hefur
mikil tæknivæðing átt sér stað á
undanförnum tveimur árum og
nýjar og fullkomnari vélar leyst
eldri af hólmi.
Það er því vel við hæfi, að nýja
línan hjá Tampella ber einfaldlega
nafnið Nýir vindar. Heiðurinn af
henni á að stærstum hluta til
Anneli Airikka-Lammi, en hún
hlaut verðlaunin „besti textíl-
hönnuður Finnlands" í fyrra.
Mynstrin eru nokkuð stórgerð, en
brotin upp með minni og þá um
leið nettari myndum.
„Ég á þess von, að þessi nýja
lína frá Tampella eigi eftir að
falla fólki mjög vel í geð. Hún er
óneitanlega dálítið öðruvísi en við
höfum verið með til þessa, en
breytingin er þó ekki of róttæk til
þess að fólk snúi alfarið við henni
bakinu. Það er mikil list að finna
réttu litina og formin í textíliðn-
aði, en við fylgjumst vel með öll-
um hreyfingum í kringum okkur
og því er ekki flanað að neinu. Við
erum með þrjá fastráðna hönnuði
hjá okkur, auk lausráðinna af og
til, og þetta er fólk sem við treyst-
um fyllilega til þess að halda
merki fyrirtækisins á lofti," sr.gði
Löfgren.
Séð yfir verksmiðju finnsku áfengiseinkasölunnar, Alko, ( Rajamáki.
ísland er vissulega
mikilvægur markaður
— segja forstöðumenn áfengiseinkasölu Finna, Oy Alko Ab
„ísland er vissulega mjög mikilvægur markaður fyrir okkur,“ sagði Harri
Fagerlund, forstjóri útflutningsdeildar áfengiseinkasölunnar í Finnlandi, Oy
Alko Ab, þegar blm. hitti hann að máli og ræddi við hann um áfengisframl-
eiðslu Finna. Fagerlund sagðist reyndar aldrei hafa litið á útflutning Oy Alko
Ab til einstakra landa með höfðatöluna okkar vinsælu í huga, en í fljótu
bragi kæmi það honum ekki á óvart þótt íslendingar keyptu allra þjóða mest
áfengi af Finnum, væri sú reikningsaðferð notuð.
Þótt vissulega kaupi Islendingar
mest af vodka frá Finnlandi er
það hreint ekki einasta áfengið,
sem þeir framleiða. Að sögn Fag-
erlund og Asko Haarinen, upplýs-
ingafulltrúa fyrirtækisins, fram-
leiðir það um og yfir 100 mismun-
andi tegundir sterkra vína og
líkjöra, auk þess sem það kaupir
inn léttvín í tönkum og átappar í
Finnlandi.
í ár stefnir allt í að talsverð
aukning verði á áfengisútflutningi
Finna til íslands, um eða yfir
100.000 lítrar alls. 1 fyrra og árið
þar á undan var salan um 80.000
lítrar, en þó ekkert í líkingu við
metsöluárið 1978. Þá keyptu ís-
lendingar 314.000 lítra áfengis frá
Finnlandi. Meginhluti þess magns
var drykkurinn Twenty-one, sem
var þá að koma á markað.
Vodka-hefðin í Finnlandi á sér
langa sögu. I aldaraðir áður en
fyrsta verksmiðjan var sett á
laggirnar í Rajamáki 1888 höfðu
Finnar gert sitt eigið vodka til
heimabrúks. Oy Alko Ab var
stofnsett árið 1932 í kjölfar 13 ára
banntímabils og hefur á sínum
snærum þrjár stórar verksmiðjur.
Auk þess eru fimm verksmiðjur í
einkaeign í landinu en undir eftir-
liti Oy Alko Ab.
Sjálfir neyta Finnar um 100
milljóna lítra áfengis á ári.Aðeins
tíundi hluti þess magns er inn-
fluttur, hitt er allt framleitt á
heimaslóðum. Um þriðjungur
magnsins er sterk vín, en meðal-
sterkur bjór fylgir fast á eftir.
Árlega neytir hver finnskur þegn
sem svarar 6,4 lítra hreins áfeng-
is. Við íslendingar erum talsvert á
eftir þeim í þessum efnum með um
4 lítra á hvert mannsbarn á ári
(tölur miðaðar við 1979).
Þrátt fyrir langa hefð hófst út-
flutningur á finnsku áfengi ekki
fyrr en 1965 þegar fyrsti farmur-
inn af Koskenkorva-vodka var
seldur til Svíþjóðar. Allt frá þeim
tíma hafa Svíar verið stærstu
kaupendur finnsks vodka og
keyptu í fyrra 2,2 milljónir lítra.
Finnlandia heitir þó líkast til sú
vodkategund Finnanna, sem ís-
lendingar þekkja best, þó svo
Koskenkorva hafi verið flutt til
landsins á undan. Þrátt fyrir
mannfæðina eru íslendingar í 8.
sæti yfir stærstu kaupendur
finnsks áfengis og þá er miðað við
magn, ekki höfðatölu. Vodka hefur
lengstum verið uppistaðan.
í ársskýrslu Oy Alko Ab fyrir
síðasta ár kemur fram, að Svíar
keyptu 2,7 milljónir lítra áfengis
af Finnum, Rússar 1,4 millj. lítra,
Bandaríkjamenn rúmlega 1,1
millj. lítra og Norðmenn 850.000
lítra. Útflutningurinn hefur auk-
ist hægt og sígandi síðustu ár.
Verksmiðjur Oy Alko Ab eru
allar mjög tæknilega fullkomnar
ERTU í NAUÐUM STADDUR
Á EIGIN SKRIFSTOFU ?
Þú þarft ekki að standa ein(n) og
óstudd(ur) í bréfaskiftum, launaupp-
gjöTÍ eða við gerð reikninga um hver
mánaðamót.
LIÐSAUKI hefur á að skipa þjálfuðu
fólki, sem þú getur fengið þér til
aðstoðar um lengri eða skemmri tíma.
Sérgrein okkar er afleysinga- og
ráðningarþjónusta, ásamt þjónustu við
þá sem vilja og þurfa að styrkja lið sitt
við sérstakar aðstæður.
Hringdu og kynntu þér þjónustuna.
AFLEVSMGA-OG RAÐNMGARÞJÓNUSTA
Lidsauki hf.
Hverfisgötu 16 Á, sími 13535. Opiö kl. 9—15.